Fréttir - Eyjafréttir - 07.09.2000, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 7. september 2000
Fréttir
19
Undanúrslit Bikarkeppni KSI: IBV 2 - Fylkir 1
Hafðist með frá-
bærum endaspretti
Endururteknins frá leik liðanna frá 1992 þesar Eyjamenn höföu betur í baráttunni við
Árbæinsa um sæti í efstu deild. Þá skoraði Martin Eyjólfsson sisurmarkið þesar 3 mínútur
voru komnaryfir venjulesan leiktíma. Nú kom það í hlut Steinsríms að endurtaka leikinn
BIRKIR markmaður fagnar sigrinum með markaskorurunum, Steingrími og Inga.
Á þriðjudaginn tók ÍBV á móti
toppliði Fylkis í undanúrslitum
bikarkeppninnar. Fyrir leikinn
hafði IBV ekki tapað heimaleik í 36
skipti í röð en lengi vel leit út fyrir
að hið óvinnandi vígi, sem
Hásteinsvöllur er, væri að falla.
Gestunum tókst að skora á 11.
mínútu en það var ekki fyrr en á 88.
mínútu að Eyjamönnum tókst að
svara fyrir sig með marki Inga
Sigurðssonar. Það er nú einu sinni
þannig að leikur ekki búinn fyrr en
dómarinn flautar hann af og það
sannaðist í þessum leik. Allt leit út
fyrir framlengingu en gestgjafarnir
voru á öðru máli og náði
Steingrímur Jóhannesson að skora
þegar tvær mínútur voru komnar
fram yfir venjulegan leiktíma og
IBV sigraði í leiknum 2-1 í mjög svo
dramatískum leik.
Fyrir leikinn hafði myndast mikil
og góð stemmning í bænum, ekki síst
vegna þess að menn vissu að von var
á fjölmennum hópi Fylkismanna til að
styðja sitt lið. Eitthvað þynntist
hópurinn á leiðinni milli lands og Eyja
því innan við hundrað stuðningsmenn
Fylkis mættu á leikinn.
Fyrri hálfleikur var illa leikinn af
hálfu ÍBV. Leikmenn virtust ekki ná
upp réttu stemmningunni sem er
hverju liði nauðsynleg í leik sem
þessum enda voru Fylkismenn ekki
lengi að notfæra sér andleysi ÍBV í
nyt. Eftir aðeins tíu mínútna leik voru
Eyjamenn lentir marki undir eftir
heldur klaufalega tilburði í vamarleik.
Gestimir úr Árbænum voru mun
sprækari í fyrri hálfleik og er óhætt að
segja að leikmenn IBV hafi verið
heppnir að vera aðeins einu marki
undir í hálfleik.
Seinni hálfleikur var hinsvegar eign
IBV frá upphafi. Reyndar vom
Eyjamenn heppnir þegar Hlynur og
einn sóknarmanna Fylkis lentu í
samstuði innan vítateigs IBV en
óvenju góður dómari leiksins, Gylfi
Orrason sá ekki ástæðu til að dæma
víti. Leikmenn ÍBV vom þó ekki að
spila sinn besta hálfleik í sumar en
baráttan skilaði liðinu fjölmörgum
fæmm sem ekki nýttust. Hvað eftir
annað virtist sem Fylkismenn hefðu
fengið hjálp frá æðri máttarvöldum
við að halda tuðmnni utan mark-
línunnar en það þarf meira til en æðri
máttarvöld til að stoppa Inga Sigurðs-
son þegar hann kemst í ham. Ingi
hafði ekki fundið sig framan af
leiknum en þegar tíu mínútur vom til
leiksloka virtust engin bönd halda
honum. Það kom því kannski ekki á
óvart að það var Ingi sem jafnaði
leikinn, aðeins tveimur mínútum fyrir
leikslok og vom áhorfendur í sjöunda
himni enda leit allt út fyrir framleng-
ingu. En leikmenn ÍBV vom ákveðnir
í að klára dæmið fyrir leikslok og
áfram hélt liðið að sækja. Það var svo
eftir frábæran samleik IBV sem
Tómas Ingi Tómasson fær boltann inn
á teig, sendir á Steingrim sem átti ekki
í vandræðum með að klára færið og
tryggja ÍBV sætan sigur og fyrir vikið
er IBV komið í úrslitaleik bikar-
keppninnar sem fer fram sunnudaginn
24. september.
Árið 1992 mættust þessi sömu lið í
lokaumferð efstu deildar í hreinum
úrslitaleik um hvort liðið félli. Þá, eins
og nú réðust úrslit ekki fyrr en á
síðustu andartökum leiksins. Martinn
Eyjólfsson, sem fékk viðumefnið
bjargvætturinn eftir að hafa bjargað
ÍBV frá falli á síðustu sekúndu tvö ár í
röð, skoraði á 93. mínútu leiksins eða
á sömu mínútu og Steingrímur Jó-
hannesson í gær.
Hlynur Stefánsson fyrirliði sagði
eftir leikinn að Ingi hefði komið IBV
áfram. „Þetta leit ekki vel út hjá okkur
og þetta var að renna úr höndunum á
okkur en Ingi bjargaði okkur. Eg sá
hann koma fyrir utan teiginn á fullu og
ákvað að láta gamla brýnið fá eitt
tækifæri í viðbót og sem betur fer
gerði ég það. Ingi skoraði með
glæsilegu skoti í stöngina, mark-
manninn og inn. Markið stappaði í
okkur stálinu og við ákváðum að
reyna að klára þetta. Eg hvatti mína
menn áfram því það fer svo mikið
púður í framlengingu í svona leikjum.
Við höfðum engu að tapa, urðum að
taka áhættu og það gekk eftir. Við
settum okkur það markmið í byrjun að
verða bikarmeistarar og núna erum
við komnir í úrslitaleikinn þannig að
núna þurfum við bara að klára dæmið.
Við erum komnir í leikinn sem allir
vilja spila, sjálfan bikarúrslitaleikinn,"
sagði Hlynur.
ÍBV spilaði 4-5-1: Birkir Kristinsson,
Páll Guðmundsson, Páll Almarsson,
Bjami Geir Viðarsson, Goran Aleksic,
Momir Mileta, Hjalti Jónsson, Baldur
Bragason, Ingi Sigurðsson, Stein-
grímur Jóhannesson.
Varamenn sem komu inn á: Tómas
Ingi Tómasson og Jóhann Möller.
Tap í bikarnum
Annar flokkur karla lék á laugar-
daginn gegn KR í undanúrslitum
bikarkeppninnar. ÍBV hafði unnið
báðar viðureignir liðanna í deild-
inni, 8-1 hér heima og 2-4 í
Frostaskjóli en sá leikur fór fram
nokkrum dögum áður en kom að
bikarleiknum. Því voru menn
nokkuð vongóðir um að liðið
kæmist alla leið í úrslitaleikinn en
því miður gekk það ekki eftir og
strákamir sálu eftir með sárt ennið.
Leikur liðsins olli áhorfendum
vonbrigðum framan af og í hálfleik
leiddu gestimir 0-2 eftir tvö frekar
slysaleg mörk. ÍBV sótti hins vegar
í sig veðrið, Unnar Hólm var færður
framar á völlinn og skapaði hann
mikinn usla í vöm KR-inga. Unnar
fiskaði m.a. víti sem Gunnar Heiðar
skoraði úr en það var svo Olgeir
semaðsáumaðjafnaleikinn. Ekki
vom skoruð fleiri mörk í venju-
legum leiktíma svo grípa varð til
framlengingar þar sem gestimir
voru mun ákveðnari og sigruðu í
leiknum ineð ljómm mörkum, 2-6.
Mörk ÍBV: Gunnar Heiðar og
Olgeir.
Burstuðu Breiðablik
ÍBV mætti svo Breiðabliki í deild-
inni á mánudaginn en Breiðablik er
í neðsta sæti ásamt norðurlands-
samkrullinu en þessi tvö lið eru
áberandi lélegust. Eyjastrákar vom
ekki í vandræðum með að tryggja
sér sigurinn í leiknum, 10-1 urðu
lokatölur leiksins og hefðu Eyja-
peyjar án efa getað haft það 20-1 ef
færin hefðu verið nýtt sómasam-
lega. Þess má geta að Gunnar
Heiðar skoraði fimm mörk í röð í
leiknum.
Mörk ÍBV: Gunnar Heiðar 5,
Olgeir, Davíð, Unnar, ívarog Atli.
Eiga enn
möguleika
Nú eiga strákamir möguleika á
Islandsmeistaratitli en síðasti leikur
liðsins er í kvöld gegn Fylki. ÍBV
er sem stendur í öðm sæti, stigi á
eftir Keflavík en fjögur lið eiga
möguleika á titlinum fyrir síðustu
umferð. En möguleikar ÍBV felast
í því að Kellavík tapi stigum gegn
ÍA uppi á Skipaskaga en Skaga-
menn eiga aðeins tölfræðilegan
möguleika á titlinum enda þremur
stigum á eftir Keflavík og með mun
lakara markahlutfall. Þess má til
gamans geta að IBV hefur lang
bestu markatölu liðanna í A-riðli
eða 26 mörk í plús.
Eiga líka möguleika
Annar ilokkur kvenna á eftir að
leika þrjá leiki í deildarkeppninni,
gegn KR á heimavelli og tvo leiki
gegn Breiðabliki, en á ekki Iengur
möguleika á meistaratitli. Liðið er
sem stendur í þriðja sæti deildar-
innar, tveimur stigum á eftir KR en
Breiðablik er stigi á eftir ÍBV. Það
mun því ráðast í síðustu þremur
leikjunum hvar stelpumar enda
tímabilið.
Framundan
Fimmtudagur 7. september
Kl. 18.00 ÍBV - Fylkir 2.fl. karla
Sunnudagur 8. september
Kl. 14.00 KR - IBV Landssíma-
deild karla.
Sunnudagur 24. september
Úrslitaleikur bikarkeppninnar.