Fréttir - Eyjafréttir - 27.01.2000, Síða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 27. janúar 2000
fréttir
lfilja Erfðagreiningu
tilEyja
Á fundi bæjarráðs á mánudag báru
fulltrúar sjált'stæðismanna fram
tillögu þess efnis að bæjarstjóra
verði falið að ræða við fulltrúa ís-
lenskrar eifðagreiningar um mögu-
jeika á því að liluti af starfsemi
Islenskrar erfðagreiningai' geti tlust
til Vestmannaeyja. Þessi tillaga var
samþykkt.
Ragnar vill fínnsku
ferðasöguna
Sern kunnugt er fór bæjarstjóri,
ásarnt fleirum, til Finnlands á
dögunum til þess m.a. að kynna sér
möguleika á húsbyggingum inn í
berg, ásamt jarðgangagerð. Á síð-
asta fundi bæjairáðs óskaði Ragnar
Óskarsson eftir skriflegri greinar-
gerð frá bæjarstjóra um ferðina.
læknabiónustaí
endurskoðun
Læknar hafa sagt upp samningi frá
1997 um læknisþjónustu á Hraun-
búðum. Sá samningur hefur verið í
endurskoðun og hefur félagsmála-
stjóra verið falið að ganga frá
nýjum samningi.
Svavarbiðurum60
búsund
Á síðasta fundi félagsmálaráðs lá
fyrir bréf frá Svavari Sigurðssyni
sem kunnur er að baráttu gegn
fíkniefnum. Þai- fer hann fram á
fjárframlag frá bænum, að upphæð
60 þúsund kr., til kaupa á ör-
yggismyndavéi. Sú vél er hluti af
stærri tæknibúnaði í baráttunni
gegn fíkniefnum og verður settur
upp í Flugstöðinni. Félagsmálaráð
samþykkti þessa beiðni Svavars og
vísaði henni til gerðar fjárhags-
áætlunar fyrir árið 2000.
Húsaleigubætur
hækka
Lagt hefur verið fram umburðar-
bréf frá félagsmálaráðuneyti um
breytingar á reglugerð um húsa-
leigubætur. Helsm breytingar eru
þær að barnaframlag hækkar um
2000 kr. og hlutfall leigufjárhæðar
milli kr. 20 þús og 45 þús., sem
kemur til hækkunar, verður 15% í
stað 12% áður.
Staðinnaðverki
Brotist vai' inn í Snyrtistofu Ágústu
um helgina og náðist innbrots-
þjófurinn á vettvangi eftir að árvök-
ull nágranni hafði látið lögreglu vita
af innbrotinu. Hann reyndist nokk-
uð undir áhrifum og fékk að gista
fangageymslu þar til af honutn rann
víman. Ekki var á hreinu hvort
tilefni innbrotsins var að hann
hygðist flikka upp á útlil sitt eða
hvort aðrar hvatir lágu að baki. Þá
fékk annar að gista fangageymsiu
um helgina vegna ölvunar.
Stoliðúrbíl
Um helgina var brotist inn í bíl við
Bílverk á Flötum. Rúða var brotin
í bílnum og síðan stolið úr honum
hátölurum, magnara og 150 geisla-
diskum. Þeir sem geta gefið upp-
lýsingar um grunsamlegar manna-
ferðir við Bílverk aðfaranótt 22.
jan. em beðnir að láta lögreglu vita.
Minnihluti V-listans í bæjarráði:
Vilja stefnumótun í at-
vinnumálum til næstu ára
Á síöasta fundi bæjarráðs fluttu
fulltrúar minnihlutans, þau Ragnar
Óskarsson, Þorgerður Jóhanns-
dóttir og Guðrún Erlingsdóttir,
svohl jóðandi tillögu:
„Bæjarráð samþykkir að fela
Þróunarfélagi Vestmannaeyja gerð
áætlunar og stefnumótun í atvinnu-
málum í Vestmannaeyjum til næstu
ára. Þróunarfélagið leiti eftir samstarfi
við þá aðila er þekkingu og reynslu
hafa á þessu sviði, svo sem Iðn-
tæknistofnun, Byggðastofnun og fleiri
aðila. Stefnt skal að því að stefnu-
mótunin verði unnin svo hratt sem
frekast er kostur þannig að unnt verði
að hrinda henni í framkvæmd sem
fyrst.“
Svohljóðandi greinargerð fylgir
tillögunni: „Eins og kunnugt er hefur
atvinnulíf okkar Vestmannaeyinga
verið tiltölulega einhæft um langt
skeið. Á síðustu árum hefur lítil
breyting orðið á og illu heilli hefur
orðið fólksfækkun í Vestmannaeyjum
svo sem tölur greina. Þá hefur at-
vinnuleysi í allt of miklum mæli verið
viðloðandi hér. Við þessar aðstæður er
nauðsynlegt að grípa til allra þeirra
ráða sem snúið geta þróuninni við að
þessu leyti. Því er hér lagt til að gerð
verði áætlun og stefnumótun til næsm
ára í atvinnumálum okkar Vest-
mannaeyinga.
Eðlilegt er að Þróunarfélagið verði
sá aðili er leiði þessa stefnumót-
unarvinnu en að jafnframt verði leitað
til þeirra aðila sem sérstaka þekkingu
hafa á þessu sviði. I því sambandi er
sérstaklega bent á Iðntæknistofnun
sem nýlega vann gagnmerka skýrslu,
um stefnumótun Isafjarðarbæjar í at-
vinnumálum til 2003 undir heitinu
„Framtíðarsýn“. Þá má nefna Byggða-
stofnun í þessu sambandi og hugs-
anlegt er að ýmsir aðrir aðilar gætu
komið að málinu. I ljósi þess að brýna
nauðsyn ber til að stórefla atvinnu-
uppbyggingu í Vestmannaeyjum er
ofangreind tillaga flutt.“
Þessi tillaga var samþykkt í
bæjarráði.
Bergur VE kemur til Eyja í dag
Við Heilbrigðisstofnunina í Vestmannaeyjum hafa verið sett upp skilti sem afmarka bílastæði fyrir fatlaða. Gunnar K.
Gunnarsson framkvæmdastjóri HÍV vildi benda á að eins og Eyjabúum væri kunnugt um, væri aðkoma að
heilbrigðisstofnuninni ekki eins og best verði á kosið. Sagði Gunnar langar tröppur liggja frá bílastæði við Sólhlíð að aðal
inngangi. „Tröppurnar geta reynst þeim sem hreyfihamlaðir eru afar erfiðar, sérstaklega í snjó og hálku. Hefur því verið
brugðið á það ráð að taka frá stæði fyrir fatlaða næst dyrum á jarðhæð til þess að auðvelda þeim aðkomu að stofnuninni, en
þar er stutt í lyftu upp á efri hæðir."
Gunnar sagði það von stjórnenda Heilbrigðisstofnunarinnar í Vestmannaeyjum að bæjarbúar bregðist vel við þessu og
einungis þeir sem þurfa á því að halda noti þessi stæði. Er þessu hér með komið á framfæri og bæjarbúar hvattir til að
virða þær merkingar sem settar eru upp við Heilbriðiðsstofnunina.
Bergur VE er væntanlegur tíl Eyja
í dag eftir viðamiklar endurbætur í
Póllandi en þar hefur skipið verið
síðan í ágúst á síðasta ári. Áætlað
var að þessum endurbótum yrði
lokið fyrir jól en mánaðartöf varð á
því. Þessi Póllandsferð skipsins var
í raun lokahnykkurinn á þeirri
umbyltingu sem átt hefur sér stað á
skipinu en segja má að þarna sé
komið algerlega nýtt skip og nánast
ekkert eftir af upphaflegu skipi.
I hitteðfyrra voru gerðar verulegar
breytingar á skipinu ytra, það m.a.
stækkað verulega en nú var verkinu
endanlega lokið. Ný aðalvél var sett í
það, ásamt gír og skrúfubúnaði, og
2000 kw rafall við aðalvél. Ný
hliðarskrúfa að aftan, 600 hestöfl og
nýtt spilkerfi ásamt tromlum. Ný brú
er á skipinu og allar mannafbúðir um
borð nýinnréttaðar.
Sævald Pálsson, útgerðarmaður seg-
ist mjög ánægður með hvemig til
hefur tekist. Allt hafi reynst í góðu
lagi, þetta sé að öllu leyti eins og nýtt
skip en sálin úr gamla skipinu fylgi
því. Sævald segir að í pmfusiglingu
hafi allt virkað eins og það á að gera
og skipið sitji vel á sjó. Sævald sigldi
skipinu ekki heim en segir að veður
hafi verið mjög gott á heimsiglingunni
þannig að lítið hafi reynt á sjóhæfni
þess. „Ég á reyndar ekki von á breyt-
ingum á sjóhæfninni, skipið var svo
gott fyrir að erfitt er að bæta þar um og
ég á ekki von á öðm en að það haldi
sínum hæfileikum,“ sagði Sævald.
Bergur mun gera stuttan stans í
Eyjum, haldið verður til loðnuveiða
fljótlega enda ekkert að vanbúnaði,
allt klárt til að byija.
BERGUR VE við bryggju í Póllandi. Það er fátt sem minnir á gamla
Berg.
Berglind
í Haus-
verk um
helgar
Ung Eyjakona, Berglind Eiðs-
dóttir, kemur fram í þættinum
Hausverk um helgar sem sýndur
er í opinni dagskrá á Sýn.
Berglind kemur fram í þætti í
Hausverknum sem nefnist Breytt
útlit. Umsjónarmaður þáttarins er
væntanlegur til Eyja í dag og verður
Berglindi fylgt eftir í umbreyt-
ingunni en lokahnykkurinn er svo í
þættinum sjálfum.
Þeir sem koma að breytingum á
Berglindi hér em Hressó sem býður
í ljós, Hárhúsið sér um hárgreiðslu,
Snyrtistofa Ágústu um snyrtingu og
Flamingo leggur til fötin.
Maja frá Hárhúsinu og Ágústa
fylgja svo Berg lindi í lokakaflann
sem er í beinni útsendingu á
föstudagskvöldið.
(FRÉTTIR)
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
Iþróttir: Júhus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Tuminum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnutn, Kránni, Vömval, Herjólfi,
Flughafnarversluninni. Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRÉTTIR ern prentaðar í 2000 eintökum.