Morgunblaðið - 08.10.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Ég féll stax fyrir fitkidþegar ég kynntist því.Mér finnst þetta rosalegaheillandi íþrótt og hefði
sjálf viljað æfa hana þegar ég var lít-
il,“ segir Dagný Dís Magnúsdóttir,
fitkid-þjálfari og alþjóðlegur dómari í
íþróttinni. Um næstu helgi verður
haldið Evrópumót í fitkid hér á landi í
Vodafonehöllinni. Mótið verður það
stærsta sem haldið hefur verið til
þessa og er það tólfta í röðinni. Þetta
er í annað skipti sem mótið er haldið
hér á landi, í fyrra skiptið var það ár-
ið 2008.
Hvað er fitkid? „Þetta er íþrótt
fyrir börn á aldrinum 6-16 ára og er
blanda af fimleikum, þolfimi, dansi og
styrktaræfingum. Mottóið er að allir
geta æft íþróttina og þurfa ekki að
vera með grunn í neinu til að taka
þátt. Við leggjum mikið upp úr heil-
brigðum lífsstíl án allra öfga,“ segir
Dagný Dís og bendir á að taktföst
tónlistin skemmi ekki fyrir hressandi
upplifun.
Alþjóðlegt kerfi sem er
upprunnið í Ungverjalandi
Fitkid er alþjóðlegt kerfi IFD
(International Fitkid Division). Frá
árinu 1997 hafa verið haldin árleg
Evrópu- og heimsmeistaramót í
greininni. Árið 2007 sendu Íslend-
ingar fulltrúa sína í keppnirnar í
fyrsta sinn með góðum árangri.
Fjölþjóðlegar sumarbúðir
standa iðkendum fitkid til boða, sem
miða að því að kynna börn frá mis-
munandi löndum, vinna að sameig-
inlegum markmiðum fitkid-
hreyfingarinnar og einingu landanna.
Fitkid á rætur sínar að rekja til
Ungverjalands, þar er íþróttin vin-
sæl. Margir stunda hana á Spáni og
Bretlandi. Í kringum 10 þúsund
krakkar um alla Evrópu iðka hana.
Hefði sjálf viljað
æfa fitkid í æsku
Evrópumót í fitkid verður haldið í Vodafonehöllinni um helgina. Mótið er það tólfta
í röðinni og það stærsta sem haldið hefur verið í Evrópu. Í tengslum við mótið verða
haldnir fjölskyldu- og heilsudagar. Fitkid er íþrótt fyrir börn á aldrinum 6-16 ára og
er blanda af fimleikum, þolfimi, dansi og styrktaræfingum og hefur verið iðkað hér
frá 2007. Fitkid er upprunnið frá Ungverjalandi og er vinsælt í Evrópu.
Fimi Þær eru ansi hreint liprar stúlkurnar sem æfa af kappi fyrir mótið.
Styrkur Það er ekki amalegt að vera fílhraustur í heilbrigðum líkama.
Síðan knittinghelp.com kemur að
góðum notum þegar verið er að feta
sig áfram í heimi prjónaskaparins.
Þar er að finna gagnlegar leiðbein-
ingar um hvernig eigi að prjóna, fitja
upp lykkjur, lesa prjónamynstur,
prjóna marglita flík og þar fram eftir
götunum. Í raun og veru eru svör við
býsna mörgum spurningum sem
koma upp þegar prjónarnir eru
mundaðir.
Flest allt efnið sem er á síðunni er
gjaldfrjálst eins og leiðbeiningar-
myndbönd og uppskriftir.
Þeir sem eru komnir lengra í
prjónaskapnum geta einnig fundið
flóknari uppskriftir sem koma að
góðum notum. Vefurinn er einfaldur í
notkun og viðmótið er ákaflega þægi-
legt þar sem tiltölulega auðvelt er að
fletta og skoða.
Á spjallborði vefjarins er hægt að
þiggja og gefa góð ráð.
Vefsíðan www.knittinghelp.com
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Prjónaskapur Hægt er að horfa á myndbönd um hvernig skal prjóna.
Gagnleg ráð við prjónaskapinn
Friðarsúlan í Viðey verður tendr-
uð með fallegri athöfn á
fæðingardegi Johns Lennons á
morgun, 9. október, klukkan 20.
Athöfnin hefst kl. 19 og stendur
til kl. 20.30.
Óskatré Yoko Ono verða sett
niður í Viðeyjarnausti og Viðeyjar-
kirkju og er fólk hvatt til að dvelja
við, skrifa óskir sínar og hengja á
trén. Í kringum friðarsúluna eru
grafnar óskir hálfrar miljónar ein-
staklinga víðsvegar úr heiminum
sem Yoko Ono hefur safnað sam-
an á síðustu áratugum. Tónlistar-
maðurinn Snorri Helgason mun
syngja hugljúfa tóna í Viðeyjar-
nausti. Aðgangur ókeypis.
Endilega …
… skoðið friðarsúluna í Viðey
Morgunblaðið/RAX
Viðey Friðarsúlan tendruð á morgun.
Kínverskir vísindamenn urðu vitni að
þeim einstaka atburði að api tók á
móti afkvæmi apynju af tegund sem
nefnist white headed langur. Einu
sinni áður hafa vísindamenn orðið
varir við að api hafi gegnt hlutverki
ljósmóður. Hingað til hefur verið tal-
ið að manneskjan væri sú eina sem
fengi hjálp frá annarri manneskju
við að taka á móti afkvæmi sínu.
Apynjan sem gegndi hlutverki
ljósmóður var 14 ára gömul; og
hafði áður eignast fimm afkvæmi,
þar af eitt um morguninn.
Ljósmóðirin fylgdist gaumgæfilega
með apynjunni sem er fimm ára
gömul eignast sitt fyrsta afkvæmi.
Þegar höfuð og axlir komu út greip
ljósmóðirin í afkvæmið og togaði
það út, sleikti í framan og rétti móð-
urinni um leið og hún teygði hend-
urnar í átt til þess. Ljósmóðirin
fylgdist með móður og afkvæmi í
nokkra stund á eftir.
Vísindamenn höfðu áður séð
apynju í þessum hóp eignast af-
kvæmi og þá gerði hún það ein og
óstudd og án hjálpar frá öðrum.
Þetta kemur fram í tímaritinu Ani-
mal og BBC greindi einnig frá.
Manneskjan ekki sú eina sem þarf ljósmóður
Api gegndi hlutverki ljósmóður
og tók á móti afkvæmi apynju
Ljósmóðir Eldri og lífsreyndari api tók á móti afkvæmi annars apa en slíkt
þekkist nánast ekki í dýraríkinu. Vísindamenn eru forviða yfir háttalaginu.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is