Morgunblaðið - 08.10.2014, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 7990.- m2
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
16
16
L
DRACULA UNTOLD Sýnd kl. 8 - 10
EQUALIZER Sýnd kl. 6 - 9
TOMBSTONES Sýnd kl. 5:40 - 8 - 10:20
SMÁHEIMAR 2D Sýnd kl. 5:40
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND UM
EINKASPÆJARA SEM FLÆKIST INN Í
HEIM EITURLYFJASALA
LIAM NEESON
ÓLAFUR DARRI ÓLAFSSON
MARGUR ER
KNÁR
ÞÓTT HANN SÉ
SMÁR...
Hryllingsmyndin vinsæla The Purge sló eftir-
minnilega í gegn með frumlega söguþræði sínum
þar sem stjórnvöld hafa veitt íbúum leyfi til þess að
„hreinsa“ sig einn dag á ári. Með því er átt við að
hver sá sem fengið hefur leyfi stjórnvalda til þess að
gera hvað sem hann vill, þar á meðal fremja morð,
má gera slíkt án afleiðinga. Fyrsta myndin kom út
árið 2013 en önnur myndin, The Purge: Anarchy,
kom út á þessu ári og náði talsverðum vinsældum.
Höfundur og leikstjóri myndanna, James DeMon-
aco, hefur nú staðfest útgáfu þriðju myndarinnar
sem er von á á næsta ári. Vinsældir myndanna
komu DeMonaco vel á óvart og sagðist hann í sam-
tali við Deadline ekki hafa getað ímyndað sér að
The Purge myndi verða að eins stóru fyrirbæri og
raunin er.
Þriðja „hreinsunin“ í bígerð
Óreiða Hlutirnir fara
fljótlega úr böndunum.
Ríkisútvarp Bretlands, BBC, gefur almenningi nú færi
á að senda inn lög fyrir innlegg Bretlands í Eurovision
í Austurríki á næsta ári. Þetta er í fyrsta skipti síðan
2008 sem almenningi gefst kostur á að senda inn lög
en síðastliðin sex ár hefur BBC valið flytjendur og lög-
in í samvinnu við bresk útgáfufyrirtæki. Þá kemur enn
til greina að lagið verði valið af vettvangi upprenn-
andi tónlistarmanna sem BBC heldur úti.
Bretland hefur ekki státað af glæsilegum árangri í
Eurovision á síðustu árum þó margir heimsfrægir tón-
listarmenn hafi tekið þátt og verið fulltrúar landsins í
keppninni. Þar má nefna Bonnie Tyler, Engelbert
Humperdinck og strákabandið Blue, en ekkert þeirra
lenti í efstu tíu sætunum.
Almenningur velur lag Bretlands í ár
Flott Bonnie Tyler var
fulltrúi Bretlands 2013.
Eldklerkurinn,
einleikur um
séra Jón Stein-
grímsson og
Skaftárelda,
snýr aftur í upp-
setningu Mögu-
leikhússins í
Tjarnarbíó dag-
ana 9. og 19.
október. Leik-
ritið var sýnt í Hallgrímskirkju og
Tjarnarbíói síðasta vetur og naut
mikilla vinsælda. Í framhaldinu
ferðaðist Möguleikhúsið með verk-
ið um landið og sýndi víða. Verkið
segir frá Jóni, góðum bónda, lækni
og presti sem þurfti að takast á við
afleiðingar skelfilegustu náttúru-
hamfara Íslandssögunnar á tímum
örbirgðar og undirokunar. Höf-
undur handrits og leikari er Pétur
Eggerz, leikstjóri Sigrún Valbergs-
dóttir, leikmynd gerði Rósa Sigrún
Jónsdóttir, búninga Thelma Björns-
dóttir og hljóðmynd er eftir Guðna
Franzson.
Eldklerkurinn snýr
aftur í Tjarnarbíó
Pétur Eggerz
Bókaúgáfan Hólar gefur út vel á ann-
an tug bóka á þessu ári. Þar ber fyrst
að nefna bókina Biblíumatur eftir
séra Svavar Alfreð Jónsson prest á
Akureyri. „Í henni verður að finna
girnilegar og hollar mataruppskriftir
frá landi mjólkur og hunangs og bera
sumar þeirra forvitnileg heiti eins og
t.d. Spínatsúpa faraós, Baunasalat
Hebreans, Kvöldskattur tollheimtu-
mannsins og Lambakjötsréttur Re-
bekku,“ segir m.a. í tilkynningu frá
útgáfunni.
Sigurður dýralæknir er seinna
bindið af ævisögu Sigurðar Sigurð-
arsonar dýralæknis og er það jafn-
framt afmælisrit hans. Í fyrra
bindinu, sem kom út 2011, sagði Sig-
urður frá æsku sinni og uppvexti til
fullorðinsára og samferðamönnum á
því tímaskeiði ævinnar. „Hér fer
dýralæknirinn enn á kostum þegar
hann segir frá lífshlaupi sínu, allt frá
dýralæknanáminu í Noregi til þessa
dags og dregur fram ógrynni sagna
af skemmtilegu fólki og skemmti-
legum viðburðum þótt vitaskuld hafi
stundum gustað um hann og honum
jafnvel verið hótað lífláti. Kveð-
skapur liggur honum létt á tungu
sem fyrr.“
Klénsmiðurinn á Kjörvogi er ævi-
saga Þorsteins Þorleifssonar (1821-
1882) sem lengst af bjó í Kjörvogi í
Árneshreppi. „Hann lærði járnsmíði
og stundaði þá iðn alla ævi, en sam-
hliða starfaði hann við sjómennsku og
búskap, auk þess að fást við lækn-
ingar og taka á móti börnum. Höf-
undur bókarinnar er Hallgrímur
Gíslason á Akureyri, dótturson-
arsonur Þorsteins.“
Byggðasaga Grafnings
Í ritverkinu Grafningur og Gríms-
nes – Byggðasaga, í samantekt Sig-
urðar Kristins Hermundarsonar, er
fjallað um Grafning, sögu og mannlíf,
á árunum 1890-2012 og Grímsnes að
hluta til, þ.e.a.s. sem tekur einkum til
Sogsvirkjana og Ljósafossskóla.
„Hverri jörð er lýst í knöppu máli og í
ábúendatali er þráðurinn rakinn bæ
frá bæ eftir hinni gömlu boðleið og
grein gerð fyrir ábúendum og niðjum
þeirra. Mikið ítarefni er hluti af verk-
inu, sem lýtur m.a. að staðfræði, at-
vinnuháttum, sögu og sögnum, þjóð-
fræði og þjóðháttum,“ segir í
tilkynningu og á það bent að fjöldi
ljósmynda prýði verkið. „Skáldsagan
Árdagsblik mun vafalítið koma les-
endum á óvart, bæði vegna efnistöku
og sögusviðs. Þar er fjallað um fólk af
ólíkum uppruna sem ákveður að
skapa sér framtíð í nýju landi, af
bjartsýni og dugnaði. Ævintýrablær
og sagnfræði, ástir og átök blandast
hér saman með skemmtilegum hætti.
Höfundurinn Hrönn Jónsdóttir, sjö-
tug að aldri, er búsett á Djúpavogi og
er þetta hennar fyrsta skáldsaga en
áður hafa birst eftir hana ljóð, frá-
sagnir og blaðagreinar.“
Fjallað um ævi Günthers Prien
Von er á fjórða heftinu af Skag-
firskum skemmtisögum eftir Björn
Jóhann Björnsson, blaðamann. Í bók-
inni Hreindýraskyttur eftir Guðna
Einarsson, blaðamann og skotveiði-
mann, segja Axel Kristjánsson,
Gunnar A. Guttormsson, Guttormur
Sigbjarnarson, Sigrún Aðalsteins-
dóttir, Aðalsteinn Aðalsteinsson,
Þorgils Gunnlaugsson, María B.
Gunnarsdóttir, Pálmi Gestsson, Sæ-
unn Marinósdóttir og Sigurður Að-
alsteinsson frá ævintýrum sínum á
hreindýraveiðum á Íslandi og í Græn-
landi. „Auk þess er rakin saga hrein-
dýraveiða hér á landi. Bókin er prýdd
kortum og fjölda mynda.“
Tarfurinn frá Skapaflóa er úr
smiðju Magnúsar Þórs Hafsteins-
sonar og fjallar um ævi þýska kaf-
bátaforingjans Günther Prien sem
fór mikinn í seinni heimsstyrjöldinni.
Ennfremur koma út hjá Hólum
Bestu barnabrandararnir, Spurn-
ingabókin 2014 og Fótboltaspurn-
ingar. Fyrr á árinu komu þessar fjór-
ar bækur út hjá Hólum:
Ljóðstafaleikur sem er hvort tveggja
í senn ljóðaúrval og afmælisrit hag-
yrðingsins Ragnars Inga Aðalsteins-
sonar frá Vaðbrekku, Saga Sveina-
félags skipasmiða 1936-1983 eftir
Þorgrím Gestsson, Hraun í Öxnadal
eftir Bjarna E. Guðleifsson náttúru-
fræðing og Örnefni í Mjóafirði eftir
Vilhjálm Hjálmarsson á Brekku. sil-
ja@mbl.is
Biblíumatur, Sigurður dýra-
læknir og hreindýraskyttur
Bókaúgáfan Hólar gefur út vel á annan tug bóka á þessu
ári Von á fjórða heftinu af Skagfirskum skemmtisögum
Sigurður
Sigurðarson
Magnús Þór
Hafsteinsson
Guðni
Einarsson
Ragnar Ingi
Aðalsteinsson
Svavar Alfreð
Jónsson
Björn Jóhann
Björnsson
Bjarni E.
Guðleifsson
Þorgrímur
Gestsson