Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 13.01.2000, Blaðsíða 20

Fréttir - Eyjafréttir - 13.01.2000, Blaðsíða 20
Daglegor ferðir milli lands og Eyjn Landfjutningar J FV"" fE* u 11 [ I l^ 1 & f 4 |k tiz m i / 1 p, nðkSi iki ' f/; /J f Iv imk' S Tt ■ >VSl F1 W - sriTílf [t M- m MARGT var um skrautlega búninga á grímuballi Eyjverja á þrettándanum. Bls. 6. Tölvun í slag við þá stóru á internetmarkaði Davíð Guðmundsson framkvæmdastjóri Tölvunar segir að þegar bankastofnanir þessa lands ásamt síma- fyrirtækjunum Islandssíma og Landssímanum hafi ákveðið að bjóða „fría“ internetáskrift, vilji hann halda fram að það sé ekki frítt að reka svona þjónustu og að skipta megi kostnaðinum í þrennt. „Landssfmi Islands, innheimtir leigulínugjöld, innhringi- línugjöld sem eru um það bil 30% kostnaðar. í dag eru leigulínugjöld fyrir internetþjónustu í Eyjum einungis þrefalt hærri en á höfuðborgarsvæðinu. Þessi munur var 14 faldur í haust. INTÍS. Bandvíddargjöld og léna-gjöld eru c.a. 30%. Viðhald og þjónusta 40%. Kerfisstjómun, viðhald tækjabúnaðar, notendaþjónusta, innheimtu- kostnaður og vinna við utanumhald notenda og léna. Og að sjálfsögðu er kostnaður við símaþjónustu sem við mkkum ekki fyrir.“ Davíð segir að hræringarnar á internetmarkaði und- anfamar vikur hafi þrátt fyrir allt haft jákvæðar breytingar í för með sér, með lækkunum gjalda til okkar sent við viljum láta viðskiptavini okkar njóta. „Tölvun hefur nú tekið þá ákvörðun að lækka mánaðargjöld internet- þjónustunnar og koma þannig til móts við viðskiptavini sína. Það er hreinna að koma fram og setja upp sanngjamt mánaðargjald heldur en að auglýsa „frítt“ net og taka kostnaðinn úr hinum vasa viðskiptavinarins." Davíð segir forsendur þessarar lækkunar vera umtalsverða lækkun bandvíddargjalda frá INTIS auk tekjuskipta- samings við Landssímann. Brestir í Keikókvínni Kvíin hans Keikós hefur ekki farið varhluta af þeirri rysjóttu tíð seni barið hefur á Eyjuni og Eyjamönnum undanfarna daga. Jeff Foster yfirþjálfaii Keikós sagði að skemmdimar hefðu þó ekki verið alvarlegar. „Kvíin gaf sig á tveimur stöðum. Reyndar var það ekki vegna vindálags heldur vegna þess hve mikill og þungur straumur var í vikinni." Jeff sagði að viðgerðir á kvínni hefðu gengið vel og Keikó hefði ekki orðið fyrir neinum skaða vegna þessa. „Við erum setja festingar fyrir netið sem strengt verður fyrir Klettsvíkina á næstu dögum." Rútuferðir - Bus tours Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM (3)481 1909-896 6810-fax 4811927 Vilhjálmur Bergsteinsson o481-2943 SMMfPAíiu * 897-1178 TF-LÍF kom í góðar þarfir í illviðrinu Tíð hefur verið rysjótt í Eyjum undanfarna daga og undir slíkum kringumstæðum reynir oft á ýmsa öryggisþætti sem nauðsynlegt er að séu til staðar í Eyjum. Á mánu- daginn reyndi á þátt sjúkrafiugsins, en allt áætlunarflug lá niðri þennan dag og varð að lokum að kalla eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar til þess að annast flutning tveggja sjúklinga til Reykjavíkur. Valur Andersen, sem séð hefur um sjúkraflug á tíu sæta Piper PA 350 vél sinni milli lands og Eyja, sagði að vélin hafi verið í ársskoðun og þess vegna óhægt um vik. „Það var haft samband við mig um níuleytið um morguninn ofan af sjúkrahúsi, en þá var ástand sjúklinganna talið það alvarlegt að ekki mætti bíða með flutning þeirra, en ég benti strax á um morguninn að hægt væri að fá þyrluna til þess að annast flutninginn. Um ellefu leytið hringdi ég svo upp á sjúkrahús og tjáði þeim að ég gæti komist upp á Bakka í minni vél þar sem sjúklingarnir voru ekki það illa haldnir að þeir gátu setið uppréttir, ef sjúkrabfll sæi svo um að koma þeim til Reykjavíkur. Ástand sjúklinganna hafði hins vegar ekki versnað svo ekki var talin ástæða til þess. En unt tvö leytið hafði ástandi þeirra hrakað og tekin ákvörðun um að fá þyrluna til verksins." Valur sagði að venjulega tæki svona skoðun viku til tíu daga, en panta hefði þurft varahluti og verksmiðjur í útlöndum komnar í jólafrí þannig að skoðunin hefði tafist. Valur vildi ítreka að hann hefði getað annast þetta flug ef vélin hefði ekki verið í skoðun. „Eg hefði þá flogið með ströndinni eins og þyrlan gerði. Vandamálið við svona flug er ísing og ókyrrð, en ég hefði vel treyst mér til þess að annast þetta flug miðað við aðstæður. Þetta sýnir hins vegar að nauðsynlegt er að hafa vél héma til þess að sinna sjúkrafluginu, en það getur hist svona á þegar síst skyldi,“ sagði Valur. Aðspurður hvort Valttr teldi ástæðu til þess að hafa vél hér í Eyjum þegar vél hans væri í skoðun, sagði hann að hann teldi svo ekki vera. „Þetta eru alger undantekningartilfelli og þá er þyrlan til staðar ef í harðbakkann slær.“ Þess má geta að flugvélin kom til Eyja í gær úr ársskoðuninni svo að öryggisþátturinn vegna sjúkraflutn- inga ætti að vera tryggur núna. Jakob Olafsson var flugstjóri þyrlu Landhelgisgæslunnar í þessu sjúkra- flugi. Hann sagði að flugið hefði gengið vel, bæði til Eyja og aftur til Reykjavíkur. „Þetta var ekki krítiskt flug, við reyndum að fara á milli élja og vera yfir sjó, vegna þess að meiri hætta er á ísingu og ókyrrð af fjöllum." Jakob sagði að ómetanlegt væri að hafa sjúkraflugvél á stað eins og Vestmannaeyjum, þó að ekki haft verið svo í þetta sinn. „Möguleikar þyrlunnar eru meiri og betri til lend- ingar í Eyjum við þær aðstæður sem vom, þó að flugvél geti tekið á loft þar undir þessum kringumstæðum. Þess vegna var ekki um annað að ræða en að nota þyrluna, enda ástand sjúkl- inganna metið þannig að nauðsynlegt væri að koma þeim á sjúkrahús í Reykjavík,“ sagði Jakob. Þegar TF-LÍF lenti á flugvellinum fór vindur upp í 11 vindstig en meðal- vindhraði var nálægt níu vindstigum og gekk á með dimmum éljum. Samkvæmt upplýsingum Frétta heilsast báðum sjúklingunum vel eftir atvikum. Vikutilb *vikuna Kjúklingar frosnir kr. 359,- pr. kg. Pizzaland pizzur 12“ kr. 279,- pr. stk. Malta-, Hrís- og Smellbitar kr. 159,- pr. pakki McVitties caramel kex kr. 169,- pr. pakki Plastflösku- og dósasekkir kr. 86,- Kelloggs tilboð: Kaupir einn pakka af Kelloggs og færð Kelloggs dós með 481 3184. Þorramaturinn kominn! VORUVAL Opið VESTMANNAEYJUM mán-fös 8-19 lau 9-19 sun 10-19

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.