Morgunblaðið - 08.10.2014, Side 12

Morgunblaðið - 08.10.2014, Side 12
Fyrir og eftir Frystihúsið hefur breyst mikið við endurbæturnar. Stórir gluggar sem settir hafa verið á framhlið gjörbreyta ásýnd þess. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sú aðferð Byggðastofnunar að gera upp gamalt óseljanlegt frystihús á Breiðdalsvík, skipta því niður í nokkur rými og leigja undir atvinnu- starfsemi virðist ætla að verða mikil vítamínsprauta fyrir staðinn. Þar er verið að koma upp saltfiskverkun eftir margra ára hlé, verkstæðum og stórum veislu- og ráðstefnusal sem talinn er verða lyftistöng fyrir ferða- þjónustuna. Frystihúsið er ein elsta fullnustu- eign Byggðastofnunar. Það hefur margoft verið auglýst til sölu og ýmsir hafa reynt að koma þar upp fiskverkun en húsið er enn óselt. „Við lögðum tillögur fyrir Byggða- stofnun um það hvernig best væri að koma húsinu í not. Það er dýrt að láta svona mikið hús standa og drabbast niður og ekki hægt að leigja það út. Við lögðum til að Byggðastofnun myndi taka saman hvað hún myndi þurfa að leggja í viðhald á húsinu og rekstur næstu árin og nota það fé til að endur- skipuleggja það og gera upp. Þá myndi það strax á fyrsta ári reka sig sjálft,“ segir Elís Pétur Elísson, út- gerðarmaður á Breiðdalsvík. Hann og Friðrik Árnason hótelstjóri eru hugmyndafræðingarnir að þessari lausn mála sem Byggðastofnun sam- þykkti og er að framkvæma. Reynt að snúa við blaðinu „Við fögnum því hvað Byggða- stofnun hefur komið myndarlega að málum,“ segir Hákon Hansson, odd- menn sem ætla að vinna með okk- ur,“ segir Hákon oddviti. Elís Pétur telur að endurskipulagning frysti- hússins og þau fyrirtæki sem þar verða með starfsemi verði vítamín- sprauta fyrir samfélagið. Þess sjáist nú þegar merki. „Það eru mörg tækifæri í litlum byggðarlögum. Ég er allavega ekki svartsýnn, er það raunar ekki að eðlisfari,“ segir hann. Morgunblaðið/Golli Löndun Útgerðarmenn smábáta á Breiðdalsvík hafa samið um að leggja til hráefni til nýrrar fiskvinnslu Ísfisks á Breiðdalsvík. Þeir nýta meðal annars Byggðastofnunarkvótann en leggja eigin kvóta og leigukvóta á móti. Ljósmynd/Friðrik Árnason viti Breiðdalshrepps, og vonast til að hægt verði að nýta þá hluta hússins sem ekki hefur nú þegar verið ráð- stafað til góðra verka. Íbúum Breið- dalshrepps hefur fækkað um meira en 40% á síðustu þremur áratugum og eru 187, samkvæmt síðustu opin- beru tölum. Hákon segir að tals- verður hugur sé í fólki og vonandi takist að snúa við blaðinu í byggða- þróun, áður en það verði orðið of seint. Í gamla frystihúsi Hraðfrystihúss Breiðdælinga verður saltfiskverkun auk trésmíðaverkstæðis, bátaverk- stæðis og stórs veislu- og ráðstefnu- salar. Allt er þetta að komast í gagn- ið þessar vikurnar. Fleiri hugmyndir eru í þróun. Samvinna við Ísfisk Fiskvinnslufyrirtæki Ísfiskur í Kópavogi mun reka fiskvinnslu í frystihúsinu á grundvelli samninga við þrjú útgerðarfyrirtæki á staðnum og þjónustufyrirtæki þeirra. Útgerð- irnar útvega hráefnið. Einn grunnur þess er 150 tonna sérstakur byggða- kvóti sem stjórnvöld leggja til í gegn- um Byggðastofnun sem lið í verkefn- inu „Efling sjávarbyggða“ en útgerðirnar leggja einnig til eigin kvóta og leigukvóta. Elís Pétur segir við það miðað að landað verði að minnsta kosti 1.200 tonnum af fiski hjá Ísfiski en ekki verði allur fisk- urinn unninn á Breiðdalsvík heldur verði hluti hráefnisins fluttur á milli Hugmynd Athafnamennirnir Friðrik Árnason og Elís Pétur Elísson lögðu fyrir Byggðastofnun tillögur um endurskipulagningu hraðfrystihússins. eftir því sem best hentar vinnslunni á hverjum tíma. Fiskvinnslan tekur til starfa í næsta mánuði. Reiknað er með að 10 störf verið við saltfiskverkunina og jafn mörg við þjónustu við bátana. „Það er mikið fagnaðarefni að það skuli vera að hefjast aftur fisk- vinnsla í frystihúsinu, eftir tíu ár. Þetta er öflugt fyrirtæki og duglegir 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014 Vinavika fer nú fram á Vopnafirði í fimmta sinn. Æskulýðsfélag Hofs- prestakalls - Kýros stendur fyrir vikunni. Á þriðjudag var skrifað undir vinasamning við Vopnafjarð- arhrepp, Vopnafjarðarskóla og leikskólann Brekkubæ. Í samn- ingnum segir m.a. að aðilar samn- ingsins taki upp forskeytið „vinur“ fyrir framan nafn sitt og heiti á meðan Vinavikan stendur yfir. Eftir undirskriftina var boðið upp á vinaköku, kaffi og djús. Jafn- framt höfðu krakkarnir fyrr um daginn skreytt fyrirtæki og stofn- anir á Vopnafirði með blöðrum, hjörtum, borðum og vinalegum skilaboðum. Í dag eiga íbúar von á óvæntum glaðningi frá æskulýðs- félaginu og á morgun verður vina- skrúðganga og vinakaffi að því loknu í félagsheimilinu. Nánari upplýsingar um dagskrána er að finna á vefnum vinavika.is. Vinavika á Vopna- firði í fimmta sinn Vinavika Frá undirritun samkomulags Vopnafjarðarhrepps, Vopnafjarðarskóla og leikskólans Brekkubæjar í til- efni af vinavikunni. Þá munu þessir aðilar taka upp forskeytið „Vinur“ fyrir framan heiti sín, t.d. Vina-Brekkubær. „Leiðsögumaður sem kom að skoða sagði að salurinn yrði sem skuttogari fyrir íslenska ferðaþjón- ustu,“ segir Friðrik Árnason, hót- elstjóri á Hótel Bláfelli á Breið- dalsvík, um nýja veislu- og ráðstefnusalinn í gamla frystihús- inu sem hann mun taka á leigu og nýta allan ársins hring. Salurinn er í flökunarsal gamla frystihússins, 380 fermetrar að stærð og getur því tekið á annað hundrað gesti. Margir hring- ferðahópar koma við á Breiðdalsvík og fólkið borðar þar í hádeginu eða á kvöldin. Friðrik hyggst hafa veit- ingarnar í nýja salnum sem er beint á móti hótelinu. Aðaláskorunin er þó að lengja ferðamannatímann og skapa verk- efni að vetrinum. Friðrik segir mik- ilvægt að lengja tímann enda séu 100 gistiherbergi í Breiðdal og öll með herbergi. „Þessi salur er hugs- aður til að nýta þessa fjárfestingu betur, ekki síst utan hins hefð- bundna ferðamannatíma,“ segir hann. Friðrik vonast til að geta laðað að árshátíðir og ráðstefnur, auk þess sem salurinn nýtist fyrir við- burði heimamanna. Náttúruskoðun innandyra Ýmislegt verður gert til að skapa sérstöðu. Gluggi verður út í fisk- vinnsluhúsnæði og geta gestir því fylgst með fiskverkun. Þá verður innangengt í steinasafn sem fyrir- hugað er að koma upp. Settir verða upp stórir skjáir þar sem hægt verður að fylgjast með lífríkinu neðan- og ofansjávar, meðal ann- ars lundabyggðinni í Breiðdals- eyjum. „Það tekur tíma að byggja þetta upp en starfsemin verður vonandi lyftistöng fyrir samfélagið, alla sem hér búa, og skapar einhver störf,“ segir Friðrik. Skuttogari ferðaþjónustunnar 240 MANNS RÚMAST Í FLÖKUNARSAL Vítamínsprauta fyrir byggðarlag  Frystihúsinu á Breiðdalsvík skipt upp og það standsett  Nokkur fyrirtæki að koma sér fyrir  Fiskverkun hafin á nýjan leik í samvinnu Ísfisks og heimamanna og með stuðningi Byggðastofnunar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.