Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Page 18

Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Page 18
18 Fróttir Fimmtudagur 6. júlí 2000 Að loknu Myndlistarvori íslandsbanka í Eyjum 2000: Myndlistarvorið og ímynd Vestmannaeyja Það er stundum sagt að myndlist sé bara fyrir fáa sérvitringa og að hún hugnist einungis letingjum, iðju- leysingjum og að myndlistarmenn hafi fátt annað að leiðarljósi en gera gys að saklausu fólki. Einn góður maður nefndi þetta við mig á dögunum í tengslum við Mynd- listarvor íslandsbanka í Eyjum sem nú hefur verið haldið tvisvar sinnum, í fyrravor og nú á nýliðnu vori. Mátti merkja nokkurn fegin- leika í sálu þcssa góða manns að því væri nú loksins lokið og skikkanlegir Eyjamenn gætu nú farið að snúa sér að merkilegri og að ekki sé sagt arðbærari verk- efnum fyrir bæjarfélagið. Fleiri en ein hlið á hveiju máli Vissulega má greina í þessum orðum hroka hins óupplýsta og kann honum að vera nokkur vorkunn, eins og búið er að sjónlistum í þessu annars ágæta landi sem við byggjum. Hann hefur því trúlega nokkuð til síns máls, en víst eru tvær hliðar á hverju máli ef ekki fleiri. Þegar ég benti honum á það játaði hann að vissulega þyrftu sérvitringamir líka að njóta sann- mælis, en þrátt fyrir það væri óþarfi að draga sæmilega vel gefið fólk inn í þann hóp. Vildi hann meina að Vest- mannaeyingar kærðu sig ekkert um sjónlistir, enda væri samfélag Eyjanna „íþróttasamfélag" og á því skyldi byggja ímynd Eyjanna út á við og þannig vildu Eyjamenn hafa það. Svo mörg voru þau orð og mér varð hugsað til ágætis texta við lag eftir Jimi Hendrix hvar segir: „Hei Jói! hvert ertu að vaða með byssuna þína.“ og leggi hver og einn sína merkingu í þann texta. Til móts við sérvitringana En ef tekið er mið af þeim mikla fjölda Eyjamanna sem komið hafa á sýningar Myndlistarvorsins þau tvö ár sem þau hafa verið haldin, þá held ég að full þörf hafi verið á því að koma til móts við þennan sérvitringahóp, sem hinn góði maður nefndi svo. Þegar farið var af stað með Vorið var lagt upp með að fá til Eyja myndlistar- menn ofan af fastalandinu. Eyjamenn eru nokkuð vel upplýstir um það sem innaneyjamyndlistarmenn hafa verið að fást við í sinni myndlist og þess vegna engan akur þar í að sá. Þó hafa tveir Eyjalistamenn tekið þátt í vorinu og stóðu vel fyrir sínu. Hinsvegarer því ekki að neita, eins og segir í fom- um bókum um þann sem ekki leitar út fyrir sitt nánasta umhverfi, að hann muni að lokum einangrast og verða kannski það viðundur sem við- mælandi minn sagði um mynd- listarmenn og þá sem telja það fyllingu í lífi sínu og sjálfsögð réttindi að njóta þeirrar listar sem listamenn þjóðarinnar eru að skapa í dag. Þannig var því einnig opnaður útsýnisgluggi fyrir myndlistarmenn í Eyjum og þeirra listunnenda í Eyjum sem segja að engin ástæða sé til þess að sækja listina upp á land, heldur sjálfsagt að listamenn þjóðarinnar sinni dreifðum byggðum landsins og komi með listina til Eyja. I annan stað var lögð áhersla á að listamennimir kæmu með ný verk, sem ekki hefðu verið á sýningum áður. Var þá miðað við að sýningamar myndu vekja meiri athygli og eiga greiðari aðgang að ljölmiðlum, ekki síður en heima- mönnum og að heimamenn yrðu ekki metnir sem einhvers konar „annars flokks“ listneytendur, sem óhætt væri að láta fá einhvem pakka sem „fyrsti flokkur" væri búinn að innbyrða á Stórreykjavíkursvæðinu, eins og oft er raunin þegar landsbyggðin er annars vegar. Á þann hátt var reynt að vega upp á móti minnimáttarkennd þeirra sem finnst þeir ekki metnir að verð- leikum og fólk með jafn sjálfsagðar þarfir og aðrir landsmenn. Ekki hægt að gera öllum til hæfis Að sjálfsögðu er með myndhst eins og margt annað í þessum heimi að ekki er hægt að gera öllum til hæfis að minnsta kosú ekki öllum sama daginn. Þar af leiðandi hafa ekki allir kunnað að meta þá listamenn og þau verk sem þeir hafa komið með til Eyja á Myndlistarvorið. Það tel ég hins vegar að sé af hinu góða, því að myndlist sem ekki vekur nein viðbrögð, hvort heldur góð eða slæm, er að margra mati vond myndlist og á ekkert erindi. Olík viðbrögð fólks benda því úl þess að ágæús breidd hafi verið í vali þeirra myndlistarmanna sem hingað hafa komið. Þó er rétt að geta þess að einmitt þess vegna hefur Vorið verið gagnrýnt íyrir að ekki hafi verið mörkuð ákveðnari stefiia um val listamanna. Eg hef svarað því til að í slíku kynningarstarfi sem er enn þá á bamsaldri verði að ríkja nokkuð skipuleg óreiða og má færa þau rök fyrir því að slík óreiða sé einmitt það ástand sem einkenni menningu þjóða nú á þúsaldarmótum. Hins vegar er málum einfaldlega þannig farið að það verður ekki deilt um smekk, enda er hann eins margur og mennimir em, jafnvel þó að smekkur geti líka verið mótaður af tískusveiflum hvetju sinni. Annað sem vakti fyrir mér var að gera Myndlistarvorið sýnilegt á landsvísu með því að vekja athygli á því í íjölmiðlum, þannig að þeir sem áhuga hafa og vilja fylgjast með því sem er að gerast á myndlistarvettvangi séu sæmilega upplýstir um slíka gjöminga á landinu. Einhvem veginn hef ég það á úlfinningunni að Vest- mannaeyjar eigi að geta orðið gósenland myndlistarmanna ekki síður en íþróttamanna svo vitnað sé úl vinar míns hér í upphafi máls. Enda er svo að mörg bæjarfélög víða um landið hafa gert sér grein fyrir þeim möguleikum sem felast í eflingu menningarlífs jafnvel með „aðkomu- athafnasemi". Á það jafnt við um tónlist og myndlist. Tónlisthefurekki átt erfitt uppdráttar í Eyjum, og má í því sambandi vísa til öflugs starfs Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Hins vegar verður því ekki móti mælt að myndhst hefur verið skammarlega illa sinnt í Eyjum og vísast þá aftur til þeirra orða sem höfð eru uppi hér í upphafi greinar. En það má hins vegar og í skoplegu og kvikindislegu samhengi til sanns vegar færa að lúðrasveitir og íþróttir eigi ágæta samleið. Þegar talað er um að koma gjömingi sem Myndlistarvorinu til kynningar í fjölmiðlum, hefur ekki alltaf verið á vísan að róa. Lesmiðlar eins og Morgunblaðið hafa sinnt Myndlistarvorinu mjög myndarlega - sem ég vil reyndar meina að sé skylda þeirra- af mikilli kostgæfni og áhuga, einnig Dagur og Fréttir hér í Eyjum. Útvarpið hefur einnig gert því nokkur skil og ber að þakka áhuga þessara ijölmiðla á slíku kynningarstarfi. Hitt er svo miklu meira umhugsunarefni að sjónvarpið hefur ekki séð ástæðu úl þess að greina frá Vorinu hvorki á þessu ári né í fyrra. Skyldi maður þó ætla að þar ætti helst að vera vettvangur slíkra kynninga og umfjöllunar, þar sem sjónvarpið er fyrst og fremst myndmiðill. Þrátt fyrir að leitað væri eftir slfku kynningar- og samstarfi við sjónvarpsmiðla, með góðum fyrirvara og fengin munnleg loforð þar um varð ekkert úr fram- kvæmdum af þeirra hálfu. Um ástæður þess skal ekkert fullyrt héma en óneitanlega hvarflar að manni að þar ráði sú skoðun að úti á landi sé ekkert markvert að ske í menn- ingarmálum sem erindi gæti átt við fleiri en bara heimamenn. Vísa ég slflcum þankagangi og skoðunum aftur til þeirra sem rækta með sér slíkan þanka með von um að þeir hinir sömu gefi jákvæðari og víðsýnni hugsunum pláss í hugskotum sínum. Tónlist sem krydd á myndlistina Á nýliðnu Myndlistarvori var ákveðið að gera tónlist nokkur skil jafnframt myndlistinni og kom til Eyja í tvígang tónlistarfólk af fastalandinu, sem flutti tónlist á tveimur opnunum, auk þess sem á einni opnun var flutt tónlist af geisladiskum eftir íslenskt tónskáld. Var þetta hugsað sem dálítið krydd á opnunum og alveg óháð myndlisúnni sem slíkri, en alveg örugglega ágæús tilbreyting í tónlistarflómna í Eyjum. Að lokum þetta: Eg tel að Mynd- listarvor Islandsbanka í Eyjum hafi vissulega náð úlgangi sínum í mörgu úlliti og ekki síður auðgað menn- ingarh'f Vestmannaeyja og ef svo er þá held ég að allir geti vel við unað, líka þeir sem telja myndlist ekki merkilegt þing. Allt um það er öllum þeim sem lagt hafa Myndlistarvorinu lið þakkað það afheilum hug. Börkur Grímsson bankastjóri Islandsbanka í Eyjum hefur stutt við bakið á vorinu af miklum myndarskap og þó að fleiri aðilar hafi að komið að með margs kyns velvilja þá er engum gleymt þó þeir séu ekki allir taldir upp hér. Þó er rétt að geta þess að auk Islandsbanka þá styrktu Myndlistarvorið í Eyjum 2000; Eyjaprent/Frétúr, Vestmanna- eyjabær, HSH-flutningar og Apótek Vestmannaeyja. Allt um slíkar upp- talningar þá ber fyrst og fremst að þakka þeim fjölda manna sem komið hafa á sýningar Myndlistarvorsins og hafa talið sig getað sótt þangað einhveija þá andlegu næringu sem nauðsynleg er hveijum manni, jafnvel Eyjamanni. Ef ekki væru listamenn að skapa list og fólkið að meðtaka hana til lofs eða lasts þá væri engin list. Með von um að framhald geti orðið á Myndlistarvorum í Eyjum og að með því megi ímynd Vestmanna- eyja eflast sem samfélag víðsýni. Benedikt Gestsson

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.