Fréttir - Eyjafréttir - 13.07.2000, Qupperneq 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 13. júlí 2000
Styrkveitingar hjá
félagsmálaráði
Félagsmálaráð hefur samþykkt að
styrkja útgáfu Lögreglufélags Vest-
mannaeyja á vímuvamablaði þjóð-
hátíðar. Blaðið nefnist Hin hliðin
og nemur styrkurinn 56 þúsund kr.
Þá hefur einnig verið ákveðið að
veita þeim Heru Einarsdóttur og
Jóni Péturssyni styrk til að sækja
ráðstefnu á sviði bamavemdar sem
fram fer í Finnlandi 23.-26. ágúst.
Nemur styrkupphæðin 45 þúsund
kr. tii hvors þeirra.
Laxeldi í Klettsvík?
A fundi hafnarstjómar, sem haldinn
var á miðvikudag í síðustu viku, var
Guðjón Hjörleifsson kjörinn for-
maður hafnarstjómar. A fundinum
kom fram að fyrirtækið íslandslax
hefur sýnt áhuga á því að fá aðstöðu
lil laxeldis í Klettsvík. Þessu erindi
var fagnað í hafnarstjóm og hafnar-
stjóra falið að kanna það nánar og
ræða við fulltrúa íslandslax og
Ocean Futures (Keikómenn) um
málið.
Vill upplýsingar
Á síðasta fundi bæjarráðs bar Þor-
gerður Jóhannsdóttir fram
svohljóðandi fyrirspum: „Ég óska
eftir skriflegum upplýsingum um
stöðu skulda og alhorgana vegna
þeirra. Jafnframt óska ég eftir að fá
áætlanir um tekjur bæjarsjóðs næstu
fmim ár og hvernig þær muni
skiptast milli reksturs og fram-
kvæmda."
Fjórar milljónir í
sprengingar
Nauðsynlegt er talið að dýpka
innsiglinguna við Hringskersgarð.
Þar þatf töluvert að sprengja og er
áætlaður kostnaður vegna þess um
4 milljónir króna.
Rólegheit
1 sl. viku var alls 161 færsla í
dagbók lögregiu sem er nokkru
minna en í vikunni á undan.
Lögregla segir rólegt yfir vötnunum
um þessar mundir og lítið um
alvarleg mál. Þrátt fyrir að tjöldi
fólks hafi verið að skemmta sér um
helgina í Skvísusundi hafi alit farið
hið besta fram. Þá var og minna um
umferðarlagabrot en alla jafna, sjö
kærðir fyrir slíkt, svo sem akstur
gegn einstefnu, hraðakstur o.fl.
Innbrot hjá ÍBV
Helgina um síðustu mánaðamót var
brotist inn í aðstöðu IBV-
útvarpsins. Var m.a. stolið þremur
headfónum og minidiskaspilara.
Ekki er vitað hverjir þarna voru að
verki og óskar lögregla upplýsinga.
Skemmdarverk o.fl.
Þrjú eignaspjöli voru tilkynnt
lögreglu um hclgina. Skemmdir
urðu á þakkkassa á versluninni
Eyjafoto þegar flaggstöng féll á
hann. Rúður voru brotnar í
Hamarsskóla. Voru tveir aðilar
handteknir vegna þess og
viðurkenndu þeir að hafa verið að
verki. Þá var kassi utan um
gestabók í Gaujulundi skemmdur,
svo og peningabaukur, eins og sagt
er frá hér lil hliðar, og ekki vitað
hver eða hverjir þar voru að verki.
Sparisjóðurinn veitir hvatningarverðlaun:
Veitt fyrir tillögu að
markaðsöflun
Á myndlistarsýningunni sem opnuð
var í tilefni af útivistardegi Spari-
sjóðsins síðastliðinn laugardag voru
Runóifi Gíslasyni og Margo Renner
veitt hvatningarverðlaun Sparisjóðs
Vestmannaeyja fyrir tillögu að
viðskiptaáætlun. Nýsköpunarsjóð-
ur, Viðskiptaháskólinn í Reykjavík,
Morgunblaðið og KPNG Endur-
skoðun og reikningsskil stóðu fyrir
samkeppni um gerð viðskipta-
áætlana undir heitinu Nýsköpun
2000.
Stjóm Sparisjóðs Vestmannaeyja
ákvað að veita þeim aðila frá Vest-
mannaeyjum viðurkenningu sem tæki
þátt í verkefninu, en ákvörðunin um
viðurkenningu var tekin til að hvetja
til sem mestrar þátttöku í verkefninu í
Vestmannaeyjum. Þótti áætlun þeirra
Margo og Runólfs best og vom þau
mjög nærri verðlaunasæti í keppninni.
Aðspurður sagði Runólfur að
áætlunin hafi gengið út á að framleiða,
markaðssetja og dreifa þeim vörum
sem unnin em hjá Merkikerti. „Lykil-
útgangspunktur áætlunarinnar byggir
á þeirri reynslu sem ég hef frá þeim
vinnustað sem ég vann á áður en ég
stofnaði Merkikerti, auk almennrar
reynslu í verslunarrekstri,“ sagði
Runólfur.
RUNÓLFUR og Margo Renner taka við hvatningarverðlaunum Sparisjóðs Vestmannaeyja úr hendi
Ólafs sparisjóðsst jóra.
Síðastliðið sunnudagskvöld eða á mánudagsmorgun var unnið skemmdarverk í Gaujulundi þegar púlt
með gestabók og peningabauk fyrir frjáls framlög gesta var mölvað til ónýtis. Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem rumpulýður lætur til sín taka í þessari gróðurvin austur í Nýjahrauni, sem þau EIli og Gauja hafa
ræktað upp frá því 1988. Sögðu þau skemmdarverkið bæði sorglegt og um leið ótrúlegt hversu óvandað
fólk legðist lágt til að svala sínum lægstu hvötum. „Það er ekki eins og þarna sé uni stórar fjárhæðir að
ræða, sem gestir lundarins af góðvilja setja í baukinn til styrktar lundinum. En það er allt sem bendir til
að þarna sé um fádæma auðgunarbrot að ræða. Mann setur eiginlega hljóðan yfir hversu bágt slíkt fólk
hlýtur að eiga sem leggur svona athæfi fyrir sig.“
Málið hefur verið kært til lögreglu og rannsakar hún málið.
Hundar vilja vera til
vandræða
Lögregla vill minna hundaeigendur
á að gæta hunda sinna en
samkvæmt reglum er lausaganga
hunda bönnuð og bannað er að vera
með hunda á samkomum. Allt of
mikið er um að hundar gangi lausir
í bænum, bæjarbúum til ómældrar
mæðu. Að undanfömu hafa þeir
t.a.m. hrellt gollleikara í miðju móti
eins og getið er um annars staðar í
blaðinu. Þá var á þriðjudagskvöld
tilkynnt um tvö atvik þar sem
hundar réðust á böm að leik og
glefsuðu í þau. Sem betur fer urðu
þar ekki slys en eigendur hunda
ættu að athuga að þeir bera ábyrgð á
hundurn sínum og nær sú ábyrgð til
refsi- og bótaábyrgðar.
eyjafrettir.is
á næstu
grösum
FRETTIR
Utgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.