Fréttir - Eyjafréttir - 28.09.2000, Blaðsíða 16
16
Fréttir
Fimmtudagurinn 28. september 2000
Byggingin á vatnstankinum:
Viljum að rödd þeirra jákvæðu fái að heyrast
f
- segja Þórarinn Olason og Emelía Guðgeirsdóttir
Frá upphafí framkvæmda við tankinn og væntanlega byggingu. Síðan hefur runnið
nokkuð vatn til sjávar og sýnist sitt hverjum um ágæti framkvæmdarinnar.
Nokkur umræða hefur verið í
bænum um fyrirhugaða bygg-
ingu veislu- og ráðstefnuhúss á
vatnstankinum við Löngulág.
Mörgum finnst að umræðan um
hygginguna hafí einkennst af
neikvæðni og fjandsamlegum
viðhorfum í garð þeirra sem að
byggingunni standa. Að minnsta
kosti hafa Emelía Guðgeirsdóttir
og Þórarinn Olason mjög ákveð-
nar skoðanir varðandi hin
neikvæðu viðhorf og fínnst ilit til
þess að vita að örfáir einstakling-
ar skuli reyna að leggja stein í
götu þeirra manna sem sýna
viðleitni til efíingar atvinnu-
rekstri og uppbyggingu í Eyjum.
Sjónarmið örfárra
Þórarinn segir að það eina sem heyrist
í umræðunni sé að byggingin muni
eyðileggja lífsskilyrðin fyrir þeim
aðilum sem látið hafa hvað hæst við
að mótmæla henni. „Sjónarmið
örfárra virðast ráða ferðinni. Það hefur
verið talað um það í bænum að svona
hús vanti. Þama eru tveir menn
tilbúnir að leggja allt sitt í þetla og
helja framkvæmdir. Þá á allt í einu að
fara að bregða fyrir þá fæti. Grímur
ætlar að fara í þetta húsnæði með
veisluþjónustu sína, auk þess að setja
á fót annað fyrirtæki sem kemur til
með að veita fimm til sex manns
atvinnu. Af hverju horfa menn ekki í
þetta. Eg trúi því ekki að ekki sé hægt
að sætta ólík sjónarmið í þessu máli.
Það er hægt ef menn vilja. Menn
verða að virða að þama er um
uppbyggingu að ræða.“
Emelía bætir við að þar fyrir utan tali
þeir fyrir hönd alls hverfisins og segi
að nágrannamir séu ekki hlynntir
framkvæmdinni. „Það hefur ekki
verið talað við alla þessa nágranna svo
ég viti til.“
„Setjum okkur það, að við fáum
ráðstefnur hingað með tilkomu
hússins,“ segir Þórarinn. „Þá er verið
að selja þeim aðilum gistirými og
ýmsa þjónustu sem tengist því.“
Fólk vill uppbyggingu
En um gagnrýni þeirra að um
óeðlilega afgreiðslu málsins hafi verið
að rœða í stjómkerfi bœjarins?
Emelía: „Það er nefnilega það sem
við stöndum ekki fyrir. Við emm ekki
að láta í okkur heyra vegna pólitíkur.
Þetta er bara okkar rödd og fólks í
bænum, sem við teljum nauðsynlegt
að fái að heyrast. Fólk vill að í Eyjum
sé uppbygging. Ég er ekki pólitíkus og
veit ekki hvað gerist á bæjar-
skrifstofunum. En það er vitað að
þama átti að rísa félagsheimili sam-
kvæmt skipulagi, það er það eina sem
ég veit, svo að þetta ætti ekki að koma
þessum fjórum til fimm neikvæðu
röddum á óvart. Af hveiju ekki að líta
þetta jákvæðum augum og reyna að
byggja eitthvað upp í stað þess að vera
með fýlu og neikvæðni. Hvað er til
dæmis að því þó að komi matarlykt í
kringum Smáragötuna, sem hafa verið
ein rök andbyggingarsinna. Þetta er
bara mgl og allir sem vilja vita sjá að
þessi bygging rís.“
Þórarinn: „Ég held að það sé nú
ekki sú hættulegasta lykt sem komið
heí'ur í bæinn. Maður hefur það á
tilfinningunni að staðan sé þannig að
þessir menn sem era að reyna að
byggja hér eitthvað upp verði að tapa
nógu miklu úr því þeir vora að fara út
í þetta. Klappa svo á bakið á þeim og
segja: „Ég á ekkert sökótt við þig, það
era hinir.“ Af því að það var nefnt hér
að byggingin hefði ekki farið í
eðlilegan farveg í stjómkerfmu, þá
spyr ég, hvað er eðlilegur farvegur í
þessu sambandi? I gegnum tíðina hafa
byggingar risið hér í bænum. Ætli
þessi bygging sé ekki sú sem átt hefur
hvað lengstan og löglegastan aðdrag-
anda af öllum byggingum sem reistar
hafa verið í Vestmannaeyjum?"
Að horfa til framtíðar
Emelía vill ítreka að það sem þau
hafi haft í huga þegar þau vildu tjá sig
um þetta mál hafi verið að koma af
stað jákvæðri umræðu. „Þannig að
rödd þeirra jákvæðu gagnvart þessari
byggingu fái að heyrast og það er held
ég meirihluti bæjarbúa. Hvað eru þetta
margir menn sem vilja stoppa þetta á
móti þeim sem era jákvæðir og vilja
sjá uppbyggingu í bænum?“
Þórarinn: „Það er enginn heldur að
tala um að í lýðræðisþjóðfélagi sé
hægt að stíga ofan á menn og segja
þeim að þeir ráði engu. Það er tekið
tillit til ákveðinna sjónarmiða, en
menn verða líka að gera sér grein íyrir
því hver lagalegur réttur þeirra er
varðandi þessa byggingu. Ég trúi ekki
öðra en að þeir menn sem stjóma
bænum hafi hugsað sig vel um áður
en byggingarleyfið var gefið út. Ef til
þess kæmi að þetta yrði stoppað af, þá
er bæjarstjómin í vondum málum held
ég. Við þekkjum dæmi um svona í
Reykjavík, þar sem borgin hefur orðið
skaðabótaskyld gagnvart bygginga-
framkvæmdum sem hætt hefur verið
við. Ekki bætir það stöðuna. Eru
þessir menn sem mótmæla fram-
kvæmdunum tilbúnir til þess að taka
það á sig? Ég sem íbúi þessa bæjar er
ekki tilbúinn til þess.“
Eru einhverjar aðgerðir í uppsiglingu
til stuðnings byggingaframkvœmd-
unum?
Emelía: „Við voram að velta því
fyrir okkur að setja undirskriftalista í
verslanir til þess að kanna huga hins
almenna bæjarbúa gagnvart bygging-
unni.“
Þórarinn: „Það yrði þá líka til þess
að sýna þeim mönnum sem vilja
byggja húsið hver vilji Eyjamanna
er.“
Emelía: „Ég held líka að tími sé til
kominn að Vestmannaeyingar fari
aðeins að horfa upp af borðinu og
horfa jákvætt á nútíðina og til
framtíðar."
Bikarinn á Skagann
- ÍBV ekki í Evrópukeppni næsta ár
Það er óhætt að segja að dramatíkin hafi verið allsráðandi í
leik IBV og IA í úrslitum bikarkeppninnar á sunnudaginn.
Bæði þessi lið höfðu lent í vandræðum í undanúrslitum, ÍBV
var undir gegn Fylki þar til fimm mínútur voru eftir og
Skagamenn voru undir fram á síðustu stundu gegn FH
þannig að liðin stóðu undir nafni og sigurmarkið í
úrslitaleiknum kom þegar þrjár mínútur voru komnar fram
yfir venjulegann leiktíma. Skagamenn sigruðu í leiknum, 1-2
og er það í þriðja sinn í röð sem þeim tekst að leggja IBV í
úrslitaleik bikarkeppninnar með sömu markatölu.
Það var eins og einhver værð væri yfir Eyjamönnum fyrir leikinn,
stuðningsmenn liðsins létu sjá sig fyrir leik í Laugardalshöllinni en
stemmninguna vantaði. Ekki verður fullyrt hér hvort
stemmningsleysið hafi skilað sér til leikmanna en IBV var nánast
á hælunum fyrstu fimmtán mínútumar. Það er alveg á hreinu að
IBV hefur á betri einstaklingum á að skipa en Skagamenn, en það
virðist fylgja liðinu í flestum leikjum einhver deyfð þegar ekki er
spilað á Hásteinsvellinum. IBV spilaði illa í leiknum, mótheijinn
reyndar líka en þó vora þeir það skárri að þeir náðu að pota inn
einu marki meira en ÍBV.
Fyrri hálfleikur var verri af þeim tveimur sem spilaðir vora á
sunnudaginn. IBV var lengi í gang og leikmenn virtust ekki
tilbúnir í leikinn. En liðið sótti í sig veðrið og Steingrímur var ekki
langt frá því að skora eftir homspymu á 29. mínútu en skot hans
fór rétt framhjá. Skagamenn skoraðu fyrsta mark leiksins þremur
mínútum fyrir leikhlé en markið var réttilega dæmt af enda var
brotið á Birki.
Seinni hálfleikur var meiri skemmtun og þremur mínútum eftir að
flautað var til leiks átti Momir glæsilegt skot beint úr aukaspymu
sem hafnaði í þverslá. Reyndar var spyman óbein og ólíklegt að
markið hefði verið dæmt gilt. Skagamenn komust svo yfir á 57.
mínútu eftir að vamarmenn IBV voru fullrólegir í sínum leik.
Aðeins fimm mínútum seinna skoraði Bjami Geir gullfallegt mark
með hnitmiðuðu skoti af 30 metra færi. Sigurmarkið kom svo
eftir að venjulegur leiktími var liðinn og aftur virtust vamarmenn
IBV fullrólegir miðað við aðstæður, enda vora flestir famir að
gera sig klára fýrir framlengingu. Reyndar lagði Skagamaðurinn,
sem átti fyrirgjöfina, boltann fyrir sig með hendinni og súrt að tapa
með slíkum hætti en sigur Skagamanna verður þó að teljast fylli-
lega sanngjam.
Leiktímabilsins árið 2000 verður seint minnst fyrir mikil afrek.
IBV endaði deildina í fjórða sæti, komst í úrslitaleikinn í
bikarkeppninni en tapaði honum. Árangur liðsins er sá slakasti
síðan 1996 en það ár tapaði IB V einmitt líka gegn Skagamönnum
í úrslitaleik bikarkeppninnar. Góðu fréttimar era hins vegar þær
að liðið er í uppbyggingu, Hjalti Jóns., Bjami Geir og Páll Almars
era framtíðarleikmenn liðsins og fengu sína eldskím í fastaliðinu
í sumar. Þar fyrir utan bíða leikmenn eins og Atli Jóhanns,
Gunnar Heiðar og Unnar og verður ekki langt að bíða uns þeir fara
að láta að sér kveða.
IBV spilaði 4-5-1: Birkir Kristinsson, Páll Guðmundsson, Kjartan
Antonsson, Hlynur Stefánsson, Páll Almarsson, Momir Mileta,
Bjami Geir Viðarsson, Baldur Bragason, Goran Aleksic, Ingi
Sigurðsson, Steingrímur Jóhannesson.
Varamenn sem komu inn á: Hjalti Jónsson og Tómas Ingi
Tómasson.