Fréttir - Eyjafréttir - 13.07.2000, Blaðsíða 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 13. júlí 2000
Látnir
Myndlistarsýning íVélasalnum:
lifa í verkum sínum
Síðastliðinn laugardag var haldinn
árlegur útivistar og menningardag-
ur Sparisjóðs Vestmannaeyja. Var
dagurinn haldinn í samvinnu við
Vestmannaeyjabæ og bar yfir-
skriftina Hátíð í bæ. Sparisjóðs-
dagurinn hefur fest sig í sessi
undanfarin ár með Eyjamönnum,
enda fjölbreytt dagskrá í boði. Að
þessu sinni var var opnuð mynd-
listarsýning á vegum Sparisjóðsins í
Vélasalnum (Gamla Áhaldahús-
inu), fyrrum Gallerí Áhaldahúsinu
þar sem sýnd eru málverk og
teikningar eftir tómstunda- og
atvinnumyndlistarmenn sem búið
hafa í Eyjum og eða flutt brott
þaðan.
Á sýningunni eru myndir eftir 30
listamenn og hefur vel helmingur
þeirra listamanna, að því er bestu
heimildir segja, aldrei sýnt myndir
sýnar opinberlega, en lagt var upp
með að sýna að minnsta kosti þrjár
myndir eftir hvern listamann, þó ekki
hafi það tekist í öllum tilfellum. Elsti
listamaðurinn, Baldvin Bjömsson,
sem á verk á sýningunni er fæddur
árið 1877 en sá yngsti Leifur Vil-
hjálmsson er fæddur 1946. Það er
skemmst frá því að segja að hug-
myndin er frábær og gott til þess að
vita að vilji sé til þess hjá málsmetandi
listunnendum og forkólfum menn-
ingarinnar hér í bæ að gera myndlist
Eyjamanna sýnilega með þessum
hætti. Það voru þeir heiðursmenn
Hermann Einarsson og Róbert Sig-
urmundsson sem sáu um sýningar-
stjórn, þó að þeim þætti í hógværð
siíkur titill helst til stór og töldu
handlang hæl'a betur. Einnig aðstoð-
aði Jói listó þá tvímenninga við
uppsetningu sýningarinnar
Sýningu með þessu yfirbragði mun
hafa átti að setja upp fyrir ári, en
vegna ótímabærs fráfalls Benedikts
Ragnarssonar fyrrum Sparisjóðsstjóra
var hætt við þá framkvæmd. Undir-
búningur hefur því verið rúmur hjá
aðstandendum sýningarinnar að gera
hana sem veglegasta að þessu sinni og
víst er að svo er, utan að sýningarskrá
vantaði þar sem gleggri upplýsingar
væri að hafa um hvaða ár myndirnar
voru gerðar, ef slfkt var fyrir hendi,
hverjir væru eigendur og heiti þeirra.
Allt um það ef miðað er við þann
fjölda karla og kvenna í Eyjum sem
lagt hafa stund á myndlist í frítíma
sínum, þá er Ijóst að þörfin hefur verið
fyrir hendi hjá þessum einstaklingum
að tjá umhverfi sitt og hugleiðingar
um samtímann í myndum og jafnvel
að tjá myndheim sem ekki tengist
ásýnd og yfirborði eyjanna sérstak-
lega. Erþaðvel. Ekki verður fjallað
hér um einstaka listamenn, en vert að
benda á hversu hlutur kvenna er
sterkur á þessari sýningu og hversu
mikil næmni þeirra er fyrir viðfangs-
efninu og framsetningu.
Það má kannski heita nokkuð ömggt
að áhugalistamennirnir í hópnum hafi
ekki ætlað sér að myndir þeirra yrðu
nokkurn tíma sýndar opinberlega og
er það algengt viðhorf slíkra lista-
manna. En víst um það eru myndir
þessara listamanna arfur sem engin
ástæða er til að falli í gleymsku,
heldur sjálfsagt að hafa uppivið, sinna
með frekari rannsóknavinnu og sýna
fullan sóma í hvívetna. Vonandi er
þessi sýning upphaf slíkrar viðleitni
og að almennri rækt Eyjamanna við
myndlistarlega fortíð sína og ekki
síður að gera Eyjamönnum Ijóst að
enn í dag em myndlistarmenn í
Eyjum, bæði áhugamenn og for-
framaðir í skólum sem full ástæða er
til að njóti sannmælis. Þó að fortíðin
sé ágæt í hillingunum, þá er engin
ástæða til að gleyma samtímanum.
Hlutur þeirra Íistamanna á þessari
sýningu sem lögðu listina fyrir sig og
gerðu að lifibrauði, er rýr og engan
veginn í samræmi við það framlag
sem þeir hafa lagt til íslenskrar
myndíistarsögu. Þess vegna er
kannski rétt að spyrja hvort þeim sé
ekki ofaukið á þessari sýningu og að
betur hefði farið á því að sleppa þeim
og viðra betur við annað tækifæri?
Þeirri spumingu verður þó ekki svarað
hér, heldur rétt að hvetja vini
menningarinnar í Eyjum til þess að
halda áfram að efla veg mynd-
listarinnar með þeirri andgift sem
þeim er tiltæk. Rétt er og að ítreka að
myndlist er ekki bara tyllidaga-
fyrirbæri heldur á að vera síkvik
lifandi og sýnileg alla daga, þá fyrst
skilar hún þeirri vímu sem hverjum
manni er holl. Sýningin er opin um
helgarfrákl 14.00 til I8.00ogvirka
daga frá kl 16.00 til 18.30 og gert ráð
fyrir að hún verði opin til næstu
mánaðamóta. Mjög góð mæting var á
sýninguna um helgina og láti nú
enginn sitt eftir liggja og mæti á
sýninguna þá daga sem húri á eftir að
verauppi. Það er ekki á hverjum degi
sem slíka veislu augans getur að líta í
Eyjum. Hér á síðunni má sjá myndir
frá opnun sýningarinnar.
Benedikt Gestsson
• •
Ornefni í Eyjum
Á útivistardegi Sparisjóðs Vestmannaeyja hélt Olafur Týr Guðjónsson erindi í sal
Tónlistarskólans um örnefni í Eyjum. Ólafur Týr hefur haldið námskeið um örnefni
í Eyjum, sem hafa verið mjög vel sótt, þar sem meðal annars hefur verið farið í
vettvangsferðir og athyglisverðir staðir kynngimagnaðra örnefna verið skoðaðir.
Erindi Ólafs Týs var mjög athyglivert og gott til þess að vita að svo lifandi áhugi skuli
vera uppi að kynna Eyjamönnum tilurð og sögu örnefna í Eyjum. Benti Ólafur á
margt lifandi dæmið um hvernig örnefni geta verið lykill að sögu og lífsháttum fyrr á
öldum og hverju hlutverki þau gegna enn í dag, því vissulega yrðu alltaf til ný heiti á
náttúrufyrirbærum. Þetta ætti ekki síst við í Eyjum þar sem nýtt land hefði verið í
mótun frá því í gosinu 1973 og nefndi hann Urðirnar og Urðavita sem dæmi um það.
Erindi Ólafs Týs var ágætlega sótt og góður rómur að ger.