Málfríður - 15.10.2014, Síða 18
hvað nýtt alveg eins og það að taka áhættu er hollt fyrir
alla, kennara og nemendur. Það getur leitt okkur inn á
brautir sem við vissum ekki að við gætum gengið eða
sýnt okkur fleiri möguleika til að vinna úr málum. Við
sem vorum á námskeiðinu erum þess fullviss að leik-
list í kennslu er bæði ögrandi og skemmtilegt verkefni
fyrir bæði kennara og nemendur. Það er leikur að læra
og lífið er svið sem bíður bara eftir okkur.
Heimildir:
Banerjee, Dr. Shibani. „Learn and Unlearn: Drama as an Effective Tool
in Teaching English Language and Communication“. International
Journal of English Language and Translation Studies: Volumn
2, issue 1 (January-March 2014). Lesið á: http://www.academia.
edu/6250946/Learn_and_Unlearn_Drama_as_an_Effective_Tool_
in_Teaching_English_Language_and_Communication_by_Dr._
Shibani_Banerjee?login=&email_was_taken=true
Whiteson, Valerie (Ed). „New Ways of Using Drama and Literature in
Language Teaching“. Alexandria, VA: TESOL. 1996.
nemenda sem koma ólesnir í tíma! Skiljanlega vorum
við frekar smeyk og ekki með mikla trú á eigin getu.
Fyrir mistök hafði nefnilega gleymst að láta okkur vita
af heimavinnunni, þ.e. að dusta rykið af leikritinu A
Midsummer Night‘s Dream eftir Shakespeare. Allt fór
þetta nú samt vel að lokum og eftir á að hyggja þá
var það í raun kostur. Það varð til þess að við fengum
tækifæri til að setja okkur í spor nemenda sem eru að
fást við nýjan texta. Gaman er að segja frá því að í lok
dagsins vorum við öll með söguþráð og persónur á
hreinu og ég efast um að við gleymum þessu verki í
bráð. Kennurunum í háskólanum tókst að gera verkið
lifandi og láta okkur tengjast leikritinu á persónu-
legum nótum.
Ögrandi og skemmtilegt verkefni
Eftir fyrirlestra og lærdóm fyrstu dagana var farið
í vettvangsferð til London. Á dagskrá var að skoða
Shakespeare-safnið og sjá Lé konung í hinu fræga leik-
húsi, The Globe. Tony Frost var leiðsögumaður okkar,
og seinna fengum við tækifæri til að ræða um upp-
lifun okkar á verkinu og vorum við hvött til að tengja
það við persónulegu reynslu okkar og þar með setja
það í okkar eigið samhengi. Hver einstaklingur á sína
sögu og hvert okkar býr og vinnur í sínum raunveru-
leika við allt nám og starf. Samt sem áður eigum við
meira sameiginlegt en við gerum okkur oft grein fyrir.
Það eru þessir sammannlegu fletir sem við getum nýtt
okkur í kennslunni í formi leiklistar. Kennarar hafa
gott af því að setja sig í spor nemenda, að læra eitt-
Ásgrímur Guðnason
Viðskiptavinur Landsbankans
410 4000Landsbankinn landsbankinn.is
„Maður á að
nýta sér þetta“
Lífeyrissparnaður er mikilvægt tækifæri til að byggja upp.
Þú færð mótframlag frá vinnuveitanda og nýtur skattfrelsis
allt þar til daginn sem þú byrjar að taka út. Sparnaðurinn er
þín eign, erfist og er undanþeginn fjármagnstekjuskatti.
18 MÁLFRÍÐUR
Þátttakendur í sólinni.
Æfing.