Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Blaðsíða 2
2 Frcttir Fimmtudagur 6. júlí 2000 fréttir Hækkunum mótmælt Flugfélag íslands hefur nú hækkað flugfargjöld innanlands og nemur hækkun á fargjaldi til Eyja um 7 prósentum. A fundi bæjarráðs á þriðjudag var þessum hækkunum harðlega mótmælt og var bæjar- stjóra falið að ræða við forráða- menn Flugfélagsins. 12 milljónirfyrir hönnun og ráðgjöf Fyrir síðasta fundi bæjarráðs lá bréf frá forystumönnum íþróttahreyf- ingarinnar í Eyjutn. Þar er lýst yfir mikilli ánægju með þá ákvörðun bæjarstjórnar að byggja nýjan tvöfaldan íþróttasal. Þá lá einnig fyrir samningur við Teiknistofu Páls Zóphóníassonar um hönnun og ráðgjöf vegna viðbyggingar við fþróttamiðstöð. Samningsupphæðin er að upp- hæð 12.048.000 kr. og hefur bæjar- ráð samþykkt samninginn. Á sama fundi óskaði Þorgerður Jóhanns- dóttir eftir skriflegum svörum um hönnunarkostnað á iþróttahúsi vegna breytinga sem átti að gera en horfið heftir verið frá að hluta til. Aukin þjónusta ó leikskólum Á síðasta fundi skólamálaráðs lágu fyrir tillögur fiá leikskólafulltrúa um breytingar á vistunartíma Kirkjugerðis og Sóla. Lagt er til að á Kirkjugerði verði tvær deildir at' íjórum, eldri og yngri, 4-5 klst. leikskóladeildir en hinar tvær bjóði upp á 4-9 klst. vistun. Þá er lagt tii að vistunartími á Sóla breytist úr 4- 6 klst. f 4-9 klst. A báðum leikskólunum verður boðið upp á fullt fæði á kostnaðarverði og verður matur annaðhvort eldaður á staðnum eða aðkeyptur. Þessar breytingar munu taka gildi 1. september nk. Búið að opna f/rir umferð ó ný Almannavamanefnd hefur sam- þykkt að grjótskriða sú, sem kom niður í gömlu grjótnámuna ofan við Fjósaklett, í jarðskjálftanum 17. júní, verði fjarlægð sem mest. Þá hefur einnig verið samþykkt að það grjót sem kom niður í skjálftunum tveimur verði hreinsað sem fyrst og er það starf þegar hafið. Einnig samþykkti nefndin að sett yrðu upp viðvömnarmerki um hættu á gtjóthmni þar sem grjót hefur fallið á vegi. Nefndin fylgdist með því þegar „þjóðhátíðarbombur" vom sprengdar í Heijólfsdal við setningu Shellmótsins. Ekki varð vart við neitt hrun í Dalnum vegna þeirra en almannavarnanefnd beinir því til þjóðhátíðamefndar að gerðar verði ráðstafanir til að koma í veg fyrir hættu er skapast getur af gijóthmni. Þá var á fundi nefndarinnar á mánudag samþykkt að fella úr gildi þær lokanir sem ákveðnar vom þann 19. júní og hefur nú verið opnað fyrir umferð um Heijólfsdal svo og inn á Eiði. Aivinnulausum feekkar enn I gær vom 18 skráðir atvinnulausir hjá Atvinnumiðlun. Fyrir viku var t;úa atvinnulausra í Eyjum 25. Ógeðsleg eyðilegging átta til tíu unglinga: Ibúðin í rúst Hún var ógeðsleg sjónin sem blasti við Sigtryggi Þrastarsyni þegar hann leit inn heima hjá sér að Mið- stræti 28 á mánudaginn. Allt innan- stokks var á rúi og stúi og stórir og smáir hlutir lágu eins og hráviði um alla íbúð. Margt persónulegra muna er ónýtt og óttast Sigtryggur að ýmislegt sem hann hélt til haga handa sonum sínum frá móður þeirra, sem lést fyrir nokkrum ár- um, sé glatað. Sigtryggur kom að fjórum drengjum á aldrinum 12 til 14 ára í íbúðinni en í rannsókn lög- reglu hefur komið fram að allt að níu unglingar hafi verið þarna að verki. Sigtryggur missti fyrir nokkmm ámm konu sína frá tveimur ungum sonum þeirra og hefur hann haldið þeim heimili síðan að Miðstræti 28 sem er tvíbýlishús. íbúð í vestur- hlutanum hefur ekki verið nýtt í einhvern tíma. Þar komust innbrots- þjófamir inn í húsið og þaðan brutu þeir sér leið inn í íbúð Sigtryggs með því að rjúfa trévegg. Undanfarið hefur Sigtryggur verið í sambandi við konu og vom þau byrjuð að búa annars staðar. Hann hafði ekkert hreyft úr íbúð sinni í Miðstrætinu en kíkti reglulega við til athuga hvort ekki væri allt með felldu. „Þarna var alll mitt og drengjanna minna sem ungir misstu móður sína. Eg hef eftir mætti reynt að halda öllu til haga sem hún átti og því sem tilheyrði lienni á einhvem hátt svo strákamir hafi eitthvað í höndunum frá henni þegar þeir eldast,“ sagði Sigtryggur þegar hann sýndi blaðamanni ummerkin. „Eg hef ekki ennþá haft orku til að fara í gegnum þetta en ég óttast að mest af þessu sé nú ónýtt.“ Það er erfitt að gera sér grein fyrir því hvað liggur að baki þegar ungl- ingar, flestir á aldrinum 12 til 14 ára svala skemmdarfýsn sinni með þessum hætti. Þó Sigtryggur hafi lítið notað íbúðina undanfarið er allt hans þar inni og allt sem þarf til heimilis. Það náði ekki að stoppa unglingana sem fóm um alla íbúð, rifu og tættu út úr öllum skápum, rifu og brutu allt sem fyrir þeim varð nema stærstu húsgögn en þau vom einnig skemmd og rispuð. „Þegar ég kom hingað í dag (mánudag) gómaði ég fjóra drengi og fór með þá á lögreglustöðina. Nú er komið í ljós að a.m.k. níu unglingar hafa verið að verki. Nú veit ég ekki hvað lögreglan gerir en sjálfur ætla ég að bjóða foreldrum drengjanna heim og sýna þeim verksummerki. Það er kannski of snemmt að fara að tala um afbrolaunglinga en það þarf að grípa inn í ef ekki á að fara illa hjá þessum ungmennum. Virðingarleysið fyrir eignum annarra er algjört og málið er sýnu alvarlegra því þama em engir óvitar á ferð. Sjálfur stend ég frammi fyrir því að segja drengjunum mínum að stórt skarð sé höggvið í þá hluti sem tengjast móður þeirra heitinni. Það er ekki auðvelt verk og hvemig ég á að útskýra fyrir þeim að óvið- komandi hafi ráðist inn á heimilið okkar og eyðilagt það, hef ég ekki hugmynd um og lái mér hver sem vill,“ sagði Sigtryggur að lokum. fréttir Sómafólk AUs vom 182 færslur í dagbók lög- reglu í sl. viku sem er svipaður íjöldi og í vikunni á undan. Þrátt fýrir fjölda gesta í tengslum við Shellmótið var frekar rólegt hjá lögreglu og er það álit lögreglu- manna að mótið hafi farið vel fram og þeir gestir sem kontu til Eyja á mótið, haft verið til sóma. Innbrot í leikskóla Tilkynnt var til lögreglu að óboðnir gestir hefðu farið inn í leikskólann Kirkjugerði urn helgina. Ekki er vitað hver eða hverjir þar voru á ferð en hvorki var skemmdir að sjá né að neinu hefði verið stolið. Lyfjum stolið Tveir þjófnaðir vom kærðir til lög- reglu. I öðm úlvikinu var farið um borð í Mána GK þar sem skipið lá í Friðarhöfn og stolið lytjum úr lyfjttkistu. Er talið að þetta hafi átt sér stað á tímabilinu 23.- 28. júní og óskar lögregla eftir upplýsingum um gransamlegar mannaferðir við bátinn á því tímabili. Þá var stolið fánum sem flaggað var á mótssvæði Shellmótsins en skömmu síðar tilkynnt að þeint hefði verið skilað. Skemmdarverk Þrjú eignaspjöll vom tilkynnt lög- reglu í vikunni. Alvarlegast þeirra var að nokkrir drengir lögðu íbúð nánast í rúst og er nánar tim það annars staðar í blaðinu. f hinum tilvikunum vai' um að ræða rúðu- brot í vinnuskúr við Löngulág og skemmdir á bifreið við Miðstræti en bifreiðin hafði verið rispuð. Lög- regla óskar eftir upplýsingunt um hugsanlega gerendur í þessum tveimur dlvikum. Einn stútur enn Einn var stöðvaður í vikunni vegna gruns um ölvun við akstur, einn fyrir að aka yfir á rauðu ljósi, tveir vegna brota á stöðvunarskyldu, sjö fyrir að leggja ólöglega, fjórir fyrir vanrækslu á skoðun, fjórir lyrir að spenna ekki belti og tveir sem höfðu of marga farþega í bflum sínum. Þá vom fjögur umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglu en öll minni háttar. Sumartilboð á Hörpusilki Ódýrara en í Reykjavík 101, hvítt og beinhvítt: stgr. Gmscii® VERKEFNISSTJÓRN Vöruþróunar- og markaðsdeildar Nýsköpunarsjóðs kom í heimsókn til Eyja í gær og hélt fund í Rannsóknasetrinu. Verkefnastjórnin hefur á sinni könnu framlög vegna vöruþróunar- og markaðsaðgerða og veitingu áhættulána og gerir tillögur þar um til stjórnar Nýsköpunarsjóðs. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem verkefnastjónin fundar utan Reykjavíkur, en stjórn Nýsköpunarsjóðs hefur haldið nokkra fundi úti á landi. Á myndinni eru Arnar Sigurmundsson, sem jafnframt er formaður stjórnar Nýsköpunarsjóðs, Davíð Lúðvíksson og Jón Albert Kristinsson, Úlfar Steindórsson framkvæmdastjóri NSA og Gísli Benediktsson hjá NSA sem annast málefni deildarinnar. FRETTIR Útgefandi; Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481- 1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir. FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.