Fréttir - Eyjafréttir - 26.03.1998, Page 1
( (H> >Paskaaœtlun Herjolfs
25. árgangur • Vestmannaeyjum 26. mars 1998 • 12. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
Síðastliðinn laugardag var haldinn hátíðlegur tónlistardagur Vestmannaeyja í Safnaðarheimili Landakirkju. Þeir
sem komu fram voru Samkórinn, Kór Landakirkju Lúðrasveit Vestmannaeyja, Harmonikkufélagið ásamt Samkór
Trésmiðafélags Reykjavíkur. Þótti dagurinn takast hið besta og skemmtu allir sér frábærlega jafnt kórfólk sem
og áheyrendur sem troðfylltu safnaðarheimilið. Á myndinni má sjá stjórnendur kóra og hljómsveitar þakka fyrir
sig ásamt hluta kórfólks í baksýn. F.v. Guðmudur H. Guðjónsson, stjórnandi kórs Landakirkju, Bára
Grímsdóttir, stjórnandi Samkórs Vestmannaeyja, Jóhanna V. Þórhallsdóttir Samkór Trésmiðafélagsins og Stefán
Sigurjónsson, stjórnandi Lúðrasveitar Vestmannaeyja.
Lög á sjómenn með samþykki Sjómannasambandsins.
Sjómenn náðu fram breyflngum
semþeirgátufelltsigvið
Ríkisstjómin ákvað á fundi sínum á
þriðjudagsmorgun að lögfesta miðlun-
artillögu rikissáttasemjara í kjaradeilu
sjómanna og útvegsmanna. Fulltrúar
sjómanna brugðust illa við og fund-
uðu stíft á þriðjudag, unt viðbrögð við
hugsanlegri lagasetningu.
Einn þeirra möguleika sem sjó-
menn íliuguðu í gær (miðvikudag) var
að aflýsa verkfalli ef ske kynni að það
mætti afstýra lagasetningu ríkis-
stjómarinnar.
Fulltrúar sjómanna gengu á fund
Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráð-
herra kl 10:00 í gær og aftur um
hádegið. Þá náðist niðurstaða um
breytingu á lögunum sem aðilar
Sjómannasambandsins gátu fellt sig
við.
Elías Björnsson formaður Sjó-
mannafélagsins Jötuns í Vest-
mannaeyjum segir að lögin verði lögð
fram með samþykki Sjómanna-
sambandsins. „Samningamir verða
lögfestir á Alþingi að öllu óbreyttu og
gilda sem kjarasamningur milli
sjómanna og útvegsmanna til 15.
febrúar árið 2000. Fallist var á
breytingartillögu frá okkur sem tekur
til fækkunar í áhöfn, en það er
gjörbreytt afstaða frá því sem fyrra
frumvarpið fól í sér. Verkfall mun
hins vegar verða áfram, eða þar til
lögin hafatekið gildi."
Magnús Kristinsson formaður
Útvegsbændafélags Vestmannaeyja
var fáorður um þessar breytingar á
frumvarpinu. Hann sagði það með
ólíkindum hvað Þorsteinn Pálsson
hefði látið snúa sér í þessu ferli öllu
saman. Ef það væri þetta sem koma
skyldi, þá litist honum ekki á blikuna.
Magnús sagði málið nú í höndum
ríkisstjómarinnar og ef menn vildu
▼▼▼
...er á blaðsíðu 7
Ucrioltur brúarbilið
Sími 4812800 Fax 4812991
það fremur en að semja í frjálsum
samningum þá yrði svo að vera.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 481
Enn fjölgar Tflotanum
30 tonna batur dl Eyja
María Pétursdóttir VE 14, 29tonna
eikarbátur, hefur verið keyptur til
Vestmannaeyja. Pétur Sveinsson,
skipstjóri og hinn nýi eigandi bátsins,
segir að báturinn sé keyptur frá
Vogum, en hann haft verið smíðaður
áAkureyri 1975. Pétur hyggst gera út
á snurvoð og vera á leigumarkaði.
„Það er enginn kvóti á bátnum þannig
að við ætlum að veiða kola og aðrar
flatfisktegundir. Þorskurinn er svo
dýr að það þýðir ekkert að hugsa um
hann. En eins og ég segi, þá ætlum
við að leigja okkur heimildir og lítum
björtum augum á það."
Pétur var skipstjóri á Andvara í
fjögur ár og veiddi á Flæmska
hattinum. Hann segist hafa verið
búinn að fá nóg af þeim útilegum.
Hann segir að báturinn hafi kostað 21
milljón. „Það á að vera ágætis
grundvöllur fyrir þessu, sagði Pétur að
lokum
Skoðanakönnun Gallup fyrir Fréttir vegna
sveitarstjórnarkosninganna í vor
Tæp 80% uilja
Guðjðn sem
bæjarsflðra áfram
Samkvæmt skoðanakönnun sem
Gallup gerði fyrir FTIETTIR dagana
15. - 19. mars kemur í ljós að fylgi
Sjálfstæðisflokks eykst miðað við
niðurstöður kosninganna 1994.
Vestmannaeyjalistinn og Listi óháðra
eiga því við fylgistap að glíma sé mið
tekið af niðurstöðum könnunarinnar
og þær bomar sarnan við kosn-
ingamar 1994. Tveggja spurninga
var spurt og var úrtakið 600 manns
og hlutfall þeirra sem svömðu var
72,8%. Úrtakið var tilviljunarúrtak
18-75 ára Vestmannaeyinga úr
þjóðskrá.
I. Spurt var: Ef kosið vœrí til
sveitarstjóniarkosninga í dag, hvaða
flokk eða lista myndirþú kjósa?
Eftirfarandi niðurstöður fengust
við þessari spurningu:
D - listi 45,8%
V - listi 36,0%
H-listi 1,3%
Myndi ekki kjósa 7,6%
Myndi skila auðu 6.4%
Annað 2,9%
Af þeim sem afstöðu taka fengi:
D-listi 55,1%
V - listi 43,5%
H-listi 1.4%
Ef þessar niðurstöður eru bomar
saman við úrslit sveitarstjórnar-
kosninganna 1994 sem hlutfall af
greiddum atkvæðum þá fékk D - listi
52,3% með 1579 atkv. á bak við sig
V - listi 31.5% með 953 atkv. á bak
við sig.
H - listi 16,2% með 491 atkv. á bak
við sig
2. Einnig var spurt. Hvem viltþú sjá
sem nœsta bœjarstjóra?
Ekki var geftnn neinn valkostur unt
menn í þessari spumingu.
Svörin voru eftirfarandi.
Guðjón Hjörleifsson 79,8%
Ragnar Oskarsson 7,1 %
Páll Zóphóníasson 3,3%
Arinað 9,8%
í annað voru nöfn sem nefnd voru
einu sinni, eða þeir sem svöruðu t.d.
einhvem vinstri mann, einhvem nýj-
an o.s.frv. Þegar þessi spurning er
brotin niður eftir því hvaða lista
rnenn ætla að kjósa kemur í ljós að af
þeim sem ætla að kjósa D - lista vilja
81.5% Guðjón sem næsta bæjar-
stjóra en 9,4% þeirra sem ætla að
kjósa V - listann vilja Guðjón sem
bæjarstjóra.
Af þeim sem ætla að kjósa D-listann
em 18,5% sem ekki vilja Guðjón sem
bæjarstjóra. eða svara ég veit ekki.
Hins vegar vilja 76,4% þeirra sem
ætla að kjósa V-listann einhvem
annan eða segja veit ekki. Af þeim
sem ætla að kjósa V-listann vilja
8,2% Ragnar Óskarsson og 4,7% Pál
Zóphóníasson.Nánar mun verða
fjallað um könnunina í næsta blaði.
Ilk.Bókabúðin
ln \.*4nN. Heiðarvegi 9 - Sími 481 1434