Fréttir - Eyjafréttir - 27.01.2000, Blaðsíða 14
14
Fréttir
Fimmtuudagur 27. janúar 2000
Val íþróttamanna ársins
F
Birkir er Iþróttamaður Vest
ÞAU sem þóttu skara fram úr hjá aðildarfélögum ÍBV á síðasta ári ásamt fólki sem tók á móti viðurkenningum afreksfólks
sem ekki var á staðnum þegar afhendingin fór fram.
Kjör Iþróttamanns Vest-
mannaeyja 1999 vartilkynnt
í hófi sem íþróttabandalag
Vestmannaeyja hélt í síðustu
viku. Um leið var tilkynnt
hverjir höfðu verið útnefndir
íþróttamenn ársins hjá
félögum sem eiga aðild að
ÍBV héraðssambandi. Birkir
Kristinsson markvörður ÍBV
og landsliðsins í knattspyrnu
var valinn íþróttamaður
ársins 1999. Kemur það ekki
á óvart því Birkir stóð sig
frábærlega, bæði með ÍBV
og landsliðinu.
Asmundur Friðriksson,
formaður ÍBV héraðs-
sambands stýrði
verðlaunaathöfninni en í
flestum tilfellum voru það
formenn félaganna sem
gerðu grein fyrir forsendum
við vali íþróttamanna
félaganna.
Birkir Kristinsson, íþrótta-
maður Vestmannaeyja 1999
Það kom fáum á óvart að Birkir
Kristinsson skyldi verða valinn
Iþróttamaður Vestmannaeyja 1999.
Birkir stóð í marki meistaraflokks
IBV í fótbolta síðasta sumar með
frábærum árangri. Auk þess er hann
aðalmarkvörður íslenska landsliðsins
sem náði mjög athyglisverðum árangri
á árinu.
Valnefndin, sem skipuð er þeim
Birgi Sveinssyni, Magnúsi Bragasyni,
Svanfríði Jóhannesdóttur, Þorsteini
Gunnarssyni og Þór Vilhjálmssyni var
einróma í vali sínu en það kom í hlut
Þórs að tilkynna valið.
Birkir, sem er 35 ára, er fæddur og
uppalinn í Eyjum og lék alla yngri
flokkana í fótbolta með ÍBV. Hann
náði aldrei að leika með meist-
araOokki ÍBV á sínum yngri árum en
eftir 15 ár er hann loks kominn
„heim“. „Birkir átti frábært sumar
með IBV,“ sagði Þór þegar hann gerði
grein fyrir valinu.
„Hann var besti markvörður Lands-
símadeildarinnar, var í liði ársins og
stigahæstur í einkunnagjöf Morgun-
blaðsins ásamt Ivari Ingimarssyni
ÍBV. Birkir lék jafnframt alla
landsleiki íslands á síðasta ári og átti
frábæra leiki og sýndi og sannaði
hvers megnugur hann er. Islenska
landsliðið í knattspyrnu vakti heims-
athygli á síðasta ári fyrir frábæran
árangur og þar vó frammistaða Birkis
þungt á metunum. AIls hefur Birkir
leikið 65 A-landsleiki fyrir íslands
hönd.“
Þór sagði að að mati valnefndar
væri Birkir fyrirmynd innan sem utan
vallar. „Þeir sem þekkja hann vita að
þar fer metnaðarfullur og heilbrigður
íþróttamaður sem ávallt leggur sig
allan fram til að ná markmiðum
sínum. Birkir náði þeim einstæða
áfanga að leika tólf keppnistímabil í
röð á Islandi án þess að missa úr leik,
eða 216 leiki. Þess má líka geta að
hann hefur verið verðlaunaður sér-
staklega af KSI fyrir háttvísi," sagði
Þór.
Ólöf Heiða, frábært starf í
þági iþrótta í Eyjum
I fimm ár hefur IBV heiðrað ein-
staklinga sem verið hafa í eldlínunni í
íþróttalífi Vestmannaeyja í gegnum
tíðina. Að þessu sinni var ákveðið að
heiðra Olöfu Aðalheiði Elíasdóttur
fyrir frábært framlag hennar í þágu
GUÐNI Davíð.
íþrótta í Vestmannaeyjum undanfama
áratugi eins og segir í áliti valnefndar.
Það kom fram í máli Þórs Vil-
hjálmssonar að Olöf Heiða hefur víða
látið til sín taka í íþróttahreyfingunni
sem iðkandi, stjómarmaður, leiðbein-
andi og áhuga- og baráttukona fyrir
íþróttahreyfinguna í Vestmanna-
eyjum.
Þór rakti síðan ótrúlegan feril Olu
Heiðu. „Ola Heiða æfði frjálsar
íþróttir og handbolta á sínum yngri
ámm. Eftir að hafa lokið námi sent
íþróttakennari tók hún skóna fram
aftur og lék með ÍBV allt til ársins
1989,“ sagði Þór.
„Hún átti stóran þátt í að hand-
knattleiksráð ÍB V kvenna var stofnað
1980 en fram að því höfðu Þór og Týr
verið með sitt hvort kvennaliðið. Hún
DAÐI Guðjónsson
settist í stjórn handknattleiksráðs
kvenna nánast frá stofnun og starfaði
þar nær óslitið á nær annan áratug eða
til ársins 1997 þegar hún flutti sig um
set yfir í unglingaráð ÍBV í hand-
boltanum þar sem hún starfar af
fullum krafti."
Óla Heiða er fmmkvöðull að
stofnun tveggja félaga sem nú starfa
innan IBV. Haustið 1986 kom hún að
stofnun Fimleikafélagsins Ránar og
sagði Þór að að öðmm ólöstuðum
hefði hún verið helsti frumkvöðullinn.
„Hún hafði þá þegar þjálfað fimleika á
eigin vegum við góðan orðstír í
nokkur ár og stýrði m.a. vinsælum
sýningarhóp. Starfsemin varð svo
gróskumikil og umfangsmikil að
ákveðið var að stofna fimleikadeild
innan ÍBV sem varð að Fimleika-
GUÐJÓN Ólafsson tók við
bikarnum fyrir Arna Óla.
ÁSMUNDUR Friðriksson afhendir Borgþóri Pálssyni verðlaunin
sem hann tók á móti fyrir hönd tengdasonar síns, Arnsteins Inga.