Fréttir - Eyjafréttir - 20.12.1998, Side 14
14
Fréttir
Sunnudagur 20. desember 1998
Margir gerðu
getta stór-
virkiað
veruleika
-sagði Sigurður Einarsson, forstjóri
Isfélagsins þegar loðnuverksmiðja
félagsins var vígð sl. föstudag
Fjölmenni var við vígslu loðnu-
bræðslu ísfélagsins sl. föstudag þar
sem starfsfólki og þeim aðilum sem
á einhvern hátt komu að verkinu
var boðið að koma.
Sigurður Einarsson, forstjóri Isfé-
lagsins, sagði í ræðu viðjretta tækifæri
að í júlí 1997 hefði Isfélagið gert
samning við norska fyrirtækið Atlas-
Stord um að kaupa af þeim tvo
þurrkara, sjóðara og annan tækja-
búnað vegna endurnýjunar verk-
smiðjunnar. Framkvæmdir við sjálfa
verksmiðjuna hófust svo að lokinni
síðustu vetrarvertíð en áður voru
framkvæmdir hafnar við byggingu
verksmiðjuhússins.
Síðan rakti Sigurður hverjir komu
að uppbyggingu verksmiðjunnar og
verksmiðjuhússins sem er 37.000
rúmmetrar og stærsta hús sem enn
hefur verið byggt í Vestmannaeyjum.
Ráðgefandi verkfræðingur var Páll
R. Sigurðsson og yfirumsjón með
byggingu hafði Þórður Kaplsson sem
er eftirlitsmaður fasteigna Isfélagsins.
Teiknistofa Páls Zóphóníassonar sá
um hönnun mannvirkja og veitti
tæknilega ráðgjöf. Byggingafyrirtækið
Steini og Olli undir forystu Ársæls
Sveinssonar sá um stóran hluta af
byggingu hússins. Eyþór Harðarson,
rafmagnstæknifræðingur og starfs-
maður Isfélagsins, annaðist hönnun
rafmagns og stjórnkerfis og meistari
verksins var Árni Gunnar Ámason.
Samið var við verktakafyrirtækið
Vamir um að byggja húsið sem keypt
var af Ward í Bretlandi. Var húsið
reist í sumar af Vörnum en
undirverktaki var Uri ehf. Vélsmiðjan
Héðinn sá um uppsetningu þurrk-
aranna og kom að ýmsum öðrum
verkum.
Starfsmenn frá Vélaverkstæðinu
Þór, Skipalyftunni, SR-mjöli og
Kaupfélaginu á Fáskrúðsfirði unnu við
uppsetningu á ýmsum vélbúnaði.
Málningarvinna var unnin af mál-
arameisturunum Viðari Einarssyni og
Olafi Tiyggvasyni og þeirra mönnum.
Eyjablikk sá um einangrun og
klæðningu á tækjum ásamt frágangi á
loftræstingu. Starfsmenn Isfélagsins
lögðu rafmagnið ásamt starfsmönnum
frá Geisla. Starfsmenn frá Miðstöðinni
undir forystu Marinós Sigursteins-
sonar lögðu bróðurpart lagna.
Hallgrímur Tryggvason og hans menn
í Vélsmiðjunni Völundi lögðu
gufulagnir og fieiri lagnir. Einar &
Gujón önnuðust gröft, Magnús
Magnússon frá Eyjaleið og Krana-
þjónusta Helga önnuðust kranavinnu.
Frágangur holræsalagna frá verk-
smiðjunni var unninn af starfs-
mönnum Áhaldahúss bæjarins. Múr-
verk önnuðust þeir Páll Árnason,
Björn F. Ásbjönisson og Sigurður
Georgsson auk starfsmanna Isfé-
lagsins.
Sigurður sagði að kostnaður væri
orðinn rúmlega 600 milljónir króna en
ekki er öllu lokið því fyrirhugað er að
reisa 2.500 tonna lýsistank, byggja
200 tonna mjöltanka og breyta lönd-
unarbúnaði. „Félagip naut aðstoðar
viðskiptabanka síns, íslandsbanka, við
að fjármagna allar þessar fram-
kvæmdir og ber að þakka það
sérstaklega,'1 sagði Sigurður og bætti
svo við. „Ég vil svo við þessi tímamót
þakka innilega öllum þeim sem lögðu
hönd a plóginn til að Iáta þetta
stórvirki verða að veruleika. En eins
og sést á upptalningunni hér að
Sigurður með eiginkonu sinní Guðbjörgu Manhíasdónur og tveimur sonum heirra, Magnúsi og Kristni.,
framan lögðu margir mikið á sig til að
það tækist. Árangurinn er ein full-
komnasta ef ekki fullkomnasta fiski-
mjölsverksmiðja landsins," sagði Sig-
urður Einarsson forstjóri ísfélagsins.
BogiSigurðsson
verksmiðjustióriog
Guðjón Engílbertsson
framleiðslustjóri.
ENr/C
Hluti starfsmanna og annarra gesta við vígsluna.
Gospel hjá
hvítasunnu
mönnum
Að kvöldi fyrsta sunnu-
dags í aðventu bauð
tónlistarhópur ungs fólks í
Hvítasunnukirkjunni til
gospel-tónleika í
Hvítasunnukirkjunni.
Þetta var 14 manna
hópur sem æft hefur gospeltónlist
og hefur margoft komið fram á
samkomum hvítusunnumanna.
Um hundrað manns sóttu
tónleikanu sem þóttu takast
sérlega vel.
Þióðveijí bakkar fyrlr slg
Starfsmönnum Vestmannaeyja-
radíós hefur borist þakkarbréf frá
áhöfn þýsku seglskútunnar
STAAHS sem varð fyrir áfalli í
óveðri skammt frá Vestmanna-
eyjum snemma í júli í sumar.
Bréfið fer hér á eftir í lauslegri
þýðingu.
lO.des 1998
Kæra starfsfólk Vestmannaeyja-
radíós
Þann 7. júlí síðastliðinn missti segl-
skútan STAAHS stýri og framsegl í
vonsku veðri. Áhöfnin, sem í voru
fjórir menn, hafði samband við
Vestmannaeyjaradíó til þess að leita
eftir aðstoð. I framhaldi af því náði
Vestmannaeyjaradíó sambandi við
Heimaey VE sem kom okkur til
aðstoðar og tók okkur í tog inn til
Vestmannaeyja.
Sem vott um þakklæti okkar
sendum við þetta bréf ásamt mynd af
ferð okkar um hið hrífandi land
ykkar og af löskuðum bát okkar í
Heimaeyjarhöfn.
Við sendum öllum óskir um
gleðileg jól og farsælt komandi ár
með miklu þakklæti til allra
starfsmanna Vestmannaeyjardíós.
í einlægni
Hans-JoAchim Wizorek