Morgunblaðið - 08.10.2014, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 281. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Saga greindist með vægar …
2. Cambridge-háskólinn gekk …
3. WOW rukkar fyrir handfarangur
4. Bjarnarhúnn í Miðgarði
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á morgun verða fluttir tveir fyrir-
lestrar í fyrirlestraröð Miðaldastofu
Háskóla Íslands um landnám Íslands.
Helgi Þorláksson, prófessor í sagn-
fræði við Háskóla Íslands, mun þar
fjalla um Landnámabók og notkun
hennar sem heimild um landnámið.
Orri Vésteinsson, prófessor í forn-
leifafræði við Háskóla Íslands, mun
einnig ræða það hvers vegna Ísland
var numið í lok 9. aldar. Í erindi sínu
gefur Orri yfirlit yfir afrakstur forn-
leifarannsókna um landnám Íslands
síðastliðinn aldarfjórðung.
Viðburðurinn hefst klukkan 16.30 í
stofu 101 í Odda í Háskóla Íslands.
Fyrirlestrar um
landnám Íslands
Íslenska vitafélagið – félag um
íslenska strandmenningu, hefur
vetrardagskrá sína í kvöld á um-
fjöllun um Alliance-húsið, byggingu
þess og starfsemi. Viðburðurinn
hefst klukkan 20 og stendur til kl.
22 en tveir úrvalsfyrirlesarar flytja
erindi þetta kvöld. Stefán Örn Stef-
ánsson arkitekt fjallar um Alliance-
húsið og viðgerðarsögu þess og
síðan flytur Helgi Þorláksson sagn-
fræðingur erindi um Alliance-
fyrirtækið og saltfiskverkun því
tengda. Ástæðan fyrir umræðunni
er sú að Vitafélagið
hefur nú flutt sig
um set og verða
kvöldfundirnir
framvegis haldnir
í Alliance-húsinu,
Grandagarði 2,
Reykjavík. Að venju
er dagskráin
ókeypis og allir
velkomnir.
Vitafélagið með við-
burð í Alliance-húsinu
Á fimmtudag Norðaustan 8-13 m/s og súld eða lítilsháttar rign-
ing, en léttskýjað suðvestantil. Hiti 3 til 10 stig að deginum.
Á föstudag Norðan 8-13 m/s og dálítil slydda eða rigning á Norð-
ur- og Austurlandi, en annars léttskýjað. Hiti 1 til 8 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-13 m/s og súld eða dálítil
rigning austanlands, en annars bjart með köflum. Hiti 7 til 15 stig.
VEÐUR
Ingi Þór Steinþórsson, þjálf-
ari Íslandsmeistara Snæfells
í körfuknattleik kvenna, sér
fram á spennandi toppbar-
áttu 5-6 liða í Dominos-
deildinni í vetur. Keflavík er
spáð deildarmeistaratitl-
inum, á ný undir stjórn Sig-
urðar Ingimundarsonar, en
Snæfelli spáð 2. sæti eftir að
hafa misst lykilleikmenn í
sumar. Nýliðar Breiðabliks og
Hamar koma til með að berj-
ast um að forðast fall. »4
Keflavík spáð titli
en fleiri lið líkleg
Atli Guðnason er leikmaður ársins
2014 í Pepsi-deild karla í knattspyrnu
hjá Morgunblaðinu en hann varð efst-
ur í einkunnagjöf blaðsins á nýloknu
keppnistímabili. „Í heildina var ég
nokkuð ánægður með eigin frammi-
stöðu en það má samt alltaf
gera betur,“ segir Atli en í
íþróttablaðinu er viðtal við
hann, lið ársins er birt og
aðrar niðurstöður úr ein-
kunnagjöf Morg-
unblaðsins, M-
gjöfinni. »
1-3
Atli Guðnason er leik-
maður ársins 2014
Íslands- og bikarmeistarar Stjörn-
unnar gera í kvöld aðra atlögu að því
að komast í 16 liða úrslit Meistara-
deildar kvenna í knattspyrnu.
Stjörnukonur mæta þá rússnesku
Stjörnunni, eða liði Zvezda.
Sigurliðið samanlagt mætir annað-
hvort enska liðinu Liverpool, með
Katrínu Ómarsdóttur innanborðs,
eða Linköping frá Svíþjóð. »3
Stjarnan reynir aftur
að slá út rússneskt lið
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Árangur knattspyrnuliða Stjörn-
unnar í Garðabæ í sumar hefur vart
farið framhjá nokkrum manni og er
ekki ofsagt að Stjarnan standi undir
nafni og skíni nú skærast á íslenska
knattspyrnusviðinu.
Almar Guðmundsson, formaður
knattspyrnudeildar Stjörnunnar und-
anfarin fimm ár, segir að markviss
uppbygging undanfarin ár hafi skilað
sér með ánægjulegum hætti. „Við
höfum verið með öfluga hópa á bak
við meistaraflokka karla og kvenna
og fyrsti Íslandsmeistaratitill okkar í
meistaraflokki kvenna 2011 hjálpaði
knattspyrnudeildinni mikið og gaf
skemmtilegan tón.“
Eftir að karlalið deildarinnar náði
að halda sér í hópi þeirra bestu tvö ár
í röð, 2009 og 2010, voru lögð drög að
því að taka áfram skref fyrir skref.
„Öll okkar vinnubrögð hafa síðan ein-
kennst af þessu,“ segir Almar um ár-
angurinn.
Eins og gefur að skilja hafa margir
átt hlut að máli. Almar segir að Einar
Páll Tamimi hafi ásamt góðu fólki
sett upp ákveðna áætlun fyrir
kvennaliðið, Máni Pétursson hafi
fengið stelpurnar til að hugsa hærra
og lengra, Þorlákur Árnason hafi
mótað þjálfunina og skilað fyrstu titl-
unum og Ólafur Þór Guðbjörnsson
hafi byggt ofan á góðan grunn. Sama
hafi verið upp á teningnum hjá körl-
unum þar sem Sæmundur Frið-
jónsson hefur leitt starfið. Bjarni Jó-
hannsson hafi fengið menn til að
hugsa eins og efstudeildarlið, Logi
Ólafsson hafi haft mikil áhrif, meðal
annars við að bæta alla umgjörð, og
Rúnar Páll Sigmundsson, Brynjar
Björn Gunnarsson og félagar hafi
fylgt þeim eftir með dugnaði og ög-
uðum og skipulögðum vinnubrögðum.
Almar segir að ákveðin lína hafi
verið lögð hjá knattspyrnudeildinni
með ráðningu Þorvaldar Árnasonar
sem yfirþjálfara yngri flokka í fullt
starf 2004. „Sú uppbygging sem hann
stóð að lagði ákveðinn grunn og
strákar fæddir um miðjan tíunda ára-
tuginn, sem byrjuðu að mótast á ár-
unum 2004 til 2007, hafa gengið göt-
una til góðs og njóta þess nú sem
Íslandsmeistarar.“
Mikill stuðningur
Bæjaryfirvöld í Garðabæ hafa
stutt dyggilega við íþróttastarf í
bænum og ekki síst við afreksstefn-
una. „Árangurinn gerir það að verk-
um að við höfum mikinn meðbyr og
hann skilar sér inn í starfið,“ segir
Almar. „Fleiri krakkar æfa, for-
eldrar taka þátt í starfinu og auð-
veldara er að fá sjálfboðaliða. Við
eigum jákvæða stuðningsmenn og
fólk skynjar mikið líf og gleði í
Garðabæ.“
Stjarnan skín skærast
Mikið líf og
gleði í meistara-
bænum Garðabæ
Morgunblaðið/Kristinn
Árangur Almar Guðmundsson, formaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar, er ánægður með uppskeruna.
Ungmennafélagið Stjarnan var stofnað í Garðabæ 1960. Stjarnan
tapaði ekki leik í Pepsi-deild karla í sumar og varð Íslandsmeist-
ari í fyrsta sinn á nýliðinni leiktíð. Kvennalið knatt-
spyrnudeildar gaf tóninn með fyrsta Íslandsmeistaratitl-
inum 2011 og það var Íslands- og bikarmeistari í ár, en
stúlkurnar hafa fagnað fimm Íslands- og bikarmeistara-
titlum undanfarin fjögur ár. 2. flokkur karla gerði það líka
gott í ár og varð Íslands- og bikarmeistari.
Stjarnan sigraði í 3. deild karla 1988, í 2. deild 1989, lék
fyrst í efstu deild 1990 og hefur leikið þar samfellt frá
2009. Liðið vakti athygli í Evrópukeppninni í sumar og
Evrópuævintýri meistaraflokks kvenna heldur áfram á
Samsung-vellinum í Garðabæ í kvöld þegar Stjarnan tek-
ur á móti rússneska liðinu Zvezda í fyrri leik liðanna í 32.
liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Stúlkurnar gáfu tóninn
UNGMENNAFÉLAGIÐ STJARNAN Í GARÐABÆ