Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 27.01.2000, Blaðsíða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 27.01.2000, Blaðsíða 16
16 Fréttir Fimmtudagur 27. janúar 2000 Fjörug nótt í Féló Krakkarnir í Féló gera sér ýmislegt til dundurs og er það sem þau kalla Nótt í Féló meðal fastra liða í dagskránni. Skömmu fyrir áramót var hóað til Nætur í Féló sem heppnaðist mjög vel. Alls komu 60 krakkar á Nóttina og gerðu sér margt til skemmtunar. Húsið var opnað kl. 9 um kvöldið en klukkan 11 var öllu lokað og eyddu krakkamir saman nóttinni við leiki og skemmtan. Sigurlaug Lára Ingimundardóttir, starfsmaður Féló, segir að dagskráin haft byrjað með diskóteki sem Músík- klúbburinn sá um. „Um eittleytið sá unglingaráð um leiki sem voru mjög skemmtilegir og vom vegleg verðlaun í boði,“ segir Sigurlaug. Verðlaunin voru m.a. klipping frá Hárhúsinu, snyrtiveski með Clinique vömm frá Anítu og úr frá Smart. „Þá tók við tískusýning sem Clueless-hópurinn sá um. Þær stelpur sýndu sjálfar og fengu fjóra stráka í lið með sér og sýndu þau lopafatnað frá Gallerí Heimalist, sportfatnað frá Axel O og Eðalsport og tískufatnað frá Jazz og Smart. Hápunkturinn var svo þegar Kjartan Örn Óskarsson og Agnes Yr Stefánsdóttir komu inn í fatnaði frá Smart, hann í jakkafötum og hún í síðum kjól. Fyrr um daginn hafði Kjartan Örn farið í klippingu hjá Nönnu Leifs sem rekur hársnyrti- stofuna EnnEll. Stelpumar l'engu hann í lið með sér þar sem drengurinn hafði verið með sömu klippinguna síðan hann var 11 ára og alltaf með sömu húfuna. Nanna lét ekki á sér standa og vom krakkarnir öfga ánægð með breytinguna.“ Sigurlaug segir að næst hafi farið fram karaókí-keppni þar sem Thelma Rós Tómasdóttir bar sigur úr býtum. „Hún söng lagið The Rose með mikl- um glæsibrag og hlaut að launum fataúttekt í Flamingó." Þá tók við diskótek sem stóð til að verða hálf íjögur um nóttina en þá gerðu krakkarnir sig klár í að horfa á bíómynd af myndbandi. „Horft var á tvær myndir og sofnuðu flesúr um leið og þeir lögðust út af en sumir hörkuðu af sér og vöktu alla nóttina. Klukkan hálf átta um morguninn var mann- skapurinn vakinn og reyndist sumum erfitt að vakna en það tókst og þegar klukkuna vantaði korter í átta vom allir famir út, sáttir og glaðir. 5j0£pg)n í>ú soró um afgioiðslurui í d.ig ÓFEIGUR Lýðsson mesta fíflið og Arndís Bára Ingimarsdóttir mesta pæjan. BERGLIND Björk Viðarsdóttir og Lovísa Clarke í draumaheimi. SVONA leit Kjartan Örn Ósk- arsson út fyrir skveringuna. ÁSTA Sigríður Guðjónsdóttir í unglingaráði við uppvaskið. KJARTAN Örn og Agnes Stefánsdóttir herra og ungfrú nótt í Féló. Tími þorrablótanna stendur nú sem hæst og stór hópur fólks sem ekki má til þess hugsa að slcppa slíkri skemmtun. Um síðustu helgi blótuðu Kiwanismenn og gestir þeirra. Og eins og venjulega var Kiwanishúsið smekkfullt. M.a. komu um 20 Kiwanismenn úr Hafnarfirði, gagngert til að taka þátt í blótinu. Mikið var lagt í skreytingar á húsinu og hcimatillniin skemmtiatriði af bestu gerð. Gísli Magnússon og Lilja Garðarsdóttir bíða róleg eftir að dansinn hefjist. „Að lífið sé skjálfandi lítið gras,“ sungu þau Svava og Óli skólameistari, Erna í Gerði og Óli Veigu., og rugguðu sér í takt. Goggi í Klöpp horfir hinsvegar agndofa á. Arnór bakari, Guðrún Helga prestsmaddama og sr. Kristján í góðum gír 1 ( n Ki ~ * 1 m r 4é • • mE Am ■ 8 1 ~~ -1 <1 m > í í Æ ig/ ^fl M ,

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.