Fréttir - Eyjafréttir - 13.07.2000, Blaðsíða 10
Uppsetning: Jón Helgi - Texti: Benedikt Gestsson - Myndir: Guðmundur Ásmundsson/Fréttir
Anita Ársælsdóttir
íris Dögg Konráðsdóttir
Anita Ársælsdóttir er fædd 25. ágúst 1981 í Svíþjóð.
Foreldrar hennar eru Sigrún Óskarsdóttir
verslunarmaður og Ársæll Svelnsson, bygginga-
meistarí og fyrrum fótboltakappi. Hún á eina systur,
Karen sem er 25 ára og býr í Baltimore í
Bandarikjunum. Þrátt fyrir að vera fædd í Svíþjóð
segir Anita sig Vestmannaeying, enda bjó hún ekki
nema þrjá mánuði með Svíum. Anita er í
Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum og útskrifast
af náttúrufræðibraut um jólin. Helstu áhugamál
hennar eru allar fþróttir, ferðalög og ýmlss konar
handiðn. Hún hefur alltaf unnið á sumrin i
skóbúðinni þegar á þurfti að halda, hjá afa og
ömmu, Axel Ó og Döddu skó, en í sumar er hún
að vinna hjá Ólafi Tryggvasyni málarameista. Anita
á kærasta, Sigurð Odd Friðriksson trésmíðanema.
Heldurðu að þessi þriggja mánaða vera (Sviþjóð hafi
sett eitthvert mark á tilveru þína á síðari árum?
„Alls ekki. Hins vegar fylgist ég alltaf vel með Svíum
þegar þeireru að keppa (einhverju á alþjóðavettvangi
og held með þeim, nema þeir séu að keppa við
íslendinga að sjálfsögðu. Égtel migekki Svía, heldur
Vestmannaeying í húð og hár."
Anita segir að hún hafi aldrei tekið þátt í keppnum
sem þessum áður og hafi reyndar aldrei haft áhuga
á slíku, en hvað kom þá til að þú ákvaðst að taka þátt
í Sumarstúlkukeppninni núna?
„Reyndar var ég í prófum þegar Dagmar hringdi (
mig og svaraði því ekki strax, en mig langaði að prófa
eitthvað nýtt."
Anita verður stúdent um jólin og segist hafa áhuga
á að fara i nám (sjúkraþjálfun að loknu stúdentsprófi.
„Ég hef haft mikinn áhuga á sjúkraþjálfun. Þetta er
háskólanám sem krefst mikils. Ég verð þvi að fara til
Reykjavíkur ef sá draumur á að rætast. Ég viðurkenni
að ég er með dálitinn hnút f maganum að þurfa að
fara frá Eyjum, því ég er mjög heimakær og kannski
allt of heimakær. Reyndar þarf kærastinn að klára sitt
nám í Reykjavik líka, þannig að við getum slegið Wær
flugur í einu höggi, ef allt gengur eftir og guð lofar."
Þú nefndir áðan að þú fylgdist með (þróttum, en
hefur þú eitthvað tekið þátt i (þróttum?
„Ég byrjaði í handbolta þegar ég var fimm ára en
hætti í fyrra. Ég missti áhugan og langaði aðeins að
hvíla mig á þessu. Handboltinn grípur mig alltaf annað
slagið, svona í huganum að minnsta kosti. Hver veit
nema ég byrji aftur. Einu sinni var ég Kka í fótbota,
eins ótmlegt og það nú er, þá bannaði pabbi mér að
vera í fótbolta. Hann sagði fótbolta ekki vera kvenlega
(þrótt. Áhuginn var ekki það mikill að ég hlustaði á
hann og ég sé ekkert eftir því.
Ertu pólitfsk?
„Ég get nú ekki sagt það, en ég fylgist nokkuð með
samt, þó ég hafi aldrei tekið þátt í pólitísku starfi.
Kannski er ég ekki orðin nógu gömul til þess að vera
mjög pólitfsk, en ég hugsa að ég eigi eftir að gefa
pólitik meiri gaum, þegar kemur að kosningum. En
ég held að enginn flokkur eigi eftir að geta sagst eiga
mig."
Hvað er fegurð fyrir þér?
„Fegurð fyrir mér? Ég fer eftir innri fegurð og hef
alltaf gert það. Fólk fríkkar yfirleitt við nánari kynni,
eða öfugt að mínu mati. Ég tek karakter fram yfir ytri
fegurð."
Anita segist ekki hafa pælt mikið íjafnréttismálum.
„Það fer í taugarnar á mér, þegar þessar kven-
réttindakerlingar em að röfla um allt og ekkert. Ég
viðurkenni að það var óréttlæti áður fyrr, en ég held
að þetta sé ágætt eins og það er í dag."
Nú ertu að vinna hefðbundið karlastarf í sumar,
geturðu séð jafnöldm þína i anda vinna við slíkt fyrir
20 ámm? „Nei ekki sé ég það í fljótu bragði, svo það
hefur eitthvað miðað.
Hins vegar hef ég alltaf verið töluverð strákastelpa í
mér og vældi reyndar lengi í pabba að fá vinnu hjá
honum, en skóbúðin varð hlutskipti mitt, þangað til
nú. Ég er mjög ánægð að vera að mála hjá Olla
Tryggva." Af því að þú ert að mála, ertu alltaf sátt við
þann lit sem þú berð á flötinn? „Nei, það er ég ekki."
Hvernig karakter ertu, svo ég spyrji þig hræðilegrar
spurningar? „Ég held að ég sé trú sannfæringu minni
og er kannski haldin fullkomnunaráráttu, sem er bæði
kostur og galli, trúlega meiri galli held ég. Ég er hin
fullkomna meyja."
íris Dögg Konráðsdóttir er fædd í Vestmannaeyjum
6. júlí 1981. Foreldrar hennar eru Margrét
Sveinsdóttir og Konráð Halldórsson, fósturfaðir
hennar er Guðmundur Guðmundsson sjómaður.
Hún á tvö systkini, Láru Dögg 20 ára og Arnar
Svein 4 ára. íris Dögg segist ekki eiga neinn kærasta
og segist vera fullkomlega sátt við það.
„Maður er það ungur og kemur sér bara í vesen að
standa í sliku." Hún er að vinna á Tanganum í sumar.
íris Dögg hefur lokið grunnskólanum og
Húsmæðraskólanum í Reykjavík og þegar hún er
spurð að því hvort það sé ekki óvenjulegt að stelpur
fari í húsmæðraskóla, segir hún að svo sé ekki. „Ég
veit ekki hvað mig langar til að læra svo að þess vegna
fór ég bara í húsmæðraskóla. Þetta er bara
grundvallaratriði og rétt að taka þau fyrst. Ég hugsa
alltaf öðru hvoru um að fara í framhaldsnám, en ég
nenni ekki að fara í skóla á meðan ég veit ekki hvað
ég vil læra. Ég væri til dæmis til í að læra Ijósmyndun,
en er ekki viss." Helstu áhugamál írisar Daggar eru
að ferðast, sjá nýja staði og liggja uppi i sófa, renna
mér á línuskautum, hjóla, klifra og dansa." Af hverju
tekur þú þátt í Sumarstúlkukeppninni? „Dagmar hafði
samband við mig og bað mig um að vera með. Af
hverju hún bað mig um að vera með frekar en
einhvern annan veit ég hins vegar ekki. Hins vegar
finnst mér það hrós fyrir mig að bjóða mér að vera
með."
Hefurðu eitthvað stundað (þróttir?
„Ég hef æft frjálsar, en ég reyni að hreyfa mig sem
allra minnst. Ég er frekar löt. Ef ég fæ að liggja ein í
rúminu mínu þá er ég sátt, eða upp í sófa og horfa
á vídeó, með popp ogkók."
Hefurðu einhvem áhuga á pólitík?
„Voðalega lítinn. Og mig langar ekki til að deila
pólitískum skoðunum mínum með lesendum Frétta
og ekki orð um það meir."
Hvað er fegurð fyrir þér?
„Það er það sem þér líkar við í hverri og einni
persónu."
Ertu rauðsokka?
„Nei, það má bara hver og einn deila um sín mál.
Ég er alveg sátt við að vera sú sem ég er, án þess að
standa í þrætum um það í hvaða stétt eða stöðu ég
á að vera. En ég stend á mínu þegar ég þarf þess."
Þú sagðir að þú hefðir áhuga á að ferðast, hefurðu
gert mikið af þvi?
„Já ég hef farið til New York, Kaliforníu, Spánar,
Kanaríeyja og var að vinna í Portúgal. Einnig hef ég
komið á Kópasker, en ég fór þangað með vinkonu
minni í fyrrahaust til þess að vinna í sláturhúsi. Það
var alveg stórkostlegt og Kópasker er frábær staður,
en ég fór þangað vegna þess að Kópasker er einna
lengst frá Vestmannaeyjum hérna innanlands.
Annars finnst mér gott að vera þar sem ég er hverju
sinni."
Hvernig em Vestmannaeyjar í samanburði við
Kópasker, eða New York?
„Mér finnst Vestmannaeyjar æðislegur staður. Fólk
er kannski dálítið hart og fordómar í því og dálítið
slúður í gangi. Vestmannaeyingar em líka sér
þjóðflokkur út af fyrir sig. Það em engir eins og
Vestmannaeyingar.
Hvemig heldurðu að Vestmannaeyingar myndu taka
sig út ef þeir yrðu fluttir á einu bretti til New York til
þess að eiga heima þar í einni götu?
„Ég held að það væri alveg eins hægt að láta sprengju
falla þar."
íris Dögg segist vera bjartsýn á framtíð
Vestmannaeyja. „Ég held að það eigi alltaf eftir að
vera líf og §ör í Eyjum. Sumir fara og aðrir koma, eins
og gengur."
Hvernig pesrónuleiki ertu?
„Ég er opin og hreinskilin, annars held ég að betra
sé að aðrir dæmi um kosti mína og galla."