Fréttir - Eyjafréttir - 26.03.1998, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 26. mars 1998
Fréttir
15
IBV steinlá fyrir IR
- og mætír Fram í 8-lióa úrslítunum
Eyjamenn fengu hið skemmtilega lið
ÍR í heimsókn síðastliðinn fimmtudag,
og var þetta jafnframt síðasti leikur
ÍBV í deildinni. ÍR-ingar komu IBV í
opna skjöldu með góðum leik og
frábærri baráttu. Línumaðurinn
snjalli, Svavar Vignisson. lék ekki
með, þar sem hann var veðurtepptur í
Reykjavík og rnunaði urn minna. Lið
ÍR hafði undirtökin allan leikinn og
uppskar sigur, 27-29.
IR-ingar komu mun grimmari til
leiks og voru staðráðnir í að vinna
Fyrsti leikur IBV og Hauka í úr-
slitakeppninni fór fram á föstu-
dagskvöld í Hafnaifirði og steinlágu
Eyjastelpur í þeim leik. 25-18.
Annar leikur liðanna fór síðan fram
hér í Eyjum, sl. sunnudag. Sá leikur
var æsispennandi og þurfti að
framlengja hann, eftir að jafnt hafði
verið í leikslok, 17-17. Haukarunnu
svo í framlengingu og eru þær þar
með komnar áfram. en FBV úr leik.
Haukar-ÍBV 25-18 (12-8)
Eyjastelpur spiluðu frábæran
vamarleik í fyrri hálfleik og það var
mikið sjálfstraust í liðinu, bæði í vöm
og sókn. En hræðilegur 15 mínútna
kafli í seinni hálfleik gerði útslagið.
þegar IBV skoraði aðeins 1 mark
gegn 8 mörkum heimamanna.
Stelpumar tóku síðan smá kipp í
lokin en það dugði engan veginn til.
Best Eyjastúlkna var Eglé
ntarkmaður.
Mörk ÍBV: Ingibjörg 5/1, Stefanía 4,
Sandra 4/1. Hind 2. Anna Rós 2 og
Guðbjörg 1.
Varin skot: Eglé 21
ÍBV - Haukar 17-17 (8-10)
Lokatöiur eftir framlengingu: 20-23
ÍBV stelpur komu vel stemmdar
tilseinni leiksins og vom staðráðnar í
að selja sig dýrt. Mikil barátta var í
Iiðinu og vörn liðsins föst fyrir. Að
sama skapi var sóknarleikurinn
þennan leik og bjarga sér þar með frá
falli. Sóknarleikur Eyjamanna var
nokkuð bitlaus og skoruðu þeir aðeins
eitt ntark á fyrstu 10 mínútunum.
Heldur lifnaði yftr leik ÍBV það sem
eftir var fyrri hálfleiks en vöm
Eyjamanna og Sigmar Þröstur í
markinu, áttu í stökustu vandræðunt
með fríska einstaklinga IR-liðsins.
Staðan í hálfleik var 12-14. í upphafi
síðari hálfleiks tóku gestirnir Robertas
úr untferð og við það fór sóknarleikur
ÍBV úr skorðum, líkt og í leiknum á
bragðdaufur, en heldur lifnaði yfir
honunt þegar Andrea kom inn á.
Seinni hálfleikur var mjög fjörugur
og skiptust liðin á að taka forystu.
Það fór svo að lokum að leikurinn
endaði með jafntefli, 17-17 og grípa
þurfti til framlengingar. Þar gerðu
gestimir út um leikinn með 4
mörkum gegn 1 í fyrri hluta
framlengingarinnar. Og lokatölur
leiksins, 20-23. Eglé markmaður,
var tvímælalaust maður leiksins og
hélt Eyjastelpum inni f leiknum allan
tímann. Ingibjörg. Guðbjörg og
Andrea komust einnig ágætlega frá
leiknunt. ÍBV stelpur fengu mörg
tækifæri til að fara með sigur af
hólmi, en þegar liðið misnotar 3
vítaköst og brennir af fullt af
dauðafæmm, þá er ekki von á góðu.
Vert er að minnast frammistöðu
dómaranna í leiknum, en það virðist
vera orðið daglegt brauð hjá þessari
ólánsömu stétt að klúðra hverjum
leiknunt á fælur öðrum, einfaldlega
vegna þess að þeir missa öll tök á
leikjunum. um leið og hraðinn og
spennan eykst í þeim.
Keppnistímabilinu hjá stelpunum
er því lokið í þetta skiptið og það er
ekki hægt að segja annað en að þær
haft fallið út með særnd.
MörkÍBV: Ingibjörg5, Andrea4/2,
Sara 3, Guðbjörg 3, Sandra 3,
Stefanía 2
Varinskot: Eglé 26/1
móti KA. ÍR-ingar notfærðu sér þetta
vel og komust mest í 6 marka forystu,
15-21. Eyjamenn tóku sig aðeins
saman í andlitinu í lokin en það dugði
ekki til. Hjörtur var sprækastur hjá
ÍBV og einnig var Robertas að gera
góða hluti, þegar hann fékk tækifæri
til. Belló fann sig engan veginn í
leiknum og var hann örugglega allt of
mikið með hugann við markakóngs-
titilinn. Miðað við tvo síðustu leiki
IBV-liðsins, þá er ljóst að menn verða
að rífa sig upp úr meðalmennskunni ef
Innanhússmeistaramótið í sundi var
haldið um síðustu helgi í sundlauginni
í bandarísku herstöðinni á Kefla-
víkurflugvelli. Því ntiður var aðeins
einn keppandi frá IBV að þessu sinni
á mótinu en það var Eva Lind
Ingadóttir og synti hún í þremur grein-
um. Fyrst synti hún í tvöhundruð
metra fjórsundi á föstudeginum. Þar
gerðist sá furðulegi atburður að Eva
var dæmd í úrslit halftíma eftir að
undanrásum var lokið en hún var ekki
inni í úrslitum þegar við yfirgáfum
sundlaugina til að snæða hádegisverð.
Engum af mótshöldurum datt í hug að
láta okkur vita af þessu þó að flestir
borðuðu á þessum stað. Þar sem
ekkert var að gera hjá okkur í þessum
úrslitum komum við inn í sundlaugina
f þann mund sem upphitun var að
ljúka og var okkur þá tilkynnt þetta en
það var of seint fyrir Evu og
óskiljanleg ósvífni í okkar garð.
A laugardeginum synti Eva Lind
tvöhundruð metra baksund. Náði hún
þeir ætla sér stóra hluti gegn Fram í
úrslitakeppninni. Forsenda fyrir því er
að Sigmar Þröstur verður að finna sig
í markinu, leysa verður sóknarleikinn
betur ef Robertas er tekinn úr umferð
og síðast en ekki síst kom það
bersýnilega í ljós í leiknum gegn IR.
hvað Svavar er Iiðinu mikilvægur.
Mörk ÍBV: Hjörtur 8, Robertas 5,
Erlingur 5, Bélánýi 4, Haraldur 2,
Guðfinnur 1, Sigurður 1, Davíð I.
Varin skot: Sigmar Þröstur 14, Dav-
íðE. 3
sjötta besta tímanum í undanrásum
2:36,87 og í beinni útsendingu synti
hún í A-úrslitunum eftir hádegi og
endaði í fimmta sæti á tímanum
2:37,79. Ekki fór það framhjá þjálfara
að Eva var stressuð í þessu sundi enda
umgjörðin á mótinu stór. Síðan á
sunnudeginum synti Eva tvöhundruð
metra flugsund. I undanrásunum synti
hún á tímanum 2:48,12 og var með
níunda besta tímann og þar með í B-
úrslitum. Synti hún betur í úrslitunum
en þá fór hún á tímanum 2:47,40 og
endaði í áttunda sæti sem er aldeilis
góður árangur hjá Evu.
Öll umgjörð á mótinu af hálfu
mótshaldara, þ.e.a.s. Keflavíkur. var
glæsileg og þáttur SSÍ var með
ágætum fyrir utan tvöhundruð m
fjórsundið hennar Evu. Þó tjáðu mér
flestir að það hefði nú verið best að
halda mótið, eins og vant væri. í
Eyjum
Þjálfari
Fréttirúrenska
boltanum
Crystal Palace vann langþráðan
sigur í deildinni í síðustu viku.
Liðið lagði þáNewcastle að velli, 1-
2. Framkvæmdastjóraskiptin eru
farin að hafa áhrif hjá félaginu og
kom Hermann inn á sem vara-
maður, þegar um 15 mínútur voru
til leiksloka.
Tveirsígrar
Eyjamenn spiluðu sína fyrstu leiki í
deildabikamum, um síðustu helgi.
Eyjamenn áttu í litlum vandræðum
með andstæðinga sína í leikjunum
og unnu þá báða sannfærandi.
Úrslit urðu sem hér segir:
Fylkir - ÍBV 1-4
( Kristinn L. 2, ívar Ingimarsson 1.
Sigurvin 1)
Þróttur N. - ÍBV 0-14
(Steingrímur 5, Hallur4. Hlynur 3,
Kristinn L. 1. ívar Bjarklind 1 )
Næstkomandi þriðjudag spilarÍBV
svo við Víði Garði og mun sá leikur
líklega fara ffam á grasi. Á
miðvikudeginum heldur ÍBV-liðið
síðan utan og verður í æfingabúðum
í Portúgal í eina viku.
3, fl. kv, í úrslít
Helgina 13. til 15.mars fórfram
undanúrslita túmering, hjá 3. flokki
kvenna í handbolta. Stelpumar
töpuðu öllum 4 leikjunr sínum en
þar sem þær voru að spila í 1. deild,
höfðu þær áður tryggt sér sæti í
úrslitum. Úrslitakeppnin fer fram
um miðjan næsta mánuð.
Þjálfari stelpnanna er Guðfinnur
Kristmannsson.
Dagatal ÍBV
komið út
Dagatal íslandsmeistara ÍBV í
knattspymu. er kornið út. Þar gefur
að líta leiki sumarsins í deildar-,
bikíu- og Evrópukeppni og myndir
af meistaraliðum IBV í gegnum
árin munu prýða mánuði alntan-
aksins. Leikmenn IBV munu selja
dagatalið og rennur ágóðinn í
æfingaferð strákanna til Portúgal.
1 .apríl nk. Einnig geturfólk nálgast
alntanakið hjá Þorsteini Gunnars-
syni, Þórsheimili en þar er sími
481-2060.
Eva stóð sig vel
Eva Lind Ingadóttir í tvöhundruð nietra flugsundi en þar varð hún með
níunda besta tímann.
Innanhússmeistaramót Islands í sundi
HaldiÓ á amerísku yfirráóasvæói
Innanhússmeistaramót íslands í
sundi var haldið urn síðustu helgi og
fór mótið fram í nýrri sundlaug á
Keflavíkurflugvelli. Sú ákvörðun að
láta mótið fara fara fram þar, kom
mörgum á óvart, sérstaklega í ljósi
þess að rnótið hefur verið haldið 8
sinnum hér í Eyjunt. I samtali við
FRÉTTIR, sagði Ólafur Ólafsson,
gjaldkeri Sunddeildar ÍBV, að
formaður Sundsambands íslands hefði
haft samband við þjálfara deildarinnar
og tjáð honunt munnlega breytingu á
mótsstað. Fyrirhuguð breyting var
hinsvegar aldrei tilkynnt skriflega.
Formaður Sundsambandsins nefnir
nokkrar ástæður fyrir breytingu á
mótsstað. í fyrsta lagi, og ein
aðalástæðan. var að ekki væri hægt að
sýna beint frá mótinu, en á
laugardeginum var sýnt í eina og hálfa
klukkustund frá því. í öðru lagi, vildu
Frá Innanhússmeistaramótinu á Vellinum um helgina.
þeir tilbreytingu og hafa mótið annars
staðar en í Vestmannaeyjum. í þriðja
lagi, sögðu þeir að það væri svo dýrt
að ferðast út á land, og í fjórða og
síðasta lagi, þá gætu foreldrar mætt
betur á mótið ef það væri haldið á
fastalandinu. Það sent ef til vill vegur
samt þyngst í þessu máli, er sá
viðkvæmi punktur að sunddeild ÍBV,
sem hefur vanalega séð um allt
uppihald formanns Sundsambandsins
meðan á ntóti stendur, viidi að SSÍ sæi
sjálft um uppihald síns formanns.
Þetta hefur örugglega farið fyrir
brjóstið á mönnum og einhverjir
eflaust móðgast við þetta. Ólafur
sagði að sunddeild ÍBV hefði ekki
fengið nein áreiðanleg svör varðandi
þetta mál og væru vinnubrögð SSÍ
vægast sagt furðuleg.
Framkvæmd mótsins hér í Eyjum,
undanfarin ár, hefði alltaf verið til
sóma. Þess ber að geta að í sund-
lauginni á Keflavíkurflugvelli, eru 8
brautir og voru 6 notaðar. Það flýtir
mikið fyrir framkvæmd mótsins en
aftur á móti er sundlaugin f Eyjum sú
besta og hraðasta á landinu. Að
lokum taldi Ólafur brýna nauðsyn, að
ljósleiðara yrði komið alla leið inn í
Iþróttamiðstöð, svo hægt væri að sýna
beint þaðan í framtíðinni, frá sund-
mótum og handboltaleikjum. Það
atriði, sent vert er að minnast enn
frekar á. og við Vestmannaeyingar
höfunt oftar en einu sinni rekið okkur
á, er hvað fólki á Reykjavíkursvæðinu
finnst alltaf erfitt að ferðast út á land,
en finnst ekkert sjálfsagðara en að
landsbyggðarfólkið konti í höfuð-
borgina.
Er svona miklu lengri leið frá
Reykjavík, heldur en til Reykjavíkur?