Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 26.03.1998, Síða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 26.03.1998, Síða 6
6 Fréttir Fimmtudagur 26. mars 1998 F i n n m i g o s p e 1 ít - segir Iris Guðmundsdóttir söngkona íris syngur af innlifun á tónleikunum á briðjudaginn í síðustu viku íris Guðmundsdóttir söngkona hélt tónleika í sal Hvítasunnusafnaðar- ins á þriðjudagskvöld í síðustu viku. Tónleikana hélt hún í tilefni af þrítugsafmæli sínu. í kringum tvöhundruð manns komu á tónleikana þar sem efnisskráin stóð aðallega saman af gospellögum. „Eg var jafnvel farin að hafa áhyggjur af því að það kæmust ekki allir fyrir,“ segir Iris. Hún segir að hún hafi verið mjög ánægð með móttökur tónleikagesta og þær komi til með að hvetja hana til frekari dáða á söngsviðinu. Alltaf verið míkil tónlíst í kringummig íris er fædd á Selfossi en flutti snemma til Vestmannaeyja og ólst þar upp. Hún segist hafa sungið síðan hún man eftir sér, en tróð fyrst upp átta ára gömul. Fjölskylda hennar hefur alla tíð haft mikinn áhuga á tónlist svo að hún á ekki langt að sækja tónlistargáfuna. „Öll fjölskyldan er syngjandi og spilandi og synir ntínir tveir hafa ekki heldur farið varhluta af því og spila báðir á trommur og gítara." Áttu eitthvert tónlistamám að baki? „Minn tónlistarlegi bakgrunnur er að miklum hluta í Hvítasunnu- söfnuðinum. Svo lærði ég á hljóðfæri sem krakki, bæði píanó og ýmis blásturshljóðfæri. í Söngskólanum í Reykjavík var ég svo veturinn 1986. Þá tók ég mér hlé meðal annars vegna barneigna, en fór í Tónlistarskóla FÍH 1990 - 1993 í fullt nám í jassdeildinni og var svo með annan fótinn þar til 1995.“ Frekar ódugieg að koma mér á framfæri Iris segir að hún hafi verið frekar ódugleg við að koma sér á framfæri með tónleikahaldi, en að hún hafi byrjað að kynna sig sem jasssöngkonu árið 1993. „Það ár hélt ég sjálfstæða tónleika í Reykjavík og söng á Ara í Ögri áriðl 995. Til að mynda söng ég á tónlistardagskrá Magnúsar Eiríkssonar, Braggablús á Hótel íslandi og hálfan vetur í Skíðaskálanum í Hveradölunt. Hins vegar fann ég mig aldrei í þessum dansiballabransa. Hann heillaði mig bara ekki. Ég hef aldrei verið sú týpa sem er úti á lífinu og þekki það ekki. Hins vegar hef ég sönginn sem atvinnu ásamt því að vinna sern gangavörður í Bamaskólanum. Ég syng til dæmis rnikið við kirkjulegar athafnir eins og brúðkaup og fleira og á ýmsum einkasamkomum.“ íris segir að hún hafi mestan áhuga fyrir jass- og gospelsöng og að gospeltónlistin hafi alltaf verið hennar aðalsmerki. „Mig langar mest til að syngja gospel og finn mig best í þeirri tónlist og þessir tónleikar sem ég hélt á þriðjudaginn eru fyrstu tónleikamir sem ég held fyrir Vestmannaeyinga og syng rnína tónlist." Hvemig er að standa á sviðinu fyrir framan fullan sal áheyrenda? Líður uel á svióí „Mér líður mjög vel á sviðinu og það er heilmikil útrás. Það gefur mér mikið og ef salurinn er góður, eins og á þriðjudaginn, þá gef ég mikið af ntér. Það er alltaf samspil milli áheyrenda og flytjanda sem á sér stað á tónleikum og ég á miklu auðveldara með að fá útrás fyrir tilfmnignar mínar í söng, heldur en kannski að tala. Á tónleikunum fannst mér fólkið vera móttækilegt og ég gaf mig alla í sönginn að sama skapi.“ Nú hefur verið frekar hljótt unt þig á söngsviðinu undanfarið. Hvemig stendur á því? „Þetta hefur alltaf gengið í tímabilum. Ég dreg mig stundum í hlé vegna þess að mér finnst ég þurfa að hlaða mig upp sjálf og stundum hvarflar að mér að ég sé ekki á réttri braut. Þetta er ekki allt sjálfsagt. Svo er gospeltónlist svo nálæg andlegum og huglægum málum og þannig er ég kannski sjálf. Ef ég hef ekkert að gefa nema fallega rödd þá er það ekki nóg. Ég vil líka fá fólk til að hugsa og þá kemur trúin sterk inn í þá tjáningu. Ég er mjög trúuð og ég fer á samkomur til þess að eiga samveru með guði og öðrum trúuðum. Ég tek sönginn ekki sem sjálfsagðan og endurskoða sífellt afstöðu mína.“ íris segir að sér hafi þótt tímabært að koma fram núna og ekki síst að vera á heimavelli. „Þó ég sé fædd á Selfossi, þá kalla ég mig alltaf Vestmannaeying og ég var djúpt snortin af þeim frábæru móttökum sem ég fékk á tónleikunum. Þessi tónlist á ekki mjög stóran aðdáendahóp hér á landi, þannig að þetta kom mér líka dálítið á óvart." Langaraðgefaútdisk Hefurðu ekkert íltugað að gefa út sólóplötu? ,Jú það hef ég gert og það er draumurinn sem ég stefni að leynt og ljóst, en eins og ég segi þá er markaðurinn ekki rnjög stór hér á landi. Mig langar heldur ekki til útlanda. Þar er hins vegar markaður, en það er ekki auðvelt að brjóta sér leið inn á hann. Þetta er hægt hér en það þarf að skapa eftirspumina og markaðinn. Ég vil ekki fara út í eitthvað sem ég get ekki staðið við. eða standa uppi gjaldþrota eftir eitthvert mislukkað útgáfuævintýri. Það hins vegar styttist í að ég geft út plötu og ég veit að hún kemur út en þegar hún kemur þá verður það þegar aðstæður verða réttar.“ fris hefur sungið inn á plötur meðal annars, í skjóli nætur með Stefáni Stefánssyni og Jól í Eyjum sem var samstarfsverkefnýnokkurra tónlistar- manna. En á íris sér einhverjar fyrirmyndir og uppáhalds söngkonur? ,Já ég held mikið upp á sænsku söngkonuna Evie Tomquist, Sandy Patti og Yolanda Adants. Þær eru báðar bandarískar. Sandy Patti stúderaði ég mest. Hún hefur veika rödd og mjóa tóna. en getur látið þá lifa mjög lengi. Yolanda Adams er líka stórkostleg söngkona og syngur næst þvt sem mig langar til. Hún improviserar mikið. eða tekur lögin og breytir þeim í miklum tilfinningahita og nær ótrúlegu flugi." íris segir að þegar hana bresti visku. leiti hún til guðs og bætir við að hann hafi hjálpað henni ef hún hefur átt erfitt. „Mér finnst gaman að lifa og er mjög sátt við lífið. Ég er hætt að horfa á það sem ég hef ekki. heldur horfi á það sem ég hef og er ánægð og þakklát fyrir það. Ég hef kannski verið dálítið fiðrildi á stundum í tónlistinni. Ég hef byrjað á mörgu og hætt í mörgu, en söngurinn hefur staðið allt af sér.“ segir Iris að lokunt. -beg- Tónleikagestír klappa frísi lof í lófa Sigurgeir Jónsson skrifar ttidcqi Af örnefnum Líkast til eru hvergi á byggðu bóli jafn mörg örnefni samanþjöppuð í takmörkuðu umhverfi og í Vestmannaeyjum. Nú er víða á landinu margt örnefna en skrifari hefur um það gmn að við í Eyjum eigum metið, a.m.k. miðað við landrýmið. Vart er til sú þúfa í Vestmannaeyjum sem ekki á sitt sérstaka nafn og oftar en ekki er einhver saga sem tengist nafninu. Fyrir margt löngu kom út bókin Ömefni í Vestmannaeyjum eftir dr. Þorkel Jóhannesson og er hún hin merkasta heimild. Sú bók er þó ekki tæmandi auk þess sem síðan hafa mörg ný ömefni bæst við, ekki síst með nýju landi. Því er það ánægjulegt að áhugasamur Vestmanna- eyingur, Olafur Týr Guðjónsson, vinnur nú að enn frekari heimildasöfnun um ömefni í Eyjum. M.a. stendur hann fyrir námskeiðahaldi um þetta efni um þessar mundir og mun áhugi mikill fyrir þvf og færri sem að komast en vilja. Flestir Vestmannaeyingar munu sáttir við sfn gömlu ömefni. Þau munu og líka flést hvereiga uppruna sinn í Eyjum, þ.e. það vom Vest- mannaeyingar sjálfir sem gáfu þessum stöðum nöfn. En með aukinni miðstýringu frá höfuð- borgarsvæðinu, eins og hefur farið vaxandi á svo mörgum sviðum á síðustu ámm. hefur þetta sjálfsagða forræði landsbyggðarmanna, að mega sjálfir ráða nafngiftum á hólum og klettum, verið fært suður á Faxaflóasvæðið, rétt eins og þar sé nafli alheimsins. Hingað til hefur verið látið nægja að svokölluð ömefnanefnd sæi um þessa lilið mála en nú hefur skrifari eftir nokkuð áreiðanlegum heimildum að fyrir þingi liggi fmmvarp um að koma á fót sérstakri ömefna- stofnun (að sjálfsögðu með aðsetur í Reykjavík) með launuðum starfskröftum er hafi það einkum á sínu starfssviði að sjá til þess að landsmenn fari sér ekki að voða í nafngiftum á liólum. klettum og skerjum, svo og í nýjum bæjanöfnum. Til þessarar stofnunar er áætlað að renni af tjárlögum hvers árs tíu milljónir króna. Hin síðari ár hefur öllu meira borið á því í Vestmannaeyjum en öðmm stöðum á landinu að finna þurfi ný örnefni. Breytingar á landslagi hafa nefnilega verið meiri hér af völdum náttúmafla en annars staðar á landinu og það kallar á ný ömefni. Og heimamenn hafa litlu fengið að ráða um nýjar nafngiftir, forsjár- hyggjan að sunnan liefur séð fyrir því. Allt byrjaði þetta með Surtseyjargosinu. Heima- menn vildu kalla nýju eyjuna Vesturey en fengu engu ráðið í því og urðu af hatramar deilur. Nafngiftin að sunnan varð ofan á og eyjan heitir í dag Surtsey sem er í sjálfu sér ágætt nafn. En svo gaus aftur. Nýtt fjall birtist og vantaði nafn. Heimamenn höfðu ákveðnar hugmyndir, svo sem Kirkjubæjarfell, til að minna á hvað undir tjallinu er. En sunnanmenn fóm með ferðina og ákváðu hið stórkostlega nafn Eldfell sem lýsir einstakri hugmyndaauðgi nefndar- ntanna. Og þetta létu menn sér lynda. Nýja hraunið mun eftir því heita Eldfellshraun og fáir sem bera sér það nafn í munn. flestir kalla það einfaldlega Nýja hraun. Þar á er þó einn galli þar sem hafsvæði suður og austur af Eyjum ber einnig það nafn. En forræðishyggjan að sunnan hefur þó ekki alfarið ráðið um ný ömefni eða þá hún hefur lagt blessun sína yfir þau. t.a.m. Flakkarann, Viðlagavík og Prestavík. Þó heyrði skrifari á dögunum að örnefnanefnd hefði ákveðið nafn á tanganum sem skagar út úr hraunkantinum á móts við Ystaklett. Þar hefur talsvert af ritu numið land og því ekki óeðlilegt að liann nefndist Ritutangi. En ónei, tanginn skal heita Skeglutangi, samkvæmt boðum að sunnan. Ritan er nefnilega kölluð skegla sums staðar á landinu. t.d. fyrir norðan og líkast til á einhver orðhagur Norðlendingur sæti í nefndinni. Nú þegar búið verður að leysa ömefnanefnd af hólmi með sérstöku ríkisapparati og tjárveitingu. má búast við að taki að færast tjör f leikinn. Svoleiðis apparat þarf nefnilega að hafa eitthvað fyrir stafni annað en að naga blýanta. Því má búast við að yfir okkur fari að rigna nýjum ömefnum á staði sem slíkt vantar, t.d. Kofustallur, þar sem lundapysjum er sleppt á Eiðinu. Og gömul og úr sér gengin örnefni. á borð við Mikitakstó og Svitúnspall. verða væntanlega endumýjuð og fá glæsinöfn á borð við Grænató og Suðurpallur. Og best af öllu væri náttúrlega fyrir apparat á borð við Ömefnastofnun að almættið kæmi af stað eins og einu stykki af nýju eldgosi við Vestmannaeyjar. Þá gæti starfsliðið farið að vinna í yfirvinnu. Sigurg.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.