Morgunblaðið - 08.10.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.10.2014, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014 Ég sat hjá ömmu minni um síðustu helgi en þá var hún orðin ansi lúin og þreytt. Hún lá í hálfgerðu móki og spurði reglulega „hver var að koma?“ Mér varð hugsað til þess að nokkrum dögum áður hafði ég verið í jarðarför hjá gömlum vinnufélaga og þar söng Guðrún Gunnarsdóttir svo fallega um að vera umvafin englum. Ef einhver átti skilið að fá fallega móttöku herskara engla var það sannarlega hún amma mín. Ég var þess fullviss að þarna væru þeir komnir til að fagna henni og leiða inn í Dagbjört Einarsdóttir ✝ Dagbjört Ein-arsdóttir fædd- ist 12. apríl 1919. Hún lést 29. sept- ember 2014. Útför Dagbjartar fór fram 6. október 2014. fegurð eilífðarinn- ar. Amma Dagbjört fór ekki í gegnum lífið með miklum bægslagangi. Aðgát í nærveru sálar ein- kenndi allt hennar fas. Öllum tók hún opnum örmum og var mikil selskaps- dama í jákvæðasta skilningi þess orðs. Þó var hún mikið ein. Hún varð ekkja fyrir nálægt 40 árum og bjó ein eftir það, þó að nokkur börn og barnabörn hafi á stund- um búið hjá henni í Hólmgarð- inum í styttri eða lengri tíma. Allir voru aufúsugestir og öllum leið vel. Samfélag okkar ömmu minn- ar var einstaklega gott. Fyrstu mánuði ævi minnar bjuggum við hjá ömmu og afa í Hólmgarði og síðar eftir að foreldrar mínir fluttust vestur í Búðardal var ég gjarnan í lengri eða skemmri tíma hjá ömmu á sumrin. Mér fannst alltaf eins og ég væri uppáhalds – en ég held reyndar að amma hafi haft þann hæfi- leika að láta öllum líða þannig. Á þessum árum starfaði amma á næturvöktum á Borgarspítalan- um við aðhlynningu og umönnun sjúkra og ég er ansi hræddur um að tillitssemi drengstaulans hefði að ósekju mátt vera meiri í ærslum og leikjum hversdagsins þó að aldrei hafi amma mín hækkað róminn. Árin liðu og lífið gekk sinn vanagang. Svo fóru samferða- menn ömmu að heltast úr lest- inni einn af öðrum. Gamlir vinir, frændfólk, systkini – hún var ein eftir af sjö systkinum. Fyrir mér er hún síðasti fulltrúi heillar kynslóðar sem nú er horfin á braut. Amma var almennt hress en eftir því sem tíminn leið varð aukinn munur á líkamlegri og andlegri getu. Það hlutskipti hlýtur að vera erfitt. Hún hélt ávallt fullum sönsum, var stál- minnug, fylgdist vel með öllum og var viðræðugóð. Hin síðari ár dvaldi hún í góðu yfirlæti á Grund við Hringbraut og fer vel á því að þakka hér öllu því góða fólki sem sinnti henni af alúð og nærgætni undir það síðasta. Elsku amma mín. Ég trúi því að hvíldin sé þér kærkomin. Guð blessi þig og varðveiti. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Agnar Hansson. Elsku Dagga mín, mig langar í fáum orðum að þakka þér fyrir þær góðu minningar sem leita á hug minn nú er þú ert farin. Ég var svo lánsöm að kynnast Unu Döggu þegar við vorum 8 ára, oft kom ég heim til ykkar og fékk ég þá að kynnast góðvild þinni í minn garð, mér fannst þú svo réttsýn, róleg og alltaf til í að spjalla við okkur, svo gat ég alltaf leitað til þín þegar ég þurfti á hjálp að halda við að sníða og sauma sem þú kunnir svo vel. Ég fékk líka hrós frá þér og ekki fannst mér það leitt, það var góð gjöf frá góðri konu. Langt er orðið þitt líf og lífsvilj- inn var mikill en þú er svo sann- arlega verðug hvíldinni, elsku Dagga mín. Samúð mín er mikil með vinkonu minni og fjölskyld- unni allri. Matthildur (Matta). ✝ Gísli Ög-mundsson fæddist í Stóru- Sandvík 4. desem- ber 1951. Hann lést 29. september 2014. Foreldrar hans eru Hrefna Gísla- dóttir, kennari, f. 27. ágúst 1921, og Ögmundur Hann- esson, bóndi, f. 3. apríl 1918, d. 28. nóvember 1984. Bræður Gísla eru Magn- ús, húsasmíðameistari, og Ari Páll, bóndi. Hinn 22. nóvember 1975 giftist Gísli Maríu Mar- gréti Jónsdóttur, f. 27. febrúar 1951, hún lést þann 30. apríl 2001. Foreldrar Maríu voru Jón Óskar Jensson, bóndi, f. 3. október 1916, d. 16. nóvember 1980, og Kristjana Rósa Hálf- Sigurbjörg Þ. Óskarsdóttir. Foreldrar Sigurbjargar eru Óskar þórarinsson, verkstjóri, f. 21. desember 1941, d. 10. mars 2010, og Gunna Sigríður Kristjánsdóttir, sjúkraliði, f. 30 júní 1944. Börn Sigurbjargar eru: 1) María Ósk Jónasdóttir, húsmóðir, f. 18 febrúar 1981, 2) Egill Jónasson, nemi, f. 9. september 1985 og 3) Ásgeir Jónasson, verkamaður, f. 30 maí 1991. Sigurbjörg á fjögur barnabörn. Gísli starfaði sem rafvirki allan sinn starfsaldur. Hann starfaði um árabil hjá Volta og Hampiðjunni, en hin síðari ár hjá Rafvirki. Gísli var lengi mikill áhugamaður um golf og stundaði hann það eftir því sem heilsan leyfði allt til síð- asta dags. Gísli var einnig áhugamaður um fuglaskoðun. Útför Gísla fer fram frá Árbæjarkirkju í dag, 8. októ- ber 2014, og hefst athöfnin kl. 13. dánardóttir, frú, f. 10. desember 1921, d. 9. maí 1999. Börn Gísla og Mar- íu eru: 1) Ögmund- ur, flugmaður, f. 30. september 1975, 2) Rósa Hrefna, grunn- skólakennari, f. 17. júní 1978, maki Hlynur Tulinius, rafvirki, f. 12. maí 1975 og 3) Gísli Freyr, flug- maður, f. 16. maí 1982, maki Sigrún Gilsdóttir, nemi, f. 16. október 1982. Fyrir átti María soninn Jón Kristján, rafvirkja og vélfræðing, f. 7. maí 1970, maki Elín S. Sævarsdóttir, grunnskólakennari, f. 23. sept- ember 1983. Barnabörn Gísla og Maríu Margrétar eru níu. Árið 2005 kynntust Gísli og Elsku pabbi. Þá er komið að kveðjustund. Kveðjustund sem ég er búin að kvíða fyrir, kveðjustund sem kom allt of fljótt. Ég er ekki undir þetta búin. Ég hugga mig við það að núna líður þér vel og ert laus við alla verki. Ég vil trúa því að mamma hafi tekið vel á móti þér. Þið er- uð sjálfsagt að spila golf núna eða í göngutúr með kíki að skoða fugla því það var það sem þér þótti skemmtilegast. Í hjarta mínu á ég margar góðar og fallegar minningar um dásamlegan mann og pabba sem hafði einstaklega gott hjartalag. Guð gefi þér ljós og frið. Þín „pabbastelpa“, Rósa Hrefna. „Dáinn, horfinn! - Harma- fregn! Hvílíkt orð mig dynur yf- ir!“ Mér varð hugsað til þessara orða skáldsins og jafnframt setti mig hljóðan þegar mér var tilkynnt andlát vinar míns Gísla Ögmundssonar er féll frá langt fyrir aldur fram mánudaginn 29. september síðastliðinn. En ég veit að látinn lifir, það er huggun harmi gegn. Við kynntust fyrst fyrir tólf árum – er við ásamt öðrum vor- um að takast á við „manninn“ í okkur sjálfum. Síðan þá höfum við verið vinir, já, og mjög nánir vinir. Þar sem traust, umhyggja og virðing hvors til annars sat í fyrirrúmi. Við ræddum saman um drauma okkar og þrá til lífs- ins, fjölskyldumál bæði á gleði- og sigurstundum sem og á sorg- ar- og erfiðleikatímabilum á lífsbrautinni. Gísli var bjartur yfirlitum, sviphreinn og drengur góður í hvívetna og laus við allt fals og undirferli. Hann var einstakt ljúfmenni, hjálpsamur, greið- vikinn, kærleiksríkur faðir, eig- inmaður og vinur vina sinna í hverri raun. Þannig vil ég minn- ast þín, kæri vinur, er ganga þín á þessari jörð er á enda runnin og þú heldur yfir móðuna miklu á vit ástkærra feðra þinna. Einnig vil ég þakka þér fyrir átta ára stjórnarsetu í Hönd- inni. Nú ertu loksins laus við verk- ina er háðu þér um langt árabil – sem þú tókst á við með æðru- leysi. En þér þótti mjög miður að þurfa að hætta störfum allt of snemma. Eftir það var hver dagur barátta, barátta sem kannski enginn skilur nema Guð einn. Sár er söknuður þeirra er unnu þér hugástum. Sambýliskonu þinni Sigur- björgu, móður þinni, börnum, barnabörnum og öðrum ástvin- um sendi ég innilegustu sam- úðarkveðjur. Dauðinn er blanda tíma og eilífðar. Þegar góður maður deyr eygjum við Eilífðina gegnum tímann (Goethe) Gísli vinur minn á góða heim- komu vísa. Hvíl í friði, mæti vin- ur. Eyjólfur Magnússon Scheving. Gísli Ögmundsson ✝ Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma okkar, ELENORE MARTH, Sandhólaferju Djúpárhreppi, Colares í Portúgal, lést á Cuf-spítalanum í Lissabon sunnudaginn 5. október eftir stutta legu. Ulrich Marth, Sabine Marth, Valur Marinósson, Jochen M. Ulrikson, Anne Majoran, Ulrika Marth, Rafael Naidorf, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN ÞÓR HANSEN málarameistari, Hólavegi 11, Sauðárkróki, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju 11. október kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að leyfa Sauðárkrókskirkju að njóta þess. Sigurbjörg Egilsdóttir, Kristján Örn Kristjánsson, Egill Jón Kristjánsson, Ásdís Kristjánsdóttir, María Kristjánsdóttir, tengdabörn,barnabörn og langafastelpa. ✝ Þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför okkar ástkæru RAGNHILDAR HELGADÓTTUR. Helgi B. Thóroddsen, Sigrún B. Bergmundsdóttir, Bergmundur og Jóhannes. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR V. FRIÐÞJÓFSSON, fv. skrifstofustjóri við Háskóla Íslands, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn 5. október. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 15. október klukkan 13.00. Jenný Sólveig Ólafsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Jón Hörðdal Jónasson, Ólöf Sigfríður Sigurðardóttir, Sigurbjörg Sigurðardóttir, Þórir Jónsson, Sigrún Jóns, Stefán Jakobsson og barnabörn. ✝ Faðir minn og bróðir okkar, PÉTUR ÞORVALDSSON, Bakkavegi 5, Hnífsdal, lést mánudaginn 6. október. Hann verður jarðsunginn frá Hnífsdalskapellu laugardaginn 11. október kl. 14.00. Hulda Pétursdóttir, systkini og aðrir aðstandendur. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLMI ANTON SIGURÐSSON, áður Ægisstíg 3, Sauðárkróki, sem lést á Dvalarheimili aldraðra Sauðárkróki 27. september, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 11. október kl. 14.00. Ólöf Pálmadóttir, Þorsteinn Ingólfsson, Guðbjörg Sigríður Pálmadóttir, Valgeir Steinn Kárason, Snorri Rúnar Pálmason, Anne Marie Haga, barnabörn og barnabarnabörn. Kveðja frá sam- starfsmönnum við Iðnskólann í Reykjavík og Tækniskólann Góður félagi og samstarfsmað- ur í nær tvo áratugi, Leifur Daw- son málari, er fallinn frá. Hann starfaði í fámennum en vöskum hópi iðnaðarmanna sem sáu um viðhald og breytingar á húsnæði Iðnskólans og síðar Tækniskól- ans. Það var mikið lán fyrir skólana að fá að njóta starfskrafta hans. Mikið starfsþrek, vandvirkni og vinnuhraði fór saman hjá honum Leifur Örn Dawson ✝ Leifur fæddist22. nóvember 1943. Hann lést 3. september 2014. Útför Leifs fór fram 12. september 2014. og dagsverkið var jafnan drjúgt. Við bættist að hann var sérlega viðkunnan- legur, hafði góða nærveru og skemmtilega kímni- gáfu. Maður sem gaman og gott var að umgangast. Þó að vinnustað- urinn hafi verið fjöl- mennur voru boð- leiðir ekki langar. Stutt spjall í matar- eða kaffitíma þar sem fram kom að þörf væri á málning- arvinnu í einhverri deild skólans leiddi oftar en ekki til þess að nokkru síðar sást Leifur í ná- grenni staðarins með efni og áhöld. Þegar spurt var hvenær mætti eiga von á aðstoð gat hann svarað með sitt kankvísa bros á vörum: „Þetta er löngu búið.“ Og mikið rétt, verkinu var lokið á óaðfinnanlegan hátt. Þó að Leifur væri ljúfur og þægilegur í framkomu gat hann verið skemmtilega þrjóskur. Þann eiginleika notaði hann á já- kvæðan hátt. Dæmi um það er stríðið við krotarana sem ekki mega sjá auðan blett á hlutum og mannvirkjum án þess að merkja sér svæðið. Þessi árátta „lista- mannanna“ kemur í óútskýran- legum bylgjum og þeir virðast hafa sérstakan áhuga á opinber- um byggingum. Húsnæði Iðn- skólans fór ekki varhluta af þess- ari hegðun. En í Leifi mættu þeir ofjarli sínum. Hann fór oft og reglulega eftirlitsferðir með efni, tól og tæki og hreinsaði eða mál- aði jafnharðan yfir „listaverkin“ stundum mörgum sinnum sama blettinn. Á endanum fór jafnan svo að krotararnir gáfust upp. Líklega hafa þeir flutt sig á önn- ur svæði, enda er stór hluti af sýniþörfinni að verkin fái að lifa og sjást. Þegar Leifur hóf störf sín við Iðnskólann hafði hann gegnt með mikilli prýði ýmsum trúnaðar- störfum fyrir fagfélag sitt, Mál- arafélag Reykjavíkur. Því var eðlilegt að iðnaðarmennirnir sem unnu með honum leituðu til hans um forustu í kjaraviðræðum við skólayfirvöld. Óhætt er að segja að það starf hafi borið ávöxt- .Verulegar leiðréttingar á kjör- um hópsins náðust undir forustu hans. Í því verkefni skiptu án efa höfuðmáli, reynsla hans, rökföst nálgun, staðfesta og sú virðing sem hann hafði áunnið sér. Eftir alvarleg veikindi og starfslok fyrir fáum árum sáum við minna af honum en fylgdumst með högum hans og heilsu eftir bestu getu. Þó að veikindin væru mjög alvarleg vonuðum við í lengstu lög að hann næði heilsu en andlátsfregnin kom okkur þó ekki á óvart. Góður drengur er genginn en minningin um mannkosti hans og jákvæðan og sterkan persónu- leika lifir áfram. Við vinir hans og samstarfsmenn við skólann vott- um ekkju hans, börnum þeirra og fjölskyldunni allri innilega sam- úð. Frímann I. Helgason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.