Fréttir - Eyjafréttir - 13.01.2000, Blaðsíða 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 13. janúar 2000
Opin svæði skipulögð
ÞRIGGJA manna nefnd skal nú gera tillögur um opin svæði á
Heimaey.
Á fundi skipulags- og bygginga-
nefndar í desember á síðasta ári var
lögð fram tillaga að nýtingu á opn-
um svæðum í Vestmannaeyjum.
Skipuð verður þriggja manna nefnd
sem á að skila tillögu að nýtingu
opinna svæða og grófri kostnaðar- og
framkvæmdaáætlun. Þá skal nefndin
koma með tillögur um ný svæði sem
og niðurfellingu annarra svæða og
skal aðalskipulag Vestmannaeyja
1988-2008 haft til hliðsjónar. Þessi
mál á að skoða nokkuð vítt, með tilliti
til þess sem prýðir leiksvæði, þ.e.
sparkvellir, leikvellir, leiktæki og
annað sem er vel til fallið. Þá skal
nefndin koma með tillögu að fram-
tíðarsvæði fyrir tjöldun aðkomufólks,
þ.e. bæði fyrir innlenda og erlenda
ferðamenn. Lagt er til að nefndin
verði skipuð þeim Kristjáni Bjama-
syni, garðyrkjustjóra, Ólafí Ólafssyni,
bæjartæknifræðingi og Inga Sigurðs-
syni, skipulags- og byggingafulltrúa.
Nefndin skal skila áliti sínu og
tillögum fyrir 1. apríl nk.
Alls eru það tólf svæði sem nefndin
skal gera tillögur um, auk þess sem
bent er á fjögur önnur til viðbótar.
Eftirfarandi svæði eru lögð til grund-
vallar og fylgir með rökstuðningur
skipulags- og bygginganefndar.
Milli Illugagötu og
Brimhóiabrautar
Stórt svæði á góðum stað. Hug-
myndir hafa komið upp áður að gera
þar einhvers konar fjölskyldugarð og
hefur verið unnin tillaga þar um á
vegum bæjartæknifræðings.
Milli raðhúsa í Foldahrauni
Svæði á góðum stað en gæti hugs-
anlega farið í byggingu seinna meir.
Stakkagerðistún
Stórt svæði í hjarta bæjarins. Svæðið
er nú þegar í vinnslu deiliskipulags og
mætti koma með hugmyndir úl skipu-
lagshönnuða þar um.
Milli Austurvegar og
Kirkjubæjarbrautar
Lítið svæði sem er nú þegar í notkun
að nokkru leyti þar sem leiktæki eru
þar til staðar.
Við Fjólugötu
Lítið svæði sem er í notkun að nokkru
leyti, m.a. eru leiktæki þar til staðar.
Ofan Smáragötu
Lítið svæði, í notkun að nokkru leyti
og leiktæki til staðar. Spuming er um
að leggja áherslu á eitt slíkt svæði í
Skeifuhverfmu.
Ofan Litlagerðis
Lítið svæði skv. deiliskipulagi fyrir
„Gerðin." spuming um endurskoðun
á staðsetningu þess með tilliti til
frestunar á framkvæmdum við
Miðgerði.
Milli Hrauntúns og Höfðavegar
Lítið svæði sem er nú þegar í notkun
að einhverju leyti þar sem leiktæki em
til staðar. Hins vegar þarf að laga
svæðið talsvert miðað við það sem er
í dag.
Milli Bröttugötu og Hrauntúns
Lítið svæði í notkun að nokkm leyti
og leiktæki til staðar.
Ofan Kleifarhrauns
Stórt svæði sem er nú þegar í vinnslu
fyrir einn af komandi sparkvöllum á
næsta vori. Athugandi er að skoða
svæðið betur til almennrar útivistar,
sérstaklega ef hugmyndir em uppi um
að byggja ekki meira í suður frá
Kleifarhrauni.
Við Dverghamar
Lítið svæði, í notkun að nokkra leyti
og leiktæki til staðar.
Tjaldsvæði í Herjólfsdal eða á
nýjum stað
Þetta er mál sem lengi hefur verið í
deiglunni og hefur m.a. verið rætt um
að færa tjaldstæðin nær þeirri þjónustu
sem er til staðar. Þar má nefna svæðið
við íþróttamiðstöðina vegna nálægðar
við hana og matvömverslun auk þess
sem styttra er þaðan í bæinn. Þá þarf
að athuga með svæði fyrir fellihýsa-
og tjaldvagnafólk á sama svæði.
Af öðmm svæðum sem bent er á að
vert sé að skoða er svæði milli
Bröttugötu og Strembugötu, svæði
milli Bessahrauns og Iþróttamið-
stöðvar, svæði vestan Ashamars-
blokkanna og svæði milli Skólavegar
og Kirkjuvegar.
Menningartilraun á Lundanum
-Grímur og Jón Ingi bjóða á þorrahlaðborð
Nú þegar líða fer að Þorra huga
menn að þorramatnum með öllum
þeim góðu drykkjarföngum sem
fólk gjarnan rennir honum niður
með.
Jón Ingi vert á Lundanum hefur
verið ötull í að vera með nýjungar í
veitingarekstri sínum og hefur nú
ákveðið í samráði við Veisluþjónustu
Gríms að bjóða Vestmannaeyingum
upp á þorramat á Þorranum.
Jón Ingi segir að markmiðið með
þessu sé að gefa fólki, sem ekki er í
neinum félagasamtökum, en langar til
þess að gera sér dagamun á þorranum,
tækifæri til þess að gæða sér á þorra-
mat í góðra vina hópi. „Ég mun
bjóða upp á þorrahlaðborð helgarnar
21. og 22 janúar, og 28. og 29. janúar.
Þetta verða þorrablót eins og þau
gerast best, með íjölbreyttum þorra-
mat og Víkingasveitinni sem sjá mun
um tónlistarstemmninguna. Fólk
getur komið í matinn og ef það vill,
verið áfram, því að hljómsveitin
kemur til með að spila fram á nótt, eða
þar til Pétur segir stopp."
Jón Ingi segir að nokkuð hafi verið
spurt um það hvort hann hygðist ekki
bjóða upp á einhverja tilbreytingu á
Þorranum. „Ég er því að reyna að
koma til móts við það fólk sem ekki
sækir hefðbundin þorrablót hinna
ýmsu félagasamtaka. Ég vil því
hvetja áhugsama til þess að panta í
tíma og gera sér glaða kvöldstund á
Þorranum og skammdeginu." Hægt
er að panta borð á þorrahlaðborð
Lundans í síma 896-3426
Endur-
skoðun
á íþrótta-
miðstöð
Á síðasta fundi bæjarráðs lágu
fyrir undirskriftalistar þar sem
skorað er á bæjarstjórn að
endurskoða ákvörðun sína um
viðgerð á íþróttasal íþróttamið-
stöðvarinnar og byggja tvö-
faldan sal í stað núverandi salar.
Á fundinum var ákveðið að fela
bæjarstjóra, í samráði við tækni-
deild, að ræða við fulltrúa
byggingaraðila um stöðu fram-
kvæmda. Þá verði kannaðir allir
kostir er varða framtíðarupp-
byggingu íþróttamiðstöðvarinnar.
Ragnar Oskarsson lét bóka að
hann minnti á tillögur sem bæjar-
fulltrúar Vestmannaeyjalistans
hefðu lagt fram á síðasta ári um
nýjar hugmyndir vegna íþrótta-
salar. Ragnar telur að taka þurfi
ákvörðun um framgang málsins
hið fyrsta.
Ökuskóli íslands r\a^en^Q
Meiraprófs- öklÁkóii
námskeið íslands
Meiraprófsnámskeið byrjar í fyrirrúmi
laugardaginn 15. janúar
kl. 09.00 á Gistiheimilinu
Heimi við Heiðarveg.
Innritun á Bílaverkstæði Muggs í síma 481-2523.
Seinustu forvöð að innrita sig eru á morgun, 14. janúar.
ADALSAFNADAR-
FUNDUR
Aðalsafnaðarfundur Ofanleitissóknar fyrir árið 1999
verður haldinn í Safnaðarheimli Landakirkju sunnu-
daginn 23. janúar 2000 kl. 13.00
Dagskrá fundarins er:
1. Ársskýsla sóknarnefndar.
2. Ársreikningar.
3. Ársskýrslur sóknarpresta og starfsmanna.
4. Kosning endurskoðenda.
5. Önnur mál sem upp kunna að koma.
Guðsþjónusta er kl. 11.00 um morguninn þar sem
fram kemur kórfólk víða að úr Kjalarnessprófasts-
dæmi
Eftir guðsþjónustu mun verða borið fram kaffi og
jafnframt verður formleg móttaka á kirkjuhurð fyrir
Landakirkju en hurðin er gefin af Kvenfélagi Landa-
kirkju
Sóknarnefnd.
Hraunbúðir Vestmannaeyjum
Rekstur eldhúss
Útboð 12349
Ríkiskaup, fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, óska eftir
tilboðum í rekstur eldhúss að dvalarheimilinu Hraunbúðum
í Vestmannaeyjum.
Frá og með miðvikudeginum 19. janúar nk. verða
útboðsgögn til sýnis og sölu á kr. 3.000,- hjá Ríkiskaupum,
Borgartúni 7C, 105 Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað hinn 1. febrúar 2000 kl.
14.00, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Jóhannes Atlason
aðalræðumaður
á herrakvöldi ÍBV
Herrakvöld ÍBV verður haldið í
Týsheimilinu föstudaginn 21. jan-
úar næstkomandi.
Húsið verður opnað kl. 19 og sér
Grímur Gíslason kokkur um glæsilegt
sjávarréttahlaðborð. Ræðumaður
kvöldsins verður enginn annar en
Jóhannes Atlason, íyrrum þjálfari ÍBV
og íslenska landsliðsins, en hann er
frægur fyrir að segja skemmtilega frá.
Auk þess mun ónefndur kvenmaður
mæta og segja skemmtilega brandara,
leynigestur verður á svæðinu, happ-
drætti með glæsilegum vinningum
verður, uppboð og ýmislegt fleira gert
til skemmtunar. Meðal annars verður
efnt til keppni á milli liða. Veislustjóri
verður Ásmundur Friðriksson.
Allir em hvattir til að mæta í bún-
ingi uppáhaldsliðs síns í ensku knatt-
spymunni, eða einfaldlega í ÍBV-
búningnum. Keppni verður á milli
liða á herrakvöldinu sem mun hleypa
spennu í mannskapinn. Spumingin er
því hvaða enska lið á öflugasta stuðn-
ingsmannahópinn í Vestmannaeyjum.
Leikmenn ÍBV, stjómarmenn og
félagar í stuðningsmannaklúbbi IBV
em þessa dagana að selja miða á
herrakvöldið. Éinnig er hægt að kaupa
miða í Þórsheimilinu. Stuðningsmenn
ÍBV em hvattir til að fjölmenna á
herrakvöldið. Mjög góð viðbrögð hafa
verið við því og má því búast við að
slegist verði um miðana enda em
aðeins 100 miðar í boði. Verð pr.
miða er 2.500 kr.
Leikmenn IBV
Knattspymudeild ÍBV
Stuðningsmannaklúbbur IBV