Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 6. júlí 2000
Fréttir
15
Frjálsar: Góður árangur krakka úr Óðni á Gogga galvaska
Frá Sundfélaginu: AMÍ 2000
TrySSvi 03 Berglind
Björk Goggameistarar
Miklar
framfarir
Yuri þjálfari með nokkrum keppendum frá Eyjum á aldurs-
flokkamótinu.
Meistaramót Gogga galvaska var
haldið að Varmá í Mosfellssbæ
dagana 23. til 25. júní og voru
keppendur frá Oðni fjölmennir á
mótinu. Tryggvi Hjaltason kom
heim sem tvöfaldur Goggameistari
og Berglind Björk Þorvaldsdóttir
átta ára sem þarna var á sínu fyrsta
móti varð einnig meistari. Margir
krakkar úr Óðni bættu persónu-
legan árangur sinn.
Tryggvi Hjaltason (5 fr.v. efri röð)
varð tvöfaldur Goggameistari. Hann
hlaut fyrstu verðlaun í hástökki, en
hann stökk 1.60 m og jafnaði Vest-
mannaeyjamet Óttars Jónssonar.
Hann hlaut einnig fyrstu verðlaun í
kúluvarpi, en hann kastaði 12,25 m.
Einnig varð hann 3. í langstökki með
atrennu, eða 4,77 m. Hann komst í
úrslit í 100 m hlaupi og lenti í fjórða
sæti með tímann 13,43 sek. í spjót-
kasti varð hann í fjórða sæti, en hann
kastaði 31,42 m.
Hildur Jónsdóttir (3. fr.v. efri röð)
varð önnur í spjótkasti og kastaði
27,41 m og setti Vestmannaeyjamet
og sló þar með út tíu ára gamalt met
þjálfara síns, Karenar Ólafsdóttur, frá
1990 sem var 28,51 m. Einnig var
Hildur í sjötta sæti í kúlukasti.en hún
kastaði 8,13 m.
Kristjana Jónsdóttir (2. fr.v. efri
röð) náði þriðja sæti í kúlukasti og
náði að kasta kúlunni 8.63 m sem er
nýtt Vestmannaeyjamet, en eldra
metið bætti hún um 1 metra. Kristjana
náði fjórða sæti í spjótkasti og þeytti
spjótinu 23,55 m.
Þessir krakkar ásamt fleirum eru
nýkomnir úr æfingabúðum í Svíþjóð.
Arangur þeirra hefur ekki látið á sér
standa og þó að allir hafi ekki náð á
verðlaunapall þá voru þau að bæta
persónuleg met sín.
Yngri krakkamir
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (2.
fr.v. neðri röð) vann boltakastið, en
hún kastaði boltanum 24,86 m sem er
Vestmannaeyjamet, en næsti maður
kastaði um 17 m. Berglind varð
einnig í 3. sæti í 60 m hlaupi á tím-
anum 10,48 sek. Berglind Björk, sem
er átta ára og á sínu fyrsta móti, setti
Goggamet. Er hún þriðji Eyjamað-
urinn sem nær þessum árangri og fetar
í fótspor Ama Óla Ólafssonar og
Gunnars Heiðars bróður síns og
Margrétar Láru Viðarsdóttur..
Eyrún Eva Eyþórsdóttir varð í 6.
sæti í boltakasti og kastaði bolatanum
14,53 m og Andri Már Jónsson varð í
5. sæti í boltakasti, en hann kastaði
32,61 m, einnig varð hann í 7. sæti í
60 m hlaupi á 10,42 sek.
Alls tóku 10 sundmenn frá
Sundfélagi ÍBV þátt í Aldurs-
flokkameistaramóti Islands í sundi
sem fram fór á Akureyri 23.-25.
júní. Mótið stóð yfir í þrjá daga og
synt var frá morgni til kvölds í
nýrri sex brauta sundlaug þeirra
norðanmanna.
Til keppni mættu yfir 200 sund-
menn frá 18 félögum. Sundfólkið í
ÍBV hefur verið duglegt að æfa og
náðu 11 þeirra lágmörkum íyrir AMl
(ná þarf lágmörkum til að synda í
einstaklingsgreinum en ekki í boð-
sundi). Sumir þeirra sáu sér ekki færl
að fara á mótið, en engu að síður var
liðið sterkara en við höfum átt í yfir
áratug. AMÍ er stigamót og syntu
okkar sundmenn í 32 greinum og
höluðu inn 213 stig. Öll sund em
mikilvæg þar sem aðeins 12 bestu
tímamir í hverri grein gefa súg. í fyrra
fékk hðið 90 súg og árið þar á undan 1
stig. Af þessu má sjá að Sundfélagið
er á mikilli siglingu og margir
dugmiklir sundmenn í hðinu em að ná
árangri með markvissri þjálfun.
Flest stig íyrir ÍBV fengu Georg
Sankovich 34 stig og A-meyjasveit
ÍBV 36, stig (Sigrún Halldórsdóttir,
Eva Ösp Ómólfsdóttir, Irena Lilja
Haraldsdóttir, Sigríður Sunna Atla-
dóttir og Þórdís Gyða Magnúsdótúr).
Alls vom 18 persónulegar bæúngar
á tímum hjá sundfólkinu og sett vom
2 ný Vestmannaeyjamet í aldurs-
hópnum 11-12 ára: Daði Guðjónsson
í 100 metra skriðsundi á tfmanum
1:08.94 og A-meyjasveit ÍBV (Sigrún,
Eva Ösp, Irena Lilja og Sigriður
Sunna) sem synú 4x1 OOm skriðsund á
5:07.41 og bættu þar með 15 ára
gamalt met. A-meyjasveitin fékk
silfur í þremur greinum í 4x50m
flórsundi, 4x50m skriðsundi og
4xl00m skriðsundi. Aðeins meyja-
sveit Sundfélags Hafnarfjarðar stóð
sig betur, en SH er sterkasta sund-
félagið á íslandi.
Keppnistímabilið hjá sundfólkinu
er langt og strangt, 14. júlí fara allir í
sumarfrí, en þá um kvöldið verður
síðasta sundmótið sem sundfólkið
nefnir „Yuri mót“ í höfuðið á þjálfara
sínum. Allir sem stunda æfingar hjá
Sundfélagi IBV taka þátt í mótinu og
velur sundfólkið sjálft þær greinar
sem það syndir. Yngstu þátttak-
endumir koma til með að synda 25
metra með frjálsri aðferð og fá þeir
verðlaunapening. Bæjarbúar eru hér
með boðnir velkomnir á mótið.
Þess má geta að sundfólkið í ÍB V er
á aldrinum 7-19 ára. Markviss upp-
bygging hefur átt sér stað hjá
Sundfélaginu síðastliðin tvö ár og er
það heldur betur að skila sér í bættum
árangri. Með sama áframhaldi eigum
við eftir að heyra enn frekar af af-
rekum sundfólksins á komandi árum.
Málið er að gera alltaf sitt besta og þá
uppsker fólk í samræmi við það.
Sundæfingar byrja aftur hjá aðal-
liðinu 21. ágúst en þá hefst undir-
búningur fyrir Bikarkeppni Sundsam-
bandsins í nóvember og möguleiki er
á góðu sæú í 2. deildinni. Fyrsta móúð
sem sundfólkið tekur þátt í á næsta
úmabili er þó Sprettsundmót ÍBV sem
haldið verðu í þriðja sinn. I fyrra voru
yfir 100 keppendur á mótinu frá 6
félögum. Einungis er synt í 50 og 100
metra greinum og er mótið hin besta
skemmtun.
Karl Gauti Hjaltason sýslumaður skrifar:
Pungaprófsfár
Hamfarir
og blaðamennska
í síðasta tölublaði Frétta var um-
fjöllun um svokallað pungapróf og
fór þar hamförum miklum fyrr-
verandi skólastjóri Stýrimanna-
skólans í Vestmannaeyjum, Friðrik
Asmundsson, og fann embætúsfærslu
undirritaðs flest til foráttu. Ekki var
að heyra á þeim blaðamanni sem
hringdi til mín í síðustu viku að
umljöllunin væri eitthvað í þeim dúr,
sem raun bar vitni eða eitthvað væri
þar sem ég hugsanlega gæti þurft að
svara. Einungis var spurt um afstöðu
embættisins til námskeiðs Smábáta-
skólans og erindis samgönguráðu-
neyúsins. Þetta tel ég ekki vera góða
blaðamennsku.
Af ofangreindum sökum vil ég
koma að hér nokkrum skýringum
mínum.
Ekkert nýtt að þessi
námskeið séu tekin gild
Ókunnugir gætu helst skilið af lestri
Frétta í síðustu viku að sýslu-
maðurinn í Vestmannaeyjum væri
einn um það og hefði nýlega fundið
upp á því að viðurkenna önnur nám-
skeið en þau sem Stýrimannaskólinn
í Reykjavík eða ákveðnir fram-
haldsskólar halda til skipstjómar-
réttinda á skipum í innanlands-
siglingum sem eru 30 rúmlestir eða
minni, svonefnt „pungapróf.“
Þetta er alrangt, bæði námskeið
Smábátaskólans og námskeið á
vegum annara einstaklinga hefur
ávallt verið tekið gilt, að uppfylltum
venjulegum skilyrðum, bæði hér í
Vestmannaeyjum og hjá öðrum
embættum sem undirritaður hefur
aflað sér upplýsinga hjá.
Lagaákvæðið sem fjallar um skil-
yrði til útgáfu atvinnuskírteinis í
þessum flokki er heldur ekkert nýtt,
því var síðast breytt fyrir fimm árum
og þá er einnig vert að upplýsa að
samkvæmt ákvæðinu eins og það var
upphaflega árið 1984, þá hafði
Menntamálaráðuneytið yfirumsjón
með þessum prófum eða gat fahð það
ákveðnum skólum, t.d. Stýrimanna-
skólanum í Reykjavík eða í
Vestmannaeyjum. Það er því afar
fróðlegt að bera saman þessa laga-
þróun og moldviðrið sem nú er uppi
um gildi námskeiða sem ekki eru á
vegum tiltekinna skóla. Einhverra
hluta vegna var þessu breytt í
ákvæðinu.
Mergurinn málsins
Mergurinn málsins er auðvitað sá að
Menntamálaráðuneytið hefur ekki
farið eftir tilmælum þeirra félaga,
Friðriks og Guðjóns Ármanns
Eyjólfssonar skólameistara Stýri-
mannaskólans í Reykjavík um að
veita ákveðnum skólum einkarétt á
kennslu úl þessara réttinda eða breyta
lögum á annan þann hátt sem yrði úl
þess að útrýma samkeppni um
nemendur til pungaprófs.
Ég get tekið undir það að auðvitað
er nauðsynlegt að nám eins og þetta
sé vel úr garði gert, í höndum hæfra
manna og að eftirlit sé með
prófkröfum og kennslu. Ef til vill
þarf að gera hér einhvetja bragarbót á
lagaákvæðum um þessi námskeið eða
setja um þau fyllri reglur. En ef menn
eru óánægðir með lögin eins og þau
eru verða þeir einfaldlega að vinna að
því að fá þeim breytt, en ekki lemja
höfðinu við steininn í fjölmiðlum.
Ég hef svarað Samgönguráðu-
neytinu á þann hátt sem ég nefndi í
fyrri umfjöllun blaðsins. Þannig hef
ég fengið svör frá Smábátaskólanum
og þeir sent mér ljósrit skipunarbréfs
ráðuneytisins á tilgreindum próf-
dómara. Það er misskilningur hjá
Friðriki að það sé í mínum verkahring
að endurskoða tilskipanir ráðu-
neytisins og tel ég að ráðuneyúð sé
fullfært um að skipa prófdómara eftir
7. grein laganna án minnar hjálpar.
Þarf meira en bara
námskeið til að fá skírteinið
Þá má benda á það að ekki er gert ráð
fyrir því að aumir landkrabbar fái
útgefið fyrmefnt atvinnuskírteini
heldur þurfa menn að sýna fram á 18
mánaða siglingatíma og nægir þar
hvorki sigling um ólgusjó embættis-
færslu eða á vegum guðs. Að auki
þarf viðkomandi að hafa náð 20 ára
aldri og framvísa læknisvottorði.
Að lokum vil ég benda mönnum á
að samkvæmt heimasíðu Stýrimanna-
skólans í Reykjavík er unnt að taka
þessi námskeið í bréfaskóla og ættu
áhugasamir að fara á slóðina
http://styrimarmaskolinn.ismennt.is/.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Karl Gauti Hjaltason.