Fréttir - Eyjafréttir - 13.07.2000, Page 13
Fimmtudagur 13. júlí 2000
Fréttir
13
Friðrik Ásmundsson skrifar:
Enn um 30 rúmlesta
skipstjórnarnám
Hamfarir
Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður hér
í Eyjum, skrifar í upphafi greinar í
síðasta tölublaði Frétta, að undirritaður
hafi farið, „hamförum miklum," í
blaðinu þar á undan. Þar er um að
ræða stutt viðtal, sem Fréttir áttu við
mig um 30 rúmlesta skipstjómar-
námið. Allt má nú kalla miklar
hamfarir. Það er ekki æðruleysinu
íyrir að fara hjá manninum, sem er
formaður Almannavama Vestmanna-
eyja. Það verður nóg að gera þar á bæ
ef Ktið blaðaviðtal er miklar hamfarir.
Námskeið tekin gild
Sýslumaður skrifar að námskeið á
vegum Smábátaskóla Vestmannaeyja
og annara einstaklinga hafi ávallt verið
tekin gild, að uppfylltum venjulegum
skilyrðum, bæði hér í Vestmanna-
eyjum og hjá öðmm embættum sem
hann hafi aflað sér upplýsinga hjá.
Mergurinn málsins er að Smábáta-
skóli Vestmannaeyja og aðrir aðilar,
sumir hverjir að minnsta kosti, hafa
alls ekki fullnægt kröfum námskrár
um 30 rúmlesta skipstjómamám. Það
veit Karl Gauti. Hann sat námskeið í
Smábátaskólanum og lauk þar námi,
að eigin sögn, eftir 18 klukkustunda
kennslu, þar sem eiga að vera 93
klukkustundir sem em 140 kennslu-
stundir fyrir utan 28 kennslustundir í
Slysavamaskóla sjómanna. Hann sat í
2 tíma í siglingareglum, þar sem eiga
að vera 19 tímar, engan í tækja-
kennslu, þar sem eiga að vera 28
kennslustundir, engan í vélfræði, þar
sem eiga að vera 9 kennslustundir og
engan í veðurfræði, þar sem eiga að
vera 9 kennslustundir. Hann veit af
eigin reynslu hvemig námskráin er
þverbrotin við Smábátaskólann, því
undirritaður færði honum hana fyrir
nokkm, að hans beiðni. Hann er
ekkert betur settur þótt önnur embætti
veiti atvinnuskífteini fýrir svona fúsk.
Mikið væri gaman ef sýslumaðurinn
okkar sýndi þarna gott fordæmi og
tæki á þessu ófremdarástandi.
Það er alltof algengt að lögin og
námskráin um atvinnuréttindi til skip-
stjómar á 30 rúmlesta skipum og
minni er brotin. Gagnvart öðmm
starfsstéttum em lög og námsskrár
ekki sniðgengin í slíkum mæli.
Skipstjómin virðist ekki hátt skrifuð
hjá þessum embættiskörlum. Að auki
er talið sjálfsagt að hundruð manna
séu á undanþágum til sjóstarfa,
skipstjómar og vélstjómar, sem hvergi
annars staðar liðist. Það sýnir andann í
þessum málum.
Bréf
samgönguráðuneytisins
Hinn 9. júní skrifaði samgöngu-
ráðuneytið bréf til sýslumanna og
tollstjórans í Reykjavík. Þessir aðilar
gefa út atvinnuskírteini að loknu
skipstjómamámi.
Þar er athygli vakin á að ráðu-
neytinu hafi verið bent á að ýmsir
aðilar hafi ekki fylgt námskrá við
kennslu 30 rúmlesta skipstjómamáms.
Minnt er á atvinnuréttarlögin í þessu
sambandi.
Þar segir. „Til þess að öðlast réttindi
sem skipstjóri í innanlandssiglingum á
skipi sem er 30 rl. eða minni þarf
viðkomandi að hafa lokið prófum í
sjómanna- og skipstjómarfræðum ffá
viðurkenndum skóla í samræmi við
reglugerð sem menntamálaráðuneytið
setur um nám í þessum fræðum."
Einnig segir í bréfinu: Ráðuneytið
vill leggja áherslu á að 30 rl.
atvinnuskírteini verði ekki gefin út
nema sannreynt hafi verið að nám
umsækjenda sé í fullu samræmi við
gildandi námskrá framhaldsskóla frá
apríl 1999 til þessara atvinnuréttinda.
Okkar maður var fljótur að svara
þessu. í Veri Morgunblaðsins 21. júní
segir hann að nám í Smábátaskóla
Vestmannaeyja hafi verið athugað
samkvæmt tilmælum samgönguráðu-
neytisins og niðurstaðan sú að námið
gildi til útgáfu atvinnuskírteina til 30
rúmlesta skipstjómarréttinda.
Mikið er maðurinn trúgjam. Hann sat
sjálfur námskeið, sem var einungis 1/5
af tilskildum námstíma, þar sem
mikilvægum námsgreinum var alveg
sleppt. Svo kemur Georg Stanley til
hans og segir að námskránni sé fylgt
nákvæmlega. Hann trúir honum betur
en eigin reynslu, og kemur skila-
boðunum frá Stanley til ráðuneytisins.
Að lokum
Karl Gauti segir að menntamála-
ráðuneytið hafi ekki farið að tilmælum
okkar Guðjóns Armanns skóla-
meistara að ákveðnum skólum verði
veittur einkaréttur til kennslu þessara
réttinda eða að breyta lögum á þann
hátt að samkeppni um nemendur til 30
rl. náms verði útrýmt. Hvers lags bull
er þetta? Við Guðjón Ármann höfum
aldrei farið fram á að lögunum um
atvinnuréttindi skipstjómarmanna
verði breytt. Þau eru skýr og góð. Við
höfum farið fram á að þeim og
námskránni sé fylgt. Það eiga
skráningarstjóramir (sýslumennimir)
að sjá um.
Sýslumaðurinn segir það misskilning
hjá mér að það sé í hans verkahring að
endurskoða tilskipanir ráðuneytisins.
Það finnst hvergi í viðtalinu við mig
neitt um þetta. Og hvað varðar að
útrýma samkeppni um nemendur, þá
er hún þannig að fúskarar úti í bæ, hér
og þar um landið em að fást við þessa
kennslu eins og Karl Gauti varð vitni
að í Smábátaskólanum. Því miður
álpaðist hann og fleiri til slíkra manna
til þess að losna við eðlilegar náms-
kröfur. Það er ekki karlmannlegt.
Framhaldsskólinn hér fylgir nám-
skrá 30 rl. skipstjómamámsins með 8
vikna kvöldnámskeiðum, meðan
Stanley lýkur þessu af á 6
kvöldstundum, vegna þess að hann
kennir eftir eigin geðþótta en ekki eftir
námsskrá. Það virðist vera samkeppni,
sem er sýsla að skapi.
Friðrik Asnumdsson
Fornbíla-
klúbbur
r
Islands
kemur í
heimsókn
til Eyja
Fornbflaklúbbur Islands er á
leið til Eyja og er væntanlegur
til Eyja með Herjólfi á
Laugardag. Þarna eru á
ferðinni um 20 bflar og allir
hver öðrum glæsilegri.
Fljótlega eftir komuna til
Eyja munu ökumenn og
eigendur bflanna fara í
ökuferð um bæinn og má eiga
von á flottum köggum
brunandi um götur
Heimaeyjar. A sunnudag
verða bflarnir svo til sýnis
fyrir neðan Náttúrugripasafn
Vestmannaeyja og hvetur
Guðmundur H. Guðjónsson,
tengiliður fornbflaklúbbsins í
Eyjum og meðlimur alla
Eyjamenn að líta á planið og
berja djásnin augum.
Átján jeppaeigendur, sem eiga jeppa frá Ingvari Helgasyni og Bflheimum, (Trooper, Patrol og Terrano
- menn), halda héðan úr Eyjum í öræfaferð á tjallabflum sínum nú um helgina. Farið verður austur fyrir
Mýrdalsjökul um Landmannalaugar í Nýjadal, Gæsavatnaleið, hina gömlu, í Kverkfjöll og Öskju, farið
að Dimmugljúfrum og Snæfelli og endað á Egilsstöðum. Gist verður í skálum en 55 manns eru í hópnum.
Kunnáttumaðurinn og kirkjuorganistinn Guðmundur Hafliði Guðjónsson skipulagði ferðina og tekur
hún eina viku. Myndin var tekin þegar verið var að fara yfir nauðsynlegan búnað og prófa talstöðvar.
HÚSEY
HÚSEY
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA
INNI EÐfl ÚTI
MlKIÐ ÚRVAL