Fréttir - Eyjafréttir - 28.09.2000, Side 2
2
Fréttir
Fimmtudagurinn 28. september 2000
Eyjar 2010:
Undirbúningsfundur
ungs fólks í Reykjavík
Frá undirbúningsfundinum sem haldinn var í Reykjavík síðastliðinn fimmtudag, þar sem fólk
skeggræddi um framtíð Eyjanna.
Bæjarráð styrkir ekki
samkynhneigða
Fyrir fundi bæjarráðs á mánudag lá
bréf frá Samtökunum 78 þar sem
leitað er eftir styrk að upphæð kr.
50 þús. til stöðu jafnréttis- og
fræðslufulltrúa. Nokkuð árvisster
að slíkt erindi berist á haust-
mánuðum inn á borð bæjaryfir-
valda frá þessum samtökum
samkynhneigðra á íslandi. Fram til
þessa hefur þeim erindum verið
hal'nað og að þessu sinni varð engin
breyting á, eða eins og segir í
fundargerð bæjarráðs: „Bæjarráð
geturekki orði við erindinu.“
Frítt lið á hafna-
sambandsþing
Ársfúndur Hafnasambands sveitar-
félaga verður að þcssu sinni haldinn
á Akureyri dagana 12. til 13. okt.
nk. Fulltiúar Vestmannaeyjahafnar
verða þeir Guðjón Hjörleifsson,
bæjarstjóri og formaður hafnar-
stjómíir, Ólalúr Kristinsson, hafnar-
stjóri, Hallgrímur Tryggvason og
Valmundur Valmundsson. Vara-
fulltrúar eru þeir Ásmundur Frið-
riksson og Hörður Þórðarson.
Heimilt að hefja lax-
eldi
Fyrr í sumar barst hafnarstjórn
erindi frá Fiskeldisfélaginu íslands-
laxi hf. þar sem lýst er áhuga fyrir
að hefja sjókvíaeldi á laxi í
Klettsvík. Á fundi hafnarstjómar í
síðustu viku var samþykkt að
heimila íslandslaxi að hefja slíkt
eldi í Klettsvík eftir nánara sam-
komulagi um staðsetningu.
Hækkuð gjaldskrá
íþróttamiðstöðvar
Á síðasta fundi íþróttaráðs var
samþykkt ný gjaldskrá fyrir
íþróttamiðstöðina en gjaldskrá
hennar hefur verið óbreytt frá 15.
janúar 1997. Helstu breytingar eru
þessar, (eldra verð í sviga):
Sund, fullorðnir:
10 miða kort 1500 kr. (1200)
30 miða kort 3900 kr. (3000)
árskort 18000 kr. (17000)
hálfsárskort 9000 kr. (nýr kostur)
eittskipti 200 kr. (160)
Sund, börn:
lOmiðar 500 kr. (350)
eittskipti lOOkr. (70)
Líkamsrækt:
20 miða kort 6000 kr. (4000)
3 mán. kort 9000 kr. (nýr kostur)
eitt skipti 400 kr. (300)
Sólarlampi:
10 núða kort 4200 kr. (3500)
eitt skipú f.h. 400 kr. (420)
eitt skipti e.h. 500 kr. (420)
Gufubað:
20 miða kort 6000 kr. (4000)
eitt skipti 400 kr. (300)
Leiga á handklæði
og sundlötum: 200 kr. (170)
Tilfærsla fundar
vegna ráðstefnu
Á fundi bæjarráðs, fyrr í þessum
mánuði, var ákveðið að næstu
fundir bæjarstjórnar yrðu haldnir 5.
október og 2. nóvember nk. Nú
hefur fundurinn, sem átti að vera 2.
nóvember, verið færður til 31.
október þar sem fjármálaráðstefna
sveitaifélaga verður haldin dagana
2. og 3. nóvember.
Síðstliðinn fimmtudag var haldinn
undirbúningsfundur Vestmanna-
eyinga sem búa á Stór-Reykja-
víkursvæðinu og ætla að taka þátt í
ráðstefnunni Eyjar 2010 sem haldin
verður í Týsheimilinu 14. október
næstkomandi. Undirbúnings-
fundurinn var haldinn á veitinga-
staðnum Klaustrinu, en um þrjátíu
manns komu á fundinn og sýnir
það vel hversu mikill áhugi er fyrir
ráðstefnunni.
Fundarmenn voru mjög ánægðir
með þetta ráðstefnuframtak, en fund-
armenn voru bæði námsfólk og ungt
fólk sem lokið hefur námi og er í
vinnu á Reykjavíkursvæðinu. Töldu
allir frumkvæðið mjög gott ekki síður
en þarft. „Það þarf að skapa jákvæða
umræðu í samfélaginu til mótvægis
við hið neikvæða, sem allt virðist vera
að drepa í drórna," eins og fundar-
menn komust að orði.
Þeir hópar sem myndaðir vom á
undirbúningsfundinum í Reykjavík
munu meta stöðu Vestmannaeyja út
frá sjónarmiðum borgarsamfélags og
þéttbýlis undir yfirskriftinni „Horft
heim til Eyja.“ Hópamir munu taka
fyrir öll þau viðfangsefni sem
hópamir í Eyjum fjalla um, en frá
áðumefndum sjónarhóli. En eins og
skýrt hefur verið frá em þemu
hópanna: Atvinnumál og viðskipta-
tækifæri, mannlíf og menning,
lífsgæði og ný viðhorf, samgöngur og
ferðamál, frítími og fjölskyldan,
menntun og íþróttir.
Hópamir hafa allir hafið störf og
miðað við áhuga þátttakenda er ljóst
að ráðstefna af þessu tagi er löngu
tímabær. Hópamir munu svo vinna úr
hugmyndum sínum á ráðstefnunni,
skiptast í vinnuhópa og skila niður-
stöðum að lokum. Niðurstöðumar
verða svo kynntar í prentuðu máli, en
einnig mun verða opnuð vefsíða:
http://www.eyjar2010.eyjar.is Á vef-
síðunni sem gert er ráð fyrir að muni
verða komin á netið næstkomandi
föstudag verður skoðanaskiptasvæði,
þar sem fólk getur opnað hug sinn og
lagt fram hugmyndir og ekki síður
fylgst með fréttum af hópastarfmu.
Upplýsingar um gang ráðstefnunnar
munu einnig verða settar á síðuna á
meðan á ráðstefnunni stendur.
Ráðstefnan verður eins og áður sagði
14. október. Látí nú allt ungt fólk í sér
heyra; framtíðin er ekki bara í
höndnum þeirra sem nú fara með
stjóm. Framtíðin er í höndum þeirra
sem vilja og þora að opna fyrir
skoðanir sínar, ekki seinna en strax.
Nú er tækifærið.
Rólegheitavika
Mjög rólegt var í liðinni viku hjá
lögreglu og engin alvarleg atvik
sem upp komu. T.d. bárast engar
kærur vegna líkamsmeiðinga né
heldur vegna þjófnaða eða
skemmdarverka. Helgin var líka
einkar róleg enda margir tjar-
verandi úr bænum vegna bikar-
úrslitaleiksins. Ekki þótti heldur
sérstök ástæða til hátíðahalda að
honum loknum þannig að lögregla
þurfti ekki að hafa viðbúnað vegna
þess.
Námskeið fyrir
veiðimenn
Rétt er að benda veiðimönnum á
hæfnisnámskeið sem haldið verður
í Vestmannaeyjum 5. október nk.
og lýkur með hæfnisprófi. Slík
námskeið verða allir veiðimenn að
sækja, sama hvort er um að ræða
skotveiðimenn, þá sem veiða með
háf eða í gildrur. Þessi námskeið
era aðeins haldin einu sinni á ári á
hverjum stað og veiðikort era
aðeins gefin út til handa þeim sem
sótt hafa þau og lokið hæfnisprófi.
Þetta námskeið er nánar auglýst í
blaðinu í dag, það tekur aðeins
fjórar klukkustundir og kostar sex
þúsund kr. Nánari upplýsingar er
að fá á Lögreglustöðinni, þar fást
líka þau gögn sem nota þarf auk
þess sem unnt er að skrá sig þar.
Fylgst með umferð
og útivist
Að undanfömu hefur lögregla haft
virkt eftirlit með umferðinni við
grannskólana, fylgst með aksturs-
lagi og hraða, ekki síst við gang-
brautír. Þá hefur einnig verið fylgst
vel með því að reglur um útivist
bama og unglinga séu virtar og
talsvert um að ungu fólki hefur
verið vísað heim, fólki sem verið
hefur á stjái eftír að löglegum
útivistartíma þess hefur verið lokið.
Lögreglumaður, sem rætt var við,
segir að yfirleitt taki það sept-
embermánuð að viðkomandi átti
sig á þeint reglum, síðan virðist
hægjast um í þeim efnurn.
Klippur á lofti
í vikunni voru númer klippt af átta
bifreiðum. ýmist vegna vangold-
inna bifreiðagjalda eða að þær
höfðu ekki verið færðar til skoð-
unar. Lögregla biður bifreiðaeig-
endur um að kippa þeim máluin í
lag, að sögn lögreglumanna er það
með leiðinlegri verkum sem þeint
eru falin. þegar þeir era sendir af
stað með klippurnar.
Bæjarráð
styður stjórn Herjólfs
Fyrir fundi bæjanáðs á mánudag lá
afrit af bréfi stjómar Herjólfs hf. til
vegamálastjóra, þar sem leitað er
upplýsinga um þær tölur og for-
sendur sem kostnaðaráætlun Vega-
gerðar ríkisins byggir á, vegna
útboðs á rekstri Heijólfs. Bæjarráð
tekur undir það erindi stjómar
Heijólfs hf.
Uni síðustu helgi komu í heimsókn til Eyja þeir Sigmundur Eyþórsson, slökkviliðsstjóri í Reykjanesbæ
og Jón Guðlaugsson, varaslökkviliðsstjóri. I fylgd með þeim voru tveir slökkviliðsmenn frá Lindsberg í
Svíþjóð, þeir Zamo Kristiansen, slökkviliðsstjóri og Harry Birgerson, aðalvarðstjóri. Lindsberg er milli
Gautaborgar og Stokkhólms og er íbúafjöldi á svæðinu um 25 þúsund manns.
Gestirnir fylgdust með reykköfunaræfingu slökkviliðsins hér og veltu fyrir sér útkallsstyrk á fyrstu
mínútum útkalls en lágmarksreglur hafa verið settar um slíkt í Svíþjóð. Þær reglur tilgreina
nákvæmlega lágmarksútkallsstyrk og útkallstíma í Svíþjóð, með tilliti til útkallssvæða í dreifbýli og stærri
borgum.
Á myndinni eru, frá vinstri: Harry Birgerson, Jón Guðlaugsson, Sigmundur Eyþórsson, Elías
Bald vinsson og Zamo Kristiansen.
FRETTIR
8
tgefandi: íVjspHQt dif. VestBHnrBeyjim. RLhstrj ri: nar ter arsscn. Bla amenn: toedikt Gsstsscn & SLgurgeir
J nsscn. " r ttír: Jóel us lirpscn. 'byrg armenn: rrar Gar arsscn & G sli Vblt ssan.
Erarivima: Eyjcprent dtf. VestiranrBe/juti. A ætur ritstj rrar: Straniegi 47 n. h . SmL: 481-3310. M^rclriti:
481-1293. tfetfang/rafp stur: fæetLtS^óar.is. Vfeffang: http/Aww.eyþftettir.is.
FR TTIR tara œt alla fmntirkp. Bla i a: selt Itekrift og eimig laras lu Himinm, Kletti, ''feLtirgadÆlniri Eri arh fn, TVistinm, ftnigo, KrSri, V rual, Iferj Ifi.,
Elugval larverslunimi, Ihnganun, S lusManin Eri arh fn. " Re^kjav k: hjÆ Efeæ St ragar i cg Flugta: urá Æ Efe^cjav kurflugveillL. FR TTIR eru praita ar 2000
eint kum.