Fréttir - Eyjafréttir - 07.09.2000, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 7. septemberss 2000
Bókvitið íoskanc,
guð er ennþá dauður
Friedrich Nietzsche er einn þeirrra
snillinga sem sett hefur mark sitt á
hugmyndasögu 19. aldar. Rit hans,
Svo mælti Zaraþústra - Bók fyrir alla
og engan, kom út á árunum 1883 -
1885 og vakti þá þegar nokkra
athygli, þó að hún hafi ekki orðið
höfundi sínum sá hróður sem hann
vonaði, en allt um það varð bókin
umdeild mjög og kannski er það aðal
góðra bóka.
Bókin kom út á íslensku árið 1996
í þýðingu Jóns Ama Jónssonar með
inngangi eftir Sigríði Þorgeirsdóttur.
I inngangi bókarinnar kemst Sigríður
meðal annars svo að orði og vitnar í
orð Nietzsche þar sem hann segir að
Zaraþústra sé forsalur að heimspeki
sinni. En Zaraþústra er ekki aðeins
óvenjulegt heimspekirit, heldur er
einnig vandkvæðum bundið að stað-
setja það bókmenntafræðilega.
Verkið er frásögn með atburðarás, en
líklega er því best lýst sem eins konar
lærdómskvæði, enda fékk Nietzsche
ómælda útrás fyrir skáldgáfuna við
samningu þess. Hann segist hafa
samið hana í rokum og að ritið sé til
orðið undir sterkum innblæstri sem
hann útmálar sem díonýsiska
sköpunarvímu.
í bókinni opinberar Nietzsche
nokkrar heimspekilegar grunnhug-
myndir Zaraþústru. Ein þeirra er
hugmyndin um dauða guðs, spá hans
um ofurmennið og það sem hann
kallar „hinsta manninn“. Zaraþústra
gerir einnig upp málin við úrelta
lífssýn og „viljann til valdsins" sem
sé drifkraftur alls lífs. Zaraþústra
glímir einnig við það sem hann kallar
endurkomuhugmyndina.
Nietzsche ræðir um tilgang á
tímum tilgangsleysis og kemst að
þeirri niðurstöðu að ógerlegt sé að
vita neitt með vissu um hinstu rök
tilverunnar. Finnst mörgum sem
hann standi því í nokkurri mótsögn
við sjálfan sig, þar sem hann varpar
fram að því er virðist einum
„sannleika" sjálfur í nafni Zaraþústra.
Þess „sannleika" er þó að leita í
manninum sjálfum, en ekki í utan
áliggjandi tilbúnum hugmyndum og
fyrirbærum eins og guði. Ofur-
mennið sýnir viðleitni Nietzsche til
að finna andsvar við angist og
örvæntingu tómhyggjunnar sem
heltekur nútímamanninn þegar
hefðbundnar forsendur hugmynda
hans um eðli og tilgang tilverunnar
eru brostnar. Að baki þessari túlkun
liggur sú skoðun að raunverulegt
inntak hugmyndarinnar um ofur-
mennið sé hugsjónin um að maðurinn
verði meira en hann sjálfur. Guð
Nietzsche táknar í þessu tilliti ekki
sérstaklega hinn persónulega guð
kristinnar trúar, heldur hinn
yfimáttúrulega heim hugmynda og
hugsjóna, sem í vestrænni menningu
var allt frá dögum platónskrar
heimspeki talinn hinn eini og sanni og
raunverulegi heimur. Samkvæmt
þýska heimspekingnum Martin
Heidegger, sem lagt hefur út af
orðum Nietzsche „guð er dauður“,
merkja þau því að hinn yfimáttúrulegi
heimur sé ekki lengur orkulind og
gefi þess vegna ekki líf. Zaraþústra
reynir að sigrast á tómhyggjunni, með
því að sætta sig við og læra loks að
þrá hugmyndina um eilífa endurkomu
hins sama, sem Nietzsche vill að leysi
tálvonir um náð guðs og guðlegt
takmark sögunnar af hólmi. Með því
að játa afdráttarlaust að enginn æðri
tilgangur sé til leysir ofurmennið
sköpunarkrafta úr læðingi, sem gera
því kleift að ljá lífinu merkingu og
gefa því tilgang. Kenningin um eilífa
endurkomu hins sama verður honum
eins konar tilvistarlegt skylduboð um
að viðurkenna lífið eins og það er.
IBV vinnur bikarleikinn
Eins og flestum mun kunnugt bar IBV
sigurorð af Fylki í undanúrslitum
bikarsins á þriðjudag, eftir ótrúlegan
endasprett. í síðustu viku varspurning
dagsins í Fréttum hvernig úrslit þessa
leiks yrðu. Tvö þeirra sem spurð voru
höfðu alveg á hreinu hver úrslitin yrðu, 2-
1 fyrirÍBV, og annað þeirra er Eyjamaður
vikunnar.
Fulltnafn? Guðbjörg Karlsdóttir.
Fæðingardagur og ár? 8. mai 1956.
Fæðingarstaður? Reykjavík.
Fjölskylduhagir? Gift Haraldi Óskars-
syni. Við eigum tvo syni.
Menntun og starf? Sín ögnin afhverju,
gagnfræðingur, eitt ár í Kennaraskóla,
Skrifstofu- og ritaraskólinn. Starfa sem
tryggingafulltrúi hjá Tryggingamiðstöð-
inni.
Laun? Ekki uppgefin.
Bifreið? Pajerojeppi.
Helsti galli? Aðeins ofstjórnsöm.
Helsti kostur? Hreinskilin.
Uppáhaldsmatur? Fiskur.
Versti matur? Súrmatur.
Uppáhaldsdrykkur? Kaffi.
Uppáhaldstónlist? Hugljúfar ballöður.
Hvað erþað skemmtilegasta sem þú gerir? Vera
í útilegu.
Hvað erþað leiðinlegasta sem þú gerir? Taka til
heima hjá mér.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í
happdrætti? Ferðast.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Enginn.
Uppáhaldsíþróttamaður? Karl, sonurminn.
Ertu meðlimur íeinhverjum félagsskap? Rotary-
klúbbi Vestmannaeyja.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Ég horfi lítið á sjónvarp
og á mérenga uppáhaldsþætti.
Uppáhaldsbók? Engin.
Hvað metur þú mest í fari annarra? Mér finnst
framkoma fólks skipta miklu máli.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?
Óheiðarleiki.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á?
Vestmannaeyjar.
Ert þú getspök íþínu eðli? Nei.
Hafa spádómar þfnir áður ræst? Nei.
Spáirðu mikið í framtíðina? Nei.
Ertu búin að velta fyrir þér hver úrslitin verða í
úrslitaleik bikarsins? Égþoriþað ekki. Éggrísaðist
á að geta rétt til um úrslitin íþessum leik en læt ekkert
hafa eftir mér um áframhaldið hvað markaskorun
varðar. En ÍBV vinnur bikarleikinn
Eitthvað að lokum ? Það er fallegur dagur í dag.
Nýfæddir ?cr
Vestmannaeyingar
Þann 10. ágúst eignuðust Sigurlaug Harðardóttir og Vihjálmur
Bergsteinsson son. Hann vó 11 merkur og var 47 cm að lengd. Hann
hefur fengið heitið Daníel Smári. Með honum á myndinni eru systkini
hans Guðrún og Bjarki. Ljósmóðir var Guðný Bjamadóttir.
Þann 1. Ágúst
eignuðust Anna
Sif Jónsdóttir og
Amar Jónsson
(Steinu og
Óskars) dóttur.
Hún vó 14
rnerkur og var 53
cm að lengd.
Hún hefur verið
skírð Anna
Dögg. Hún
fæddist á
fæðingardeild
Landsspítalans.
Fjölskyldan býr í
Reykjavík
Þann 6. ágúst eignuðust Ásta Björk Harðardóttir og Hörður Páll
Eggertsson son. Hann vó 18 merkur og var 55 cm að lengd. Með á
myndinni er stóra frænka Sandra Harðardóttir. Ljósmóðir var
Valgerður Ólafsdóttir.
Á döfimri 4*
07. sept. Almennur fundur Bæjarstjómar Veshneyja
í Tónlistarskólanum kl. 20.00
09. sept. Undirbúningsfundur Leikfélagsins kl 15.00
09. sept. Bryggjumót SjóVe ó Nausthamarsbryggju
09.-11 sept. Merkjasala Krabbavamar
16. sep. Innanfélagsmót SjóVe
18.-19. sept. Fyrri hluti nóms í Ökuskóla
Vestmannaeyja
30. sept Lundaballið í umsjó Elliðaeyinga
30. sept.
og 1. okt. Nómskeið í list- og sköpunargófu ó vegum
K1 haldið ó Hallveiggrstöðum
02.-04. okt. Seinni hluti nóms í Ökuskóla
Vestmannaeyja
14. okt. Eyjar 2010.
15. okt. Poppmessa í Landakirkju kl. 20.00