Fréttir - Eyjafréttir - 28.09.2000, Blaðsíða 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 28. september 2000
Meistaraflokkur kvenna í handbolta:
Handknattleikslið ÍBV
2000 - 2001
Meistaraflokkur kvenna ÍBV í handbolta 2000 til 2001 ásamt þjálfurum og stjórnarmönnum.
Mikið breytt lið hjá stelpunum
03 erfitt til að byija með
- sesir fyrirliðinn Vigdís Sigurðardóttir
Landa-
KIRKJA
Fimmtudagur 28. september:
Kl. 17.00. Æfingabúðir hjá Litlum
lærisveinum Landakirkju hefjast í
Skátaskykki.
Kl. 17.30 TTTstarfið. Allir 10-12
ára krakkar velkomnir. Garðar Öm
og Halldór Ingi mæta með sund-
hettu.
Föstudagur 29. september:
Kl. 19.00. Handverkssýning heima-
manna verður opnuð í Safnaðar-
heimilinu að viðstöddum prófasti
Kjalamesprófastsdæmis, dr. Gunn-
ari Kristjánssyni, og nokkmm
fundarmönnum héraðsfundar. Sýn-
ingin er opin til kl. 21.00.
Laugardagur 30. september:
Kl. 13.30. Háu'ðarmessa helgarinn-
ar. Með þessari messu lýkur
hátíðahöldum í Kjalamesprófasts-
dæmi vegna 1000 ára kristni á
Islandi. Einsöngvari verður Sigrún
Hjálmtýsdóttir. Hátíðarkór Vest-
mannaeyja syngur ásamt félögum
úr öðmm kirkjukórum prófasts-
dæmisins. Söngstjóri er Guð-
mundur H. Guðjónsson, en honum
til aðstoðar verða organistamir
Einar Öm Einarsson og Úlrik
Ólafsson. Skfm og altarisganga.
Eftir messu er kirkjugestum boðið
að snæða risatertu sem gefm er af
Vilberg kökuhúsi og Magnúsar-
bakaríi áður en haldið verður á
Skansinn. Ath. að messa þessarar
helgar er á laugardegi.
Sunnudagur 1. október:
Kl. 11.00. Bamaguðsþjónusta með
leik og söng og mikilli lofgjörð.
Allir byrja saman í kirkjunni en
síðan færa yngri þátttakendur sig
yfir í Safnaðarheimilið. Athugið að
hátíðarmessa helgarinnar verður
laugardaginn 30. september kl.
13.30.
Kl. 20.30. Æskulýðsfundur, Æsku-
lýðsfélag Landakirkju. Allir í 8. -
10. bekk velkomnir. Garðar Heiðar
og Ingveldur gefa öllum bland í
poka.
Þriðjudagur 3. október:
Kl. 16:30. KKK Kirkjuklúbburinn
Kirkjuprakkarar, 7-9 ára.
Miðvikudagur, 4. október:
Kl. 12.00. Fyrsta bæna- og
kyrrðarstund vetrarins í Landa-
kirkju. Organleikurog íyrirbænir.
Kl. 20.00 - 22.00. Opið hús í
KFUM & K húsinu, borðtennis,
fótbolti, snóker... bara nefndu það.
Fimmtudagur 5. október:
Kl. 17.30. TTT starfið. Nú borgar
sig að mæta, því dálítið óvænt
verður framkvæmt.
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20.30 Biblfulestur.
Laugardagur
Kl. 20.30 Bænasamkoma,
Sunnudagur
Kl. 15.00 Vakningarsamkoma
Allir hjartanlega velkomnir á
samkomur sem hafa áhrif.
Hvítnsunnumenn
Aðventkirkjan
Laugardagur 30. september
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.
Kl. 11.00 Guðsþjónusta
Ræðumaður Frode Jakobsen
Allir hjartanlega velkomnir.
Biblían talar
sími
481-1585
Vigdís Sigurðardóttir hefur lengi
verið í fremstu röð meðal mark-
manna í íslenskum handknattleik.
Vigdís hefur lengst af spilað með
ÍBV, fyrir utan þrjú tímabil sem
hún spilaði með Haukum og var
m.a. fyrirliði liðsins í eitt tímabil.
Vigdís byrjaði aftur með IBV á
síðasta tímabili og er nú orðinn
fyrirliði IBV í fyrsta sinn.
Hvemig hefur undirbúningur liðsins
gengið ?
„Hann hefur verið ágætur hjá
grunnhópnum, en við höfum verið að
fá mikið af nýjum stelpum. Færeyska
stelpan var að koma og svo kemur
önnur til viðbótar þannig að ég býst
alveg við því að þetta verði dálítið
erfitt hjá okkur til að byrja með. Við
erum með mikið breytt lið frá því í
fyrra þannig að fyrstu leikimir fara
kannski í það að sdlla saman strengina
en í nóvember verður gert hlé á
deildinni sem við munum nýta okkur
og það má kannski segja að það verði
okkar undirbúningstímabil."
Hvemig lístþérá deildina ?
„Þetta verður örugglega mjög jafnt í
vetur. Það eru kannski tvö til tjögur
lið sem eiga möguleika á að stinga hin
svolítið af en ég held samt sem áður
að liðin verði að vinna hvert annað í
vetur. Það hafa miklar manna-
breytingar átt sér stað hjá mörgum
liðum í deildinni, Haukar eru með
mjög góða einstaklinga innanborðs og
Stjaman líka en svo er bara spuming
hvemig þeim tekst að vinna saman
sem lið.“
Og hver eru markmið ykkar í vetur ?
„Að sjálfsögðu stefnum við á það
að verja titilinn og vinnum kannski út
frá því. En það er vitað mál að það
verður erfitt hjá okkur, sérstaklega
fyrstu leikimir enda em leikmenn enn
að tínast inn í hópinn. Við stefnum
kannski fyrst og fremst á að komast í
úrslitakeppnina. Eg held að það sé
ágætis markmið."
Heldurðu að ykkur takist að verja
titilinn í vetur ?
„Eg held ekki. Við verðum að
sjálfsögðu erfiðar heim að sækja og
verðum sjálfsagt í efri hluta deildar-
innar en liðið er ungt að ámm, þannig
að ég hef kannski ekki mikla trú á að
við verjum titilinn. Það er bara svo
erfitt að ætla búa til meistaralið á einu
ári, við eigum kannski frekar mögu-
leika á næsta tímabili en þetta tímabil
verður kannski frekar notað til þess að
móta liðið. Annars á maður aldrei að
segja aldrei. Það vom nú ekki margir
sem spáðu okkur sigri í íslandsmótinu
í fyrra þannig að ég útiloka ekkert.“
En hvemig leggstfyrirliðahlutverkið í
þig?
„Bara ágætlega. Eg var íyrirliði hjá
Haukum í eitt ár þannig að ég veit um
hvað málið snýst. En það er mikil
eftirsjá í Ingibjörgu sem fyrirliða, hún
er fyrirliði af lífi og sál og mikil
fyrirmynd fyrir ungu stelpumar. Hún
verður bara að vera mér til halds og
trausts enda efast ég ekki um að hún
verði með okkur á bekknum í vetur þó
hún spili ekki.“
Þorvarður Þorvaldsson er að hefja
sitt þriðja ár sem formaður hand-
knattleiksdeildar kvenna. Hann
segir m.a. að hópurinn hafi nánast
verið fullmótaður í júní en þá fór
allt í baklás.
„Þetta er búið að vera mjög erfitt í
leikmannamálum hjá okkur. Við
töldum okkur vera komin með lið í
enda júní en svo kom skellur í enda
ágúst og leikmenn sem við héldum að
yrðu með okkur ákváðu að fara annað.
Það má segja að við höfum misst átta
leikmenn frá því í fyrra en hópurinn
þá var fámennur þannig að við emm
nánast að byrja upp á nýtt. Það gekk
reyndar mjög vel að fá íslensku
stelpumar en þær koma m.a. frá ÍR og
Aftureldingu. Svo hefur ráðið þurft að
leita á hveijum einasta degi að leik-
mönnum út um alla Evrópu og hefur
Hlynur sinnt því frábærlega. Þetta
virðist vera að ganga upp hjá okkur.
Við emm að fá tvær færeyskar stelpur
og svo emm við búnir að ganga frá
samningi við úkraínska vinstri handar
skyttu sem lofar góðu. En við emm
náttúmlega bara bjartsýnir á veturinn
þó svo að við séum nokkuð á eftir
hinum liðunum en yngri stelpumar
sýndu það á móti Val í leiknum um
meistara meistaranna að þær em
tilbúnar að leggja sitt af mörkum."
En er þetta ekki eilífðar barátta með
leikmannamálin ?
„Jú því miður er staðreyndin sú að
við búum í fámennu bæjarfélagi og í
ofanálag missum við margar stelp-
umar í skóla á höfuðborgarsvæðið
þegar þær hafa lokið framhalds-
skólanáminu þannig að ég sé ekki að
það sé hægt annað en að vera með
þrjár til fjórar aðkomumanneskjur á
hveiju ári. Svo emm við líka í
samkeppni við fótboltann en þó við
séum að fá leikmenn þá þurfa þeir
ekkert frekar að vera erlendir, það er
bara svo erfitt að fá góða íslenska
leikmenn til okkar. En við höfum
metnað í þessu og sjáum engan tilgang
í að hanga í þessu á hálfum hraða.
Við emm einfaldlega keppnisfólk og
höfum metnað í að gera sem best. En
þetta kostar að sjálfsögðu allt peninga,
kannski sérstaklega hjá okkur hér í
Eyjum. Það gekk vel í fyrra, við
klámðum þá á núllinu en það kostaði
mikla vinnu.“
Viltu koma einhverjum skilaboðum til
stuðningsmanna liðsins ?
„Ég vil bara byija á því að þakka
fyrir stuðninginn á síðasta vetri,
kannski sérstaklega í úrslitakeppninni.
En við væntum til mikils af okkar
stuðningsfólki, sérstaklega í vetur
enda þurfum við sem Islandsmeistarar
kannski að leggja ennþá meira á okkur
í hverjum einasta leik. Ég vil bara
hvetja fólk til að mæta á leikina frá
byrjun, þá munum við ekki valda
stuðningsmönnum okkar von-
brigðum."
Nýir leikmenn:
Árún Ósk Guðgeirsdóttir frá Selfossi
Edda Garðarsdóttir úr Aftuereldingu
íris Sigurðardóttir úr Aftureldingu
Ingibjör Y r Jóhannsdóttir úr ÍR
Marina Bakulina frá Úkrainu
Gunnley Berg frá Færeyjum
Inga Falkvard Danberg frá Færeyjum.
Leikmenn farnir:
Guðbjörg Guðmannsdóttir
Hind Hannesdóttir
Anita Andreassen
Mette Einarsen
Anna Rós Hallgrímsdóttir
Ingibjörg Jónsdóttir
Andrea Atladóttir