Fréttir - Eyjafréttir - 28.09.2000, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 28. september 2000
Fréttir
9
Flugstöðin í Vestmannaeyjum:
Helstu annatímarnir kringum
stóra ferðamannahópa
- segir Garðar Arason, sem rekur veitingasöluna, og
hyggst bjóða myndlistarmönnum og fleirum að halda
sýningar í Flugstöðinni
Þann 5. júlí sl. tók Garðar
Arason í Þorlaugargerði
við rekstri veitingasölunnar
í Flugstöðinni. Reksturinn
var auglýstur í útboði en sú
breyting var ákveðin, eftir
stækkun Flugstöðvarinnar,
að sami aðili sæi inn öll þrif
stöðvarinnar. Þar til í
sumar höfðu hvor sinn aðili
séð um þessa þætti.
Gengið var að tilboði Garðars og eins
og áður sagði, tók hann við rekstrinum
í byijun júlí. Garðar er ekki með öllu
ókunnur rekstri af þessu tagi, hann var
um árabil verslunarstjóri hjá Kaup-
félaginu.
Að sögn Garðars geutr vinnudagurinn
orðið nokkuð langur, sérstaklega yfir
sumartímann, þá sé hann frá kl. sjö á
morgnana til miðnættis. Yfirveturinn
hægist heldur um, þá er veitingasalan
opin frá kl. sjö á morgnana til ld. sjö á
kvöldin. Garðar segist mest vinna
sjálfur í veitingasölunni en eigin-
konan, Ingibjörg Jónsdóttir, vinni þar
einnig. Aftur á móti hafi þurfit að bæta
við fólki kringum þjóðhátíðina, þá
hafi verið mikið að gera og varla hafst
undan enda óhemju ijöldi gesta sem
hingað kom með flugi.
Garðar segir að í veitingarekstrinum
sé ekki um stórar upphæðir að ræða
og ekki sé hægt að hafa lifibrauð af
honum nema kannski einn til tvo
mánuði á ári yfir sumarið. Aftur á
móti séu fastar tekjur fyrir þrifin. „En
þetta er svipað umfang og ég átti von
á, ég fékk góðar upplýsingar frá fyrri
rekstraraðila og vissi því alveg út í
hvað ég var að fara,“ segir Garðar.
Auk veitingarekstrar og minjagripa-
sölu er Garðar einnig með umboð
fyrir bflaleigu Akureyrar, hefur fjóra
til sex bíla til umráða og segir það
hagkvæman kost að taka hér bfl á
leigu.
Helstu annatímamir í veitingasölunni
eru þegar stórir ferðamannahópar
koma hingað og það er bundið við
sumartímann. Þó alltaf sé eitthvað um
að vera í kringum áætlunarflugið þá er
það miklu minna, Garðar segir að fólk
sé oft á síðustu stundu að mæta í flug
og hafi varla tíma fyrir kaffibolla.
Flugstöðin hefur leyfi til áfengis-
veitinga en Garðar segir að lítil traffík
sé í þeim. Menn kaupi sér kannski
einn bjór og útlendingamir fái sér
gjaman glas af léttvíni. Einhverjir
höfðu af því áhyggjur að áfengis-
veitingar á þessum stað gætu leitt til
vandræða en Garðar segir að það sé
síður en svo. Aldrei hafi nein
vandræði hlotist af vegna þess og
aldrei hafi þurft að kalla til Iögreglu
enda velji fólk sér sennilega aðra staði
en Flugstöðina, ætli það sér að setjast
að drykkju.
En Garðar fullyrðir að síðustu
hækkanir á flugfargjöldum hafi greini-
lega haft áhrif, farþegum hafi fækkað
og þar með viðskiptavinum í veitinga-
sölunni. „Eg tel fulla ástæðu til að
endurskoða stefnuna í fargjalda-
málum, fólk velur greinilega hag-
kvæmari kostinn þegar kemur að
ferðalögum,“ segir hann.
„Líklega verður komandi vetur
rólegur, þó fer það mikið eftir
tíðarfari. Ferðamannatíminn er líka
alltaf að lengjast, færist yfir á fleiri
mánuði ársins og hvort sú verður
þróunin hér, á tíminn eftir að leiða í
ljós. Ég er ánægður í þessu starfi og
Garðar í teríunni tilbúinn að taka á móti stórum hópum.
ýmislegt í farvatninu, t.d. hef ég fullan
hug á að bjóða listamönnum að halda
sýningar í húsnæði Flugstijðvarinnar.
Ymsar aðrar uppákomur gætu einnig
vel átt heima hér, hvort sem e r frá
verslunum eða öðrum. Húsnæðið
býður upp á slíkt og mér finnsl
sjálfsagt að nýta það til slíkra hluta,
bæði í þágu Eyjamanna og annarra.“
Sigurg.
Þessar myndarlegu og góðhjörtuðu stúlkur efndu til sölu
á vinaböndum sem þær höfðu búið til. Að því loknu
héldu þær að Hraunbúðum, þar sem þær afhentu Leu
Oddsdóttur forstöðukonu ágóðann, kr. 1.380 til styrktar
heimilinu. Þær eru frá vinstri. Tvíburarnir Dröfn
Haraldsdóttir og Bylgja Haraldsdóttir auk Bjarteyjar
Ingibergsdóttur. íbúar Hraunbúða þakka kærlega fyrir
sig.
Bændaglíma
á laugardag
Nú tekur að síga á seinni hluta golfvertíðarinnar. Á
laugardag er síðasta stórmótið á dagskrá hjá GV,
Bændaglíman. Þar keppa tvö lið og keppa saman tveir og
tveir með áþekka forgjöf. Að keppni lokinni mun svo
tapliðið þjóna sigurvegurunum til borðs í sameiginlegum
kvöldverði. Keppni hefst á laugardag kl. 13 en vakin er
athygli á því að skrá verður þátttöku í mótinu fyrir kl. 20 í
kvöld.
Að standa
sig ekki
Þegar ég skrifaði tiltölulega hóg-
væra grein um þá niðurlægingu
sem Eyjamenn mega sæta, nú
þegar þeir sjá á eftir rekstri
Herjólfs í hendur Samskips átti ég
von á viðbrögðum og andsvörum
en ekki í þeim anda sem kemur
fram hjá alþingismönnunum Árna
Johnsen, formanni samgöngu-
nefndar, og Lúðvík Bergvinssyni.
Báðir gera þeir geðslag mitt að
stóru atriði og þeir eru sammála
um að aðrir en þeir hafi ekki rétt á
að hafa skoðun á Herjólfsmálinu.
Mín persóna skiptir nákvæmlega
engu máli þegar Heijólfur er annars
vegar heldur það að Vestmanna-
eyingar eiga eftir að sjá lakari kostinn
verða ofan á í þessum mikilvægasta
þætti í samgöngumálum Eyjanna.
Þið ágætu menn, sem báðir eru
búsettir í Reykjavík, verðið að koma
auga á að Heijólfur er ekki rútubfll
sem fólk getur valið um samhliða
einkabflnum, hann er þjóðleiðin sem
tengir okkur við fastalandið.
Ami segir það ákvörðun núverandi
rfkisstjómar að bjóða út feijurekstur
og báðir em þeir sammála um að
Eyjamenn hafi ekkert að óttast, allir
sem tengjast Heijólfi haldi vinnu
sinni og þjónustan verði sú sama.
Við Áma segi ég bara, ríkisstjóm
sem ákveður svona nokkuð án tillits
til aðstæðna er vond rfkisstjóm. Og
hvað atvinnuöryggi fólksins áhrærir
þá skulum við spyija að leikslokum,
ég er ekki viss um að fólkinu á
Herjólfi sé eins rótt og ykkur. Sama
gildir um þjónustuna, til hvaða ráða
verður gripið af hálfu Samskips
þegar í ljós kemur að dæmið gengur
ekki upp? Vegagerðin hefur sýnt að
þar á bæ hafa menn ekki mikinn
Þið ágætu menn, sem
báðir eru búsettir í
Reykjavík, verðið að
koma auga á að
Herjólfur er ekki
rútubíll sem fólk getur
valið um samhliða
einkabílnum, hann er
þjóðleiðin sem tengir
okkur við fastalandið.
skilning á sérstöðu Vestmannaeyja.
Það má því búast við að Samskip
mæti þar skilningi þegar kemur að
því að benda á þætti í rekstrinum sem
ekki standa undir sér. Má til dæmis
benda á laugardagsferðir yfir vetrar-
tímann sem eru ekki mikið notaðar.
Bæjarstjóm Vestmannaeyja er
umsagnaraðili um þessi atriði en
hvað má hún sín?
Þá er ég viss um að eigendum
flutningsíyrirtækja í Vestmannaeyja,
annarra en Flutningamiðstöðvar
Vestmannaeyja, sem er í eigu
Samskips, er ekki rótt. Samskip
verður með yfirburðastöðu í öllum
flutningum á sjó til og frá Vest-
mannaeyjum frá og með næstu
áramótum sem þýðir bara eitt, þeir
litlu munu týna tölunni.
Hér hef ég nefnt nokkur atriði um
þennan hörmungargjöming, að taka
forræði á rekstri Hetjólfs úr höndum
heimamanna. Um leið er verið að
taka af okkur eina ríkisfyrirtækið
sem er þvert á það sem er að gerast í
öðrum kjördæmum. Lúðvík segir að
ég líki þingmönnum kjördæmisins
við jólasveina og við því er ekkert að
segja. Landsyggðin hefur átt undir
högg að sækja undanfarið en það er
greinilegt að verið er að taka
pólitískar ákvarðanir um hvaða staðir
skuli lifa og hverjir ekki. Það er
greinilegt að Vestmannaeyjar eru
ekki ofarlega á þeim lista ef taka á
mið af Heijólfsmálinu. Og það er
sama hvað þið reynið að gera mig
tortryggilegan, strákar, þið verðið að
sætta ykkur við að þið stóðuð ykkur
ekki í þessu máli. Því miður.
Ómar Garðarsson
ritstjóri
X