Málfríður - 15.10.2014, Blaðsíða 25
Dagana 4. og 5. júní 2014 fór fram árlegt endur-
menntunarnámskeið Félags frönskukennara á Íslandi
undir leiðsögn Yaelle Sultan, kennara frá Besançon
í Frakklandi. Á námskeiðinu, sem bar yfirskriftina
Pédagogie de l‘oral: favoriser les interactions en classe de
FLE, var sjónum beint að talmáli í kennslu frönsku sem
erlends tungumáls. Þetta námskeið tónaði því vel við
námskeið STÍL, Mat á munnlegri færni A2, B1, B2 sem
var haldið dagana á undan, 2. og 3. júní.
Á námskeiði FFÍ voru kynntar ýmsar aðferðir við
þjálfun munnlegrar færni í tungumálanámi. Það var
virkilega áhugavert að sjá hvað leiðbeinandinn, Yaelle
Sultan, bjó yfir mörgum fjölbreyttum, líflegum og
hagnýtum aðferðum við talmálskennslu og skemmtu
kennarar sér konunglega þegar kom að því að þjálfa
aðferðirnar. Þessar aðferðir eru ekki síður til þess
fallnar að brjóta ísinn þegar reynt er fá nemendur til að
tjá sig og beita tungumálinu á eðlilegan hátt í gegnum
leik.
Fjallað var um ýmsar aðferðir, bæði nýjar og gaml-
ar, og rykið dustað af gömlum og góðum æfingum.
Það væri að bera í bakkafullan lækinn að segja frá
öllum æfingunum og því verður hér aðeins tæpt á
nokkrum:
• Jacques a dit … (Símon segir …). Kennari/nemandi
gefur fyrirmæli um einhverja líkamlega hreyfingu
og þátttakendur eiga að framfylgja skipuninni að
því tilskildu að hún hefjist á orðunum: Jaques a dit
… Þetta getur verið skemmtileg tilbreyting þegar
verið er að þjálfa t.d. boðhátt og orðaforða um
líkamann.
• Strax í upphafi tungumálanáms þjálfast nemend-
ur í að spyrja og svara einföldum spurningum.
Sem dæmi um skemmtilega útfærslu á þessu má
nefna aðferð þar sem kennari varpar fram spurn-
ingu og nemendur keppast við að koma með eins
mörg ólík en viðeigandi svör og þeir geta. Dæmi:
Hver getur lánað mér penna? – Ég. – Ekki ég. – Ég er
ekki með penna. – Notaðu tölvuna!
• Trufluð saga. Kennari/nemandi segir sögu en
verkefni hinna felst í að trufla stöðugt frásögnina
með spurningum. Sögumaður verður því stöðugt
að gera hlé og bregðast við spurningum nemenda
meðan á frásögninni stendur. Dæmi: Kennari/
sögumaður: Í gær fór ég í bíó. Hér geta hlustendur
gripið inn í frásögnina með spurningum á borð
við: – Hvaða bíó? – Með hverjum? – Klukkan hvað?
– Af hverju?
• Au marché. Eins og fyrr segir var áherslan á talmál-
ið, þ.e.tungumálið sem við notum í daglegu lífi
þegar við förum t.d. á markaðinn, í bankann, út á
lífið o.s.frv. Þátttakendur leika atriði sem gerist t.d.
á markaðnum. Allir þátttakendur fá ákveðið hlut-
verk að leika, s.s. að vera pirraður viðskiptavinur,
óþolinmóð kona, þreyttur unglingur, viðskipta-
vinur sem hefur gleymt peningaveskinu sínu, for-
eldri með óþekkt barn o.s.frv. Æfingin felst í að
leika samskiptin sem verða á milli sölumanns á
markaðnum og viðskiptavina. Samskipti eiga sér
einnig stað innbyrðis milli viðskiptavina í röðinni
sem bíða eftir afgreiðslu. Enginn viðskiptavinur
má kaupa sömu vörutegund og þeir keyptu sem
voru á undan í röðinni. Geri einhver þau mistök,
fer sá hinn sami í hlutverk kaupmannsins.
• Les vêtements. Orðaforðaæfing sem tengist klæðn-
aði og/eða útliti. Þrír nemendur eru saman í hóp.
Þeir skoða vel klæðnað hvers annars, síðan snúa
tveir bökum saman og lýsa hvor öðrum. Sá þriðji
fylgist vel með og leiðréttir.
• Hljóðlaus frásögn. Einn talar ,,hljóðlaust“ og eiga
hinir að reyna að skilja hvað hann er að segja.
• Lygasaga. Kennari/nemandi endursegir smásögu,
þekktar staðreyndir eða eitthvað annað sem nem-
endur þekkja. Nemendur hlusta gaumgæfilega og
punkta hjá sér staðreyndavillur og hrekja þannig
söguna.
• Nafnorð – lýsingarorð. Nemandi dregur tvö spjöld.
Á öðru þeirra er nafnorð, á hinu er lýsingarorð.
Nemandi leikur það sem hann dró, t.d. une
Study
grammar
anytime,
anywhere.
The only grammar app an intermediate learner of
English will ever need.
Raymond Murphy’s English Grammar in Use
is now more mobile than ever!
1 Genuine Murphy content,
specially designed for
smartphones and tablets
2 Starter Pack includes
a guide to Past and Present
tenses, interactive exercises,
Glossary and Study Guide
3 Choose the whole app
or just the grammar units
you need
cambridge.org/eguapp
MÁLFRÍÐUR 25
Vera Ósk
Valgarðsdóttir
Hrefna Clausen
Sumarnámskeið:
Et si on parlait un peu français?
Námskeið á vegum Félags frönskukennara á Íslandi um
þjálfun talmáls í tungumálakennslu
Hrefna Clausen, frönskukennari við Fjölbrautaskóla
Suðurlands og Vera Ósk Valgarðsdóttir, frönskukennari
við Fjölbrautaskóla Suðurlands.