Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Blaðsíða 12
Uppsetning: Jón Helgi - Texti: Benedikt Gestsson • Myndir: Guðmundur Ásmundsson/Fréttir
DDDairsGðflföa ^©sGoDDaDQŒiaawfla S®®®
Þórey Jóhannsdóttir
Lilja Björg Arngrímsdóttir
Aðalbjörg Jóhanna
Þórey Jóhannsdóttir er fædd 1. nóvember árði 1981
í Vestmannaeyjum. Hún er á náttúrufræðibraut í
Framhaldskólanum (Vestmannaeyjum. Foreldrar
hennar eru Jóhann Guðjónsson og Hallgerður
Linda Pálmadóttir. Þórey á þrjú systkini, eina eldri
systur sem heitir Hrefna og tvo bræður sem heita
Pálmi, 26 ára ogjóhann, 13 ára. Þórey á kærasta
sem heitir Hafsteinn Oanfel Þorsteinsson, en hann
er á náttúrufræðibraut f Framhaldskólanum í
Vestmannaeyjum. Helstu áhugamál hennar eru
fþróttir, en auk þess hefur hún gaman að því að
vera með vinum sfnum og fjölskyldu, og að ferðast.
Þórey tók þátt f keppninni um titilinn ungfrú
Suðurland í vetur.
Þórey segist aðallega hafa tekið þátt (þeirri keppni
vegna þess að systir hennar hefði einu sinni tekið
þátt í keppni um titilinn ungfrú Vestmannaeyjar. Hún
sagði að þetta væri rosalega skemmtilegt, „svo finnst
mér gaman að kynnast nýju fólki og maður lærir mjög
mikið á þvf að taka þátt í svona keppni."
Hvað lærir maður?
„Til dæmis samvinnu og framkomu."
Nú hafið þið systur báðar tekið þátt í svona keppni,
liggur þessi áhugi í blóðinu?
„Já ég myndi segja það, því allir ættingjar mfnir eru
rosalega myndariegir," segir Þórey og hlær.
Þórey segir að ástæða þess að hún tekur þátt núna
í Sumarstúlkukeppninni sé vegna þess að hún hafi
verið beðin um það.
„Ég þurfti nú reyndar aðeins að hugsa mig um vegna
þess að í fyrstu átti keppnin að vera um helgi sem
ég komst ekki, en svo var þvf breytt, svo ég ákvað
að vera með.“
Flamingo
Þórey segist ætla í framhaldsnám að loknu
stúdentsprófi. „Mig langar að læra erfðafræði eða
Kffræði. Mér finnst bara auðveldast að læra Ifffræði
og gengur mjög vel í henni. Mér finnst hún líka
skemmtilegust og þess vegna ætla ég að fara í líffræði."
Nú eru Vestmannaeyjar annálaðar íþróttaeyjar, hefur
þú verið virkur þátttakandi f (þróttum?
„Jú, ég var alveg helling (fþróttum þegar ég var yngri
og þá í frjálsum, fimleikum, dansi og fótbolta en núna
æfi ég sund og keppti á mótum, en ég hef ekki keppt
mikið undanfarið. Áhugi minn á sundinu er hins vegar
þannig til kominn að ég elti eiginlega bestu vinkonu
mína. Ég vildi hins vegar alltaf prófa allar íþróttir, en
svo gekk mér bara svo vel á æfingum í sundinu og
þegar ég vann fyrsta gullið mitt varð ég svo montin
að ég hélt áfram."
Ertu pólitfsk?
„Nei ekki neitt, ég á örugglega eftir að verða það (
framtíðinni, en ég hugsa ekkert um pólitík núna."
Hvað er fegurð fyrir þér?
„Ég held að fólk sem er fallegt og hefur enga góða
innri persónu komist ekki langt. Fegurðin er þvf
frekar innri maður."
Hefur náðst fullt jafnrétti kynjana að þínu mati?
„Mér finnst það allt (lagi, en stundum gengur þetta
út í öfgar. Ég held að þetta sé ekkert alvariegt á íslandi
en vfða erlendis viðgengst kynjamisrétti. Ég er
jafnréttissinnuð, en auðvitað eru mörg störf sem
konur eiga erfiðara með að vinna vegna
Ifkamsbyggingar og svo framvegis. Mér finnst hins
vegar rosalega leiðinlegt þegar alltaf er litið á
kvenmenn, eins og þær séu allar eins. En konur eru
jafn misjafnar og þær eru margar. Hvers konar
samfélag finnst þér Vestmannaeyjar vera?
„Mér finnst þetta vera mjög sérstakt samfélag. Til
dæmis bara þjóðhátíðin, og eyjalögin. Ég er líka mjög
stolt af því að vera Vestmannaeyingur. Ég er líka
bjartsýn á framtíð Eyjanna, þó að ég haldi að fólki
komi ekki til með að fjölga hérna, heldur standa í
stað."
Heldurðu að þú gæKr fengið vinnu sem erfðafræðingur
í Eyjum að loknu námi?
„Það er ekkert óhugsandi að það verði í framtíðinni.
Er ekki íslensk erfðagreining að pæla í því að stofna
útibú úti á landi, hví gæti það ekki orðið í
Vestmannaeyjum. Ég stefni að minnsta kosti að þvf
að koma aftur ef ég fæ vinnu."
Geturðu lýst persónu þinni?
„Ég get nú ekki gefið mér einhverja einkunn. En ég
hef rika réttlætiskennd og bý yfir miklum kærieika.
Ég er lika oftast í góðu skapi."
Lilja Björg Arngrímsdóttir er er fædd 10. júlí árið
1982 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hennar eru
Þóra Hjördís Egilsdóttir, starfsmaður á leikskóla
og Arngrímur Magnússon, rafvirki. Hún á tvo
bræður, Magnús Arnar og Egil sem eru báðir eldri
en hún og dásamar Lilja Björg bræður sína f hástert
„Þeir dekra við mig,“ segir hún og brosir sfnu
blíðasta. Hún á kærasta sem heitir Gísli Geir
Tómasson en hann vinnur í Skipalyftunni og er að
læra vélvirkjun í Framhaldsskólanum í
Vestmannaeyjum, sjálf er hún hins vegar að vinna
f Toppnum í sumar. Lilja Björg er á hagfræðibraut
í Framhaldskólanum í Vestmannaeyjum og hefur
lokið tveimur vetrum. Helstu áhugamál hennar eru
að ferðast og handbolti, auk þess að skemmta sér
í góðra vina hópi.
Lilja Björg hefur aldrei áður tekið þátt í keppni
sambærilegri sumarstúlkukeppninni í Vestmannaeyjum
en segist hlakka til að taka þátt núna. „Ástæða þess
að ég tek þátt er nú bara vegna þess að Dagmar
hringdi í mig og spurði hvort ég vildi taka þátt. Margar
vinkonur mínar höfðu tekið þátt f svona keppni og
þeim þótti gaman svo ég ákvað að slá til.
Hver eru framtíðaráform þín í námi?
„Ég stefni á að fara í viskiptafræði eða lögfræði, en
hef ekki ákveðið mig enn þá hvort ég vel, en ég stefni
að langskólanámi f háskóla."
Er samasem merki milli þess og að þú komir ekki
aftur til Eyja að loknu námi?
„Nei ég kem aftur, ef ég fæ góða vinnu."
Hefurðu tekið þátt í íþróttum?
„Ég var mikið í handbolta og var lengst af í honum,
en ég æfði líka fótbolta og fimleika þegar ég var yngri.
Núna er ég hins vegar ekki í iþróttum."
Lilja Björg segir að hún hafi ekki neina sérstaka
pólitíska afstöðu. „Ég er reyndar í stjóm Eyverja, en
aðallega til þess að hafa gaman af. Nú og hafandi
upplýst það, þá ferðu nú nærri um það hvaða flokk
ég styð.“
Hvað er fegurð fyrir þér?
„Allt sem er bjart og jákvætt er fallegt."
Lilja Björg segist eiginlega ekki hafa neina skoðun
á jafnréttismálum. „Mér finnst konur hafa ágætis
jöfnuð á við karia, þannig að fyrir mér er ágætis
jafnrétti. Mér finnst enginn hafa meiri rétt en annar.
Nú er það menntunin sem gildir og það hafa allir
jafna möguleika á því að mennta sig og skiptir ekki
máli hvort viðkomandi er karl eða kona. Launamun
milli karla og kvenna hef ég hins vegar ekki spáð
mikið í."
Lilju BjörgfinnstVestmannaeyjarmjöggott og
jákvætt samfélg. „Hér er allt til staðar og ekki yfir
neinu að kvarta. Varðandi framtfðina þá held ég að
ef boðið yrði upp á meira langtímanám í Eyjum, eins
og til dæmis iðnnám, þá held ég að Eyjamar eigi eftir
að lifa um alla tíð, ef ekki, þá á fólki eftir að fækka
hér á næstu 20 til 30 árum og því miður held ég að
þróunin verði neikvæð að þessu leyti. Einnig finnst
mér þróunin varðandi fíkniefna- og áfengisneyslu
ungs fólks neikvæð og all of mikið um að ungt fólk
ánetjist þessum efnum. Þetta held ég að sé mesta
hættan sem steðjar að ungu fólki í dag. Einnig held
ég að samskipti ungs fólks og foreldra almennt séu
ekki nógu góð."
Geturðu lýst persónuleika þínum?
„Já ég held að égsé mjögjákvæð persóna og
bjartsýn og kannski nokkuð ákveðin.
Sprett
úr spori
AðalbjörgJóhanna er fædd f Vestmannaeyjum 17.
júní 1982 og er því þjóðhátíðarbarn á landsvísu.
Hún er dóttir Báru Sveinsdóttur og fósturfaðir
hennar erjóhannes Steinólfsson. Aðalbjörg á þrjár
systur sem allar eru yngri en hún og heita Þóra
Birgit 12 ára , Steinunn Lilja 9 ára og Helga Rut
sem er 7 ára. Aðalbjörg hefur lokið tveimur árum
á félagsfræðibraut sálfræðilínu við Framhaldskólann
í Vestmannaeyjum og aðaláhugamál hennar þessa
dagana er leikhúsið, en þar er hún mjög virk, en
svo finnst henni að sjálfsögðu gaman að vera með
vinum sínum og hafa það gott.
Aðalbjörg segist vera ólofuð og hún er spurð að
því hvort það standi ekki til bóta. „Horfir það til bóta,"
segir hún full undrunar, ef ekki hneykslunar og hlær.
„Nei ekkert sérstaklega. Mér finnst það ekkert
endilega til bóta að eiga kærasta."
Þú hefur áður tekið þátt í sambærilegri keppni, sem
var keppnin um titilinn Ungfrú Suðuriand í fyrra. Þú
hefur því nokkra reynslu umfram keppinauta þína (
Sumarstúlkukeppni Vestmannaeyja. Er þetta ekki
ójafn leikur að því leyti og vinningslíkur þínar meiri?
„Nei það held ég ekki og á erfitt með að ímynda
mér það og svona keppnir eru ekkert sértakt áhugamál
hjá mér. Dagmar er bara svo ákveðin og ekki hægt
að segja nei við hana þegar hún hringdi og spurði
hvort ég vildi ekki taka þátt. Annars er mjög gaman
að taka þátt í þessu og maður hefur eitthvað
skemmtilegt fyrir stafni á meðan. En þetta er ekkert
sem ég ætlað að leggja fyrir mig og ég hef engan
sérstakan áhuga á fyrirsætustörfum. Ég hef bara
gaman af því að kynnast nýju og skemmtilegu fólki."
Ætlarðu að fara í framhaldsnám?
„Já ég hef áhuga á því að fara f framhaldnám, en
ég hef ekki alveg gert upp við mig hvað það yrði.
Kannski sálfræði eða eitthvað tengt félagsgeiranum."
Aðalbjörg segist ekki hafa tekið þátt í iþróttum
undanfarin ár. _Ég var á fullu í fótboltanum, þegar
ég var lítil, eða þangað til ég varð 13 ára, en þá hætti
ég alveg eftir að ég meiddist (baki."
Ertu pólitísk?
„Ég segi það nú ekki, en ég velti samt pólitík fyir
mér og myndi aldrei kjósa nema að vel athuguðu
máli. Ég er svo sem ekkert að taka þátt f neinu
pólitísku starfi. En ég hlakka til að fá að kjósa þegar
þar að kemur."
Geturðu skilgreint hugtakið fegurð?
„Æ, æ,“ segir Aðalbjörg. „Nú verð ég að hugsa
mig aðeins um. Það er til tvenns konar fegurð að
mfnu áliti. Til dæmis er til fegurð fyrir augað, eins og
falleg manneskja, fallegt listaverk, eða landslag. Svo
er til betri fegurð sem kemur að innan. Maður hefur
lent í því eins og allir aðrir að kynnast einhveijum,
stelpu eða strák, sem eru sæt við fýrstu kynni. Sfðan
getur það komið upp að manni finnst viðkomandi
leiðinlegur, þá verður hann ekki eins fallegur og við
fyrstu sýn, þetta getur virkað á hinn veginn líka, að
maður kynnist einhvetjum sem er ekkert fýrir augað,
en svo er hún bara frábær manneskja og þá frikkar
hún fyrir manni. Þannig að fegurðin kemur að miklu
leyti að innan. Karakter og skoðanir finnst mér móta
fegurð einstaklinga mjög mikið. Fáfræði og fordómar
gera fólk ekki eins fallegt."
Ertu mjög meðvituð um jafrétti kynjanna?
„Já, já, en ég kynni mér það ekkert sérstaklega.
Mér finnst konur komnar ágætlega langt áfram og
finnst kominn tfmi til að þær hætti að líta alltaf á sig
sem konur. Þær eiga bara að líta á sig sem
manneskjur. Kannski eru launamálin það sem þær
þyrftu að huga betur að, því þær eru verr launaðar
en kariar fýrir sömu vinnu.“
Hvernig samfélag eru Vestmannaeyjar?
„Þær eru mjög spes. Vestmannaeyingar eru mjög
góðir og vilja ofboðslega vel, en þeir eiga það til að
horfa of mikið á það sem annað fólk er að gera og
því fylgir oft baknag, sem er alltaf mjög Ijótt. En hér
er fallegt og margt hægt að gera, já Vestmannaeyjar
eru ágætt samfélag, en það er líka ákveðin sérstaða.
Og ég held að ímynd þeirra á fastalandinu sé góð,
þar er litið á okkur sem svona hresst og skemmtilegt
fólk."
Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér?
„Ég ætla að læra eitthvað og eitthvað sem ég hef
gaman af að gera og stefni að því að ná mér (mann
og eignast fjölskyldu. En ég efast um að ég verði f
Eyjum, mig langar meira til að búa í útlöndum af þvf
að þar eru fleiri tækifæri.”
Að lokum smá uppstilling upp við vegg, hvernig
karakter telur þú sjálfa þig vera?
„Ég? Þetta er vond spurning. Ég er félagsvera og
þarf alltaf að hafa mikið fyrir stafni. Ég verð Ifka að
fá að vera ein með sjálfri mér. Ég er ákveðin og næ
yfirleitt mínu frarn."