Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Blaðsíða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Blaðsíða 4
4 Fréttir Fimmtudagur 6. júlí 2000 Bókvltig,^ Langar að dreifa mykju Ég þakka Óskari vini mínum kærlega fyrir áskorunina. Það er alltof sjaldan að maður fær að láta ljós sitt skína og sérstaklega finnst mér vanta mikið í Fréttir eftir að ég hætti að dreifa mykju í orðsporinu. Ég vil nú byija á að móðga þjóðina á einu bretti með því að lýsa því yfir að íslending- ar eru engin bókaþjóð. Flestir sem í þessum þætti hafa neyðst til að láta uppi hvað þeir læsu, lesa ekki neitt. Lásu soldið í skóla en hættu því strax og þeir voru ekki lengur tilneyddir. Andrés önd og símaskráin sjálfsagt mest lesin og bóksölunni haldið uppi með bókum sem keyptar eru handa öðrum sem ekki heldur nenna að lesa. Enda ræða íslendingar ekki um bækur sín á milli. Þeir hafa hreinlega ekki skoðun. Þá er mun skárra að tala um fótbolta, þar eru flestir á heimavelli. Nema náttúmlega ÍBV í Evrópu- keppninni, en það er önnur saga. Annars er ég svosem ekki að lesa neinar fagurbókmenntir og þykist hvorki skárri né verri en þeir sem Iiggja í vídeóinu allar nætur. Mér finnst bókin bara svo mikið skemmti- legri miðill. Maður þarf til dæmis ekíd að lesa aðra bók en maður ætlaði af því að fjölskyldan vill aðra frekar. Ef maður sofnar út frá bókinni þarf maður ekki að spóla til baka. Ef maður tekur bók á bókasafni þarf maður ekki að skila henni daginn eftir. Og maður getur lesið áfram þó rafmagnið fari. Maður getur haldið áfram að lesa þó maður þurfi á klósettið, í Herjólf, í bað, í flugvél, á þjóðhátíð, upp í sumarbústað eða til útlanda. Svo þykir mér ekki verra að styðja við bakið á prentiðnaðinum eins og Guðmundur Eyjólfsson er bókaunnandi vikunnar kostur er, þó prentkostnaður sé innan við 20% af verði bókarinnar. Sumir íslenskir höfundar em góðir en montsögur fólks á miðjum aldri og allt niður fyrir þrítugt, þykja mér slæmar bókmenntir. Einstaka höfundar em í uppáhaldi og Einar Kárason finnst mér sérstaklega skemmtilegur höfundur og les bækur hans aftur og aftur. Einnig á Ólafur Haukur skemmtilega spretti í bókunum „Gauragangur" og „Enn meiri gauragangur." Erlendar skáldsögur em þó í uppáhaldi enda finnast úti í heimi þjóðir sem enn lesa bækur og þarafleiðandi menn sem leggja það á sig að skrifa bókmenntir sem hafa má gaman af. Sænsku glæpasögumar eftir Sjö- wall og Wahlöö em frábærar og þær les ég reglulega. Þær em svo þunglyndislegar að maður getur ekki annað en lifnað við við slíkan lestur. Stephen King hefur lengi verið í uppáhaldi og er sjálfsagt einhver albesti sögumaður sem ég hef komist í tæri við. Hann hefur einnig þann kost að vera ákaflega afkastamikill þannig að maður þarf ekki að bíða lengi eftir næstu bók. Bækur hans hafa sáralítið komið út á íslensku enda yfirleitt um og yftr 1000 blaðsíður með smáu letri og þéttum línubilum. Aftur á móti hafa íslensk forlög í metnaðarleysi sínu gefið út eina og eina smásögu og selt sem bækur. Þar em spássíumar þvílíkar og línubilin að maður gerir ekki annað en að fletta. John Grisham hef ég nýlega uppgötvað, en hann er amerískur lög- fræðingur sem skrifar stórskemmti- lega lögfræðisakamálareyfara. Amer- ískir höfundar virðast yfirleitt skrifa langar bækur sem mér finnst kostur. Þær er líka hægt að kaupa í fríhöfninni á innan við 1000 kall og yfirleitt endast þær mér út fríið. Það er líka kostur. Þá eru náttúmlega ótalin tímarit og dagblöð sem á vegi mínum verða en ég gafst fljótlega upp á að vera áskrifandi að dagblöðum eftir að ég flutti til Eyja. Það er nefnilega fátt eins gamalt og moggi sem kemur að kvöldlagi. Ég ætla nú að halda þessu innan Svarta Gengisins enn um sinn og skora á Eðvald Sigurðarson sem næsta bókaorm. Hann var ömgglega byrjaður að lesa löngu fyrir landnám því hann man eftir gosinu í Helgafelli. Hann hlýtur að lesa heilan helling. Hvað annað er hægt að gera þama um borð í þjóðveginum siglandi? Munum slá út Þingvelli I dag eru aðeins 28 dagar í þjóðhátið og ekki seinna vænna en fara að huga að þeim hlutum sem hafa þarfá hreinu fyrir þá gósentíð. Fyrirhyggjumenn eru þegar farnir að huga að tjaldi og súlum og rétt að minna hina á að hafa ekki allt á siðasta snúningi. Til að undirstrika það enn frekar er Eyjamaður vikunnar fram- kvæmdastjóriþjóðhátíðarnefndar. Fulltnafn? ÓlafurTýr Guðjónsson. Fæðingardagur og ár? 25. september 1963. Fæðingarstaður? Landsspítalinn í Reykjavík. Fjölskylduhagir? Kvæntur Jóhönnu Alfreðsdóttur og við eigum tvo syni, þá Bjart Tý og Ólaf Frey auk þess sem ég á dótturina Evu í Reykjavik. Menntun og starf? Kennari frá Khli og starfa sem slíkur við Framhaldsskólann í Vestm. Laun? Já. Bifreið? Mazda 323 skutbíll. Helsti galli? Ég er frekjuhundur. Helsti kostur? Ég held að ég sé nokkuð sanngjarn. Uppáhaidsmatur? Hamborgara- hryggur. Fýll er líka góður. Versti matur? Allt súrmeti. Uppáhaldsdrykkur? Léttmjólk. Rauðvín þegarþað á við. Uppáhaldstónlist? Oddgeirslögin eru í uppáhaldi. Hvað erþað skemmtilegasta sem þú gerir? Að veiða lunda og vera í góðum félagsskap í söngpartíi í hvitu tjöldunum á þjóðhátíð. Hvað erþað leiðinlegasta sem þú gerir? Að hlusta á ónefndan hafnar- stjóra lýsa eigin ágæti í bridge. Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happdrætti? Fara með Olafur Týr Guðjónsson er Eyjamaður vikunnar fjölskylduna í gott frí. Uppáhaldsstjórnmálamaður? Davíð er minn maður. Uppáhaldsíþróttamaður? Ég hefgaman afPrins- inum i boxinu og ÍBV liðinu á góðum degi. Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Veiði- félagi Suðureyjar, Akóges og Samkór Vestmannaeyja og svo að sjálfsögðu IBV. Uppáhaldssjónvarpsefni? íþróttir og spennu- myndir. Uppáhaldsbók? Bjartur í Sumarhúsum er minn maður. Hvað metur þú mest í fari annarra? Að fólk kunni að segja sína meiningu umbúðalaust og kunni að hlusta á meiningu annarra. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Hroki og heimskulegar sagnir í bridge. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Útsýnið úr Suðurey tekur öllu fram. En Herjólfsdalur er rómantískasti staðurinn. Hvernig gengur að undirbúa þjóðhátíð? í alla staði vel, allt á fljúgandi fart. Hvert verður aðaltrompið í ár? Óhætt er að segja að Stebbi Hilmars trekki mest að en eins og undanfarin ár þá verður það stemmningin í hústjöldunum sem lifirlengst. Verður eitthvað dregið úr flug- eldabombum vegna hættu á hruni? Nei, við færum flugelda- sýninguna út úr Dalnum og á þann hátt reynum við að minnka hættuna á hruni úr Blátindi. Viltu spá um aðsókn? Hún verður góð. Heildarfjöldi væntanlega meiri en á Kristnihátíð á Þingvöllum. Við munum telja hvern dag fyrir sig og leggja svo saman, eins og gert var þar!!! Eitthvað að lokum? Verum ó- hrædd og ánægð i Dalnum. NýJæddfc estmannaeyingar 9cf Þann 17. maí eignuðust Ásta Sigrún Gunnarsdóttir og Regin Jacobsen son. Hann vó 14 merkur og var 51 cm að lengd. Hann hefur fengið nafnið Andri Steinn Jacobsen. Ljósmóðir var Guðný Bjamadóttir. Þann 2,júní eignuðust Hildur J. Gísladóttir og Sigurpáll Scheving son. Hann vó 15 merkur og var 52 cm að lengd. Hann hefur verið skírður Egill Breki Scheving og er fæddur í Utrecht í Hollandi hvar fjölskydan er einnig búsett. Á döfinni 4* 06. júlí Colfævintýrið 6 fullu 07.- 09. júlí Volcano Open 2000, stórmót í golfi 08. júlí Hótíð í bæ. Skemmti- og menningardagskró í Skvísusundi og Bórustíg. Hefst kl. 15.30 og lýkur undir morgun. 09. júlí Safnadagurinn ó Byggðasafni Vestmanna eyja. Frítt ó Byggðasafnið og allir að mæta til að kynna sér stórmerkilega sögu Vest mannaeyja að fomu og nýju 10. -15 júlí Meistaramót Vestmannaeyja í golfi, unglingar og öldungar ó mónudag og þriðjudag, allir hinir miðvikudag til laugardags. 20. júlí Stódeikur IBV - lAí Landssímadeildinni. IBV sigur og ekkert annað 22. júlí Sumarstúlkukeppni í Eyjum haldin ó Höfðanum 30. júlí Konungur Noregs afhendir Davíð Oddssyni forsætisróðherra Stafkirkjuna, sem afhendir hana biskupi Islands Kadi Sigurbjömssyni til vígslu. Mikið fjör ó Skansinum 4. 5. og 6. ógúst Þjóðhótíð Vestmannaeyja. Ekki gleyma jbví.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.