Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Blaðsíða 16
16
Fréttir
Fimmtudagur 6. júlí 2000
Fyrir þann sem er strákur á
aldrinum átta til tíu ára og hefur
áhuga á að spila fótbolta hlýtur
þátttaka í SHELL-mótinu í
Vestmannaeyjum að vera
hápunkturinn. Góð skipulagning
mótsins er fyrir löngu þckkt,
aðstaða til að halda slík mót er góð
í Eyjum ásamt því að fjöldi fólks er
alltaf tilbúið að leggja á sig mikla
vinnu til að allt fari sem best fram.
Að þessu er hægt að ganga sem
vísu á hverju móti en þegar
veðurguðirnir leggjast á sveif með
mannfólkinu verður útkoman
frábær eins og sannaðist á
SHELL-mótinu 2000 sem lauk á
sunnudagskvöldið. Reyndar var
veður ekki sem skyldi á
miðvikudeginum, röskun varð á
flugi og fresta varð setningu fram á
flmmtudagskvöld. Sjálft mótið
hófst samkvæmt áætlun á
fimmtudagsmorgni enda komið
besta veður sem hélst fram á
sunnudagskvöld þegar
vcrðlaunaafliendingin fór fram í
Iþróttamiðstöðinni.
SHELL-mótið 2000 er hið 17.
frá upphafl og voru kcppendur
rúmlega 1100 frá 24 félögum. Auk
þess fylgdi liðunum a.m.k. annar
eins fjöldi þjálfara, fararstjóra og
foreldra þannig að í allt hafa hátt í
2500 manns verið í Eyjum í
tengslum við mótið. Foreldrar hafa
aldrei verið fleiri enda líta margir
á SHELL-mótið sem
fjölskylduskemmtun fyrst og
fremst þó að knattspyrnan sé það
sem dregur fólkið hingað.
Dagskráin var hefðbundin.
Mótssetningin hefst með
skrúðgöngu sem nær óslitið frá
Barnaskólanum inn á Týsvöll þar
sem mótið er sett. Þar voru mættir
kraftakarlar, Stjörnulið Ómars
Ragnarssonar sem mætti
fararstjórum enska liðsins
Elloughton sem voru meðal
gestaliða á móti. Ræður fluttu
bæjarstjóri, fulltrúi Shell og Þór
Vilhjálmsson, formaður ÍBV-
íþróttafélags setti mótið.
Auk knattspyrnunnar, bæði
utan- og innanbúss var farið í leiki
og þrautir, efnt var til kvöldvöku,
landslið og pressulið SHELL-
mótsins áttust við, keppendur fóru
í bátsferð og séð var til þess að
stóra fólkið skemmti sér líka. Var
þeim boðið upp á hið fræga
fararstjóraball auk siglingar með
PH-Viking.
Það var sama við hvern var
rætt, allir voru mjög ánægðir með
alla framkvæmd mótsins sem
rennur í gegn eins og smurð vél.
Keppendur gistu í öllum
skólunum, Framhaldsskólanum,
Barnaskólanum og Hamarsskóla.
Þar var þeim borinn
morgunverður og í Kiwanishúsinu
var ein máltíð á dag.
Eins og áður er getið hefur fjöldi
foreldra aldrei verið meiri og mátti
heyra á gestum að jarðskjálftarnir
hafi haft sitt að segja því fólk hafi
viljað vera til staðar ef jörðin tæki
STRAKARNIR sem léku fyrir hönd ÍBV á Shellmótinu ásamt Kára Þorleifssyni þjálfara. ÍBV komst ekki á verðlaunapall að þessu sinni.
að titra á ný. Jarðskjálftarnir urðu
líka til þess að tjaldstæðið í
Herjóllsdal var lokað og í staðinn
skaut upp tjaldbúðum vítt og
breitt um bæinn. Stærstar voru
þær við Iþróttamiðstöðina og
Þórsheimilið þar sem Þróttarar
voru með sameiginlegt eldhús og
veitingatjald.
Sunnudagurinn er eðlilega
stærsti dagur mótsins en þá fara
úrslitaleikirnir fram og þar er
úrslitaleikur A-liða hápunkturinn
því þar takast tvö bestu liðin á um
Shellmótsmeistaratitilinn.
Vfldngar stóðu uppi sem
sigurvegarar að þessu sinni eftir
sigur á Breiðabliki. Eins og alltaf
var úrslitaleikur A-liða stórkostleg
skemmtun þar sem drengirnir
sýna stórkostlega knattspyrnu og
agaða. Fyrir þá er þetta ekki síðra
en úrslitaleikur í Evrópukeppninni
eða jafnvel Heimsmeistarakeppni.
Um kvöldið standa þeir svo á palli
sem ótvíræðir sigurvegarar fyrir
framan mörg hundruð jafnaldra
sína og fullorðna þegar verðlaunin
eru afhent í á lokahátíðinni. Hvað
fer í gegnum huga þeirra er erfítt
að segja til um en örugglega eru
þeir að upplifa eina af stóru
stundunum í Iífinu og sama verður
hvað langt þeir ná í
knattspyrnuíþróttinni, að standa á
verðlaunapalli á Shellmóti í Eyjum
verður ein af stóru stundum á
ferlinum.
RANNVEIG og Sævar Ingi kunnu vel við sig á mótinu.
Tók Shellmótið fram yfir Kristnihótíð
Foreldrar á Shellmóti hafa aldrei
verið fleiri en í ár. Ríkir mikil
stemmning átjaldsvæðum
Fréttir hittu eina mömmuna sem
fylgdi drengnum sínum til Eyja.
Rannveig Gunnarsdóttir sat í blíð-
unni á sunnudaginn og var að fylgjast
með úrslitaleik B-liða á Hásteinsvelli.
„Ég kom strax á miðvikudeginum
þannig að ég er búin að fylgjast
nokkuð vel með mótinu. Strákurinn
minn, Sævar Ingi, er í ÍR og við erum
nokkuð ánægð með gengi þeirra, en
hann er í C-liði. Mótið er náttúrulega
alveg einstakt og öll skipulagsvinna er
í góðum höndum. Tímasetningar
standast nánast undantekningarlaust
og ég get ekki annað en verið mjög
sátt.“
Það hefur ekkert kitlað þig að fara á
Kristnihátíðina frekar en að koma á
Shellmótið?
„Nei, það var sko mjög auðvelt val
þar á milli. Það kom reyndar aldrei
annað til greina en að koma á
Shellmótið enda er strákurinn að
keppa."
Shellmótið 2000 fórfram í einmuna blíðu:
Foreldrar hafa
aldrei verið fleiri
Víkingur stóð uppi sem Shellmótsmeistari - Hlutur IBV heldur slakur