Morgunblaðið - 08.10.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.10.2014, Blaðsíða 15
beint úr kjötvinnslunni og að boðið verði upp á heimsendingu. Verða vörulistar kynntir næstu daga. Áfram verður slátrað um 45 sauðfjárgripum á sólarhring en að- eins þrisvar í viku. Þannig verður kjötinu leyft að hanga lengur en í stóru sláturhúsunum og stuðlar það að meyrnun kjötsins. Aðbúnaður dýranna á líka að vera betri í Seglbúðum en í hefð- bundnum sláturhúsum. Akstur með þau er minni og álagið á þau þar af leiðandi minna. Þá sé einnig minni hávaði í smærri sláturhúsum en stórum. Mikill áhugi er á nýja slátur- húsinu og hafa fjölmargar fyrir- spurnir borist um framleiðsluna. Nær sjö hundruð hafa skráð sig vini fyrirtækisins á Fecebook eru þeir ekki bara frá Íslandi heldur frá fimmtán löndum. Ljósmyndir/Seglbúðir Varan Áhersla er á að framleiða hágæða vöru með sjálfbærni náttúrunnar og velferð dýranna að leiðarljósi. Innandyra Allur nauðsynlegur búnaður er til staðar í sláturhúsinu. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014 Fagleg þjónusta í 60 ár Kringlan 4-12 • Sími 533 4533 www.facebook.com/HYGEA Glæsilegur kaupauki fyrir þig ef þú kaupir vörur frá Estée Lauder fyrir 6.900.- eða meira í Hygea. Síðasti dagurinn í dag miðvikudag. dagar í Hygeu Kringlunni Starfsmenn verktakafyrirtækis- ins Ístaks vinna þessi misserin að breikkun vegarins yfir Hellis- heiði og um Kambana. Fram- kvæmdum á að ljúka eftir rúmt ár, en undir er að breikka veginn á 14,8 km kafla, það er frá Hveradalabrekkum að hring- torgi við Hveragerði. Vegurinn verður að framkvæmdum lokn- um 2+1 yfir heiðina 2+2 í Kömb- unum, það er fjórar akreinar. Verður með aðskildum aksturs- reinum alla leið, með vegriði í miðju. Innifalin er bygging fernra undirganga og stokks yfir lagnir Orkuveitu Reykjavíkur sem eru víða á þessum slóðum. Þetta er eitt stærsta verkefni í vegagerð á landinu sem unnið er að um þessar mundir. Á Hellis- heiðinni er fjöldi vinnuvéla og fjölmennur vinnuflokkur frá Ís- taki, sem tekur 1,3 milljarða fyr- ir pakkann allan. Samkvæmt tölum frá Vega- gerðinni fara 6.310 bílar á dag yfir Hellisheiðina. Er það svo- kölluð ársdagsumferð. Hún hef- ur aukist að undanförnu og nálg- ast nú að vera svipuð og 2007. Ölfusið þarf að bíða Þegar gróskutíð í efnahagslíf- inu var sem mest var til umræðu að fara í vegagerð þessa með fjármögnun einkafyrirtækja. Af því varð ekki. Þó var þrýst á af Sunnlendingum, sem lengi hafa óskað eftir breiðari vegi, enda er þessi leið lífæð þeirra. Tals- verður áfangi þykir hafa náðst með yfirstandandi fram- kvæmdum. Þó er bent á að einna flest umferðarslys á leiðinni milli Selfoss og Reykjavíkur hafi orðið í Ölfusi, austan við Hveragerði, en nokkuð er í að vegabætur þar komist til framkvæmda. sbs@mbl.is Framkvæmdir á leiðinni austur fyrir fjall Ístak breikkar Hellis- heiði og Kambana Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hellisheiði Vegna framkvæmda þarf á nokkrum stöðum að fara um hjáleiðir og þá gildir að slá af hraða og fara að öllu með gát. Hornafirði og fyrir norðan. Staðan fyrir næstu mánuði er góð, en eftir sumarið 2013 þegar uppskeran brást þurfti að flytja inn mikið af kartöflum til vinnslunnar.“ Afurðaverðið þarf að hækka Þegar verksmiðjunni sleppir er allur gangur á því hvernig bændur haga sínum sölumálum. Margir leggja afurðirnar beint inn hjá Sölu- félagi garðyrkjumanna en aðrir selja uppskeru sína beint til verslana eða annarra eftir atvikum. „Skila- verð til bænda er í dag 80-90 kr. að meðaltali. Það er á líku róli og mjólkurbændur fá frá afurðastöðv- um fyrir hvern lítra af innlagðri mjólk, en þar bætast við bein- greiðslur frá ríkinu. Með því er lítr- inn að skila um 120 kr. og ef við fengjum svipað fyrir hvert kart- öflukíló væri þetta allt í góðum mál- um,“ segir Sigurbjartur í Skarði. Vélavinna Á haustin leggjast allir á eitt við að ná afurðunum úr akri eftir góða sumarsprettuna. Sláturhús í endurnýjun lífdaga FERÐAÞJÓNUSTA Á KIRKJUBÆJARKLAUSTRI Eins dauði er annars brauð. Þeg- ar ekki voru lengur not fyrir hús- næði gamla sláturhússins og tengdar byggingar á Kirkju- bæjarklaustri tók framtakssamt fólk sig saman um að nýta það fyrir ferðaþjónustu. Er þar nú rekið gistihús, kaffistofa og fleira. Víðar á landinu hafa af- lögð sláturhús fengið nýtt hlut- verk, svo sem til fiskvinnslu. VITINN 2014 Undir yfirskriftinni Vitinn 2014 verður í hringferðinni leitað að áhugaverðum vaxtarbroddum í atvinnu­ lífinu um land allt. Lesendur eru hvattir til að senda blaðinu ábendingar á netfangið vitinn@mbl.is.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.