Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Blaðsíða 24

Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Blaðsíða 24
Frétta- og auglýsingasími: 481-3310 • Fax 481-1293 Hátíð í bæ Þjóðhátíðarlagið 2000 Þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja árið 2000 hefur verið valið og gefið út á geisladiski. Höfundur lagsins og textans er Heimir Eyvindarson hljómborðsleikari hljómsveitar- innar A móti sól og segir hann lagið í hefðbundnum þjóðhátíðarstfl og heitir I Vestmannaeyjum. „Ég sendi þetta lag reyndar í keppnina 1995, en þá var það með nokkuð öðru sniði. Það má segja að lagið sé hefðbundið í texta og reynt að ná upp stemmningu, þannig að allir eiga að geta sungið það og spilað í tjöldunum. 1995 útgáfa lagsins var meira í suðrænum stfl og mikið um framandi hljóðfæri.“ Heimir sagði að lagið hefði verið frumflutt á föstudaginn var á útvarps- stöðinni Mónó og hann vissi tíl að það hefði einnig fengið nokkra spilun í Útvarpi Suðurlands. Heimir sagði að fleiri hefðu komið að flutningi lagsins en meðlimir hljómsveitarinnar A móti sól. „Við fengum Eyjólf Kristjánsson til þess að radda með okkur en hann er gagnkunnugur þjóðhátíðarstemmn- ingu í Eyjum og við sendum lagið í keppnina undir heitinu Magni og félagar. A mótí sól mun svo frumflytja lagið á Þjóðhátíð á föstudagskvöldinu," sagði Heimir. A móti sól mun svo einnig skemmta á laugardeginum og sunnudeginum á þjóðhátíð. Golf: Kalli í Evrópukeppni á St. Andrews Kylfingurinn efnilegi frá Vest- mannaeyjum, Karl Harajdsson, hefur verið valinn fyrir Islands hönd til að keppa á St. Andrews golfvellinum í Skotlandi um næstu helgi. Þama er um að ræða Evrópukeppni 16 ára og yngri, tveggja daga mót, og aðeins einn keppandi frá hveiju landi. Þama mæta til leiks þeir kylfingar í Evrópu af yngri kynslóðinni sem taldir em efnilegastir. Ljóst er að Karl, sem í sumar hefur starfað sem leiðbeinandi hjá Golfskólanum í Vestmannaeyjum, á erfiða helgi í vændum en jafnframt er þetta mikill heiður fyrir hann og Golfklúbb Vestmannaeyja. Við munum greina nánar frá mótinu í næsta blaði. Volcano Open um helgina Eitt stærsta golfmót ársins í Vest- mannaeyjum, Volcano Open, hefst á morgun. Fjöldi þátttakenda hefur sífellt verið að aukast með hverju ári og nú em á annað hundrað keppendur bókaðir í mótið. Mótið hefst annað kvöld með setn- ingu og léttu næturgolfi en sjálf aðal- keppnin hefst á laugardag og lýkur á sunnudag með verðlaunaafhendingu. A laugardagskvöld er sameiginlegur kvöldverður. Mótið er punktamót og keppt í þremur forgjafarflokkum, 0- 12,13-24 og 25-36. Næstkomandi laugardag verður haldin skemmti- og menningar- dagskrá í Skvísusundi og Bárustíg, sem ber yfirskriftina HÁTÍÐ í BÆ. Það em Vestmannaeyjabær, Spari- sjóður Vestmannaeyja, Kaffi Tímor og Pizza 67 sem standa að þessari menningarveislu, sem er öðmm þræði goslokahátíð. Hátíðin hefst með úti- vistardegi Sparisjóðsins á Bámstíg kl. 15.30. Þar verða ýmsar uppákomur fyrir yngri kynslóðina, götuleikhús, grillveisla og krakkahlaup 8 til 12 ára bama. Klukkan 17.00 verður opnuð mynd- listarsýning í Vélasalnum í Lista- skólanum á verkum lærðra og leikra látinna listamanna í Eyjum. Klukkan 20.30 hefst svo kvöldstemmning í Skvísusundi þar sem margt verður til skemmtumar. Fólk er hvatt til þess að hafa með sér hljóðfæri og troða upp þá um kvöldið gestum og gangandi og ekki síst sjálfum sér til ánægju. Kona beit konu Ein líkamsárás var kærð til lög- reglu eftir helgina og átti hún sér stað á veitingastaðnum Lundanum. Þar höfðu ást við tvær konur og enduðu þau átök með því að önnur þeirra beit hina í handlegg. Kærði sú sem fýrir bitinu varð þann verknað en áverkar munu ekki hafa verið al- varlegir. 69,- áí ÍSLENSKT MEPIÆ^^ HF tdAÍSSTÖHGLAl ^aöggsoónir og djupfrystir Vik‘$UWeýJ.Uuva,s LukexPims 129,- áður151,- Lu kex le petit, ecolier, le truffle 139,- áður 169,- Skólajógúrt 45,- áður 52,- MINNISVARÐINN Sendiboðinn, sem er gjöf mormóna í Bandaríkjunum til íslendinga, var afhentur á föstudaginn. Bls. 6. Prince kex - 2 saman 159,- áður189,- Club orange kex 136,- áður 168,- ísl. Meðlæti sveppir 1/2 dós 59,- áður75,- Takiðþáttí Lu leiknum. Þú einfaldlega kaupirpakka afíu kexi ogþú getur unntö kolagrill eða íu kexkörfu. Isl. Meðlæti maís 1/2 dós /$/ Meðlæti stönglar 4 stk. 49,- áður 51,- 169,- álur 253,- Rútuferðir - Bus tours Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM 0)481 1909-896 6810-fax 481 1927 Sendibílaakstur ________- innanhæjar Vilhjálmur Bergsteinsson tr 481-2943 * 897-1178 sewBipe«M»iLi Daglegor f ferðir milli J lands og Eyja '/ Landffutningar JJ

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.