Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Blaðsíða 1
27. árgangur • Vestmannaeyjum ó.júlí 2000 • 27. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
-á’’1 .j 1 'Wr*
' jí®
SHELL-mótið fór fram um síðustu helgi og heppnaðist vel. Bls. 16, 17, og22.
Fargjaldahækkun Flugfélags íslands:
Hlutfallslega mest
til Vestmannaeyja
Frá og með 1. júlí hækkuðu far-
gjöld í áætlunarflugi Flugfélgs ís-
lands. Hækkunin nemur að jafnaði
5 til 7 prósentum til allra viðkomu-
staða félagsins á Iandinu.
Ámi Gunnarsson, sölu- og markaðs-
stjóri Flugfélags íslands, sagði hækk-
unina mesta til Vestmannaeyja ef litið
væri á prósentuna eina og sér, en
krónulega hækki allir ákvörðunar-
staðir félagsins um sömu upphæð eða
500-800 kr. „Það væri því áfram
ódýrast að fljúga til Eyja,“ sagði Ámi.
Ámi sagði að ástæður hækkanana
væm vegna kostnaðarhækkana og
nefndi hann til hækkanir á eldsneyti,
óhagstæða gengisþróun og nýgerða
kjarasaminga. „Þrátt fyrir aukningu
farþega á þeim leiðum sem við
fljúgum til, þá breytir það ekki
afkomutölum okkar miðað við
hækkanir á áðurgreindum kostnaði."
Ámi sagði að fimm fargjaldaflokkar
væm í notkun hjá Flugfélagi íslands.
„Tveir lægstu hækkuðu um 500
krónur og þrír hæstu hækkuðu um
600-800 krónur. Sem dæmi um
lægsta flokk get ég nefnt bónussæti,
sem kostaði 7230 en hækkar í 7730.,
þetta er jafnfram lægsta hækkun á
fargjaldi hjá okkur. Bónusfargjald er
skilyrt, það gildir í einn mánuð, greitt
er við bókun, breytingargjald er 1500
og gisting á ákvörðunarstað er
lágmark tvær nætur. í hæsta flokki get
ég nefnt forgangssæti sem var á
10.330 krónurogferí 11.130 krónur,
en þessi sæti em ekki skilyrt, þau
gilda til dæmis í eitt ár og veita vildar-
punkta til meðlima í vildarklúbbi
Flugleiða."
Ami sagði að Flugfélagið hafi reynt
að bíða með hækkanir sem stöfuðu af
kostnaði eins lengi og framast væri
unnt. „Við höfum haldið að okkur
höndum en eins og þróun mála hefur
verið, þar sem eldsneyti heíúr hækkað
um helming miðað við sama tíma í
fyrra vom þessar hækkanir óum-
flýjanlegar. Einnig hefur gengisþróun
verið óhagstæð, því við emm til
dæmis að leigja vélar í dollumm, og
svo vegur hækkun launaliða einnig
þungt,“ sagði Árni.
Afli og veiðarfæri
verða gerð upptæk
Lögregla vill minna lundaveiði-
menn á að fara varlega við veiðar
vegna breytinga sem orðið hafa á
fjöllum eftir jarðskjálftana í júní.
Myndast hafa spmngur auk þess sem
laust grjót er víða. Þá er og ástæða til
að benda veiðimönnum á að óheimilt
er að stunda lundaveiðar nema hafa
gilt veiðikort. Mun lögregla íylgja því
eftir í ár, eins og undanfarin ár, að
veiðimenn séu með slík kort. Mega
þeir sem em að koma úr veiði eiga
von á að verða stöðvaðir af lögreglu
og inntir eftir korti. Geti menn ekki
framvísað veiðikorti eiga þeir á hættu
að afli og veiðarfæri verði gerð
upptæk, þ.e. lagt verði hald á veiðina
og háfinn.
Arnar Hjaltalín nýr formaður Verkalýðsfélagsins sem er á leið í eina sæng með Snót
Jón hættir eftir 29 ára starf
Jón Kjartansson lét af formennsku
í Verkalýðsfélagi Vestmannaeyja 2.
júní síðastliðnn en þá hafði hann
verið formaður félagsins í 29 ár.
Við formennsku tók Amar Hjaltalín
og mun hann byrja í fullu starfi í
ágústmánuði. Ámar sagði í stuttu
spjalli að Jón myndi þó verða starfs-
maður félagsins enn um hríð, enda
væri hann hafsjór þekkingar og
fróðleiks um málefni verkalýðsfé-
lagsins og því gott að hafa slíkan
mann sér við hlið á meðan hann væri
að komast inn í málin.
Amar sagði að mikið væri á döfinni
hjá Verklýðsfélaginu og bæri þar hæst
sameiningu Verkalýðsfélags Vest-
mannaeyja og Snótar. „í haust mun
hefjast formlegur undirbúningur að
sameiningu félaganna, en það er ljóst
að vilji er innan hvom tveggja fé-
laganna að ganga í eina sæng frá og
með næstu áramótum."
Amar sagði að sameiningarhug-
myndin hefði verið í deiglunni í mörg
ár og að núna fyndist mönnum rétti
tíminn og aðstæður til þess að ljúka
málinu. „Verkalýðsfélög um landið
hafa verið að sameinast og þess vegna
fordæmin til staðar. Við munum þess
vegna leggja reynslu annarra félaga,
sem sameinast hafa, til grundavallar.
Nú em einnig samningar að baki að
undanteknum samningum við fiski-
mjölsverksmiðjur í Eyjum. Það ætti
því að vera sæmileg kyrrð á næstunni.
Við munum móta stefnu og sameinast
um hana. Ég er mjög bjartsýnn um
það en að sjálfsögðu verða hugmyndir
lagðar fyrir fundi í félögunum
tveimur, þar sem hinn almenni
félagsmaður mun mun eiga síðasta
orðið í atkvæðagreiðslu.“
Arnar sagði að starfið legðist vel í
sig, enda starfið bæði skemmtilegt og
krefjandi. „Það er hins vegar ekki
sjálfgefið að ég verði formaður sam-
einaðs félags, en það er held ég
nokkuð skýrt að það eru að verða kyn-
slóðaskipti í verkalýðshreyfingunni.
Hér í Eyjum held ég að ekki verði þó
um neina byltingu að ræða. Við
viljum sjá félagslega og fjárhagslega
sterkt félag, sem þjónað getur
félagsmönnum sem best.“
Amar sagði að reyndar hefði verið
samstarf milli Verkalýðsfélags Vest-
mannaeyja og Snótar í nokkurm
málum undanfarin ár. „Við höfum til
dæmis tekið sameiginlega á orlofs-
málunum og höfum rekið sameigin-
lega skrifstofu ffá 1. júm' síðastliðnum.
Þannig að það má segja að við séum í
sambúð, sem hefur gengið mjög vel.
En það er ekkert gert í dag sem
skuldbindur hvort félag um sig. Nú er
vilji til að stíga skrefið til fulls og gera
félögin að einni sterkri heild til
hagsbóta fyrir félagsmenn."
"•r'i-B’1 ■ TM-ÖRYGGI
_@L FYRIR
ÖRVGGI FJÖLSKYLDUNA
Sameinar öll trygg'ngamálin
- é ailum syidum' . ■. á einfaldan og hagkvæman háu
Bílaverkstæðið Bragginn s.f.
Réttingar og sprautun
Flötum 20 - Sími 481 1535
Sumaráætlun
Frá Eyjum Frá Þorlákshöfn
Alladaga kl. 08.15 kl. 12.00
Aukaferöir fimmtud., föstud. og sunnud.
kl. 15.30 kl. 19.00
4$>}Herjólfur
Sími 481 2800 - Fax 481 2991