Fréttir - Eyjafréttir - 13.07.2000, Síða 1
Á dögunum var yngstu börnunum af leikskólanum Rauðagerði boðið á hestbak í
Lyngfelli. Það var mikil eftirvænting hjá börnunum þegar þau komu á staðinn í þeirri
fádæma blíðu sem verið hefur undanfarna daga. En það er vissara að halda sig í
mátulegri fjarlægð frá hestunum, þegar verið er að gefa þeim brauð, eins og þessir
peyjar gera.
Kúluverksmiðjan
fer til Dalvíkur
Verksmiðjan Atlantic Island mun
væntanlega hætta framleiðslu sinni
í Vestmannaeyjum á næstunni og
verður að öllum líkindum flutt til
Dalvíkur. Sæplast hf. á Dalvík mun
setja hana upp að nýju nyrðra.
Verksmiðjan, sem framleiddi plast-
kúlur fyrir veiðarfæri, var keypt til
Eyja frá Færeyjum haustið 1998 og
starfsmannafjöldi var 2,5 stöðugildi.
Eigendumir, þeir Gísli H. Jónasson,
Hjörtur Hermannsson, Þórður Rafn
Sigurðsson og Olav Lava, segja
reksturinn ekki hafa gengið nógu vel.
Framleiðslan hafi raunar gengið að
óskum en salan ekki nógu vel enda
mikil samkeppni á markaðinum.
„Við hefðum þurft að selja meira,“
segir Gísli. Gísli segir að óhagstæð
gengisþróun, hækkun á erlendum
lánum og mikil hækkun á hráefnis-
verði hafi einnig haft mikil áhrif.
„Við vorum að selja um 60% af
framleiðslunni erlendis þannig að
gengisþróunin var okkur ekki í hag,“
sagði Gísli.
Þessi flutningur fyrirtækisins var
ákveðinn fyrir nokkmm vikum en
formlega var gengið frá honum í gær.
Eigendur Atlantic Island verða
hluthafar í Sæplasti hf.
GÍSLI og Hjörtur voru meða eigenda Atlantic Island.
Nú er ákveðið að ísfélag og Vinnslustöð sameinast í sjávarútvegsrisa:
Eitt af f jórum stærstu
í annað sinn á tæpu ári er ákveðið
að ísfélag Vestmannaeyja hf. og
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum
hf. renni saman í eitt fyrirtæki
undir nafni Isfélagsins. I fyrra
skiptið sleit stjórn Vinnslu-
stöðvarinnar samrunaviðræðunum
á lokasprettinum og kom því frétt
sl. föstudag um samrunann eins og
þruma úr heiðskíru lofti bæði yflr
starfsfólk fyrirtækjanna og bæjar-
búa. Sameinað fyrirtæki mun velta
nálægt 5 milljörðum, ráða yfir 15
skipum, 20 þúsund tonna kvóta,
þremur bræðslum, tveim frysti-
húsum, aðstöðu fyrir saltfiskvinnslu
á tveimur stöðum og það sama
gildir um öfluga sfldar- og loðnu-
vinnslu. Nýtt Isfélag verður eitt af
fjórum stærstu sjávarútvegsfyrir-
tækjum landsins.
Forsendur eru talsvert ólíkar því sem
þær vom fyrir ári síðan þegar starfs-
hópur á vegum félaganna hóf við-
ræður um sammna Isfélags, Vinnslu-
stöðvar, Krossanes á Akureyri og
Óslands á Homafirði. Þá var vitað að
bæði Vinnslustöð og Isfélag vom að
tapa en staða Vinnslustöðvarinnar var
þó sýnu verri eins og seinna kom í
ljós. Það sem hefur breyst síðan er að
bæði fyrirtækin hafa styrkt reksturinn
þannig að ekki verður í fljótu bragði
séð hvað rekur þau saman nema að
vera skyldi óvissa í sfld og loðnu þar
sem bæði eiga mikilla hagsmuna að
gæta, ekki síst Isfélagið. Þá hafa bæði
félögin bætt við sig eignum því
Krossanes hefur sameinast Isfélaginu
og í vor sameinaðist Gandí ehf.
Vinnslustöðinni.
Þessar breytingar koma m.a. fram í
breyttum eignarhlutföllum í nýju
fyrirtæki. A síðasta ári hefði eignar-
hlutur Isfélagsarmsins orðið stærri en
nú em hlutföllin 45,5% á móti 54,5%
Vinnslustöðinni í hag.
Verði af samrunanum í þetta sinn,
sem verður nú að teljast nokkuð ör-
uggt, er ljóst að áhrifin verða umtals-
verð, bæði hjá starfsfólki og bæjar-
félaginu. Það er óhjákvæmilegt að
starfsfólki verður fækkað og mun það
einkum bitna á millistjómendum,
skrifstofufólki, hugsanlega iðnaðar-
Enska 2. deildarliðið Stoke kom til
íslands í gærkvöldi og er
væntanlegt til Eyja á laugardag.
Eins og flestum mun kunnugt er
Stoke að stærstum hluta í eigu
íslenskra fjárfesta og eru nokkrir
Eyjamenn í þeim hópi.
Knattspyrnustjórinn, Guðjón
mönnum og sjómönnum. Fyrir
Vestmannaeyjar þýðir þetta að
fólksfækkun mun halda áfram og um
leið minni tekjur fyrir bæjarsjóð. Um
leið hverfa þau jákvæðu áhrif sem
samkeppni milli fyrirtækjanna hefur
leitt af sér fyrir bæjarfélagið. Þá em
ótalin áhrif á þjónustu í bænum því þó
velta eins fyrirtækis verði svipuð og
Þórðarson, mætir til íslands með
sitt sterkasta lið og leikur liðið tvo
leiki hér á landi. Hér byrjar
Stokeliðið á því að fara í
hádegismat hjá Magnúsi
Kristinssyni útgerðarmanni og
stjómarformanni Stoke Holding.
Að mat loknum fara þeir í
forveranna verður samþjöppunin til
þess að þörf á aðkeyptri þjónustu mun
minnka. Kostimir eru að stærra
fyrirtæki býður upp á ný sóknarfæri
sem hugsanlega gætu þýtt fleiri störf
en móti kemur almenn þróun í veiðum
og vinnslu sem miðast við að færri
hendur þurfti til að skila aflanum að
landi og vinna hann.
skoðunarferð en kl. 16.30 hitta
leikmenn kollega sína í ÍBV í
Týsheimilinu. Er öllum heimilt að
kíkja við og heilsa upp á Guðjón
og hans menn sem stefna á að
koma liðinu í fremstu röð í enskri
knattspyrnu.
Stoke heimsækir Eyjar
■ 1 ■ > TM-ÖRYGGI
FYRIR
ÚRVGGI FJÖLSKYLDUNA
Sameinar öll trygg'‘ngamálin
- é öílum svidum1 sfp á emfaldan og
hagkvæman hatt
Bílaverkstæðið Bragginn s.f.
Réttingar og sprautun
Flötum 20 - Sími 481 1535
Sumaráætlun
Frá Eyjum Frá Þorlákshöfn
Alladaga kl. 08.15 kl. 12.00
Aukaferðir fimmtud., föstud. og sunnud.
kl. 15.30 kl. 19.00
{<$>}Herjólfur
Sími 481 2800 - Fax 481 2991