Fréttir - Eyjafréttir - 27.01.2000, Síða 20
((Daglegar rapiTTir
1t ferðir milli iw -
jj lands og Eyja Rútuferðir - Bus tours
1/ Landfflutningar Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM
(3)481 1909 -896 6810 -fax 4811927
ÁRLEG skemmtun eldri borgara var í Akóges síðastliðinn föstudag og var mikið um dýrðir
að vanda. Eins og áður hafði Kvenfélagið Líkn veg og vanda af skemmtuninni.
Gott framtak Hauks Guðjónssonar á Reykjum:
Milljónaútflutningur á karfaúrgangi
Hyggst veiða
skötusel í net
Bergvin Oddsson, útgerðarmað-
ur, ætlar á næstunni að reyna við
veiðiskap sem ekki hefur áður
verið prófaður við Island svo að
nokkru nemi. Hann hyggst gera
Sæfaxa VE (gamla Glófaxa) út til
veiða á skötusel í net og er
ætlunin að draga út snemma í
febrúar.
Bergvin segir að Færeyingar hafi
stundað þennan veiðiskap með
góðum árangri. T.d. hafi hlutar-
hæsti báturinn í Færeyjum í fyrra
verið á þeim veiðum. Netin eru
lögð á miklu dýpi, um 200 föðmum,
og þau eru frábrugðin venjulegum
þorskanetum að því leyti að þau eru
aðeins einn faðmur á dýpt, eða tæpir
tveir metrar. Þá er trossulengd
Færeyinganna mun meiri en menn
eiga að venjast hér við land.
Algengt er að 15 net séu í trossu á
þorskanetum en þama getur lengd
trossunnar farið upp í nokkur
hundruð net.
Bergvin segist hafa pantað það
sem þarf til úthaldsins frá Fær-
eyjum, þúsund net í fyrstu tilraun.
Hann segir þó að þau verði ekki
lögð í eina trossu, heldur nokkrar
smærri enda þurfi að leita uppi
vænlega bletti í kantinum þar sem
þessar veiðar hafi ekki áður verið
reyndar hér.
Þar sem skötuselurinn er lífseigur
fiskur er unnt að láta netin liggja
mun lengur í sjó en t.d. þorskanet.
Bergvin segir að skötuselurinn þoli
allt að sjö daga legu í netum án þess
að skemmast. Hann segist hvað
hræddastur um að erfitt geti orðið að
fá frið með veiðarfærin vegna
togara. Þess vegna m.a. verði
trossumar hafðar talsvert styttri en
hjá Færeyingunum. Skötuselur er
utan kvóta, enn sem komið er og
gæti því orðið hin ágætasta búbót ef
vel tekst til.
Fram til þessa hefur allur karfa-
úrgangur í Vestmannaeyjum, bein,
roð og hausar, farið beint til
mjölvinnslu. En nú verður breyt-
ingþará. Framvegis verðurmegn-
ið af þessu flutt út til Banda-
ríkjanna fyrir mjög þokkalegt verð.
Heiðurinn af þessum nýja útflutningi
má þakka Hauki Guðjónssyni, vöru-
bifreiðarstjóra, (Hauki á Reykjum.
Haukur segir að fyrir tveimur ámm
hafi hann verið í Bandaríkjunum að
ræða við kunningja sinn sem stundar
margs kyns innflutning. M.a. hafi
hann sagt honum að þeir væru að
flytja inn slíkan úrgang frá Nýja
Sjálandi en þessi úrgangur er notaður
í beitu í humargildmr. Haukur segist
hafa ámálgað hvort ekki væri jafngott
að fá þetta í Vestmannaeyjum og nú
er árangurinn að koma í ljós.
Fulltrúar frá fyrirtækinu vom hér á
ferð í síðustu viku til viðræðna við
forráðamenn Vinnslustöðvarinnar.
Arangur þeirra viðræðna varð sá að
gerður var samningur um vemlegt
magn af karfaúrgangi, eða allt að 1000
tonn á viku. Gott verð fæst fyrir
karfabeinin eða um 17 kr. fyrir kílóið.
Fyrstu gámamir munu fara héðan í
næstu viku, tíu talsins.
Haukur segir að humarveiðimenn,
sem veiði úti fyrir ströndum Maine-
fylkis, beiti gildmr sínar með karfa-
úrgangi en humarinn er hrææta. Um
tvö kíló fara í hverja gildm og til
marks um það magn sem þama er um
að ræða, segir Haukur að vikulega séu
. rt
vitjanir í gildrumar um 6 milljónir
talsins. Haukur segir að eftirsóttasta
beitan í gildmmar sé kæst skata og
nefnir í því sambandi mikið af
tindabikkju sem hér veiðist og hefur
lítt verið nýtt til þessa.
Haukur segist aðeins hafa verið
milligöngumaður í að koma þessari
samvinnu á, hann sé ekki umboðs-
maður og hann hafi sjálfur engan
fjárhagslegan ávinning af þessu. „Ég
hef heldur engan áhuga á slíku. Aftur
á móti er ég ánægður ef þetta getur
orðið til þess að skapa atvinnu í
Vestmannaeyjum og aukin verðmæti
fyrir byggðarlagið, ekki veitir okkur af
slíku þessa dagana. Ef það tekst, þá er
ég ánægður," sagði Haukur á
Reykjum.
Ifíilií lliSB
Vilhjálmur B * 481-2943 f * 897-1178 e ergsteinsson SCMÐÍFCHðABÍLL
Ákærður eftir
fótboltaleik:
KSÍ mun
fylgjast
náið með
Geir Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri KSI, segir að þar á bæ muni
menn fylgjast náið með máli
Gunnars Bergs Runólfssonar sem
sé einstakt í sögu knattspyrnu á
Islandi.
„Málið var reifað á stjómarfundi
hjá okkur án þess að tekin væri
afstaða til þess,“ segir Geir.
„Mál Gunnars Bergs fór eðlilega
leið í gegnum feril KSÍ en að öðm
leyti emm við ekki í aðstöðu til að
ræða einstök mál.“
Geir segir að knattspymumenn
og Knattspymusambandið heyri
undir landslög eins og aðrir en hann
vill koma upp samstarfi milli
embættis ríkissaksóknara og KSÍ
vegna mála sem gætu átt eftir að
koma upp í framtíðinni. „Við emm
tilbúnir til að veita faglega ráðgjöf
en eftir því hefur ekki verið leitað í
þessu máli. Okkar ráðgjöf gæti falist
í því að segja til um hvenær farið er
út fyrir mörk leiksins," sagði Geir
að lokum.
Fyrir ári síðan kom svipað mál
upp í handbolta og lauk því með
dómi en Geir segir að ekkert þessu
líkt hafi komið upp í fótboltanum.
Sjá bls. 9.
Tekinn tvisvar
Af umferðarmálum bar helst til
tíðinda að ökumaður var stöðvaður
vegna gmns um ölvun við akstur og
er þetta í annað sinn í þessum
mánuði sem sami ökumaður er
stöðvaður vegna þess. Alls komu
upp 17 umferðarlagabrot af þeim
sjö sem höfðu vanrækt aðalskoðun.
VLkutilboð
vj]<unj) 2T. y'an. til 2.
Crawford kremkex, 500 gr.
Lambi eldhúsrúllur, 4 stk.
Cheerios, 567 gr.
Oetker pizzur, frosnar
Sun fresh djús, 1,5 Itr.
Nóa rúsínur, 300 gr.
Mr. Propper, blautklúta refill
kr. 218,-
kr. 229,-
kr. 299,-
kr. 289,-
kr. 228,-
kr. 179,-
kr. 298,-
pr. pakki
pr. pakki
pr. pakki
pr. stk.
pr. flaska
pr. askja
481 3184.
Opið
mán-fös 8-19
V0RUVAL
UESTUItUEr.l lil
UESTMANNAE YIIJM
lau 9-19 sun 10-19
hverri viku