Fréttir - Eyjafréttir - 27.01.2000, Blaðsíða 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 27. janúar 2000
Flugstöðin formlega tekin formlega í notkun eftir endurbætur:
Liður í gagngerum endurbótum
á Vestmannaeyjaflugvelli
Á fóstudaginn var flugstöðin opnuð
með formlegum hætti eftir gagn-
gerar endurbætur í sumar. Um leið
var afhjúpað listaverkið Steinflaug
eftir Örn Þorsteinsson og stendur
það í miðjum sal brottfararfarþega.
Margt gesta var við vígsluna, m.a.
samgönguráðherra, þingmenn kjör-
dæmisins, verktakar, starfsmenn
þeirra og starfsmenn Flugmálastjómar
og flugvallarins. Það kom í hlut Sturlu
Böðvarssonar, samgönguráðhena, að
vígja flugstöðina, Þorgeir Þorgeirsson,
flugmálastjóri, flutti ávarp, prestar
Landakirkju, Kristján Björnsson og
Bára Friðriksdóttir, blessuðu húsnæð-
ið og alla starfsemi á flugvellinum,
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri og
Árni Johnsen þingmaður fluttu ávörp
og Litlu lærisveinamir fluttu nokkur
lög.
Það kom fram hjá samgönguráð-
herra og flugmálastjóra að þama er
um merkan áfanga að ræða í sam-
göngumálum Vestmannaeyja því eftir
breytinguna er stórbætt og rúmbetri
aðstaða fyrir bæði starfsfólk í
flugstöðinni og farþega sem þar fara
um. Þá kom fram að um 90 þúsund
farþegar fóm um Vestmannaeyja-
flugvöll á árinu 1999 sem er mesti
fjöldi í 54 ára sögu flugvallarins. Er
hann þriðji stærsti flugvöllurinn í
innanlandsfluginu á eftir Akureyrar-
flugvelli og Egilstaðaflugvelli.
Byggingaframkvæmdir á flugstöð-
inni em einn af mörgum liðum og
umfangsmiklum sem gerðar verða á
Vestmannaeyjaflugvelli samkvæmt
flugmálaáætlun. Flugstöðin var
stækkuð um 221 fm og stækkar við
það úr 589 fm í 810 fm. „Samhliða
nýframkvæmdunum var ráðist í
bráðnauðsynlegar og löngu tímabærar
breytingar á eldri hluta stöðvarinnar
sem tekin var í notkun fyrir 20 ámm.
Um var að ræða endurnýjun jafnt á
ytra byrði stöðvarinnar sem öllum
innréttingum hennar," segir í frétt frá
Flugmálastjóm.
Heildarkostnaður við framkvæmd-
irnar er liðlega 80 milljónir króna.
Unnið var hratt við undirbúning
framkvæmdanna og framkvæmdimar
sjálfar. Heimild til forhönnunar var
gefin í apríl 1998 en eiginleg hönnun
hófst þremur mánuðum síðar. Hafist
var handa við framkvæmdir 8. janúar
á síðasta ári og stóðu þær yfir í
tæplega tíu mánuði. Þrátt fyrir mikið
rask í flugstöðinni varð lítil sem engin
röskun á þjónustu við farþega.
Hönnunarfyrirtæki og iðnaðarmenn
gegndu lykilhlutverki við verkið.
Verktakafyrirtækið Steini og Olli hf.
var aðalverktaki samkvæmt samningi
við Flugmálastjóm. Undirverktakar
vom Raftækjavinnustofan Geisli sem
annaðist raflögn, Eyjablikk sá um loft-
ræstingu og blikksmíði, Kristmann
Kristmannsson um múrverk, Þor-
steinn Finnbogason um pípulagnir,
Olafur Tryggvason um málningar-
vinnu og Þorvarður Þorvaldsson
annaðist dúkalögn.
Þrjú íyrirtæki sá um hönnun. Bjami
Snæbjömsson hjá Teiknistofunni ehf.
Ármúla var arkitekt en Eyjafyrirtækin
Rafteikning hf. og Teiknistofa Páls
Zóphóníassonar hönnuðu raflagnir og
lagnakerfi og reiknauðu út burðarþol.
Teiknistofa Páls hafði ennfremur
umsjón og eftirlit með framkvæmdum
fyrir Flugmálastjórn en í verk-
efnisstjórn hennar vom Jóhann H.
Jóhannsson, Jón Baldvin Pálsson og
Emil Ágústsson.
Endurbætur á flugvelli
Breytingar og stækkun flugstöðvar-
innar em liður í gagngemm
endurbótum á Vestmannaeyjaflugvelli
sem hófust á síðasta ári og á að ljúka á
árinu 2003.
Á þessum fjómm ámm verða
gerðar endurbætur á flugvallar-
mannvirkjum og flugleiðsögubúnaði
sem mun hafa í för með sér aukið
flugöryggi fyrir notendur vallarins. Á
síðasta ári voru tekin í notkun ný
flugbrautarljós á báðum brautum og
gefa þau frá sér fimm sinnum meira
ljósmagn en gömlu ljósin. Næsta
sumar verður lagt nýtt slitlag á báðar
brautir og gerðar verða miklar
endurbætur á flugtumi og allur bún-
aður hans færður til nútímalegra og
betra forms.
„Árin 2001 og 2002 er loks
fyrirhugað að bæta enn frekar
ljósabúnað fyrir aðflug og á flug-
brautum. Á norður-suðurbraut er gert
ráð fyrir aðflugshallaljósum og
svokölluðum leifturljósum á flug-
brautarendum hennar en á austur-
vesturbrautina verða hins vegar sett
upp aðflugsljós. Að síðustu verða sett
upp ljósaskilti með fjarlægðar-
merkingum við báðar flugbrautir og
akbrautarljós við flughlað og flug-
skýli,“ segir í frétt Flugmálastjómar.
FJÖLDI gesta var við vígslu flugstöðvarinnar. Jóhann Guðmunds-
son, flugvallarstjóri lengt til hægri.
1
l iBra u •- t^* ÍÍíahSSd' & ■i
. Vi.V - vy i8y '•* NfU- Wtyl IWi ■ ■ fi
GUÐJÓN bæjarstjóri, Sturla samgönguráðherra og Þorgeir flugmálastjóri afhjúpa listaverkið
Steinflaug. Á innfelldu myndinni er listamaðurinn, Örn Þorsteinsson.
Atján ára dæmdur í skilorðsbundið fangelsi
Fimmtudaginn 9. desember var
kveðinn upp dómur í Héraðsdómi
Suðurlands, ákæruvaldið gegn
átján ára Vestmannaeyingi fyrir
líkamsárásir og umferðarlagabrot
framin á árunum 1998 og 1999.
Sakargiftir vom í þremur liðum og
krafðist ákæmvaldið refsingar en
veijandi sýknu í 1. lið ákæmnnar, þar
Bubbi
Mortens
með
tónleika
Miðvikudaginn 2. febrúar mun
Bubbi Morthens halda tónleika í
Félagsheimilinu við Heiðarveg.
Tónleikarnir eru haldnir að fmm-
kvæði Nemendafélags Framhalds-
skólans , en eins og minnisgóðir
menn muna stóð til að Bubbi liéldi
hér tónleika í fyrra á vegum Nem-
endafélagsins, en varð ekki af vegna
flensu listamannsins. Mun nú eiga
að bæta þar um. Þetta eru fyrstu
tónleikar Bubba sem hann heldur á
því mikla ári 2000 og því má búast
við öflugum tónlekum hjá kapp-
anum. Dagskráin mun verða byggð
upp á klassísku efni úr smiðju Bubba,
auk nýrra laga og texta.
Fráttatilkynning
sem málsatvik tengdust brottvísun af
veitingastaðnum Lundanum. en
annars vægustu refsingar. Ekki var
hægt að meta ákæm fyrsta liðar sem
ásetningsverks og því dæmt sem
gáleysisverk, sem varðaði við 1. mgr.
219 gr. almennra hegningarlaga.
Ákærði játaði 2. og 3. lið ákæm og
brot hans færð til refsiákvæða.
Ákærði hafði tvisvar áður verið
dæmdur fyrir hegningarlagabrot.
Fyrst í febrúar 1998 en ákvörðun
refsingar frestað skilorðsbundið í tvö
ár. I apríl 1999 var hann sakfelldur
fyrir brot á almennum hegningar-
lögum auk ýmissa ákvæða um-
ferðarlaga. Var hann þá dæmdur til að
sæta fangelsi í 60 daga, en refsing
í]jíDrÞ0P_DB
skilorðsbundin til tvegga ára.
Við ákvörðun refsingar var litið til
þess að um allmörg líkamsárásarbrot
var að ræða, að ákærði var mjög
ungur, hafði ekki gerst sekur um
afbrot um skeið, auk þess sem nokkur
tími hefði liðið frá því að brotin vom
framin og hann hafði greitt bætur
vegna brots skv. 1. lið ákæm. Með
framangreind sjónarmið í huga var
ákærði dæmdur í þriggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára,
auk tuttugu þúsund króna sektar, en 4
daga fangelsi til vara. Ákærði var
einnig dæmdur til greiðslu alls
sakarkostnaðar. Fullnustu refsingar-
inar var því frestað og hún látin niður
falla að tveimur ámm liðnum haldi
ákærði almennt skilorð. Jón Finn-
bjömsson kvað upp dóminn.
FLUGFELAG ISLANDS
Gerum öllum fært að fljúga
Uppl. og pantanir, 481 3300