Fréttir - Eyjafréttir - 14.05.1998, Qupperneq 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 14. maí 1998
Almennum hreinsunardegi lauk meö grillveislu þar sem boðið
var upp á pylsur og drykkjarföng. Hreinsunardagurinn var
skipulagður af bænum en þatt tóku einstaklingar og
félagasamtök sem fóru vítt og breitt um Heimaey og tíndu upp
drasl. Þótti mörgum tími kominn til.
X-Bæjarstjórnarkosningamar Drífa Kristjánsdóttir á D-lista skrifar:
Stöndum vörð um
málefni fjölskyldunnar
Þegarég varbeðin
að taka 9. sæli á
lista Sjálfstæðis-
flokksins, féllust
mér hendur, en
eftir góðan um-
hugsunarfrest á-
kvað ég að slá til.
Eg vildi gefa meira af mér því ég og
fjölskylda mín erum ákveðin í að búa
hér áfram. Þar af leiðandi er ég
ákveðin í að gera mitt til að gera
góðan bæ að betri bæ.
Fjölskyldumál em mér mjög kær,
þannig að ég hef ákveðið að beina
kröftum mínum sérstaklega að þeirn
málum.
Vestmannaeyjar paradís foreldra
og barna
Vestmannaeyjar em paradís foreldra
til að ala upp böm, því öll þjónusta hér
á þessu sviði er rnjög góð. Það þarf að
byggja upp markvissa íjölskyldu-
stefnu sem taki tillit til mismunandi
þarfa hverrar kynslóðar. Útivistarað-
staða foreldra og bama verði bætt með
skipulögðu útivistarsvæði fyrir fjöl-
skylduna, þar sem athafnaþrá bam-
anna fái útrás og verði á slysalausu
svæði. Einnig þarf að korna upp
íjölskyldugarði fyrir samvem foreldra
og bama á Stakkagerðistúni eða í
Herjólfsdal.
Virk skólastefna
Leikskólinn er fyrsta skólastigið í
skólagöngu bamsins og áfram þarf að
tryggja öllum börnum leikskólapláss
sem náð hafa tilskildum aldri.
Nýsamþykkt skólastefna tengir
saman leikskóla, gmnnskóla og síðan
framhaldsskóla. I samvinnu við
heimilin í bænum er skólanum ætlað
að taka virkan þátt í að byggja upp
samfélag er tekur tillit til mismunandi
sjónarmiða hins daglega lffs í Vest-
mannaeyjum. Það er meginstefna
skóla- og bæjaryfirvalda að skólamir
staifi sem fræðslu- og menningarsetur,
hver á sínu sviði með áherslum til að
þjóna hagsmunum nemanda.
Félags- og tómstundir ungmenna
Aðstöðu til félags- og tómstundastarfa
ungmenna þarf að ella og finna þeim
samvemstað til að mæta þörfum þeirra
og til að virkja þátttöku þeirra í
samfélaginu. Stefnumörkun verði
gerð í forvömum varðandi áfengis- og
vímuefnaneyslu til að vama neyslu og
dreifmgu vímuefna.
Stuðla þarf að góðu fjölskyldulífi í
Vestmannaeyjum svo spoma megi við
fólksflutningum frá Vestmannaeyjum,
vemm jákvæð, stöndunr saman og
tryggjum okkur betra mannlíf í Vest-
mannaeyjum.
Þeim atriðum sem ég hef Ijallað um
munu frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins fylgja eftir, fái þeir umboð
kjósenda til þess í komandi kosn-
ingum.
Kjósum X - D 23. maí
Höfundur skipar 9. sœti á D-lista.
<-s\'7 í1-
. f
Hlutaveltukrakkar
Fyrir skömmu héldu þær Hafdís Guðnadóttir og Ása
Guðrún Guðmundsdóttir hlutaveltu. Ágóðann, 1480 krónur,
gáfu þær til Sjúkrahússins.
X-Bæjarstjórnarkosningarnar -Guðmundur þ.B. Olafsson á Vestmannaeyjalista skrifar:
„Fjármálastjórn" skilar bæjarfé-
laginu í tveggja milljarða skuld
-og ofgreiðslu skatta uppá 100 milljónir án þess að tekið væri eftir
Ársreikningar bæ-
jarsjóðs og stofn-
ana hans vom
Ioksins lagðir fram
í seinustu viku.
Margan var farið
að lengja eftir
reikningunum,
sérstaklega þar
sem kosningar eru í nánd, enda skylt
gagnvart kjósendum, að leggja fram
staðreyndir um svokallaða „fjármála-
stjórn” sjálfstæðismanna, sem þeir
hafa sjálfír svo gumað af, áður en
bæjarbúar ganga að kjörborðinu.
Staðreyndirnar liggja fyrir. Fjár-
málasnilli er ekki orð sem manni
dettur í hug við lesturinn. heldur þvert
á móti. Nú er svo komið, að bærinn
okkar skuldar níma 2 milljarða króna.
Skuldir bæjarins hafa hækkað um 200
milljón krónur á einu ári. Skuldir
bæjarsjóðs hækkuðu úr 584 millj-
ónum í tæpar 731 milljón króna, á
seinasta ári, eða um 146, 8 milljón
krónur. Heildarskuldir bæjarins
hækkuðu um 16,6 milljón krónur
hvern mánuð á seinasta ári, eða um
3,8 milljón krónur á viku, eða 548
þúsund krónur hvern dag allt árið í
fyrra. Ljósið í myrkrinu er hjá
Bæjarveitum en þar lækkuðu skuldir
um 38,7 milljón krónur, þrátt fyrir
töluverða skuldaaukningu Sorpu.
Skuldir bæjarins nema því, að hver
fjögurra manna fjölskylda skuldi
rúmar 1,7 milljón krónur.
Reikningar sem máttu ekki sjást
fyrir kosningar, enda jukust
skuldirnar um 200 milljónir á
scinasta ári
Reikningarnir gefa ekki bjartar upp-
lýsingar um fjármálastöðu bæjarins,
en skuldirnar jukust um 200 milljónir
á seinasta ári sem fyrr er getið.
Töluverður dráttur hefur verið á að
reikningamir væru lagðir fram og
þegar að er gáð fer maður að skilja
ástæðuna. Reyndar setti meirihlutinn
upp nrikinn snúð, þegar spurl var um
reikningana og innt var eftir því hvort
það ætti ekki leggja þá fram fyrir
kosningar. Reynt var að snúa útúr og
sagt að verið væri að gera lítið úr
embættismönnum bæjarins. Þetta er
gömul rulla hjá íhaldinu og kipptu
menn sér svo sem ekkert sérstaklega
Hjá bæjarsjóði hækka skuldir
mest, eða um 146,8 milljón
krónur og fóru úr 123 þúsund
í 158 þúsund krónur á hvern
íbúa. Heildarskuldir bæjarins
hækkuðu um 200 milljón
krónur á seinasta ári og
hækkuðu sem nemur um 16,6
milljón krónur hvern mánuð,
eða um 3,8 milljón krónur á
viku, eða 548 þúsund krónur
hvern dag allt árið í fyrra.
Skuldir bæjarins nema því,
að hver fjögurra manna
fjölskylda skuldi rúmar 1,7
milljón krónur. Samtals
skuldar bærinn rúma 2
milljarða.
upp við það. Málið er nefnilega það,
að þegar einhver gerir góða hluti,
eignar íhaldið sér það, en þegar slæmu
málin koma upp á yfírborðið, er þeini
umsvifalaust vísað á embættis-
mennina eða einhverja aðra. Þetta
hefur aldrei opinberast jafnvel og und-
anfarið og í reynd er skellihlegið að
tilburðunum í Fylki um „verkin tala”.
Hjá bæjarsjóði hækka skuldir mest,
eða um 146,8 milljón krónur og fóru
úr 123 þúsund í 158 þúsund krónur á
hvem íbúa. Heildarskuldir bæjarins
hækkuðu um 200 milljón krónur á
seinasta ári og hækkuðu sem nemur
um 16,6 milljón krónur hvem mánuð,
eða um 3,8 milljón krónur á viku, eða
548 þúsund krónur hvem dag allt árið
í fyrra. Skuldir bæjarins nema því, að
hver tjögurra manna fjölskylda skuldi
rúmar 1.7 milljón krónur. Samtals
skuldar bærinn rúma 2 milljarða.
Til upplýsinga má geta þess að að
fyrir kosningamar 1990 voru reikning-
amir lagðir fram 22. mars og fyrir
kosningamar 1994 voru reikningamir
lagðir fram 21. mars. Sú töf sem orðin
er á framlagningu reikninganna tak-
markar möguleika á því að gera
bæjarbúum nægilega grein fyrir
fjárhagsstöðunni, fyrir kosningar, sem
hefur farið hríðversnandi í tíð sjálf-
stæðismanna, en sá var kannski til-
gangurinn. Reikningamir vom lagðir
fram 16 dögum fyrir þessar kosningar.
100 milljónirnar sem komu og fóru
Margir hafa spurt sig að því, hvemig
geti staðið á því bærinn hafi fengið
heilar 100 milljón krónur í ofgreiðslu
án þess að fjármálasnillingar, eins og
sjálfstæðismenn hafa gefið sig út fyrir
að vera, hafi orðið þess varir. Er nema
von að spurt sé. íhaldið hefur látið í
veðri vaka að aðrir eins snillingar á
fjármálasviðinu hafí bara ekki verið
við völd hér í Eyjum svo vitað sé. Þarf
nokkuð að eyða mörgum orðum í
„getuna”? Gerir dæmið sig ekki sjálft
upp. 100 milljón krónur kornu og fóru.
skuldir bæjarins jukust á einu ári um
200 milljónir og skuldimar em
komnar yfir 2 milljarða. Er ekki kom-
inn tími til að gefa þessum
„snillingum” frí. Bæjarbúar hafa það í
hendi sér hvemig framtíð byggðar-
lagsins verður. Eigum við ekki að
snúa vöm í sókn með bjartsýni og vilja
að vopni? Bjartar vonir vakna með
Vestmannaeyjalistanum, það er ekki
spuming. Höfundur skipar 11. sœti á
Vestmannaeyjalisfánum.