Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Blaðsíða 20

Fréttir - Eyjafréttir - 06.07.2000, Blaðsíða 20
Fréttir Wsr £?!Sgz&bbbS&P* i^H 'h _ ■ JLgf C é T . m w iT — L, j ' ’ i 1 .ívy»i -1Wr — ■'á w 3 wv <. gtfú LOKAHÓFIÐ var á Helgafellsvelli og tókst mjög vel. Fjörugt leikja- námskeið Fyrsta leikjanámskeiði ÍBV og Heklu lauk á föstudaginn með mikilli veislu. Leikjanámskeiðið stóð í fjórar vikur og voru um 110 krakkar skráðir á námskeiðið en að meðaltali mættu milli 85 og 90 krakkar. Leiðbeinendur voru leikmenn meistaraflokkanna, fólk með menntun í íþróttafræðum og nokkrir unglingar. A námskeiðinu var boðið upp á leiki, íþróttir, skoðunarferðir og sigÚngu með PH-Viking. Herlegheitunum lauk svo með grillveislu á föstudaginn og þá voru krakkarnir leystir út með gjöfum, húfu, bol og tösku. Nýtt námskeið hófst á mánudaginn. Gangbrautir hvað? Ein ágæt kona hafði samband við blaðið og hvaðst vildi varpa fram þeirri spurningu, hvort bílstjórar í Eyjum væru búnir að gleyma því til hvers gangbrautir væru. Sagði hún farir sínar ekki sléttar við gangbrautir í bænum og vildi beina þeim hvatningarorðum til ökumanna að virða rétt fótgangandi í umferðinni. Að sögn Tryggva Ólafssonar lög- reglufulltrúa eru réttindi gangandi vegfarenda tryggð í umferðarlögum. „í 5. - 6. mgr. 26. greinar umferðar- laga um sérstakar skyldur gagnvart gangandi vegfarendum er heimild til að sekta ökumann um 9000 krónur ef gangbrautarréttur er ekki virtur.“ Tryggvi sagði að lögreglan í Eyjum hefði ekki sektað ökumenn með vísan í þessa grein. „Það getur verið erfitt að meta hvort gangandi ætlar yfir gangbraut jafnvel þó að viðkomandi standi við hana. En gangandi vegfarandi sem telur að á þessum rétti sínum hafi verið brotið getur að sjálfsögðu lagt fram kæru, en slfk kæra yrði að vera studd vitnum.“ Tryggvi vildi samt sem áður taka undir hvatningarorð konunnar og biðja ökumenn að virða rétt gangandi hvort heldur við gangbrautir eða annars staðar í umferðinni. Ingibjörg Johnsen í Kvöldsiglingu Um þessar mundir er Utvarp Suðurlands þriggja ára. Þátturinn Kvöldsigling hefur verið fastur liður þar allt frá upphafí, fyrst sem tónlistarþáttur en síðar sem viðtalsþáttur við Sunnlendinga á öllum aldri. Fyrir skömmu var Vestmannaeyingurinn Jóhann Friðfinnsson í viðtali í þættinum og í kvöld kl. 22 ræðir Kjartan Bjömsson við Ingibjörgu Johnsen, blómakaupkonu. Fleiri viðtöl við Vestmannaeyinga em á döfínni í sumar og auk þess þáttur um kristnitökuhátíðina í Eyjum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.