Fréttir - Eyjafréttir - 13.07.2000, Page 19
Fimmtudagur 13. júlí 2000
Fréttir
19
Landssímadeild kvenna: IBV 2 - KR2
Frábær skemmtun
Óhcppnin ætlar að elta meistara-
flokkslið ÍBV á röndum þetta
tímabilið því þegar stelpurnar tóku
á móti KR í Landsímadeild kvenna
á þriðjudagskvöldið fékk IBV
fjölmörg tækifæri á að tryggja sér
sigurinn undir lok leiksins en
heilladísirnar voru ekki á bandi
ÍBV. Leiknum Iauk 2-2 eftir að ÍBV
hafði komist yfir 1-0.
ÍBV stelpur vom miklu ákveðnari
til að byrja með og fyrstu tíu mín-
útumar réðu þær algjörlega gangi
leiksins. Bryndís Jóhannesdóttir kom
ÍBV yfir eftir laglegan samleik við
Karen Burke, en eftir það misstu
stelpumar hægt og sígandi flugið og
gestimir gengu á lagið. Mikið fát var
oft á tíðum hjá IBV síðustu tuttugu
mínútur fyrri hálfleiks, spil innan
liðsins datt alveg niður og alltaf reynt
að hreinsa langt ffam á völlinn, sem
jafnvel tókst ekki alltaf. Þetta nýttu
KR-ingar sér til fulls og jöfnuðu sex
mínútum fyrir leikhlé.
Bytjunin á seinni hálfleik var skárri
hjá IBV, stelpumar reyndu að spila
boltanum, en oft vantaði kraftinn í að
klára síðustu sendinguna. KR komst
svo yfir 1-2 á 57. mínútu og virtist
stefna í enn eitt tapið gegn KR. En
Eyjastelpur settu undir sig hausinn og
börðust eins og ljón síðasta hálf-
tímann. Sú barátta skilaði marki sem
Svetlana skoraði. Biddý fékk tvö
dauðafæri á lokamínútunum en bæði
skotin fóm framhjá. Kelly var svo
ranglega dæmd rangstæð þegar hún
var sloppin í gegnum vöm IBV
þannig að niðurstaðan var 2-2
jafntefli.
„ Við vomm ekki langt frá því að
vinna þennan leik og hefðum átt að
skora þama í lokin. En mér fannst KR
betra liðið í fyrri hálfleik og það var
einfaldlega stress í stelpunum að halda
ekki haus. Seinni hálfleikur var svo
betri af okkar hálfu og við hefðum átt
að skora fleiri mörk en þessi tvö. En
þetta em fyrstu stigin sem ÍBV nær af
KR frá upphafi og ég er bara sáttur við
það, við verðum að byija einhvers-
staðar. Við emm taplaus á heima-
velli og ætlum okkur að halda því
áfram.“ sagði Heimir Hallgrímsson
þjálfari eftir leikinn.
Leikurinn var frábær skemmtun og
þama hafa sennilega ást við tvö
sterkustu liðin í kvennaboltanum í
sumar. Það sýndi sig að Eyjastúlkur
höfðu betra úthald og áttu fyllilega
skilið að sigra. Á lokamínútunum
yftrspilaði IBV íslands- og bikar-
meistarana sem ætti að gefa stúlk-
unum trú á sjálfa sig. Takist Heimi að
ljúga kjark í sína menn má vænta
mikils af þeim, bæði í deild og bikar
þar sem þær em komnar í Ijögurra liða
úrslit.
Mörk ÍBV: Bryndís Jóhannesdóttir
og Svetlana Balinskaya.
BRYNDÍS fagnar markinu með
Gumma bróður sínum.
Golf: Volcano open og fleira
Minni þátttaka en vænst var
Volcano Open mótið fór fram á
laugardag og sunnudag í einhverju
besta veðri sumarsins. Þátttak-
endur voru aðeins 58, mun færri en
búist hafði verið við.
Fram til þessa hefur alltaf nokkur
fjöldi útlendinga tekið þátt í mótinu en
nú mætti aðeins einn slíkur til leiks.
Þá hlýtur einnig dræm þátttaka
heimamanna að valda vonbrigðum,
aðeins 20 úr GV sem mæta, meðan 26
manna hópur úr GR mætir hingað og
hafa margir þeirra ekki látið sig vanta
á þetta mót frá því að það hófst.
Þátttaka í innanfélagsmótum GV í
sumar hefur verið milli 40 og 60
manns þannig að þama er illa mætt af
heimamönnum.
Keppt var í þremur forgjafarflokkum
í punktakeppni og urðu úrslit þessi:
Forgjafarfl. 0-11,9
1. Sigríður Mathiesen GR 74 p
2. Örlygur H. Grímss GV 72 p
3. Þórdís Geirsdóttir GK 70 p
Forgjafarfl. 12 - 23,9
1. Vignir Benediktss GR 76 p
2. Gísli H. Jónasson GV 71 p
3. Christian Þorkelss GR 70 p
Forgjafarfl. 24 - 36
1. Tinna Ó Óskarsd GKG 84 p
2. Aðalsteinn Ömólfss GK 71 p
3. Sigríður Jensdóttir GK 36 p
Meistaramótið hafiö
Meistaramót Golfklúbbs Vestmanna-
eyja hófst á mánudag með keppni í
flokkum öldunga og unglinga 13-15
ára og lauk þeirri keppni á þriðjudag. I
unglingaflokki vom rnu keppendur og
urðu úrslit þessi en þar var keppt án
forgjafar:
1. Leifur Jóhannesson 172 h.
2. Brynjar Ólafsson 177 h.
3. Jón Valgarð Gústafsson 184 h.
í öldungaflokki vom keppendur 14
en þar var keppt í tvo daga bæði með
forgjöf og án. Þar urðu úrslit þessi:
Án forgjafar:
1. Jóhann Pétur Andersen 166 h.
2. Gunnlaugur J. Axelsson 170 h.
3. Sigmar Pálmason 179 h.
Með forgjöf:
1. Sigurgeir Jónsson 144 h.
2. Hjörtur Hermannsson 146 h.
3. Jóhann Pétur Andersen 148 h.
í gær hófst flokkakeppni á
Meistaramótinu þar sem keppt er í
fjórum flokkum karla og einum flokki
kvenna. Þátttaka hefur oft verið meiri.
Keppni lýkur á laugardag.
Firmakeppni GV 2000
Alls tóku 60 fyrirtæki og stofnanir þátt
í Firmakeppni GV að þessu sinni. Vill
stjóm golfklúbbsins þakka þeim öllum
fyrir stuðninginn. Þessi fyrirtæki urðu
í þremur efstu sætum en leiknar vom
18 holur með forgjöf:
1. Sæhamar 56 högg
Spilari Einar P. Eiríksson
2. Vífilfell 62 högg
Spilari Vignir A Svavarss.
3. Bæjarveitur 68 högg
Spilari Sigurgeir Jónsson
TINNA Ósk Óskarsdóttir spilaði best allra á Volcano Open og hlaut
alls 84 punkta sem er feiknagott skor eða 12 undir pari á tveimur
hringjum. Tinna Ósk, sem er aðcins 16 ára gömul, er í Golfklúbbi
Kópavogs og Garðabæjar en á reyndar ættir sínar að rekja til Eyja,
dóttir Óskars Svavarssonar (Steingríms) og Önnu Díu Erlingsdóttur.
Auðveldur sigur hjá
KFS
KFS tók á móti Golfklúbbi Grinda-
víkur síðasta föstudag og áttust liðin
við á Helgafellsvellinum. Heima-
menn réðu leiknum allann tímann
og hefðu getað spilað á hálfum
hraða en samt unnið, enda fór svo
að KFS vann leikinn 5-0. Dómari
leiksins reyndi þó hvað hann gat til
þess að jafna leikinn, vísaði m.a.
Magnúsi Steindórssyni af velli um
miðjan fyrri hálfleik en það dugði
ekki og sigur KFS aldrei í hættu.
Þess má geta að Jóhann Sveinn
Sveinsson spilaði með KFS í fyrsta
skipti þetta tímabilið og verður
hann með liðinu í næstu leikjum.
Mörk KFS: Sindri Grétarsson 2,
Gísli Geir Tómasson, Jóhann
Sveinn Sveinsson og Yngvi Borg-
þórsson.
Slakur árangur úr
Essomótinu
Fimmti flokkur ÍBV karla hélt um
síðustu helgi norður til Akureyrar til
að taka þátt í Esso-móti KA. Eins
og margir muna þá varð ÍBV
Shellmótsmeistari 1999 í sjötta
flokki en margir úr því liði eru
gengnir upp í fimmta flokk og því
hægt að vonast eftir góðum árangri.
Sú varð ekki raunin, ÍBV lenti
neðarlega í A-, B- og C-liðum en
þrátt fyrir það þá skemmtu
strákamir sér ágætlega og létu vel af
dvölinni á Akureyri.
Tommi kominn,
Allan farinn
Til liðs við ÍBV er genginn Eyja-
maðurinn Tómas Ingi Tómasson,
en hann hefur verið að spila í
Danmörku undanfarin tvö ár.
Tómas Ingi spilaði síðast með ÍBV
tímabilið 1993 en hann mun
áreiðanlega koma til með að styrkja
framlínu IBV nokkuð.
Fljótlega eftir að Tómas Ingi
skrifaði undir lánssamning við IBV
þá fór færeyski landsliðsmaðurinn
Allan Mörköre fram á að verða
seldur eða leigður frá félaginu.
Allan var svo að lokum seldur til
færeyska liðsins HB frá Þórshöfn,
en þaðan kom Allan einmitt ril IBV.
Framundan
Fimmtudagur 13.júlí
Kl. 14.00 ÍBV-ÍA 4.fl. karla A
Kl. 15.30 ÍBV-ÍA 4.11. karla B
Kl. 20.00 ÍBV-KR 2.fl. karla
Föstudagur 14.júlí
Kl. 20.00 Hamar/Ægir-KFS
Laugardagur lS.júlí
Kl. 14.00 Keflavfk-ÍBV 3.fl. karla
Kl. 14.00 Fjölnir-ÍBV 3.fl. kvenna
Sunnudagur ló.júlí
KI. 20.00 Fylkir-ÍBV Landssíma-
deild karla
Mánudagur 17.júlí
Kl. 20.00 ÍBV-Valur Landssíma-
deild kvenna
Kl. 20.00 Fylkir-ÍBV 2.fl. karla
Þriðjudagur 18.júlí
Kl. 17.00 IBV-KR 4.fl. kvenna