Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 6. júlí 2000
Frhttir
17
ÞAÐ hafa ekki oft verið fleiri samankomnir í Iþróttamiðstöðinni en á lokahófi Shellmótsins á
sunnudagskvöldið. Þar stigu þeir sem sköruðu fram úr á verðlaunapall og þeirri stund gleyma þeir seint.
Anægjuleg heimsókn
á æskustöðvarnar
Á göngunni um svæðið rákumst við
á kunnuglegt andlit í fjöldanum.
Þar var stödd Sigurlaug Bjarna-
dóttir, brottfluttur Eyjamaður,
sem er reyndar nýflutt aftur til
Islands eftir áralanga dvöl á
Bretlandseyjum.
„Við entm mjög ánægð með
árangurinn hjá Sigvhati syni okkar og
félögum hans. Hann hefur verið að
spila með Breiðablik C og þeir
enduðu í fyrsta sæti þannig að það
gerist varla betra. Mótið sjálft er nátt-
úrulega frábært, góðar tímasetningar
og nóg íyrir strákana að gera. Veðrið
hefur svo auðvitað verið alveg ffábært
og það gerir þetta ennþá skemmti-
legra.“
En er ekki alltaf gott veður í Vest-
manneyjum?
Eftír smá þögn „Nei ekki alveg alltaf.
Minningin er allavega ekki á þann
veginn, kannski er maður bara farinn
að kalka, hver veit.“
SIGURLAUG og Sighvatur en
hann varð nieistari með
Blikunum í flokki C-liða.
Okkar maður í Pressuliðinu
Á hverju Shell-móti er valið landslið
og pressulið sem síðan etja kappi í
leik sem er liður í kvöldvökunni á
föstudagskvöldinu.
Það þykir mikill heiður að vera
valinn í annað hvort liðið og í þetta
sinn var Eiður Aron Sigurbjömsson
frá IBV í Pressuliðinu en hann er
sonur Sigurbjöms Ófeigs Hallgríms-
sonar og Ásdísar Sveinjónsdóttur.
Eiður Aron er tíu ára og er því á
seinna ári í 6. flokki og leikur með A-
liðinu. Hann varð Shellmótsmeistari
með ÍBV í fyrra en núna lenti A-liðið
í 5. til 8. sæti en hann er ekki ósáttur.
Hann var líka markahæstur í sínum
riðli með 12 mörk.
„Það var mjög gaman á Shell-
mótinu og mest gaman var þegar við
komumst upp úr riðlinum með því að
vinna Gróttu 10 - 0 en svo töpuðum
við fyrir Víkingi 7 - 0 í átta liða
úrslitunum sem var ekki skemmti-
Iegt,“ segir Eiður Aron unt mótið.
Hann segist hafa orðið hissa á að
vera valinn í Pressuliðið en það var
mjög gaman þó landsliðið hafi unnið
4-3.
Eiður Aron heldur með Liverpool í
enska boltanum en heldur samt að
United verði líka meistari næsta ár. Á
EM hélt hann með Portúgal og svo
með Italíu en sættir sig við Frakka
sem Evrópumeistara. En hvað ætlar
hann sér í boltanum? „Ég ætla að
halda áfram að æfa og stefhi að því að
komast í meistaraflokk og kannski í
atvinnumennsku."
Eiður Aron
Sigurbjörnsson frá ÍBV
var valinn í Pressuliðið
og hann var líka
markahæstur í sínum
riðli.
Sá besti stefnir á
atvinnumennsku
Oft koma fram á sjónarsviðið ungir
knattspyrnumenn sem eiga alla
möguleika á að ná iangt í knatt-
spyrnu ef rétt er haldið á spilunum.
Einn slíkur vakti óskipta athygli
þeirra sem fylgdust með Shellmótinu
og höfðu ensku gestimir á orði að ef
þessi ungi maður væri á Englandi
fengi hann ekki að ganga laus, eins og
þeir segja.
Hér er átt við Kolbein Sigþórsson
úr Víkingi, en bróðir hans Ándri er
leikmaður með KR. Kolbeinn var í
lok móts útnefndur sem besti leik-
maður mótsins og kom það fáum á
óvart. Hann varð einnig markahæstur
þriðja árið í röð.
Hvemig leið þér þegar þú heyrðir
nafnið þitt kallað í hátalarakerfmu?
„Mér leið bara mjög vel og er mjög
ánægður með þetta.“
Sástu einhverja aðra sem þér fannst
koma til greina sem bestu leik-
mennimir?
„Ég veit það ekki en það em margir
góðir strákar héma.“
Þú ert búinn að vera markahæstur
núna þrjú Shellmót í röð og núna
valinn bestur, ertu svona rosalega
góður?
„Ég get eiginlega ekki svarað því.
Ég æfi bara vel þannig að ég er vel
undirbúinn."
Nú á Ándri bróðir þinn markametið á
mótinu, sett 1987, ætlaðir þú að slá
metið?
„Ég veit það ekki en ég ætlaði að
verða markahæstur í ár og halda
markakóngstitlinum."
Hver eru uppáhalds liðin þín í enska
og íslenska boltanum?
„Manchester United og KR.“
Og hverjir verða íslandsmeistarar?
„ KR.“
Nú hefur þeim ekkert gengið neitt
sérstaklega að undanfömu, hvemig
heldurðu að hægt sé að bæta gengið
hjá þeim?
„Ég veit það ekki, kannski þarf ég
bara að taka bróður minn í smá
kennslustund."
Hvert af þessum 25 mörkum þínum er
svo eftirminnilegast?
„Þegar ég skoraði í úrslitaleiknum
og kom Víking í 1-0 og við unnum
svoleikinn 3-1.“
Stefhirðu á atvinnumennskuna þegar
þú verður eldri?
,Já, með Manchester United.“
Góður árangur
Breiðabliks
Breiðablik náði mjög góðum
árangri á mótinu, komst í
fjögurra Iiða úrslit í öllum liðum
og vann tvenn gullverðlaun.
Ulfar Hinriksson er þjálfari
Breiðabliks og við spurðum hann
hvort hann væri ekki ánægður
með þennann góða árangur.
} Jú það er óhætt að segja það.
Eg kvarta alla vega ekki.“
En hvernig stendur á þessum
góða árangri?
„Við erum með stóran árgang
núna og það er vel staðið að öllum
málum í kringum félagið.“
En hvernig fannst þér mótið
takast?
„Þetta er búið að vera rosalega
fínt, maður er bara ofsalega
þreyttur. Þetta tekur á og síðasti
dagurinn er eiginlega bara
spurningin um úthald en ekki
knattspyrnulega getu. En þetta
er bara eins og þjóðhátíð, maður
mætir alltaf aftur.“