Fréttir - Eyjafréttir - 13.07.2000, Side 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 13. júlí 2000
Aftur skal reynt að sameina
Mörgum spurn-
ingum ósvarað
-Óvissa hjá starfsfólki sem enn einu sinni á fyrir höndum uppstokkun í rekstri fyrirtækjanna
Á íöstudaginn var gefin út samciginlcg
fréttatilkynning frá ísfélagi Vestmannaeyja
hf. og Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum hf.
um að stærstu hluthafar félaganna hafi orðið
sammála um samruna félaganna undir nafni
þess fyrrnefnda.
Sagt var að stjómir félaganna muni fjalla um
málið á næstu dögum og að formlegri vinnu við
samrunann ljúki fyrir ágústlok en hann miðast
við 30. apríl sl. „Það er markmið þeirra sem
unnið hafa hafa að undirbúningi samruna fé-
laganna að byggja upp í Vestmannaeyjum öflugt
og hagkvæmt sjávarútvegsfyrirtæki til að nýta
þau tækifæri sem bjóðast í framtíðinni," segir í
fréttatilkynningunni.
Þar með verður til eitt af fjórnm stærstu sjávar-
útvegsfyrirtækjum landsins með um 20 þúsund
þorskígilda aflaheimildum. Skipastóllinn er 15
skip, fullkomin bolfisk-og saltfiskvinnsla, góð
aðstaða til sfldar- og loðnuvinnslu og fiskimjöls-
verksmiðjumar verða þrjár, tvær í Vest-
mannaeyjum og ein á Akureyri. Heildarvelta
nýs Isfélags verður nálægt 5 milljörðum.
Fáir komu að undirbúningi og ákvörðun um
samrunann að þessu sinni og hafa menn notið
þess að í raun vom Isfélagið og Vinnslustöðin
rekin sem eitt fyrirtæki sl. haust þannig að
upplýsingar um stöðu og rekstur vom aðilum
kunnar beggja vegna borðsins.
Fmmkvæðið að samrunaviðræðum Isfélags
pg Vinnslustöðvar á síðasta ári kom frá
Isfélaginu en þá var Vinnslustöðin í viðræðum
við Skagfírðinga um samstarf og jafnvel
samrnna. Þessar viðræður hófust fyrir réttu ári
en í lok ágúst 1999 var skrifað undir vilja-
yfirlýsingu um samruna félaganna tveggja auk
Krossaness og Oslands sem ekki er inni í
myndinni núna.
I hönd fór mikil vinna næstu vikur og var
höggvið á báða bóga, einkum þó í Vinnslu-
stöðinni en starfsfólk hennar virtist ætla að fara
illa út úr samrunanum. Fljótlega fóm að heyrast
raddir um að hik væri komið á Vinnslustöðina en
því var neitað af forráðamönnum beggja fyrir-
tækjanna. I lok október var gefíð út að tap
Vinnslustöðvarinnar hafi verið 850 milljónir á
rekstrarárinu 1998/1999. Það veikti stöðu
Vinnslustöðvarinnar í sammnaferlinu og um leið
ágerðist orðrómurinn um að hún ætlaði að slíta
viðræðunum. Það kom því í raun og vem ekki
svo mjög á óvart þegar stjóm VSV samþykkti á
fundi sínum mánudaginn 22. nóvember sl. að
slíta viðræðunum. Isfélagsmenn vom mjög
ósáttir við þessa niðurstöðu en urðu að sætta sig
við hana.
Allt sem gert hafði verið á sammnaferlinu
gekk til baka nema hvað ákveðið var að sfldar-
vinnsla, sem öll var komin í ísfélagið, yrði þar út
vertíðina. Það sem gerist í framhaldinu er að eftir
mikinn niðurskurð í rekstri, þar sem starfsfólki
var fækkað stórlega, aukin áhersla lögð á
saltfiskvinnslu um leið og frystingu er nánast
hætt, fer Vinnslustöðin að rétta úr kútnum. Um
leið fer bolfiskvinnslan hjá ísfélaginu að skila
arði en bæði fyrirtækin líða fyrir lágt verð á
afurðum í sfld og loðnu. Verð á lýsi og mjöli
hefur verið í lægð undanfama mánuði og aukin
samkeppni á Japansmarkaði hefur þýtt lakari
afkomu í loðnufrystingu. Þrátt fyrir það var
ekkert uppgjafahljóð að heyra á mönnum og fátt
eða ekkert sem benti til að Isfélag og Vinnslustöð
ættu eftir að ganga í eina sæng.
I fréttatilkynningunni segir að stærstu
hluthafamir hafi orðið sammála um sammnann
og það gæti hafa verið tveggja manna tal því
Sigurður Einarsson, forstjóri ísfélagsins, og
ljölskylda hans eiga stærsta hlutinn í félaginu og
Geir Magnússon, stjómarformaður Vinnslu-
stöðvarinnar og forstjóri Ohufélagsins hf., hefur
yfir að ráða nálægt helmingshlut í Vinnslu-
stöðinni.
Það fer tvennum sögum af því hvor hafi átt
frumkvæðið að þessu sinni en bent hefur verið á
að Sigurður Einarsson fái yfirleitt sínu fram-
gengt. Hvort sem það er rétt eða ekki þá má
nefna sem dæmi um hvað þetta fór leynt og hvað
fyrirvarinn var stuttur að framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar var í fríi erlendis þegar
ákvörðunin var tekin og kom þama hvergi nærri
Verði af samrunanum eins og allt bendir til þýðir
það uppstokkun líka því sem gerðist 1992 og það
eitt kallar fram margar spumingar.
Nú verður ekki aftur snúið
-því það eru stærstu hluthafarnir báðum megin sem tóku ákvörðunina,
segir framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar
BEVNI: Það á eftir að fara yfir starfsmannamálin þannig að ekkert
er hægt að segja um þau á þessari stundu.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar, segist hafa verið erlendis í
fríi þegar tilkynning um samruna
við Isfélagið kom.
Þegar rætt var við Binna á mánu-
daginn sagðist hann enn ekki vera
búinn að átta sig á breyttum aðstæð-
um. „Eg sagði á síðasta ári að ég væri
sannfærður um að samruni félaganna
yrði að vemleika en af honum varð
ekki. Eg held samt að nú verði ekki
aftur snúið því það em stærstu
hluthafarnir báðum megin sem tóku
ákvörðunina," sagði Binni. Hann
sagði að þetta komi sér að sumu leyti
á óvart því Vinnslustöðin hafi verið
að ná sér á strik þó það hafi mátt
ganga betur að hans mati.
Markaðurinn hefur greinilega haft trú
á félaginu því gengi bréfa í
Vinnslustöðinni í sumar hefur verið á
bilinu 2,70 til 2,80 en eftir að
tilkynning um sammnann kom
hækkaði gengið í 3,0. Eftir skellinn
síðasta haust þegar í ljós kom að tap
Vinnslustöðvarinnar á síðasta rekstrar-
ári losaði 800 milljónir hefur leiðin
legið upp á við. „En ekki þó nógu hratt
að mínu mati,“ segir Binni. „Þar
kemur m.a. annars inn í að styrking
krónunnar á mesta sölutímanum
skaðaði okkur um einhveija tugi
milljóna. Það sem hefur líka gerst
síðasta árið er að við emm að tapa á
loðnunni sem hefur ekki gerst í þó
nokkur ár.“
150 manna kjami
í dag vinna um 150 manns í
Vinnslustöðinni og segir Binni að
þessi fjöldi sé kjarninn sem byggt er
á, sjómenn, fólk í landvinnslunni og
bræðslunni. „En á loðnuvertfðinni
Ijölgar starfsfólki mikið og í sumar em
margir krakkar í humrinum. Auðvitað
var sárt að þurfa að fækka fólki en
síðasta árið hefur verið mikil vinna
hjá okkur og góðar tekjur hjá starfs-
fólkinu. Um leið hefur saltfiskurinn
skilað góðri ífamlegð þannig að þama
fer saman hagur starfsfólks og fyrir-
tækis sem er það mynstur sem maður
vill sjá í öllum rekstri."
Þegar Binni er spurður um stöðu
starfsfólksins í nýju fyrirtæki vill hann
sem minnst segja. „Það á eftir að fara
yftr starfsmannamálin þannig að
ekkert er hægt að segja um þau á
þessari stundu.“
Flotinn
Frá því núverandi Vinnslustöð varð til
úr Fiskiðju og Vinnslustöð í ársbyijun
1992 hefur verið mikið rót á skipum
og bátum í eigu félagsins og sér ekki
enn fyrir endann á þeim því nú em
tveir bátar í eigu lélagsins, Brynjólfur
ÁR og Guðjón VE auglýstir til sölu og
línubátnum Gandí VE hefur verið
lagt. „Þegar Gandí ehf. gekk inn í
Vinnslustöðina í sumar bættust við
tveir bátar og meiri aflaheimildir.
Kvóti Gandís var búinn þegar
samruninn varð og var því fátt hægt að
gera þegar við bætist að skera á niður
aflaheimildir okkar um 1000 tonn á
næsta fiskveiðiári. Við höfum auglýst
Guðjón og Brynjólf til sölu en það er
ljóst að við ætlum að halda öðmm.
Brynjólfur er gerður út í dag og það er
eiginlega ákvörðun áhafnarinnar
hvom bátinn þeir vilja," sagði Binni.
Kvótamálin
Hafið þið leigt frá ykkur mikinn kvóta
á þessu fiskveiðiári? „í fyrra var
ákveðið að útbúa loðnuskipið Kap
þannig að hægt yrði að stunda á henni
netaveiðar auk nótaveiða. Ekkert varð
af því þegar sameinast átti Isfélaginu
en þegar það gekk til baka var orðið of
seint að breyta Kap. í framhaldi af því
leigðum við frá okkur 700 til 800 tonn
af þorski sem við ætluðum Kap.
Annars er útgerðarþátturinn orðinn
sterkur hjá okkur og ég held að það sé
að koma í ljós að okkar sjómenn em
með góðar tekjur. Þannig viljum við
hafa það og breytingar á Kap áttu að
tryggja áhöfninni meiri vinnu og um
leið góðar tekjur."
Hefur þú trú á að sammninn verði
að vemleika að þessu sinni? „Já. Ég
hef litla trú á að upp úr slitni því nú
liggja eignarlegar forsendur að baki
ákvörðunar um að sameina ísfélag og
Vinnslustöð undir nafni Isfélagsins.
Framkvæmdin verður svo í höndum
starfsmanna og stjóma félaganna,"
sagði Binni að lokum.
Eignir
Vinnslu-
stöðvar
Skip:
Loðnusipið. Sighvatur Bjama-
son VE
Loðnuskipið Kap VE
ísfisktogarinn Jón Vídalín ÁR
Línuskipið Gandí VE
Togskipið Drangavík VE
Vertíðarbáturinn Guðjón VE
Vertíðarbáturinn Brynjólfur ÁR
Fasteignir
Loðnubræðsla sem afkastar 800-
1000 tonnum á sólarhring.
Frystihús
Sáltfiskvinnsla
Öflug loðnu- og sfldarvinnsla
Aflaheimildir Vinnslustöðvar
31. ágúst 1999 voru eftirfarandi
fyrir yfirstandandi fiskveiðittr:
Tegund: Til ráðstöf:
Þorskur 4.059 tonn
Ýsa 746tonn
Ufsi 1.125 tonn
Karfi 3.140 tonn
Annað 561 tonn
Samt. í botnfíski 9.630 tonn
Sfld 5.545 tonn
(5.54% aflahlutdeild)
Loðna 29.071 tonn
(5,05% aflahlutdeild)
Humar 39 tonn
Samtals til ráðstöf. í þorskíg.
11.480 tonn