Fréttir - Eyjafréttir - 07.09.2000, Síða 13
Fimmtudagur 7. september 2000
Fréttir
13
Arnar Hjaltalín skrifar:
Menntun er skemmtun
Minning
Trausti Marinósson
f. 18. ágúst 1939, d. 12. júlí 2000
Vikan sem er að líða ber heitið Vika
símenntunar. Yfirskrift hennar er
„Menntun er skemmtun". Er þar verið
að vísa til að endurmenntun sem
fullorðnir einstaklingar afla sér, þar
sem þarfir þeitra og áhugi skipta máli,
geti bæði orðið árangursrík og
skemmtileg. Venjan hefur verið að
mælikvarði á þekkingu manna hafi
verið lagður út frá formlegu skóla-
námi. En skilningur er að aukast á því,
að þekking sem verður til í gegnum
reynslu, formlegt og óformlegt nám
og námskeið verði allt metið og
viðurkennt. Vísir að því em
starfsfræðslunámskeið fiskvinnslu-
fólks, sem hafa verið haldin víða um
landið og meðal annars hér í Eyjum. I
síðustu kjarasamningum milli
verkalýðsfélaga utan höíúðborgar-
svæðisins og Samtaka atvinnulífsins
var samþykkt að veita auknu fé til
starfsmenntunar verkafólks. Veitt var
140 milljónum í verkefnið.
Markmiðið með verkefninu er að
treysta stöðu verkafólks á vinnu-
markaði. Það á að gera meðal annars
með því að treysta grunnmenntun
þeirra sem minnsta menntun hafa, og
gefa starfsmönnum færi á að
endurnýja þekkingu sína og takast á
við ný og breytt verkefni. Verkefnið er
vonandi vísir að þvt að skilningur sé
að aukast á mikilvægi menntunar,
starfsfólki og fyrirtækjum til uppbygg-
ingar og hagsbóta. Við getum skoðað
hugbúnaðarfyrirtæki sem dæmi. A
bak við verðmætin í þeim stendur
hvorki steinsteypa né aðrar hefð-
bundnar eignir. Þar stendur mann-
auður, vinna, þekking og menntun
starfsfólks fyrirtækjana undir verð-
mætum sem þar skapast. Akveðið
hefur verið að með haustinu verði
haldin starfsfræðslunámskeið fiskiðn-
aðarins í samvinnu Samtaka fisk-
vinnslustöðva, Verkalýðsfélagsins og
Verkefnið er vonandi vísir að
því að skilningur sé að aukast á
mikilvægi menntunar,
starfsfólki og fyrirtækjum til
uppbyggingar og hagsbóta.
Við getum skoðað
hugbúnaðarfyrirtæki sem
dæmi. Á bak við verðmætin í
þeim stendur hvorki
steinsteypa né aðrar hefð-
bundnar eignir. Þar stendur
mannauður, vinna, þekking og
menntun starfsfólks
fyrirtækjana undir verðmætum
sem þar skapast.
Snótar. Verða haldin námskeið fyrir
fiskverkafólk og verkafólk í fiski-
mjölsverksmiðjuum. Ætlunin er að
halda námskeiðin í Alþýðuhúsinu og
verða þau nánar kynnt síðar.
Launþegahreyfingin hefur í mörg ár
rekið Menningar og Fræðslusamband
Alþýðu (MFA). Innan þess hefur
MFA skólinn verið í þróun síðan
1993. Til þessa hefur hann einungis
verið í boði fyrir atvinnulaust fólk.
Reynslan af skólanum er mjög góð og
má nefna sem dæmi að 70% nemenda
hafa fengið vinnu eftir skólann og
10% nemenda hafa haldið áfram námi
eftir skólann. Nýlega fékk skólinn
mikla viðurkenningu er hann var
valinn sem góð fyrirmynd að úrræði
fyrir atvinnulausa í Evrópu.
(Evrópuverkefnið „Unemployment
and Mental Health") Vonir standa til
að hægt verði að útvíkka starfsvið
skólans og ná til fólks sem er í starfi á
vinnumarkaðinum. Ætlunin er að
verkafólk geti aukið við grunn-
þekkingu sína og jafnvel sett sér ný
markmið með náminu. MFA hefur
einnig boðið upp á nám í Félags-
málaskóla alþýðu. Það er einkum
ætlað þeim sem starfa innan verka-
lýðsfélaga eins og trúnaðarmanna á
vinnustöðum og stjómar- og trúnaðar-
ráðsmönnum. Þegar sameining Snótar
og Verkalýðsfélagsins verður að
veruleika væri gullið tækifæri að
stofna fræðslusjóð innan nýstofnaðs
félags. Nýta hann í fyrstu til að
mennta kjama félagsmanna í
félagsmálum, þá sem mest mæðir á í
starfi félaganna. Víkka síðan út
hlutverk sjóðsins og gera hann ásamt
landsbyggðarsjóðnum að bakhjarli
fyrir símenntun verkafólks þeim til
ánægju og hagsbóta. Þama geta leynst
mörg tækifæri fyrir okkur, verkafólk
hér í Eyjum.
Höfundur er formaður
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja.
Kær vinur og félagi er fallinn frá, já
það er ótrúlegt að Trausti Mar sé
dáinn, bara sextugur og svo ein-
kennilegt að dánarorsökin hafi verið
krabbamein. Hann sem var búinn að
ganga í gegnum allt ferlið með
eiginkonu sinni, Sjöfn Ólafsdóttur,
sem greindist með krabbamein og lést
hún 24. júlí 1990 en kannski var þetta
undirbúningur fyrir flutning Trausta á
annan stað, hver veit?
Þann 3. maí 1990 var haldinn stofn-
fundur Krabbavamar en það er félag
okkar í Vestmannaeyjum og deild
innan Krabbameinsfélags Islands.
Einn af því góða fólki sem að stofnun
félagsins stóð var Trausti Mar sem
kosinn var meðstjómandi og að sjálf-
sögðu mætti Sjöfn með honum. Það
var Trausta mikið hjartans mál að
koma gistingu krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra í sæmilegt horf
svo ekki verði meira sagt. Eftir
reynslu hans, Sjafnar og sonanna þar
sem þau þurftu að vera aðskilin og
m'ðast á ættingjum og vinum með gist-
ingu, sem gefur auga leið að ekki er
hægt að lifa eðlilegu fjölskylduIífT
meðan á erfiðri meðferð stóð. Var
Trausti ákveðinn í að úr þessu þyrfti
að bæta og helst strax í gær eins og
honum einum var lagið. Vom þau ófá
símtölin og ferðimar til Reykjavíkur
sem hann lagði á sig til að fá þessu
máli framgengt en hann var einn af
aðalhvatamönnum þess að keyptar
vom tvær íbúðir á Lokastíg og var það
bara byrjunin.
Þær vom síðan seldar og keyptar
íbúðir á Rauðarárstíg. Er nokkur furða
þó okkur finnist einkennilegt að
Trausti látist úr krabbameini og hafi
þurft að nýta sér allt það sem hann
barðist fyrir í rúman áratug.
I dag em þrjú hundruð manns í fél-
aginu okkar. Eyjamenn eru duglegir
að styrkja og efla félagið sitt og höfum
við sem emm í stjóm reynt að gera
eins vel við þá sem berjast við krabba-
meinið eins og kostur er. Trausti var
þar oftar en ekki fremstur í flokki enda
ekki öllum gefið að hafa samband að
fyrra bragði við þá sem veiktust og
áttu erfitt, það má eiginlega segja að
hann hafi þefað þá uppi.
Það er þvi mikill missir fyrir okkur
í stjóm Krabbavamar að missa vin
okkar og stjórnarmanninn Trausta
Mar en hann hafði líka þá sérstöðu að
vera eini karlmaðurinn í stjórninni.
Okkur em sérlega minnisstæð tvö
síðastliðin haust er við vomm saman-
komin á heimili Trausta við
undirbúning merkjasölu félagsins, þá
bar hann fram bláber og tjóma, þvfiíkt
lostæti að komast í, enda berin frá
Gunnu á Dalvík, vinkonu Trausta og
ekki spretta bláber í Eyjum.
Við viljum þakka samstarfsfólki
Trausta í Isfélagi Vestmannaeyja fyrir
peningagjöf til minningar um Trausta
sem og árgangi 1939.
Við kveðjum elsku Trausta, okkar
vin og félaga, við þökkum honum vel
unnin störf í þágu félagsins okkar og
alla hans vináttu.
Við sendum ástvinum Trausta
innilegar samúðarkveðjur
Far þú í friði, friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Stjórn Krabbavarnar
Vestmannaeyjum
Vantar
húsnæði tyrir
skemmtanir
Fyrir fundi bæjarráðs sl. mánudag
lá bréf frá nemendaráði
Framhaldsskólans. Þareróskað
eftir aðstoð við útvegun á húsnæði
til skemmtanahalds en nemendur
skólans hafa undanfarin misseri
verið á nokkrum hrakhólum með
húsnæði fyrir skemmtanahald sitt.
Bæjarráð fól tómstunda- og
forvarnafulltrúa að kanna þetta
mál.
Virðið
útivistarreglur
Lögregla vill minna foreldra á að
það er á þeirra ábyrgð að farið sé
eftir reglum um útivistartíma
barna. Lögregla hefur hlerað að
einhverjir foreldrar séu að velta
því fyrir sér hvað lögregla muni
gera varðandi útivistarreglur. Því
skal upplýst að lögregla mun hafa
eftirlit með því að farið sé eftir
reglum um útivist. Lögreglan
mun, eins og ávallt, aðstoða
foreldra eins og hægt er við að vísa
börnum inn en það verður aldrei á
ábyrgð lögreglu ef foreldrar sjá
ekki um að börn þeirra fari eftir
útivistarreglum.
\ Blé
Handbolti karla og kvenna:
Æflngatafla
3. fl karla ’83-’84
Mán. 20.30-21.30 IÞ
Mið. 21.10-22.10 IÞ
Fim. 22.00 - 23.00 IÞ
Lau. 16.00- 17.00 IÞ
4. fl. karla '85 - '86
Mán. 16.20-17.10 IÞ
Mið. 20.20-21.10 IÞ
Sun. 17.20- 18.10 IÞ
5. fl. karla '87 - '88
Mið. 17.50- 18.40 IÞ
Fös. 16.10-17.00 IÞ
Sun. 12.20-13.10 IÞ
6. fl. karla '89 - '90
Þri. 18.20- 19.00 IÞ
Mið. 16.10-17.00 IÞ
Lau. 13.00- 14.00 IÞ
7. fl. karla '91, '92, '93
Fim. 16.10-17.00 TH
Sun. 13.10-14.00 IÞ
8. fl. karla '94 og yngri
Lau. 16.30- 17.30 TH
Unglingafl. kvenna '82 - '84
Mið. 19.30-20.20 IÞ
Fim. 21.10-22.00 IÞ
Sun. 16.30- 17.20 IÞ
4. fl. kvenna '85 - '86
Mán. 17.10-18.00 IÞ
Mið. 19.30-20.20 IÞ
Sun. 15.40- 16.30 IÞ
5. fl. kvenna '87 - '88
Mið. 18.40- 19.30 IÞ
Fös. 17.00- 17.50 IÞ
Sun. 11.30-12.20 IÞ
6. fl. kvenna '89 - '90
Mið. 15.20-16.10 IÞ
Lau. 14.00- 15.00 IÞ
Þri. 16.10-17.00 TH
7. fl. kvenna '91 - '93
Fös. 14.00- 15.00 TH
Sun. 14.00- 14.50 IÞ
8. fl. kvenna '94 og yngri
Lau. 17.30- 18.30 TH
Taflan tekur gildi fímmtud. 7. sept.
2000.
IÞ = íþróttahús TH = Týsheimili