Morgunblaðið - 08.10.2014, Side 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014
Miðvikudagstilboð
– á öryggisskóm og fleiri öryggisvörum
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Verslun RV er opin virka daga kl. 8 – 18 og laugardaga kl. 10 – 16
Komdu í verslun RVog nýttu þérflott tilboð áöryggisvörum !
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er einhver ólga innra með þér
sem þarfnast útrásar. Gættu þess að taka
frá tíma fyrir eitthvert létt sprell í dag.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú átt auðvelt með að vekja hrifn-
ingu annarra í dag. Haltu fólki í þeirri fjar-
lægð sem þú vilt því engan varðar um
þína einkahagi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur mjög ákveðnar skoð-
anir á viðkvæmu vandamáli. Fylgdu innsæi
þínu. Eins og er situr þú uppi með of
mörg verk óleyst.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Rómantík gæti komið inn í líf þitt
með miklum látum í dag. En ef þú neyðist
til þess að fara yfir strikið skaltu flýta þér
aftur til baka.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú
segir nokkuð í dag. Ef þú heldur áfram að
njóta litlu hlutanna færðu senn forsmekk-
inn af meiri velgengni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ættir að nota daginn til að
sinna verkum sem krefjast þolinmæði og
skipulagningar. Láttu reyna á þessa kenn-
ingu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef þú átt góða stund með nýrri
manneskju með bröndurum og góðu sam-
tali, láttu hana þá ekki sleppa úr greipum
þér. En mundu að sígandi lukka er best.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér er alveg óhætt að taka
minniháttar áhættu til að setja svolítið líf í
tuskurnar. Byrjaðu strax því annars get-
urðu misst af strætisvagninum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gáfuleg vinna á móti mikilli
vinnu er leikurinn, og þú getur giskað á
hver vinnur. Ef ósamkvæmar upplýsingar
eru bornar á borð fyrir þig áttu að treysta
skilningarvitunum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú færð hugsanlega óvæntar
fréttir frá einhverjum í öðru landi eða
mikilli fjarlægð. Samtöl koma upp um
fólk.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vertu ekki hræddur við nýj-
ungar bara af því að þær hafa breytingar í
för með sér. Hugsaðu þig tvisvar um áður
en þú lánar öðrum peninga.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er fullt af hlutum í kringum
þig sem þú hefur ekki hugmynd um.
Mundu að það er ekki nóg að þörfum þín-
um sé fullnægt. Hraðar er ekki betra og
hægar er ekki verra.
Það er gömul íþrótt að leika sérað því að botna vísur. Helstu
skemmtilegheitin eru kannski í því
fólgin hversu ólíkar hugmyndir
koma fram um lausn þrautarinnar.
Guðný Jakobsdóttir kastaði fram
fyrriparti á Boðnarmiði:
Hugsa sér hefði ég orðið
heimakær piparsveinn!
Ragnar Ingi Aðalsteinsson botnar:
Hjá stúlkunum barið í borðið
og búið svo sæll og einn.
Helgi Ingólfsson:
Hefði ég eigi hjá sofið og s …
sannlega byggi ég einn.
Sigurjóna Björgvinsdóttir:
Þá sæti ég sæll við borðið
og svæfi stöðugt einn.
Hallmundur Guðmundsson:
Af gnægtum þá bogið borðið,
barasta fyrir einn.
Þegar ég var í MA voru verðlaun í
boði fyrir besta botninn á einhverri
kvöldskemmtun nemenda:
Augum renna ungir menn
upp á kvennavistir.
1. bekkingar botnuðu
Kapphlaupið mun byrja senn
hverjir verða fyrstir?
Og fengu að sjálfsögðu sérstaka
viðurkenningu og aukaverðlaun
enda er botninn klassískur og enn í
fersku minni þó hinir, sem rétt
kveðnir voru séu löngu gleymdir!
Þegar við Ari Jósefsson gengum upp
kirkjutröppurnar spreyttum við
okkur iðulega á þessum fyrriparti:
Finn ég hérna fyrripart
fyrir þig að botna.
Enginn botnanna festist í minni
okkar!
Magnús Halldórsson segir frá því
á Boðnarmiði að hann þurfti eitt-
hvert sinn að staldra við í ritgleði og
hugleiða hvort Y væri í tilteknu orði
– „markið mitt er hinsvegar sýlt
bæði og biti aftan vinstra“ bætir
hann við:
Stíft eða stýft?
Vona að mér verði hlíft
og votta það með sanni.
Það er betra að standi stíft,
en stýft sé undan manni.
Svo enn sé sopið af Boðnarmiði.
Ragna Guðvarðardóttir yrkir „Lof-
söng til rigningarinnar“.
Ég fagna þér rigning sem fellur á grund
og fossar um götur og stræti.
Þú breiðir þinn faðm yfir laufvana lund
og lækirnir hoppa af kæti.
Þú syngur við gluggann minn dag eftir
dag
mig dreymir um nætur þitt
uppáhaldslag.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Að botna vísu og stíft eða stýft
Í klípu
„ÞÚ MUNT FÁ MYNDARLEGAN
STARFSLOKASAMNING, OG, Í LJÓSI
ÞINNA VAFASÖMU VIÐSKIPTAHÁTTA,
MUNUM VIÐ KOMA ÞÉR FYRIR Í
VITNAVERND FYRIR FYRIRTÆKIÐ OKKAR“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„AUÐVITAÐ TÝNIR ÞÚ ALDREI KÚLUNNI
ÞINNI... ÞÚ SLÆRÐ HANA ALDREI LENGRA
EN NOKKRA METRA“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
...innblásturinn þinn.
MÁNUDAGUR... HANN ER A.M.K.
FYRIRSJÁANLEGUR.
GEFIÐ MÉR ÖLL
VERÐMÆTI YKKAR,
EÐA ÉG EYÐILEGG
KASTALANN!
ÞÚ ERT OF SEINN,
ANNAR VÍKINGUR TÓK
ALLT Í SÍÐUSTU VIKU!
ÞEGAR ÞIÐ
FYLLIÐ Á LAGERINN,
GETIÐ ÞIÐ
LÁTIÐ MIG VITA?
Óvænt meðmæli með almennings-samgöngum komu fram í viðtali
við Snorra Hergil Kristjánsson í
Morgunblaðinu á sunnudaginn.
Snorri býr í London og er í fullri
vinnu sem kennari, en hefur fundið
tíma til að sinna ritstörfum og um
þessar mundir kemur út lokabindið í
þriggja bóka flokki epískra fanta-
síuskáldsagna um víkinga. Jafn-
framt er Snorri með kvikmynda-
handrit í vinnslu og hefur skrifað
fyrstu bók í unglingaseríu. Tímann
til skrifta finnur Snorri á lestinni á
leiðinni í og úr vinnu. Þetta eru sem
sagt skilaboðin til þeirra, sem ganga
með rithöfund í maganum: Taka
strætó og byrja að skrifa.
x x x
Ef kenningin um að baktal valdihiksta er rétt eiga dómarar ekki
sjö dagana sæla. Í raun er með ólík-
indum hvað hægt er að tuða út af
dómurum og verður Víkverji að við-
urkenna að hann getur ekki alltaf
haldið aftur af sér.
x x x
Frammistaða dómaranna í úrslita-leik Íslandsmótsins milli FH og
Stjörnunnar um helgina hefur jafn-
vel verið meira rædd en frammi-
staða leikmanna. Það var því hress-
andi að lesa ummæli Ólafs Karls
Finsens, sem skoraði bæði mörkin í
sigri Stjörnunnar, í Morgunblaðinu í
gær. „Mig grunaði að ég væri rang-
stæður þegar ég skoraði fyrsta
markið. Það fyrsta sem ég gerði var
að horfa á línuvörðinn. Flaggið fór
ekki upp og ég gat fagnað markinu.
Það er oft talað um að dómar jafnist
út og ég man vel eftir ólöglegu marki
sem FH skoraði á móti okkur í fyrri
leiknum. Svona er bara boltinn.“
x x x
Ólafur Karl er vitaskuld ekki hlut-laus, en þó er engu við þetta að
bæta. Mistök dómara á heilu keppn-
istímabili eru legíó rétt eins og mis-
tök leikmanna (ef Víkverji gerði jafn
mörg mistök í vinnunni og knatt-
spyrnumaður gerir að meðaltali í
leik væri hann sennilega búinn að
missa vinnuna) og það er ekkert við
því að segja. Nema þá að leggja
íþróttina af, sem væri heldur langt
gengið. víkverji@mbl.is
Víkverji
Eins og faðir sýnir miskunn börnum
sínum, eins hefur Drottinn sýnt
miskunn þeim er óttast hann.
(Sálmarnir 103:13)