Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 27.01.2000, Blaðsíða 17

Fréttir - Eyjafréttir - 27.01.2000, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 27. janúar 2000 Fréttir 17 Þorgerður Jóhannsdóttir skirfar: Til að leysa vandamálið þarf að viðurkenna það Samdráttur í atvinnumálum okkar Eyja- manna er stað- reynd. Sam- hliða fólks- fækkun sbr. tölur Hagstofu Islands þá voru fbúar hér 4.814 þann 1. des. 1989 en 4.585 þann 1. des. 1999, eða fækkað um 5%. A sama tíma hefur íbúum á Selfossi fjölgað úr3.847 i.des. 1989 í 4.466 þann 1. des. 1999 eða fjölgun um 8,6%, (sameinuðu hrepparnir eru ekki taldir með þ.e.a.s. Arborgar- svæðið). A síðasta ári fækkaði íbúum hér um 9 en atvinnuleysið jókst jafnt og þétt úr 11 í janúar og endaði í 45 í desember. A sama tíma fækkaði atvinnulausum á Selfossi úr 106 frá því í janúar niður í 58 í desember, íbúum fjölgaði hins vegar um 127 frá l.des 1998 til l.des. 1999. Við bæjarfulltrúar Vestmannaeyja- listans lögðum fram tillögu þann 30. desember sl. þar sem bæjarstjóm samþykkti að koma á fundi með Svæðisvinnumiðlun Suðurlands og bæjarstjóm þar sem farið yrði fram á að fá átaksverkefni eða önnur úrræði sem henta þykja fyrir atvinnuleitendur í Vestmannaeyjum. Svæðisvinnu- miðlun hel'ur skv. reglugerð heimild til átaksverkefna og annarra úrræða fyrir atvinnuleitendur, styrkhæf verk- efni em m.a. tímabundið verkefni umfram venjuleg umsvif, verkefni fyrir námsmenn og fólk með skerta starfsorku, styrkir til atvinnulausra einstaklinga til eigin reksturs. varanleg atvinnusköpun, starfsþjálfun og skipti- störf. Tillagan var samþykkt sam- hljóða eftir mikið fundarhlé hjá sjálfstæðismönnum en síðan tók bæjarstjóra 18 sólarhringa að koma samþykktinni á framfæri til réttra aðila og hef ég staðfest fax þar um. A fundi í Svæðisvinnumiðlun Suðurlands þann 5. janúar sl. komu fram miklar áhyggjur fundarmanna yfir atvinnuhorfum okkar Eyjamanna í ljósi þess að talsvert viðvarandi atvinnuleysi hefur verið hér í allt haust. Bauð Svæðisvinnumiðlun fram alla þá aðstoð sem í þeirra valdi væri. Enn og aftur ætlaði bæjarráð að fela Guðjóni að ræða við bréfritara en hunsa samþykkt bæjarstjómar frá 30. des. sl. og benti Ragnar á fyrri samþykktir bæjarstjómar, þær stöllur mínar Elsa og Sigrún Inga vom enn í leiknum „ekki benda á mig“ og fóm að benda á Selfoss, en staðreyndimar tala sínu máli eins og Hagstofutölur sem að ofan greinir og upplýsingar frá vinnumálastofnun gefa til kynna. Eins og ég hef sagt, að ég held á öðmm hverjum bæjarstjómarfundi sem ég hef setið síðan ég kom þar inn, hvort sem atvinnulausir em 1 eða 47 þá er það áhyggjuefni, hver einn er einum of mikið. A mánudaginn lögðum við fulltrúar Vestmannaeyjalistans fram aðra tillögu sem var samþykkt af bæjarráði að fela Þróunarfélagi Vestmannaeyja gerð áætlunar og stefnumótun í atvinnumálum í Vestmannaeyjum til næstu ára. Þróunarfélagið leiti eftir samstaifi við þá aðila er þekkingu og reynslu hafa á þessu sviði, svo sem Iðntæknistofnun, Byggðastofnun og fleiri aðila. Stefnt skal að því að stefnumótunin verði unnin svo hratt sem frekast er kostur þannig að unnt verði að hrinda henni í framkvæmd sem íyrst. Með tillögunni fylgdi eftir- farandi greinargerð: Eins og kunnugt er hefur atvinnulíf okkar Vest- mannaeyinga verið tiltölulega einhæft um langt skeið. A síðustu ámm hefur lítil breyting orðið á og illu heilli hefúr orðið fólksfækkun í Vestmannaeyjum svo sem tölur greina. Þá hefur atvinnuleysi í allt of miklum mæli verið viðloðandi hér. Við þessar aðstæður er nauðsynlegt að grípa til allra þeirra ráða sem snúið geta þróuninni við að jxssu leyti. Því er hér lagt til að gerð verði áætlun og stefnumótun til næstu ára í atvinnu- málum okkar Vestmannaeyinga. Eðlilegt er að Þróunarfélagið verði sá aðili er leiði þessa stefnumótunar- vinnu en að jafnframt verði leitað til þeirra aðila sem sérstaka þekkingu hafa á þessu sviði. I því sambandi er sérstaklega bent á Iðntæknistofnun sem nýlega vann gagnmerka skýrslu, um stefnumótun Isafjarðarbæjar í atvinnumálum til 2003 undir heitinu „Framtíðarsýn". Þá má nefna Byggð- arstofnun í þessu sambandi og hugsanlegt er að ýmsir aðrir aðilar gætu komið að málinu. I ljósi þess að brýna nauðsyn ber til að stórefla atvinnuuppbyggingu í Vestmanna- eyjum er ofangreind tillaga flutt. Það er eins með þennan vanda eins og öll önnur lífsins vandamál, á meðan maður viðurkennir ekki vandamálið þá leysir maður það ekki. Atvinnulausir eru atvinnulausir af því að það er engin atvinna fyrir þá, þetta er eins og gamla flökkusagan sagði sem almúginn í öllum Evrópulöndum að minnsta kosti, hafði eftir drottningu sinni: „Af hverju borðar fólkið ekki heldur brauð og smjör, heldur en að deyja úr hungri?“. Höfundur er bœjarfulltrúi Vestmannaeyjalistans ogfiilltrúi BSRB í Svœðisráði Siiðurlands. Síðastliðinn Fóstudag hélt Kvenfélagið Líkn hinn árlega nýársfagnað eldri borgara í Akógeshúsinu. Fagnaðurinn var með hefðbundnum hætti og lögðu Líknarkonur sig í líma að gera eldri borgurum skemmtunina sem eftirminnilegasta. Vel var veitt í mat og drykk og boðið upp á hlaðborð fjölbreytts bakkelsis, sem öllu voru gerð góð skil. Að vanda var boðið upp á skemmtiatriði af ýmsu tagi og má þar nefna Orra Arnórsson sem lék tvö lög á píanó við góðar undirtektir, auk þess sem Líknarkonur færðu í leikrænan búning ýmsa áfanga úr sögu félgsins og var góður rómur að ger, tveir frumsamdir leikþættir voru fluttir af Líknarkonum, Arni Johnsem mætti á svæðið og söng ásamt gestum og séra Bára Friðriksdóttir flutti hugvekju. Að því loknu var stiginn dans með miklum tilþrifum fram eftir kvöldi undir dyggum tónlistarflutningi Eymanna. Helgi Bragason skrifar: Sumarstörf fyrir námsfólk Vestmannaeyja- bær hefur á- kveðið að styrkja tvo námsmenn vegna nýsköp- unarverkefna árið2000. Styrk- imir em ætlaðir sem mótframlag við styrki sem veittir em ár hvert námsmanna. Nýsköpunarsjóður námsmanna gefur námsmönnum kost á því að vinna yfir sumarmánuðina að rann- sóknum sem byggja á þeirra eigin hugmyndum og tengjast Háskóla íslands, öðmm háskóla og rann- sóknastofnunum og/eða fyrirtækjum. Markmiðið með framlagi Vestmanna- eyjabæjar er að stuðla að nýsköpun jafnt fyrir atvinnulíf sem á fræðasviði og skapa um leið tvö sumarstörf fyrir námsfólk. Það er skilyrði fyrir styrk- veitingu að umsækjandi stundi nám á háskólastigi. Verkefni þarf annars vegar að reyna á hæfni námsmanns og sjálfstæði í vinnubrögðum og hins vegar að hafa hagnýtt nýsköpunargildi fyrir atvinnulíf eða stuðla að fræðilegri nýsköpun í viðkomandi fræðigrein. Eg skora á námsfólk frá Vest- mannaeyjum sem vill vinna við fagið sitt í Vestmannaeyjum í sumar að sækja um framangreinda styrki. Verkefni þarf að vinna undir leiðsögn kennara eða annars umsjónarmanns sem getur verið forsvarsmaður stofn- unar eða einhver úr atvinnulífinu. Nánari upplýsingar um umsóknir og skilyrði fyrir styrkveitingu má fá hjá Þróunarfélagi Vestmannaeyja í síma 4812692 og á heimasíðu Nýsköp- unarsjóðs námsmanna http://www. hi.is/pub/nyskopun www.hi.is/pub /nyskopun). Til em dæmi jxss að góð nýsköpunarverkefni hafi verið gmnn- urinn að framtíðaratvinnu þeirra sem þau hafa unnið. Virkið hugann og skapið ykkur atvinnu í leiðinni. Helgi Bragason úr nýsköpunarsjóði Vorverk á þorra I vorblíðunni sem var um sunnanvert landið í síðustu viku gripu starfsmenn Vestmannaeyjabæjar tæki- færið og skelltu sér í ýmis útiverk sem að jafnaði eru unnin yfir sumarmánuðina. Frágangur nýju umferðarljósana á mótum Heiðarvegar og Strandvegar hefur beðið vegna veðurs í nokkum tíma. A myndinni til hægri má sjá Ola Þór Alfreðsson að störfum við frágangsvinnuna. Inni í Heijólfsdal var Sigurður Jónsson verkstjóri ásamt Heiðari Magnússyni og Astþóri Agústssyni við jarðvinnu á bflastæði í nágrenni við Kaplagjótu. Félagamir voru í óðaönn að hlaða grjótvegg sem á að umlykja bflastæðið sem þama er. Kaplagjóta er vinsæll skoðunarstaður ferðamanna og því vel gert að prýða aðkomu og afmarka bflaumferð að staðnum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.