Fréttir - Eyjafréttir - 07.09.2000, Page 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 7. september 2000
Enn stefnt að
því að sleppa
Keikó á árinu
Þó hafa vonir um það dvínað og
líklega mun hvalurinn hafa
vetursetu í Eyjum
í sumar hefur háhyrningurinn
Keikó fengið að leika mjög lausum
hala utan svæðisins í Klettsvík.
Farið hefur verið með hann í
„göngutúra" í kringum Eyjar,
stutta í byrjun en nú upp á
síðkastið langar og miklar ferðir.
Markmið Ocean Futures samtak-
anna hefur verið að sleppa Keikó
út í frjálsa náttúruna um leið og
talið er að hann geti samlagast
henni. Stefnt var að því að það
yrði í haust.
Hallur Hallsson, talsmaður samtak-
anna á íslandi, segir að það markmið
hafi ekki breyst, stefnt sé að því að
sleppa háhymingnum í haust. „I
síðustu viku vorum við með Keikó
úti í nokkra daga samfellt og fylgd-
umst með honum af báti. Þá hefur
svæðið við Vestmannaeyjar verið
kannað úr lofti í sumar til að fylgjast
með háhymingavöðum. í sumar
hefur ekki verið mikið um háhym-
inga við Eyjar en talsvert af hrefnu.
Við munum halda áfram að fara með
hann út fyrir á næstu dögum og
markmiðið er að reyna að sleppa
honum á þessu ári. Ef það gengur
ekki þá verður hann áfram í Eyjum í
vetur.“
Hvernig hefur Keikó brugðist við
villtum œttingjum sínum?
„Hann hefur nokkmm sinnum
komist í námunda við aðra háhym-
inga en ávallt snúið til baka og aldrei
horfið sjónum okkar. Við settum á
hann senditæki í sumar en höfum átt
í erfiðleikum með það og bíðum eftir
öðrum sendi frá Bandaríkjunum.
Við viljum geta fylgst með ferðum
hans og skráð allt um þær í samræmi
við ströngustu kröfur vísindanna."
En hvernig hafa aðrir háhymingar
tekið honum ?
„Hann hefur ekki náð að samlagast
þeim vöðum sem hann hefur komist
í námunda við. Nú er það svo í hval-
heimum eins og mannheimum að
vöður eiga sín svæði og ekki vitað
hvemig einstaklingar fara milli
þeirra. Svo kann að koma heppileg
vaða sem hann nær að samlagast þó
svo að það hafi ekki enn gerst. Við
höldum ótrauð áfram þeirri stefnu að
sleppa honum á þessu ári. En haust-
ið er í nánd og ef það tekst ekki að
þessu sinni þá tökum við upp þráð-
inn næsta vor,“ sagði Hallur
Hallsson.
Á Kristnihátíð í sumar voru Litlir lærisveinar fulltrúar Ofanleitissóknar og var inyndin tekin þegar
kórinn kom þar fram.
Litlir lærisveinar hefja vetrarstarfið
Litlir lærisveinar eru nú að hefja
vetrarstarf sitt. Litlir lærisveinar
eru barnakór Landakirkju og eru
stjórnendur hans Guðrún Helga
Bjarnadóttir og Osvaldur Freyr
Guðjónsson. Kórinn skiptist í tvo
hópa, eldri hóp, börn fædd 1988 -
1990 og yngri hóp þar sem eru börn
fædd 1991 -1993.
Á mánudag var haldinn fundur með
foreldmm bamanna og þar var vetrar-
starfið kynnt og rætt. Æfingar verða á
hverjum föstudegi nema annað verði
auglýst en tilkynningar verða í bæjar-
blöðunum um það. Fyrsta æfingin
verður á morgun, föstudag, en nýir
félagar í kómum eiga að mæta í dag,
fimmtudag, kl. 16 í Safnaðarheimilinu
og eru allir krakkar á aldrinum sjö til
tólf ára velkomnir.
Ef gripið er niður í dagskrá Lítilla
lærisveina í vetur, þá tekur kórinn þátt
í bamaguðsþjónustum þriðja hvem
sunnudag. Einnig mun kórinn taka
þátt í tveimur til þremur þjóðlaga-
messum og koma fram á alþjóðlegum
bænadegi kvenna. Um jólin verður
mikið að gera, ekki síst á annan dag
jóla en þá munu Litlir lærisveinar
syngja við fjölskyldu- og skímarguðs-
þjónustu og sömuleiðis við helgi-
stundir á Hraunbúðum og sjúkrahúsi.
í haust er einnig fyrirhugað að fara í
æfingabúðir í Skátastykkinu, eina nótt.
Seinna í vetur er fýrirhuguð heimsókn
bamakórs frá Álftanesi og svo mun
kórinn halda í æfingabúðir að Flúðum
í byrjun mars og endurgjalda með því
heimsókn Bamakórs Flúðaskóla til
Eyja í fyrra. Tónleikar em fyrir-
hugaðir í mars, fyrir páska, og ýmsar
óvæntar uppákomur em einnig í
deiglunni. T.d. hefur komið fram sú
hugmynd að æfa upp prógram sem
unnt yrði að nota t.d. við skímir í
Stafkirkjunni. Eins og fyrr segir em
allir krakkar á aldrinum sjö til tólf ára
velkomnir í hópinn og hvattir til að
taka þátt í þessu skemmtilega starfi.
Landsmótið í golfi 35 ára og eldri:
Jón Haukur vann Björgvin í bráðabana
Landsmóti 35 ára og eldri f golfl
lauk á laugardag. Þetta er í fyrsta
sinn sem slíkt landsmót er haldið og
var þetta fyrsta mót haldið í
Vestmannaeyjum. Mótið hófst á
miðvikudag og lauk á laugardag,
leiknar 18 holur á dag, alls 72 holur.
Þátttaka var mun minni en búist hafði
verið við, 48 keppendur sem mættu tíl
leiks, þar af aðeins sex í kvennaflokki.
I síðustu Fréttum var sagt að hlutur
heimamanna væri rýr í mætingu sem
ekki er alls kostar rétt þar sem 21
keppandi var frá GV eða hátt í helm-
ingur þátttakenda.
Veður var fremur leiðinlegt á
miðvikudag til golfleiks en frábært
hina þrjá dagana. Keppt var án for-
gjafar og var allt frá upphaii ljóst að
hart yrði barist um efstu sætin. Enda
fór svo að eftir 72 holur voru þeir
Björgvin Þorsteinsson og Jón Haukur
Guðlaugsson hnífjafnir með 295 högg
og urðu því að leika þrjár holur til
viðbótar í umspili. Eftir þær þrjár var
enn allt jafnt og þá spilaður bráðabani
á 13. holu. Þar tókst Jóni Hauki að
knýja fram sigur. Röð efstu manna
varð þessi:
1. Jón H. Guðlaugsson GO 295 h.
2. Björgvin Þorsteinss. GA 295 h.
3. Viggó H. Viggósson GR 298 h.
4. Gunnsteinn Jónsson GSE 302 h.
5. EinarLong GR 304 h.
6. Magnús Þórarinsson GR 309 h.
7. Haraldur Júlíusson GV 311 h.
Bæði Jón Haukur og Björgvin
tengjast Vestmannaeyjum veralega.
Jón Haukur er fæddur hér og
uppalinn, einn af systkinunum frá
Geysi. Björgvin, sem sex sinnum
hefur orðið Islandsmeistari, er
„tengdasonur Vestmannaeyja,“ kona
hans er Jóna Dóra Kristinsdóttir
(Pálssonar frá Þingholti).
I kvennaflokki urðu úrslit þessi:
1. Þórdís Geirsdóttir GK 331 h.
2. Magdalena S Þórisd. GS 344 h.
3. Unnur Sæmundsd. GK 362 h.
4. Jakobína Guðlaugsd. GV 385 h.
5. Auður Ámadóttir GS 500 h.
6. Ólöf Bjömsdóttir GS 547 h.
Þórdís varð Islandsmeistari í
meistaraflokki kvenna árið 1987 og
hafði á orði eftir keppni að komið
hefði verið „tæm“ á þetta.
Samhliða mótinu var punktakeppni
þar sem hámarksforgjöf var 18, eða
einn punktur á hverja holu. Þar urðu
úrslit þessi:
1. Magnús Þórarinsson GR 152 p.
2. Viggó H Viggósson GR 143 p.
3. Gunnsteinn Jónsson GSE 139 p.
4. Jón H Guðlaugsson GO 138 p.
5. Björgvin Þorsteinss GA 137 p.
6. Heiðar Breiðljörð GR 137 p.
Magnús er ekki ókunnur vellinum í
Vestmannaeyjum, hann bjó hér í mörg
ár (Maggi múrari) en býr nú í
Reykjavík og leikur hjá GR. Hann var
með 9 í forgjöf fýrir þetta mót en þessi
frábæra spilamennska lækkar hann
um 2,5 í forgjöf.
Guðmundur Ingi
fór holu í höggi!
Á föstudag bættist enn einn Vest-
mannaeyingur í hóp þeirra sem farið
hafa holu í höggi á árinu. Það var
Guðmundur Ingi Guðmundsson, skip-
stjóri og útgerðarmaður á Hugin VE,
sem það afrekaði. Með honum í holli
ÞEIR voru í síðasta ráshópnum á laugardag og háðu harða viðureign
um efsta sætið. Sú viðureign varð ekki útkljáð fyrr en eftir umspil og
bráðabana. Frá vinstri: Björgvin, Viggó, Jón Haukur.
voru Sveinn Magnússon, Páll
Einarsson og Steinunn M. Einars-
dóttir. Það var á 17. holunni sem
kúlan rataði beint ofan í eftir
teighöggið.
„Eg notaði nú „bigbertuna“ á þetta,
mér veitir ekkert orðið af því,“ sagði
Guðmundur Ingi sem verður 68 ára í
næsta mánuði. „Kúlan skoppaði
tvisvar á flötinni og rúllaði svo eina tíu
metra, beint ofan í. Jú, þetta var af-
skaplega ánægjuleg tilfinning, gaman
að þessu,“ sagði Guðmundur Ingi sem
lengi er búinn að vera í golfinu en
hefur ekki leikið þennan leik fyrr en
nú. Hefð er fyrir því að þeir sem fara
holu í höggi bjóði félögum í hollinu
upp á drykk að hring loknum, ásamt
þeim sem era staddir í skálanum.
„Það fór nú lítið fyrir þeirri drykkju.
við Svenni fengum okkur koníaks-
staup. hinir létu það eiga sig,“ sagði
Guðmundur Ingi. Hann er fjórði
kylfingurinn úr GV sem farið hefur
holu í höggi á þessu ári, auk hans hafa
Brynjar S. Unnarsson, Ragnar
Guðmundsson og Sigurgeir Jónsson
leikið þann leik.