Málfríður - 15.10.2014, Side 12
og sjálfsöryggi. Ég hef haldið fyrirlestra og námskeið
um CLIL í þó nokkrum Evrópulöndum sem og á sviði
símenntunar, CPD, Continuing Professional Development,
í Austurríki. Og vinna á vettvangi Evrópu gerir kenn-
ara og kennara verðandi kennara færa um að standa að
skipulagningu og samræmingu á námskeiðum innan
Evrópu o.s.frv. Ég hef komið að námsferðum háttsettra
embættismanna á sviði menntamála um efni sem ná
allt frá stjórnun til starfsnáms og skipulagt námsferðir
á vegum British Council um Gifted & Talented, Inclusion,
CPD & Leadership, Autonomous Learning“and Interfaces
in Education og lagt mitt af mörkum í sambandi við
COMENIUS-GRUNDTVIG námstefnuviku, http://
support-edu.org/webfm_send/702. Slíkar alþjóðlegar
námstefnur bjóða upp á gagnkvæm tækifæri til náms
sem allir þátttakendur njóta góðs af í daglegu starfi
þegar heim er komið.
Ferlið er óendanlegt! Ég er nú um stundir þátttakandi
í tveimur Evrópuverkefnum: Workin’ Europe http://
www.worknowledge.eu/ og eSchool14S http://escho-
ol4s.eu/ og hef nýlega uppgötvað umfang verkefna
á vegum Evrópuráðsins og snertifleti milli verkefna
Evrópuráðsins og verkefna á vegum ESB.
Þátttaka í vinnustofu sem haldin var af Plurimobil
samskiptanetinu http://plurimobil.ecml.at/ hefur leitt
til þróunar á alþjóðaáfanganum okkar í Kennarahá-
skól ann í Týról. Nú sem stendur erum við að skipu-
leggja námskeið sem byggir á Plurimobil hugmynd-
inni þar sem kennarar framtíðarinnar verða færari um
að fella inn í kennsluna það sem þeir hafa reynslu af
með eigin þjálfun. Eins og einn af fyrstu nemendunum
sem tók þátt í alþjóðlega áfanganum orðaði það: „Ég
mun aldrei gleyma þessu! Þetta er reynsla sem aldrei
er fyllilega hægt að útskýra og þeir sem hafa ekki reynt
það á eigin skinni geta ekki skilið þessa trú okkar á
mætti og mikilvægi samvinnunnar.“ http://ccll-eu.
eu/cms02/index.php?id=14
Og við vorum þess heiðurs aðnjótandi að taka á móti
dásamlegu ungu fólki og leiðbeina því í kennslu með
því að aðstoða það við að skrásetja og ígrunda upp-
lifun sína til að tryggja hámarksáhrif heimsóknarinnar
á starf þess í framtíðinni. Nemendur þessa unga fólks í
framtíðinni munu njóta góðs af víðsýni kennara sinna,
sem þeir öðluðust í námi sínu.
Það hefur svo margt gerst á síðastliðnum fimmtán
árum að það væri ómögulegt að telja upp öll verkefnin
hér. Samt sem áður virðist það vera nauðsynlegt að
velta fyrir sér þeim fjölbreyttu möguleikum sem í boði
eru. Annars vegar, eins og kom fram hér að ofan, bjóða
evrópsk verkefni upp á þann möguleika að vinna í
nánu samstarfi við sérfræðinga að þróun einhvers sem
brennur á einstaklingnum og skila af sér raunverulegri
afurð. Hins vegar getur þátttaka leitt til þess að fólki
verði boðið að taka þátt í samskiptanetum og kynnast
betur bakgrunni menntastefnu á eigin sérfræðisviði.
Eitt slíkt dæmi í mínu tilviki var TNP samskiptanetið á
sviði tungumála http://web.fu-berlin.de/tnp3/, sem ýtti
úr vör uppbyggilegri, víðtækri og samfelldri samræðu
milli æðri menntastofnana og annarra hagsmunaaðila
um breytingar og framtíðarþarfir evrópsks vinnumark-
aðar hvað varðar tungumálakunnáttu og menningar-
læsi starfsfólks. Annað dæmi var LANQUA, Language
Network for Quality Assurance, sem lagði áherslu á
gæðamál í tungumálakennslu á háskólastigi, þar sem
unnið er út frá fræðilegum grunni til vettvangsrann-
sókna og uppbyggingar gæðastjórnunarmódels: www.
lanqua.eu Þessu var fylgt eftir með SPEAQ, Sharing
Quality to Assure & Enhance Quality in tertiary education.
https://www.llas.ac.uk/speaq
Gildi Evrópusamstarfs fyrir kennara
Með því að taka þátt í Evrópusamstarfi öðlast kenn-
arar og kennarar verðandi kennara þekkingu, hæfni
12 MÁLFRÍÐUR