Fréttir - Eyjafréttir - 14.05.1998, Page 21
Fimmtudagur 14. maí 1998
Fréttir
21
Kórfélögum var forkunarvel tekið.
Norðlenskur kór með tón úr Eyjum
arskólans á laugardeginuni. Tón-
leikarnir tókust í alla staði mjög vel
og tón- leikagestir ánægðir með
þetta framtak Guðjóns.
Guðjón kemur oft til Eyja til þess
að auðga tónlistarlíf Eyjanna og efla
tónlistarleg samskipti milli íslands og
Vestmannaeyja. Ekki síst er honum
annt um eldri íbúa Vestmannaeyja og
reynir ætíð að koma því við að halda
skemmtanir fyrir íbúa Hraunbúða.
Það varð engin undantekning á því í
þetta sinn. enda nutu íbúar Hraunbúða
tónleikanna út í ystu æsar og þeir
mjög þakklátir fyrir þann hlýhug sem
þetta framtak Guðjóns sýnir. Dag-
skráin stóð saman af íslenskum og
erlendum lögum eftir ýmsa höfunda
að ógleymdum nokkmm Eyjalögum.
Tónleikarnir í sal Listaskólans
vöktu ekki minni hrifningu og fóm hið
besta fram. Agæt mæting var á
tónleikana. Kóramir bám þess nokkur
merki að vera kirkjukórar, ef litið er til
raddsetninga en jafnvægi milli radda
var með ágætum og undirleikur
Guðjóns Pálssonar, jafnt á píanó sem
og harmonikku var sérdeilis þéttur.
Kóramir gerðu sér margt til gamans
á meðan á dvöl þeirra stóð í Eyjum.
Fóru þeir meðal annars í bátsferð urn
eyjar og sund, auk þess að skoða eitt
og annað sem áhuga vekur. Vom allir
kórfélagar einhuga um velheppnaða
ferð til Eyja og ekki spillti vorblíðan
sem umlukti Eyjar og fólk þessa helgi.
Báðu allir fyrir þakklæti til Vest-
mannaeyinga fyrir frábærar móttökur.
Stjómandi kóranna var Guðmundur
Þorsteinsson en kynnir Sveinn
Jónsson bóndi í Kálfsskinni og stóðu
þeir sig með ágætum.
I-----------------------------------------------------------------------------------------1
j Lóðahreinsun í Eyjum sumarið 1998 J
■ Arleg vorhreinsun verður 25. maí- 5. júmínk. og eru umráðamenn lóða hvattir til aðflytja núþegar aflóðum st'num i
* alltþað er veldur óþrifnaði og óprýði. Að lokinn hreinsun verða lóðir skoðaðar og þar sem hreinsun er ábótavant ■
I verður hún framkvœmd á kostnað og ábvrgð húseiganda án frekari viðvörunar. Bent er á sorpgáma á svœði I
Sorpeyðingarstöðvarinnar. Þessar tvœr vikur munu bœjarstarfsmennfara um liveifi bœjarins og liirða upp rusl en '
| skipulag verður svofellt:
■ Mánudag og þriðjudag 25. og 26. maí:
I Svæðið frá hraunjaðri að Skólavegi, neðan Kirkjuvegar.
I Miðvikudag og fimmtudag 27. og 28. maí:
1 Svæðið frá Skólavegi að lllugagötu.
| Föstudag og þriðjudag 29. maí og 2. júní:
■ Svæðið ofan Kirkjuvegar.
I Miðvikudag og fimmtudag 3. og 4. júní:
I Svæðið ofan Kirkjuvegar og vesturbær.
1 FöstudagS. júní:
I Vesturbærinn.
I Allt msl, sem fellur til við lóðahreinsun skal skilja eftir við gangstéttarbrún, flokkað, og skal það vera f umbúðum eða j
I bundið.
| Ruslið skal flokkað sem hér segir: i
■ Garðaúrgangur - brennanlegt sorp - óbrennanlegt sorp
I Umráðamenn óskráðra og umhirðulausra bflgarma, sem eru til óþrifnaðar á götum, bílastæðum, lóðum og opnum I
. svæðum, em minntir á að fjarlægja þá hið fyrsta, annars má búast við að þeir verði teknir til geymslu um takmarkaðan .
I tíma en síðan fluttir til eyðingar.
Allar nánari upplýsingar veittar í síma 481-1533
Bæjartæknifræðingur
Það fór ekki framhjá Vest- Árskógskirkju. Kórarnir sungu
mannaeyingum þegar Guðjón Pál- sameiginlega á tveimur skemmt-
sson kom til Eyja um síðustu helgi. unum, annarri fyrir eldir borgara á
Hann kom með tvo kóra að norðan, Hraunbúðum á föstudeginum og á
Kór Hríseyjarkirkju og Kór Stærri almennum tónleikum í sal Tónlist-
Minni áhugi Kolbrún Aðalsteinsdóttir var á Pissa 67 á
laugardaginn og tok á móti stúlkum sem áhuga hefðu á þvf að taka
þátt í Ameríkukeppni Módelskóla John Casablancas á næsta ári.
Alls komu 12 stúlkur til viðtals við Kolbrúnu. Hún segir að þetta
séu töluvert færri stúlkur en hittu hana fyrir ári síðan og að það
komi sér dálítið á óvart. „Ég átti nú von á því að fleiri stúlkur létu
sjá sig. Sérstaklega í framhaldi af velgengni Vestmanna-
eyjastúlknanna Valgerðar Sigurjónsdóttur, Esterar Helgu
Sæmundsdóttur og Guðnýjar Sigríðar Gísladóttur í keppninni nú í
vor.“
Kolbrún segir að í Vestmannaeyjum sé fjöldi stúlkna sem gætu
náð langt á þessu sviði og að möguleikar þeirra séu mjög góðir.
Nú verður farið yfir þessar tólf umsóknir og vegið og metið hverjar
komast áfram. Ég hef alltaf lagt mjög mikið upp úr því að vinna
þetta í góðum tengslum og samvinnu við foreldra stúlknanna og á
von á því að þau góðu tengsl vari áfram,“ segir Kolbrún að lokum.
Framlagning kjörskrár
Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga í Vestmannaeyjum
hefur verið lögð fram og liggur hún frammi á bæjar-
skrifstofunum í Ráðhúsinu á almennum skrifstofutíma.
Atvinna - Hraunbúðir
Starfsfólk óskast í sumarafleysingar í aðhlynningu og
ræstingu að Hraunbúðum. Upplýsingar veitir hjúkrunar-
forstjóri í símum 481-1915 eða 481-1313.
Atvinna - íþróttamiðstöð
íþróttamiðstöðin auglýsir lausa til umsóknar 50% stöðu frá
1. júní nk. Um er að ræða baðvörslu kvenna, hrein-
gerningar, afgreiðslu og fleira. Unnið er á dag-, kvöld- og
helgarvöktum. Umsækjendur þurfa að standast hæfnis-
próf sundstaða skv. reglugerð. Leitað er að starfsmanni
með góða þjónustulund og sem á gott með að umgangast
börn sem fullorðna.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Ráðhússins
og þangað ber að skila umsóknum. Umsóknarfrestur er
til 28. maí nk. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í
síma 481-2400 og 481 -1589.
Sumarafleysingar í
íþróttamiðstöð
Óskum eftir starfsfólki til sumarafleysinga við íþrótta-
miðstöðina frá 4. júní til 2. sept. nk. Umsækjendur þurfa
að standast hæfnispróf sundstaða skv. reglugerð.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Ráðhússins
og þangað ber að skila umsóknum. Umsóknarfrestur er
til 28. maí nk. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í
síma 481 -2400 og 481 -1589.
Ágætu bæjarbúar
Laugardaginn 16. maí verður skóladagur í Hamarsskóla
frákl. 14.00-17.00.
Að þessu sinni er skóladagurinn helgaður gosloka-
afmælinu og ber hluti sýningarinnar yfirskriftina „Hamarinn
fyrir og eftir gos.“
Sýnishorn af vetrarvinnu nemenda verða í stofum,
kaffihlaðborðið vinsæla er á sínum stað, að ógleymdri
hlutaveltu, tískusýningu, kórsöng og ýmsum uppákomum.
Að venju eru allir bæjarbúar hjartanlega velkomnir.
Starfsfólk og nemendur Hamarsskóla.
Innritun sex ára barna
Innritun í 1. bekk grunnskólans í Vestmannaeyjum, þ.e.
barna sem eru fædd 1992, ferfram í Hamarsskólanum og
Barnaskólanum þriðjudaginn 19. maí nk. kl. 13.00 -15.00
í báðum skólunum.
Skólamálafulltrúi
Tilsjón - persónuleg ráðgjöf
Við óskum eftir hæfu og áhugasömu fólki til tilsjónarstarfa
og persónulegrar ráðgjafar. Hlutverk tilsjonarmanns felst
fyrst og fremst í því að aðstoða foreldra við að sinna
forsjár- og uppeldisskyldu sinni svo sem best hentar hag
og þörfum barns eða ungmennis.
Hlutverk persónulegs ráðgjafa felst fyrst og fremst í því að
veita barni eða ungmenni ráðgjöf og leiðbeiningar í þeim
tilgangi að styrkja það félagslega, siðferðilega og
tilfinningalega svo sem í sambandi við vinnu, menntun og
tómstundir. Nauðsynlegt er að umsækjendur séu eldri en
18 ára og hafi reynslu af vinnu með börnum.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Ráðhússins, kjallara,
og óskast umsóknum skilað þangað fyrir 18. maí nk.