Fréttir - Eyjafréttir - 13.01.2000, Blaðsíða 10
10
Fréttir
Fimmtudagur 13. janúar2000
Eyjamaður og Eyjakona aldarinnar:
Oddgeir Kristjánsson
og Anna í Laufási
Urðu hlutskörpust í könnun Frétta á fólki
sem setti svip sinn á 20. öldina
Anna stendur föstum fótum í tilverunni, hefur látið til sín taka á mörgum
sviðum, er Vestmannaeyingur í húð og hár og fulltrúi hinna gömlu góðu gilda.
Hún er líka verðugur fulltrúi vestmanneyskra kvenna og saman gerir þetta
hana að konu 20. aidarinnar í Vestmanneyjum.
-Oddgeir Kristjánsson var Vestmannaeyingur af hug og sál og helgaði þessu
bæjarfélagi alla starfskrafta sína, -ól hér allan sinn aldur að undanskildum
þeim árum er hann dvaldist við hljómlistarnám í Reykjavík en hljómlistin átti
hug hans allan eins og við þekkjum, - er meðal þess sem sagt var um Oddgeir
sem er Eyjamaður 20. aldarinnar.